Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 2
8 ___________________________________________reei sham .i auoAauTaöq QiGAjewuoflOM ~2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 Sjónvarpið: Dregið úr útsending- um Sky eða hætt Stöð 2 tekur ákvörðun um áframhald Kópavogi Loðnuhrognafrysting hafin: Óvenjuleg flugvél millilendir ““ Flugvél af gerðinni Beechcraft Starship millilenti á Reykjavíkurflugvelli í gær á leið til Danmerkur, en vélin er átta sæta og af nýrri gerð, sem er all frábrugðin hefðbundnum flugvélum. Ekkert stél er á vélinni og er hæðarstýrið framan á nefi hennar, en hreyflarnir snúa aftur. útsendingar frá CNN eftir helgina „EG BYST við að mjög fljótt verði dregið verulega úr útsendingum Sky eða þeim hætt,“ sagði Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri er hann var spurður hvert yrði framhald útsendinga Sjónvarpsins á Sky fréttastöðinni nú þegar stríðinu við Persaflóa er lokið. Páll Magnússon sjónvarpssfjóri Stöðvar 2 segir að ákvörðun varðandi útsendingar frá CNN verði tekin eftir helgina, en hann sagði ljóst. útvarpsráðs í dag, föstudag. Bjóst hann við að dregið yrði verulega úr útsendingunum á næstunni eða þeim hætt. Páll Magnússon sagðist ekki taka endanlega afstöðu varðandi fram- hald útsendinga frá CNN fýrr en eftir næstu helgi. „Þetta breytir auðvitað stöðunni og við erum ein- mitt að ræða um þetta núna, en það verða örugglega breytingar." að þeim yrði örugglega breytt. Markús Öm Antonsson sagði að ekki væri búið að ákveða framhald- ið. Það væri til umfjöllunar hjá stofnuninni og yrði rætt á fundi Fjórir árekstrarí HARÐUR árekstur tveggja fólksbifreiða varð á Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöldi. Engin slys urðu á fólki en bílarnir eru mikið skemmdir eftir árekstur- Japanir vilja kaupa fjögur mn. Þrír aðrir árekstrar urðu í um- ferðinni í Kópavogi í gær. Tveir árekstrar urðu á sama stað, á gatnamótum Álfhólsvegar, Álfa- heiði og Þverbrekku. Þá varð árekstur á Digranesvegi í gærdag. Enginn slasaðist í þessum óhöppum en talsverðar skemmdir urðu á bif- reiðunum, samkvæmt upplýsingum lögreglu. þús. tonn af loðnuhrognum 24 þúsund tonn af loðnu mælast við Dyrhólaey EFTIR var að veiða um 55 þúsund tonn síðdegis í gær af 175 þúsund tonna loðnukvóta. Miðað við 5-6% Framboð fijálslyndra kjósenda: Þj óðarflokkurinn hafnar samvinnu STJÓRN Þjóðarflokksins hefur hafnað erindi Borgaraflokks, og fleiri aðila um sameiginlegt framboð til Alþingis í nafni samtaka frjáls- lyndra kjósenda. Að sögn Garðars J. Guðmundssonar, kosningastjóra Borgaraflokksins í Reykjavík, er reiknað með að framboð verði tilbúin í næstu viku, „en ég býst ekki við að framboðslisti verði birtur fyrr en að að loknum landsfundi SjáIfstæðisflokksins,“ sagði hann. Aðspurður um ástæður þess sagði Morgunblaðið að hann hefði ekki Garðar að miklar væringar væru nú í Sjálfstæðisflokknum. Var hann þá spurður hvort aðstandendur fram- boðsins væru þá að reikna með stuðningi frá sjálfstæðsmönnum og sagði hann það hugsanlegt. Garðar staðfesti að Jón Magnús- son lögmaður væri einn þeirra sem rætt hafi verið við um þátttöku í fyrirhuguðu framboði þessara aðila í Reykjavík. Hann sagði þó að ekki hefði verið rætt um ákveðin fram- boðssæti í þessu sambandi, undirbún- ingur væri ekki kominn á það stig. Jón Magnússon sagði í samtali við verið beðinn um að taka sæti á fram- boðslistanum. „Það hefur ekkert ver- ið talað við mig þannig beint. Það eru ákveðnir einstaklingar sem hafa verið að kvaka eitthvað í eyrun á mér en ekkert ákveðið," sagði Jón. Vildi hann engu svara um hvort hann gæfi kost á sér til þátttöku í framboð- inu. „Það er sjálfsagt alltaf ástæða til að gera einhvern usla í þessu aft- urhaldssama framsóknarþjóðfélagi, sem allir flokkar styðja, en spuming- in er hvar farvegurinn liggur og hvar rétt sé að láta niður bera,“ sagði hann. meðalnýtingu fást um 3 þúsund tonn af hrognum úr þessum 55 þúsund tonnum. Fyrir 3 þúsund tonn af loðnuhrognum fást um 170 milljónir króna, miðað við verðið, sem Norðmenn vilja að Japanir greiði. Verðið fer hins vegar eftir því hversu mikið framleitt verður af loðnuhrognum hér og í Noregi. Hugsanlegt er að Norðmenn sjó- frysti loðnuhrogn og ekki er hægt að setja kvóta á þá frystingu, eins og landfrystingu í Noregi. Loðnuhrognafrysting hófst hjá Miðnesi hf. í Keflavík og Brynjólfi hf. í Njarðvík í gær en þá var einnig búið að landa loðnu til hrognatöku í Vestmannaeyjum og Grindavík. Þá var búist við að tekið yrði á móti loðnu til hrognatöku í Reykjavík og á Ákranesi, Eskifirði og Neskaupstað í nótt eða í dag. Einnig verður reynt að frysta loðnuhrogn á Reyðarfírði og Þórehöfn. Norðmenn hafa boðist til að selja Japönum loðnuhrogn fýrir 135 jen kílóið, eða 56,70 íslenskar krónurT og segjast geta framleitt 5 þúsund tonn á þessari vertíð. Japanir vilja kaupa allt að 4 þúsund tonn af loðnu- hrognum héðan en markaður er fyr- ir um 6 þúsund tonn í Japan, að sögn Gylfa Þórs Magnússonar fram- kvæmdastjóra hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Gylfi Þór segir að Japanir vilji kaupa af okkur 800 tonn af heil- frystri loðnu fyrir sama verð í jenum og í fyrra, eða um 100 jena (42ja króna) meðalverð fyrir kílóið. Fyrir 800 tonn fengjust því um 34 milljón- ir króna, Hins vegar sé einungis búið að heilfrysta rúm 100 tonn og áhugi á heilfrystingu minnki þegar loðnuhrognafrysting hefjist. Loðna veiddist í Breiðafírði í gær og rannsóknaskipið Árni Friðriksson mældi 24 þúsund tonn af loðnu við Dyrhólaey. Sveinn Sveinbjömsson leiðangursstjóri segir að þessi mæl- ing breyti engu. Hann hafí mælt 350 þúsund tonn í Faxaflóa, þegar búið var að veiða 110 þúsund tonn af 175 þúsund tonna kvóta. Mæld voru sam- tals 525 þúsund tonn en fískifræð- ingar vilja að 400 þúsund tonn fái að hrygna. Sveinn segir að loðnan við Dyr- hólaey sé smá hrygningarloðna og því að öllum líkindum úr 50 þúsund tonna loðnugöngunni, sem rann- sóknaskipið Bjarni Sæmundsson mældi við Hvalbak. Þau 25 þúsund tonn, sem Árni Friðriksson mældi við Stokksnes, séu trúlega komin inn á Breiðafjörð. Árni Friðriksson var í Meðallandsbug síðdegis í gær á austurleið en skipið verður trúlega í loðnuleit til föstudags í næstu viku. Sjávarborg GK landaði loðnu hjá Síldarverksmiðjum ríkisins (SR) á Raufarhöfn í gær. Það er í fyrsta skipti, sem loðnu er landað á Raufar- höfn á þessu ári en þar hafa verið boðnar 4.600 krónur fyrir tonnið. Verð á loðnumjöli hefur lækkað um 7%, úr 300 sterlingspundum fyr- ir tonnið í 280 pund, eða um 30 þúsund krónur, að sögn Jóns Reynis Magnússonar framkvæmdastjóra SR. Hann segir að verð á mjöli hafi hins vegar haldist í 340-350 banda- ríkjadölum, eða um 19 þúsund krón- um, fyrir tonnið. „Það gengur ekki beint illa að selja mjöl og lýsi núna en við fáum ekki það verð, sem við viljum fyrir þessar afurðir," segir Jón Reynir. Hátíð í Ólafsfirði: Múlagöngin form- lega opnuð í dag Nauðasamningsumleitanir KRON: Kröfuhafar fái greidd 25% af um 171 milljóna skuld Á FUNDI sem haldinn verður í skiptarétti Reykjavíkur næstkom- andi miðvikudag munu á sjötta tug aðila sem eiga útistandandi almennar kröfur hjá KRON, Kaupfélagi Reylyavíkur og nágrenn- is, taka afstöðu til þess hvort þeir fallist á frumvarp til nauðasamn- inga og gefi KRON eftir 75% af 171,7 milljóna króna kröfum. Til að nauðasamningar komist á verður frumvarpið að hljóta sam- þykki þriggja fjórðu hluta kröfuhafanna, sem eigi að minnsta kosti þrjá fjórðu kröfufjárhæðarinnar. Samkvæmt frumvarpi að nauðasamningi sem stjórn KRON lagði fram í skiptarétti í 'desemb- ermánuði býðst félagið til að greiða 25% af ótryggðum kröfum innan fímm mánaða. Um fullnað- argreiðslu verður að ræða og er miðað við stöðu krafna þann 28. nóvember sl. Stjórnin telur sér ekki unnt að veita neina tryggingu fyrir efndum samningsins. Meðal þeirra sem lýst höfðu stærstu kröfunum áður en innköll- unarfrestur rann út voru Lands- banki íslands sem gerði 22,8 millj- óna króna kröfu vegna yfirdráttar á hlaupareikningi, Gjaldheimtan í Reykjavík gerði tæplega 28,2 milljóna króna kröfu, skuld við Verslunardeild SIS nam 41,7 milljónum og 10,4 milljóna króna krafa barst frá Búvörudeild SÍS. MÚLAGÖNGIN verða formlega opnuð í dag og verða hátíðarhöld í Ólafsfirði í tilefni dagsins. Forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- dóttir, verður viðstödd opnunina og verður hátíðardagskrá allan daginn og fram eftir nóttu. Óskar Þór Sigurbjörnsson, for- seti’ bæjarstjórnar, sagði mikla gleði vera ríkjandi þar. „Við ætlum að gera þennan dag eftirminnileg- an. Forseti Islands heiðrar okkur með nærveru sinni og ýmsir aðrir gestir verða viðstaddir. Hátíðin hefst kl. 13 með skrúðgöngu frá bænum og að göngunum. Þar verður stutt vígsluathöfn og síðan kaffiboð í félagsheimilinu. Forset- inn flytur þar ávarp og létt tónlist verður leikinn á meðan kaffiveit- ingar verða bornar fram. Samsýn- ing nokkurra Ólafsfírðinga verður í félagsheimilinu og teikningar barna verða sýndar í barnaskólan- um. Um kvöldið verður síðan tón- listardagskrá þar sem Öm Magn- ússon píanóleikari leikur og dans- leikur verður síðan fram eftir nóttu.“ Óskar sagðist búast við al- mennri þátttöku bæjarbúa í há- tíðarhöldunum og sagði að flest fyrirtæki ætluðu að gefa frí frá hádegi. Hafist var handa við göngin í október 1988 og 19. desember í fyrra voru þau tekin óformlega í notkun. Síðustu daga hefur verið unnið við að leggja síðustu hönd á göngin og að sögn Óskars hafa þau reynst vel síðan þau voru opn- uð. „Göngin breyta geysilega miklu fyrir okkur. Við erum búin að reyna það nú þegar þrátt fyrir gott tíðarfar í vetur. Mesta breyt- ingin er að geta farið ferða okkar áhyggjulaus miðað við það sem áður var,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.