Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 4
, ,FQS-%y D^GUR ,1 - AfiZ. ,1991
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 1. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Um 200 km suðaustur af Hornafirði er 1000 mb
iægð sem þokast norður. Um 900 km suður af Hvarfi á Græniandi
er víðáttumikil 968 mb lægð sem hreyfist mjög hægt norðaustur.
SPÁ: Þykknar upp með vaxandi suðaustan- og austanátt um landið
sunnanvert en norðaustanlands verður hægvíðri og nokkuð bjart
veður fram eftir degi. Allhvasst og slydda eða rigning við suður-
ströndina þegar liður á kvöldið. Hlýnandi, fyrst sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðaustan- og austan-
átt. Slydda og síðar rigning um landið sunnanvert og súld við aust-
urströndina. Skýjað en úrkomulítið norðanlands. Hiti 2 til 6 stig,
hlýjast suðaustanlands.
10 Hitastig:
10 gráður á Celslus
\7 Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
-Q ► Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
Xm ▼ *« / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 skýjaft Reykjavík 1 léttskýjaö
Bergen 1 léttskýjað
Helsinki +3 skýjaö
Kaupmannahöfn +1 alskýjað
Narssarssuaq +16 léttskýjað
Nuuk , +15 snjókoma
Ósló +2 skýjað
Stokkhólmur +2 snjókoma
Þórshöfn 5 rigning
Algarve 15 súld
Amsterdam 1 rigning
Barcelona 12 skýjað
Berlín 1 alskýjað
Chicago +1 snjóél á slð. kist.
Feneyjar 9 þokumóða
Frankfurt 2 alskýjað
Glasgow 5 mistur
Hamborg 1 alskýjað
Las Paimas 18 skýjað
London 5 þokumóða
LosAngeles 13 alskýjað
Lúxemborg 3 súld
Madríd 8 rigning
Malaga 15 alskýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal +10 léttskýjað
New York 2 léttskýjað
Orlando 14 alskýjað
París 7 skýjað
Róm 14 þrumuveður
Vín 3 mistur
Washíngton vantar
Winnipeg +14 snjókoma
Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda:
Bætur almannatrygg-
inga hækka um 2,8%
BÆTUR almannatrygginga
hækka um 2,8% í dag, 1. mars.
Akveðið var að bætur almanna-
Seðlabankinn:
Ríkisstjórn-
inni svarað
fljótlega
JÓHANNES Nordal seðlabanka-
sljóri segir að þeim tilmælum
ríkisstjórnarinnar til Seðlabanka
Islands að ná fram lækkun raun-
vaxta með beinum aðgerðum eða
fyrirmælum verði svarað fljót-
lega.
I bréfi viðskiptaráðherra til Seðla-
bankans var bent á ákveðnar leiðir
sem kannaðar yrðu til að ná fram
lækkun raunvaxta. Jóhannes Nordal
sagðist ekki vilja tjá sig um erindi
ríkisstjómarinnar að svo stöddu.
„Við höfum þegar sent ríkisstjóminni
skýrslu um vaxtamálið, en það var
gert í lok síðasta mánaðar. “
trygginga tækju sömu hækkun
og laun á almenna vinnumarkað-
inum um mánaðamótin og er þá
tekið tillit til sérstaks viðskip-
takjarabata sem gefur 0,3%
hækkun umfram samninga.
Að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur,
deildarstjóra í Tryggingastofnun
ríkisins, var í fyrstu talið að vinna
vegna greiðslna tryggingabóta væri
of langt komin til að hægt hefði
verið að greiða út þessa 0,3% við-
bótarhækkun um þessi mánaðamót.
„Það var hins vegar ákveðið á fundi
á miðvikudagskvöld að láta þessa
viðbótarhækkun koma til fram-
kvæmda strax með öllum ráðum,
þar sem seinkun greiðslunnar hefði
getað valdið ruglingi. Það var lögð
mikil áhersla á að afgreiða þesa
hækkun nú,“ sagði Ásta.
Eftir hækkunina nemur full
tekjutrygging 21.746 kr. á mánuði,
heimilisuppbót 7.392 kr., sérstök
heimilisuppbót 5.084 kr., grunn-
lífeyrir 11. 819 kr., meðlag 7.239
kr., fæðingarstyrkur 24.053 kr. og
fæðingardagpeningar á dag eru
1.008 kr. eftir hækkunina í dag.
Emi kosturinn að
byg-gja á tillögum
sjömannanefndar
STJÓRN Landssamtaka sauðfjárbænda telur að ekki sé annarra
kosta völ en að gera nýjan búvörusamning sem byggi í flestum atrið-
um á þeim tillögum sem fram koma í áfangaskýrslu sjömannanefnd-
ar. Stjórnin leggur áherslu á að leitað sé leiða til að aðstoða bænd-
ur við þá framleiðniaukningu sem að er stefnt, en að sögn Jóhannes-
ar Kristjánssonar, formanns LS, er gerð sú krafa að samsvarandi
hagræðing verði við slátrun og sðlu afurðanna, og sama krafa verði
gerð um lækkun kostnaðar á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og
sölumeðferðar sauðfjárafurða.
Stjórn Landssamtaka sauðfjár-
bænda fjallaði um áfangaskýrslu
sjömannanefndar og drög að nýjum
búvörusamningi á þriðjudaginn, og
í samþykkt stjórnarinnar er lögð
áhersla á að aðlögun sauðfjárfram-
leiðslunnar að innanlandsmarkaði
náist að mestu eða öllu leyti með
óþvinguðum uppkaupum fram-
leiðsluréttar og öllum ráðum verði
beitt til að komast hjá þvinguðum
uppkaupum. Stjórnin viðurkennir
kosti þess að láta. nauðsynlega
fækkun ganga yfir sem fyrst, en
telur eðlilegt að inn í búvörusamn-
ing komi ákvæði, sem takmarki
möguleika þeirra sem lítið eða ekk-
ert beitiland hafa, og þar sem hætta
sé á ofnýtingu lands verði sett tak-
mörk á stækkun búa. Þá verði að
gera þá kröfu að þeir sem kaupa
eða taka á leigu greiðslumörk geri
grein fyrir að þeir hafí nægjanlegt
beitiland.
í samþykktinni segir ennfremur
að tryggja þurfi að bændur geti
haft áhrif á að auka sölu sauðfjár-
afurða, til dæmis með samráðs-
nefnd fulltrúa bænda, afurðastöðva
og annarra þeirra er annast með-
ferð og sölu kindakjöts. Lögð verði
áhersla á að greíða framleiðendum
í samræmi við verðmæti innleggs,
og mismunun eftir flokkum raskist
ekki frá því sem nú er. Þá komi inn
ákvæði í búvörusamning þess efnis
að afurðastöðvar skili til bænda
þeim fjármunum sem þær fá til að
greiða afurðir með.
Þá áréttar stjóm LS þá stefnu
samtakanna að ekki skuli mismuna
bændum efttir búsetu eða öðru hlið-
stæðu, en vilji ríkisvaldið styrkja-
bændur til búsetu á einstökum
svæðum, eða þá sem búa við ein-
hveijar sérstakar aðstæður, skuli
framlögum til þess haldið aðgreind-
um frá framlögum vegna búvöru-
samnings.
Nokkuð er af
Heklu dregið
UNDANFARNA daga hefur
heldur dregið af Heklu. Gos er
þó enn í fjallinu en hraunflæði
hefur minnkað um þriðjung
siðustu daga.
Gos var í Heklu í gær en nokkru
minna en undanfarna daga. Jarð-
vísindamenn mældu hraunárnar á
sunnudag og kom þá í ljós að árnar
eru þrjár, en voru fímm fyrir viku
og hraunflæðið hefur minnkað um
þriðjung frá því síðustu mælingar
voru gerðar.
Kristín Pétursdóttir, Björn Jakobsson, Brynjólfur Stefánsson, Hallgrímur Þórmarsson og Ögmundur
Jónasson.
Ovenjulegt landafræðinám
og krakkar sem lítinn áhuga hafa
haft á náminu fengu mörg níu eða
tíu í þessum prófum," sagði Jóna
Sveinsdóttir kennari í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Guðnýjar Einarsdóttur
nemanda í tólf ára bekk eru krakk-
arnir mjög ánægðir með þetta form
landafræðikennslunnar.
„Þetta er búið að vera mjög gam-
an og við erum búin að læra miklu
meira í landafræði heldur én í venju-
legri kennslu. Við byijuðum á því
í hópnum að tala saman um landið
sem við áttum að sjá um og bjugg-
um síðan til bæklinga. í gær opnuð-
um við svo ferðaskrifstofurnar og
höfum verið að kaupa og selja ferð-
ir í dag og í gær,“ sagði Guðný í
samtali við Morgunblaðið.
ÞAÐ iðaði allt af lífi og fjöri í börn í skólanum höfðu þá komið
Melaskólanum í gær þegar blaða- á laggirnar „ferðaskrifstofum"
mann og ljósmyndara Morgun- og kepptust við að kaupa og selja
blaðsins bar að garði, en tólf ára ferðir til hinna ýmsu landa. Um
var að ræða þátt í landafræði-
námi tólf ára barna í skólanum.
„Við tókum upp á því fyrir tveim-
ur mánuðum að kenna bömunum
landafræðina með þessum hætti og
það hefur gefist mjög vel. Við skipt-
um þeim í hópa og hver hópur
kynnti sér tiltekið 'land. Þau bjuggu
síðan til bæklinga um landið, heim-
sóttu ferðaskrifstofur og settu svo
á laggirnar sínar eigin ferðaskrif-
stofur hér í skólanum . Auk þess
voru próf í hverri viku í einu
ákveðnu landi svo þau lærðu um
öll löndin. Þetta kom mjög vel út