Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 16

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 Marsmánuður gegn meini - krabbameini eftir Almar Grímsson Á liðnu ári 1990 stóð Krabba- meinsfélag íslands fyrir þjóðarátaki gegn krabbameini. Þetta var í þriðja sinn sem efnt var til sérstaks þjóð- arátaks gegn krabbameini. Árið 1982 tók fólkið í landinu svo vel undir óskir félagsins um stuðning að unnt var að festa kaup á og inn- rétta hús Krabbameinsfélags ís- lands, Skógarhlíð 8, sem síðan hefur verið nefnt „Húsið sem þjóðin gaf“. Árið 1986 var nýtt þjóðarátak gegn krabbameini með höfuðáherslu á auknar rannsóknir á orsökum krabbameins og markvissar aðgerð- ir til stuðnings þeim sem verða fyr- ir barðinu á krabbameini. Krabba- meinsfélaginu var þá sem endranær forkunnar vel tekið og tókst með stuðningi þjóðarinnar að stofna rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði og setja á fót tilrauna- verkefni sem nefnt er Heimahlynn- ing og miðar að því að styðja krabb- ameinssjúka þannig að þeir geti svo lengi sem unnt er lifað eðlilegu lífi og búið í heimahúsum. Jafnframt því var stórefld þjónusta við upplýs- ingar og ráðgjöf. Árið 1990 var ákveðið að helga marsmánuð sérstaklega baráttunni við krabbamein og var hann nefndur „marsmánuður gegn meini — krabb- ameini“. I framhaldi af því var efnt til þriðja þjóðarátaks, eins og áður segir. Þá leitaði Krabbameinsfélag íslands stuðnings þjóðarinnar við að auka fræðslu um krabbamein, að efla grunnrannsóknir um orsakir krabbameina og að efla stuðning við þá sem verða fyrir barðinu á krabbameini. Hvað fræðsluna snertir var mikil áhersla lögð á það að gefín yrði út bæklingur um árvekni sem beindist fyrst og fremst að fullorðnum karl- mönnum á íslandi. Ástæða þessa var sú að tekist hefur með öflugu og markvissu leitarstarfí að ná mjög miklum árangri í að greina legháls- krabbamein á forstigum og brjósta- krabbamein á byijunarstigum. Á EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt samhljóða á fundi skól- amálaráðs Kennarasambands Is- lands 25. janúar sl. „Vígbúnaðar- og styijaldar- fregnir berast í æ ríkari mæli inn á heimilin með fjölmiðlun. Þessi fréttflutningur hefur oft skaðlegar afleiðingar á tilfinningalíf og geð- heilsu óharðnaðra barna og ungl- inga. Sjónvarp er þar áhrifaríkast. Skólamálaráð Kennarasambands íslands varar alvarlega við þessari hættu. Það hvetur því foreldra, MARS MÁNUÐUR GEGN MEINI - KRABBAMEINI Krabbameinsfélag íslands hinn bóginn hefur ekki verið unnt að koma á skipulagðri hópleit að algengustu krabbameinum hjá körl- um, svo sem blöðruhálskirtils- og ristilkrabbameinum. Krabbameinsfélag íslands valdi sér einkunnarorðin „Til sigurs — gegn krabbameini" í átakinu 1990. Þetta eru stór orð en fiestir þeir sem starfa daglega í baráttunni við krabbamein voru sammála um það að eygja mætti mikinn árangur í starfi með enn efldum forvamarað- gerðum, auknum árangri í lækning- um og ekki síst með markvissri endurhæfíngu og stuðningi við krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra. Viðtökur þjóðarinnar við beiðni Krabbameinsfélags íslands um stuðning í þjóðarátaki 1990 voru með eindæmum góðar og söfnuðust rúmlega 53 milljónir króna. Að söfn- un lokinni ákvað stjórn Krabba- meinsfélags íslands að framvegis yrði þjóðinni árlega kynnt í mars- mánuði hvernig miði í baráttunni við krabbamein og hvernig staðið er að því að efna þau fyrirheit sem gefin voru í fjársöfnun. Krabbameinsfélag íslands 40 ára Á þessu ári eru 40 ár síðan Krabbameinsfélag Islands var stofnað. Það var 27. júní 1951 að fulltrúar frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, Krabbavörn í Vest- mannaeyjum og Krabbameinsfélagi Hafnaríjarðar komu saman á fundi í Rannsóknastofu Háskólans og skóla, fjölmiðla og stjórnvöld til að efla hvers konar friðaruppeldi, sem hjálpi börnum og heimilum að vinna gegn spillandi áhrifum linnulausra frásagna og mynda af skemmdar- verkum og styijöldum, sem tortíma í æ ríkara mæli lífi og verðmætum. Skólamálaráð KÍ leggur jafn- framt áherslu á að skólum verði gert kleift að stórefla fræðslu um virðingu fyrir öllu lífí og nauðsyn friðsamlegra samskipta allra manna og þjóða. Séð verði fyrir handhægu námsefni til kennslu um friðarmál og verndun náttúrunnar." ákváðu að stofna til landssamtaka í baráttunni við krabbamein. Þessi þijú félög sem stóðu að stofnun Krabbameinsfélags íslands höfðu öll hafíð starf sitt árið 1949 og voru þar á ferð áhugasamir, bjartsýnir og framsýnir menn og konur sem ákváðu að ráðast til atlögu við krabbamein eða eins og einn forvíg- ismannanna orðaði það „fá aðstoð allra hugsandi manna í þessari bar- áttu við vonleysi, bölsýni og upp- gjöf“. Ekki stóð á stuðningi almennings fremur en endranær. Stofnuð voru félög í byggðarlögum víða um land og síðustu árin hefur einnig verið stofnað til sérstakra samtaka sem vinna að stuðningi við krabbameins- sjúklinga. Nú eru fimm svonefndir stuðningshópar starfandi sem eru aðilar að Krabbameinsfélagi íslands en það eru Samhjálp kvenna stofnuð 1979, Stómasamtökin stofnuð 1980, Ný rödd stofnuð 1980, Samhjálp foreldra stofnuð 1983 og Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga og aðstandenda, stofnuð 1987. Þessir stuðningshópar vinna ómetanlegt starf, bæði í forvörnum og stuðningi við einstaklinga sem orðið hafa fyr- ir barðinu á krabbameini. Krabba- meinsfélögin hafa einnig unnið ómetanlegt starf í skipulagningu leitarstarfs um allt land og þijú aðildarfélaganna hafa launaða starfsmenn á sínum vegum. Krabb- ameinsfélag Reykjavíkur hefur frá stofnun þess unnið markvisst fræðslustarf, einkum í reykinga- vörnum og starfar fyrir hönd heild- arsamtakanna að fræðslu í skólum landsins um skaðsemi reykinga. Þar hefur náðst mikilsverður árangur. Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur um nokkurra ára skeið unnið markvisst starf á sínu svæði í fræðslu og forvörnum og stuðningi við krabbameinssjúklinga og á síðasta ári sýndi Krabbameins- félag Austíjarða þann dug að ráða sér sérstakan starfsmann til að sinna fræðslu-, forvarnar- og stuðn- ingsverkefnum á starfsvæði þess. Félagsmenn í krabbameinsfélögum víðs vegar um landið eru nú um 12 þúsund og sýnir það hvað best hver hugur landsmanna er. Krabbameinsleit Frumkvöðlar krabbameinssam- takanna áttu sér þann draum að heija skipulega leit að krabbameini þannig að það mætti greinast á frumstigum og stórauka líkur á bata. Arið 1964 var hafin leit að krabbameini í ieghálsi og forstigum þess. Áður hafði Krabbameinsfélag Reykjavíkur hafíð rekstur á al- mennri krabbameinsleitarstöð sem Krabbameinsfélag íslands tók við árið 1958. Þetta leitarstarf Krabba- meinsfélagsins vakti strax áhuga hér innanlands og ekki síður at- hygli erlendis og með árunum kom árangur í ljós. Hægt var að sýna fram á að greining ieghálskrabba- meins á forstigum með hóprannsókn bæri mjög mikinn árangur og var Almar Grímsson „Krabbameinsfélag ís- lands mun á vordögum senda öllum fullorðnum karlmönnum bækling til aðstoðar þeim til að sýna árvekni um fyrstu einkenni.“ fækkun dauðsfalla að sjálfsögðu mikilsverðasta sönnun þess. Árið 1984 staðfesti Alþjóða heilbrigðis- málastofnunin (WHO) þetta með sérstakri viðurkenningu til Krabba- meinsfélags íslands og íjárstuðningi til þess að efla innköllunarkerfí í leitarstöðinni. Árið 1985 var opnuð röntgendeild í kjölfar þess að félaginu höfðu ver- ið gefin tvö röntgentæki til mynda- töku af bijóstum. Þá hafði um nok- kurra ára skeið verið mikil umræða um það hvort fýsilegt væri að hefja hópleit meðal kvenna á íslandi að bijóstakrabbameini. Fljótt náðist almenn samstaða um að það væri ekki einungis fýsilegt heldur nauð- synlegt og sýndu heilbrigðisyfírvöld það í verki með því að staðfesta samning við Krabbameinsfélag ís- lands um skipulega leit að krabba- meini í bijóstum. Sá samningur var liður í heildarsamningi þar sem Krabbameinsfélagi íslands var falið að sjá um skipulega leit að krabba- meini í leghálsi og bijóstum. Þessi samningur bar það einnig með sér að auðveldara varð fyrir konur að þiggja tilboð um slíka skoðun, ekki síst fjárhagslega. Með þessum samningi var formlega viðurkennt af hálfu heilbrigðisyfirvalda að skip- ulagi og framkvæmd þessa þáttar í heilbrigðisþjónustu væri best kom- ið fyrir hjá Krabbameinsfélagi ís- lands. Náið samstarf við heilsugæsl- ustöðvar og sérfræðinga er þó grundvallaratriði til að sá árangur náist sem raun ber vitni og er ánægjulegt að skýra frá því að mæting kvenna í krabbameinsleit hefur stöðugt aukist undanfarin ár og var í árslok 1990 miðað við þriggja ára mætingu 81 af hundraði. Rannsóknir Árið 1954 hóf Krabbameinsfélag íslands skrásetningu krabbameina, samkvæmt dánarvottorðum, upplýs- ingum frá rannsóknastofum og sjúkrahúsum og hófst þar með rekstur Krabbameinsskrár á ís- landi. Með þeirri skrá var stofnað til ómetanlegs upplýsingabanka um faraldsfræði krabbameina. Vegna smæðar þjóðarinnar og góðrar skráningar er ísland sérlega vel í stakk búið til faraldsfræðilegra rannsókna og hefur þessi aðstaða lagt grunn að merkilegum faralds- fræðilegum rannsóknum sem hafa vakið athygli erlendis. í kjölfar þjóðarátaks 1986 var félaginu geit kleift að ráðast í það stórvirki að stofna rannsóknastofu í sameinda- og frumulíffræði. Þessi rannsóknastofa var formlega tekin í notkun í marsmánuði 1988 og starf hennar tileinkað Vigdísi Finnboga- dóttur forseta Islands, sem er vernd- ari Krabbameinsfélags íslands. Rannsóknastofunni er ætlað mikið hlutverk í rannsóknum á orsökum krabbameina. VViðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals íValhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum í vetur frá kl. 10-12. 'ÆmmM. v/ ML Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum ÆT og ábendingum. Allir borgarbúar velkomnir. jBkp'- >■ '■' *&! SyflBgpjp Laugardaginn 2. mars verða til viðtals Guðrún Zoéga, formaður félagsmálaráðs og í stjórn veitu- stofnana, og Guðmundur Hallvarðsson, formaður hafnarstjórnar og í byggingarnefnd aldraðra. V v> m m V' 'y’ y V' V V ^ ^ ^ KSÍ varar við stríðsfréttum Aðstoð við sjúklinga og aðstandendur í þjóðarátaki 1986 var einnig lögð sérstök áhersla á að bæta aðstöðu og efla stuðning við þá sem verða fyrir barðinu á krabbameini. Stofn- að var til Heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins sem miðar að aðstoð við sjúklinga og aðstandendur í heimahúsum og að auka upplýsing- ar og ráðgjöf um krabbamein. Jafn- framt réðst Krabbameinsfélagið í það með stuðningi Rauða kross ís- lands og kvenfélagsins Hringsins að kaupa íbúð í nágrenni Landspítal- ans til að hýsa aðstandendur krabb- ameinssjúkra barna af landsbyggð- inni meðan á meðferð stæði. Þessi íbúð hefur komið í góðar þarfir og í þjóðarátaki 1990 var lögð áhersla á að slík aðstaða yrði í boði fyrir fleiri. Um þessar mundir eru Krabbameinsfélag Islands og Rauði krossinn að festa kaup á íbúð til þess að mæta brýnni þörf aðstand- enda krabbameinssjúklinga af landsbyggðinni. Þá er unnið mark- visst að því að tryggja heimahlynn- ingu krabbameinssjúklinga og að- standenda sess í heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar. Fræðsla og forvarnir Hornsteinn í starfsemi krabba- meinssamtakanna um 40 ára skeið hefur verið að stuðla að aukinni fræðslu og menntun, bæði lærðra og leikra. Fræðsla um reykinga- varnir hefur verið markviss um ára- tuga skeið enda eru reykingar helsti áhættuvaldur um krabbamein og hjartasjúkdóma. Félagið hefur einn- ig í fræðslustarfi sínu lagt mikla áherslu á heilbrigðar lífsvenjur, þ. á m. mataræði og nú síðustu árin hefur félagið staðið árlega fyr- ir svonefndu heilsuhlaupi Krabba- meinsfélagsins. Félagið hefur gefið út margvíslegt fræðsluefni og má þar nefna Krabbameinsbókina sem gefin var út fyrir rúmu ári. Auk þess að leggja áherslu á heilbrigðar lífsvenjur leggur Krabb- ameinsfélag íslands nú áherslu á, í átaki gegn krabbameini í marsmán- uði, að Islendingar sýni árvekni um fyrstu einkenni krabbameins. Okkur íslendingum öllum til farsældar er heilbrigðisþjónustan hér með því besta sem þekkist og öflugur stuðn- ingur er meðal lækna, hjúkruna- rfræðinga og annarra heilbrigðis- starfsmanna um forvarnir. Enginn skyldi setja fyrir sig að leita læknis ef einhver grunur er um sjýkdóm og ganga þá léttari á braut þegar sannast að ekkert er að og einnig gleðjast yfir að hafa verið árvökull um einkenni sem leiða til því betri lækninga því fyrr sem þau greinast. Krabbameinsfélag íslands mun á vordögum senda öllum fullorðnum karlmönnum bækling til aðstoðar þeim til að sýna árvekni um fyrstu einkenni. Þótt þessi bæklingur sé sendur karlmönnum er hann að sjálfsögðu ætlaður öllum íslenskum fjölskyldum til stuðnings. Ástæða þess að hann er sendur eingöngu karlmönnum er að með því vill Krabbameinsfélag íslands sýna þeim fram á að þótt ekki sé hægt að bjóða þeim hópleit eins og kon- um, hefur Krabbameinsfélagið að leiðarljósi stuðning við alla þjóðfé- lagshópa í baráttunni við krabba- mein. Lokaorð Um leið og ég sendi lesendum þessarar greinar góðar óskir leyfi ég mér að vitna til_ orða verndara Krabbameinsfélags íslands, Vigdís- ar Finnbogadóttur forseta íslands, sem hún mælti í sjónvarpsþætti sem nefndur var „Átak til sigurs“ árið 1990. Forseti íslands var spurður hvernig efla mætti enn frekar starf Krabbameinsfélags íslands til sig- urs gegn krabbmeini. Forseti Is- lands sagði: „Með því að sem allra flestir geri sér ljóst að þetta getur hent okkur öll, hvern einasta mann. Ekki síst verðum við að muna að það getur hent einhvern sem okkur þykir ákaflega vænt um, og það er ennþá verra heldur en það hendi mann sjálfan." Ilöfundur cr npóteknri og formuöur Krnblmmcinsfélngs íslánds.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.