Morgunblaðið - 01.03.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. MARZ 1991
17
Það er okkar ábyrgð!
eftir Sigurð Rúnar
Sæmundsson
Börnin okkar þurfa að eiga sér
skjól, einhvern stað og manneskju
sem veitir þeim öryggi. Enginn ef-
ast um að við foreldrar erum best
til þess fallin að veita þeim þetta
skjól og öryggi. Enginn heldur því
fram að þetta hlutverk geti aðrir
tekið að sér oggegnt jafn vel. Börn-
in eru á ábyrgð okkar!
Þetta gildir um alla velferð barn-
anna og þar með heilsu þeirra.
Vissulega getum við haft áhrif á
heilsufar barna okkar á margan
hátt. Þetta á sérlega vel við um
tannheilsu þeirra. Þekktar eru að-
ferðir til að minnka til muna flesta
tannsjúkdóma og jafnvel koma al-
gerlega í veg fyrir þá. Samkvæmt
framansögðu er það skylda okkar
sem foreldra. Það er okkar
ábyrgð!
Matarvenjur bams byija að mót-
ast strax eftir fæðingu. Barn sem
elst upp við sætan mat vill hafa
mat sætan þegar okkar leiðbeinandi
hönd sleppir tökunum á matarvali
þess. Slíkt át á sætum mat skemm-
ir tennur. Það er því mikilvægt að
barnið venjist því að matur hafi
stundum annað bragð en sætt. Börn
virðast af eðlishvöt sækjast í sætt.
Það gæti hafa verið þáttur í að lifa
af í erfíðri baráttu frummannsins
fyrir lífí sínu. Nú á dögum er hins
vegar engin hætta á að barn fái
ekki næga orku úr mat sínum. Þess
vegna gætum vð þess að hóf sé á
sykurneyslu ungbarna, stjórnum
matarsmekk barnanna og færum
þeim þar með betri heilsu. Það er
okkar ábyrgð!
Sykurneysla ungbarna er oft
óhófleg. Sá ósiður að setja hunang
á snuð er á hröðu undanhaldi sem
betur fer. Slíkt skemmir tennur
ungbarna með undraverðum hraða.
Tennur bama sem sofna gjarnan
með pelann sinn eru í stórhættu,
nema í pelanum sé vatn. Notum
aðrar aðferðir til að svæfa barnið.
Margt fólk er í tíma og ótíma
að ota sælgæti að börnum og vill
með því gera þeim gott. Það er hins
vegar misskilningur að börn missi
einhvers af lífsins gæðum við að
fá ekki sælgæti. Lífsins gæði eru
merkilegri en það. Alger óþarfi er
að börn kynnist sælgæti snemma í
bernsku. Þau sakna ekki þess sem
þau vita ekki af. Leiðum bömin inn
á hófsamar brautir í sykurneyslu.
Það er okkar ábyrgð!
Rétt notkun flúors er afar árang-
ursrík aðferð til að minnka hættuna
á tannskemmdum hjá börnum okk-
ar. Flúor er steinefni sem skortur
er á í umhverfi okkar hér á ís-
landi. Þetta kemur niður á tann-
heilsu barnanna. Við getum bætt
þennan skort með flúorskolun tanna
í skólum, flúorlökkun tanna hjá
tannlækni og flúorbætingu tann-
krems. Börn okkar eiga að nota
flúortannkrem tvisvar á dag. Not-
um þetta undraefni gegn tann-
■ BÚLGARÍUFÉLA GIÐ á ís-
landi, sem ér ferða- og kynningar-
félag, heldur aðal- og skemmtifund
sunnudaginn 3. mars nk. í Korn-
hlöðunni í Torfunni, Bankastræti
2 kl. 15.00. Á dagskrá verða stutt
aðalfundarstörf og fjallað verður
um breytingarnar í Búlgaríu. Juli-
ana Grigorova hagfræðingur frá
Sofía segir frá og svarar spurning-
um. Kennt verður að matreiða búlg-
arskan rétt og kannaður áhugi fólks
á ferð til Búlgaríu í ágúst í sumar.
■ SIGLINGAFÉLAGIÐ Ýmir
heldur sunnudaginn 3. mars 1991
upp á 20 ára afmæli sitt. Félagið
var stofnað 3. mars 1971 og hefur
starfsemi verið lífleg allt frá upp-
hafí. í tilefni afmælisins er félögum
og öðrum velunnurum boðið til
kaffisamsætis í félagsheimili Ýmis
í Vesturvör 8 í Kópavogi. Húsið
verður opið á afmælisdaginn frá
kl. 14.00-17.00.........
„Börn sem alast upp með hreinan
munn, vilja í öllum tilfellum hafa
tennur sínar hreinar síðar á
lífsleiðinni."
skemmdum. Það er okkar ábyrgð!
Allir eru sammála um að börn
eigi að læra hreinlæti. Það þykir
orðið sjálfsagt í samfélagi manna
að þrífa vel sinn búk. Hreinlæti er
líka mikilvægur þáttur í þeim
árangri sem við höfum náð í að
fyrirbyggja sjúkdóma. Þetta á sér-
lega vel við um tannsjúkdóma.
Hreinar tennur skemmast ekki og
tannhold við þær sýkist ekki. Mikil-
vægt er því að þrífa vel tennur
barna okkar. Tennur þarf bæði að
bursta og hreinsa með tannþræði.
Vafasamt er að börn öðlist nægan
hreyfiþroska til að gera þetta svo
fullnægjandi sé, fyrr en við átta til
tíu ára aldur. Foreldrar ættu að
hafa tannhreinsiáhöldin í sínum
höndum sem allra lengst. Mikilvægt
er að slaka sem minnst á kröfum
um hreinlæti í munninum, minna
Sigurður Rúnar Sæmundsson
gerir til þó gleymist öðru hvoru að
þvo á bak við eyrun.
Barn sem elst upp með hreinar
tennur vill sjálft hafa hreinan munn
„Hreinar tennur
skemmast ekki og tann-
hold við þær sýkist
ekki. Mikilvægt er því
að þrífa vel tennur
barna okkar.“
síðar á lífsleiðinni. Ölum börn okkar
upp með hreinan munn.Það er
okkar ábyrgð!
Vandi og ábyrgð uppalenda er
stór. Þær eru margar hætturnar
og vítin að varast þegar ala á upp
barn. Tannheilsa barnsins er aðeins
eitt örlítið 'brot af því sem þarf að
gæta að. Þessi litli þáttur er hins
vegar vel viðráðanlegur og hér er
tækifæri fyrir okkur foreldra að
standa okkur vel í uppeldinu.
Iiöfundur er tannlæknir í
Reykjavíkogá Vopnafirði.
TRAUSTUR 0G ENDINGARGOÐUR
MITSUBISHI
□ Dieselhreyílll/bensínhreyfill
□ Eindrif/aldrif
□ Burðargeta = 1200 kg
□ Flatarmál vörupalls
= 2,8 - 3.4 m2
□ Innirými fyrir farangur
Verðfrákr. 977.280
PALLBÍLL ÁRSINS
ÍU.S.A.
PICKUPTRUCK
NYJVNG!
5 manna fólksbíll með vörupalli
Tengjanlegt aldríf
Verð kr. 1.330.440
MITSUBISHI
MOTORS
V'. '
IhIHEKL/VHF
ilLaugavegi 170-174 Sími 695500