Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 18

Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 Afmæliskveðja: Magnea Þorkels- dóttir biskupsfrú Áttatíu ár er langur tími, sem ævi manns, en skammt í sögu jarð- ar. Öldin líður og allt verður gömul saga. Nú eru ekki nema níu ár þar til nýtt ártal fær nýstárlegan svip og minnir á þau ártöl í mannkyns- sögu, sem höfðu 2000 fyrir Krist. í vorri æsku höfðu öll ártöl frá 1100 byijað á 11, 12, 13, 14, 15 og 1911 fæddist afmælisbarnið, 1. mars. Við vorum komin á 1920-30 e.Kr. o.s.frv. Og nú er bráðum komið ártalið 2000 eftir Krist. Og 2020 eftir Krist verða allir horfnir inn í sögu eða gleymsku, sem ungir voru á morgni 20. aldar, sem voru í lífi og starfí aldarinnar. Þeir sem með einhveijum atburðum hafa unnið til þess að geymast í sögu og að vísu nokkrir fleiri sem við ýmsa atburði koma. Þeir geymast þar, ef saga verður enn rituð á íslandi. Séra Sigurbjörn var vígður prest- ur að Breiðabólstað á Skógarströnd árið 1937. Þangað fóru þau hjónin með tvær ungar dætur og hófu þar búskap. Eg hygg að stundum líði fyrir sjónir herra Sigurbjöms biskups, ung og fríð og nettvaxin hárprúð kona, með síðar glóbjartar fléttur, þar sem hún bíður stundum með tvær ungar dætur við hlið sér, úti á hlaði, máske með ungan dreng á armi, bíður þess úti að þeir vinirnir komi heim, presturinn og brúni gæðingurinn hans, eftir að sést hefur til ferðar sem allt nágrennið þekkir af geystum sprettinum. Unga prestskonan úr Reykjavík var þama í ólíku umhverfí æskuáranna. Sagt hefur mér verið að frú Magnea væri hæst út úr Kvenna- skóla Reykjavíkur, eða svo minnir mig. Og víst að hún fékk hæstu verðlaun í handavinnu. En aldrei hef ég heyrt hana minnast á það. Kvennaskólinn var talinn strangur og mjög góður, þar var mikið bók- nám og handavinna. Fyrst eftir að unga stúlkan Magnea lauk námi í Kvennaskólan- um saumaði hún skautbúningá og bæði balderaði og skatteraði þá. Vann síðar á skrifstofu. Talin úr- vals skrifstofumaður. Áður en prófessor Sigurbjörn vígðist til biskups saumaði frú Magnea sinn skautbúning sjálf. Hún balderaði í treyjuna og skatter- aði í pilsið. Frú Magnea gekk alltaf í íslenskum búningi og gerði það íslandi til sóma sem biskupsfrú bæði utanlands og innan. Hún klæddist honum sérlega vel. Frú Magnea er líklegasta eina konan sem hefur gengið um Öskju á upp- hlut eða peysufötum. Það var á sumardegi. Árið 1813 fæddist í Danmörku sá maður er Danir halda mikið upp á sem heimspeking og hugsuð, en var þar mjög umdeildur á sinni tíð, Sören Kirkegaard. Hann skrifaði meðal annars um konuna, hvemig hin ágætasta kona ætti að vera, og setti náttúrlega fram mynd hinn- ar fullkomnustu konu, eftir sínu áliti. Ég leyfí mér að endursegja hér lítinn kafla úr þeirri lýsingu og nokkrar setningar á víð og dreif, því að lýsingin er langt mál. Sören kvartar yfir hávaða og hégóma þess tíma, þar með fjölmiðlum Kaupmannahafnar. Svo segir hann: „Kona! Enn er hægt að trúa þér til að vera dæmið upp á þann heyr- anda, orðsins og lesara, sem ekki gleymir. Þú hlýðir orði postulans: Konan þegi í söfnuðinum, það er siðsamlegt. Þögn hennar er vitnis- burður'þess að hún geymi orðið -------------------wk----| djúpt inni fyrir. Trúir þú ekki á þögnina? Það geri ég. Þögn, vald. Ég skal lýsa slíkri konu fyrir þér. Heyranda orðsins, sem ekki gleym- ir því. En gleymdu þá ekki yfir þeirri lýsingu að verða eins. Sem sagt, hún talar ekki í söfnuðinum. Hún predikar heldur ekki á heimili sínu um trúna, það er ókvenlegt. Hún er heidur ekki utanvið, langt í burtu, eins og annars staðar. Þú situr og talar við hana og þar sem þú situr, segir þú við sjálfan þig. Hún er þögul. Hvað þýðir þessi þögn? Hún sér um sitt hús, er al- staðar nálægt, eins og af allri sinni sál, jafnvel við það smæsta, hún er glöð, stundum spaugsöm, hún er gleði hússins jafnvel framar en börnin. Og þar sem þú situr og horfír á hana, hugsar þú með sjálf- um þér, hún er þögul: Hún er þög- ul — hvað þýðir þessi þögn? Og ef sá sem sjálfur stendur næst henni, sá sem hún er bundin óleysanlegu bandi, sá sem hún elskar af öllu sínu hjarta og hefur kröfu til ein- lægni hennar. Ef það gæti hugsast að hann segði blátt áfram við hana: Hvað hugsar þú um? Hvað þýðir þögn þín? Segðu mér það. Hún segir það ekki beint. Víkjandi segir hún máske, það mesta. Kemurðu með til kirkju á sunnudaginn? Svo talar hún um annað. (Prestskona spyrði náttúrlega ekki þannig — athuga- semd höfundar). Eða hún segir: Viltu lesa eina predikun upphátt fyrir mig á sunnudaginn? Svo talar hún um aðra hluti. Hvað þýðir þögn- in? Við skulum ekki leita framar svars við því. Ef hún segir ekkert beint út við sinn eiginmann, þá geta aðrir ekki ætlast til þess að þeir fái svar við því. Nei, fáumst ekki meira um það. En athugum, að þessi þögn er einmitt það sem vér þurfum með, ef Guðsorð á að fá ofurlítið vald yfir mönnunum.“ Á öðrum stað talar Kirkegaard um móður og barn og kallar barnið hina elskuðu byrði hennar. Þannig lýsir hann ást móður sinnar. Þegar ég les lýsingu spekingsins, með þeim ótal tilbrigðum sem hann setur fram í hugleiðingum sínum, sem „ídealið", þá kemur mér í hug biskupsfrúin sem nú er áttræð. Og svo fer ég eftir þeirri ráðleggingu hans, að grufla ekki nánar út í það sem öðrum er hulið. Ég leyfi mér aðeins að minna á lýsingu Sörens. Sú lýsing er langt mál. Börn þeirra biskupshjóna 8 að tölu eru öll á lífi. Átta börn vissu alltaf að móðir þeirra var heima. Hún var aldrei leið á að sinna þeim. Eitt barn í miðjum hópnum, átta ára drengur, sagði við mig: „Hún mamma er oft að bródera á kvöld- in, þegar hún hefur ekkert að gera.“ Sören hefði verið hrifinn af þessum orðum drengsins. Hann hefði túlkað þau sem valdið, sem hann lýsti, valdið í þögn og æðruleysi. Sören talaði um ljúflega orðræðu hinnar þöglu konu. Ég ætla að endursegja hér smásögu sem frú Magnea sagði mér einu sinni, á Mosfelli. Sagan er um gamla konu og ungan pilt. Gamla konan fór til kirkju á hveij- um messudegi. Ungi maðurinn spurði hana einhvern tíma, hvað hún hefði upp úr þessum kirkju- göngum, hveiju hún væri nær. Gamla konan svaraði: „Þegar þvott- urinn minn er orðinn óbragglegur, eða ekki nógu hvítur, þá fer ég með hann og legg hann út á dögg- vott gras, síðan heldur döggin áfram að falla á hann. Næsta morg- ingasemi ráðamanna. Skólaganga hluta þegnanna á æðri skólastigum er hins vegar nauðsyn, einnig í veiði- þjóðfélagi og tillit til þess verður að taka. Langflestir þeirra þegna sem ganga menntaveginn gera það ekki til þess að græða fé heldur til þess að störf þeirra megi koma að auknu gagni í þjóðfélaginu. Langskólanám styttir hinsvegar starfsævi þeirra, og því er jafnræði fólgið í því að þeir geti á styttri starf- sævi aflað sér sambærilegra ráðstöf- unartekna. Læknir sem lýkur námi hálf fertugur þarf á miklum vergum tekjum að halda til að tapa ekki á skólagöngu sinni. Að leggja sérskatt á starfsréttindin er viðurstyggð, sem ætti að fordæmast jafnt af háum sem lágum í þjóðfélaginu. Meðan unglæknadeilan stóð sem hæst mátti lesa í blaðinu stórletraða frétt: „Lækningaleyfið lækkað úr 50.000 kr. í 5.000 kr.“ Skýringin á þessari stórfrétt var svona: Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra hefur ákveðið að lækka gjald fyrir almennt lækninga- leyfi úr 50.000 í 5.000 krónur, en það olli mikilli reiði meðal ungra lækna þegar gjaldið var margfaldað fyrirvaralaust í fyrra. Aðstoðarlækn- ar á sjúkrahúsum höfðu gert það að skilyrði fyrir samningum um kjör sín að lækningaleyfið yrði lækkað, og er því talið að þessi ráðstöfun fjármálaráðherra geti greitt fyrir samningum. Af hálfu ijármálaráðu- neytisins er hins vegar lögð áhersla á að þetta sé ekki samningsatriði, heldur hluti af stærri breytingu á reglugerð um aukatekjur ríkissjóðs. Samkvæmt drögum að breytingum á reglugerðinni er breytt ýmsum gjöldum, samkvæmt tillögum fag- ráðuneyta. Guðmundur Bjarn'ason heilbrigðisráðherra leggur til lækk- un lækningaleyfisins. Að sögn Marð- ar Árnasonar, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins, verður þessi breyting einmitt núna vegna þess að tillögur frá sjávarútvegsráðu- neytinu bárust ekki fyrr. Þótt þessi greinargerð sé næsta un þurrkar sólin döggina og ég tek þvottinn minn inn seinna um dag- inn. Þá er hann orðinn mjallahvít- ur. Ég veit ekki hvernig það gerist. Það er eitthvað líkt að fara til kirkju og heyra Guðs orð. Minnir þessi frásögn ekki á það sem Sören seg- ir um orðræðu hinnar þöglu konu? Eftir þijú ár á Breiðabólstað varð séra Sigurbjörn Hallgrímskirkju- prestur í Reykjavík, fyrir jólin 1940. Prestshjónin fluttu vorið 1941 til höfuðstaðarins frá Breiðabólstað. Þá var Hallgrímskirkja ekki til nema sem hugmynd. En vakninga- predikarinn ungi fékk svo að segja allt ísland til þess að unna því málefni. Nú stendur sú fagra kirkja á Skólavörðuhæð., Skálholt tengir saman í sögu tvö stórmenni andans, sem sátu mesta gæðing allra tíma, fák orðsins, af óviðjafnanlegri snilld. Herra Jón Þorkelsson Vídalín og herra Sigur- björn Einarsson. Vídalín var biskup í Skálholti, en herra Sigurbjörn sat þar ekki sem biskup. Hann tengist Skálholti fyrst og fremst sem sá er með mætti orðsins endurreisti Skálholt úr hálfrar annarrar aldar niðurníðslu. Þegar séra Sigurbjörn var orðinn prófessor við Háskóla íslands, hóf hann að koma á Skálholtshátíðum. Hann safnaði saman áhugamönn- um þess málefnis og vakti Suður- land af svefni. Áður en hann var orðinn biskup reis hin fagra Skál- holtskirkja í miklu grænu túni, sem betur fór, á gömlum kirkjugrunni aldanna. Annað hefði verið hörmu- leg mistök. Og þegar Sigurbjörn prófessor var orðinn biskup, gerði hann Skálholt að prestssetri. Hóf það úr þeirri niðurlægingu að vera um áratugi annexía frá Torfastöð- um. Skálholtshátíðir voru haidnar á Þorláksmessu á sumri. Yfir þeim hefur hvílt blessun hins sæla Þor- láks. Biskupshús reis þar einnig, skóli og sumarhús fyrir barnastarf, í biskupstíð þeirra hjóna. Um öll hans miklu ritstörf og bækur samdar þýddar og útgefnar má sjá í bókinni „Sigurbjörn bisk- up. Ævi og starf" sém Sigurður A. Magnússon tók sama og skrifaði um. Biskupshjónin hafa séð miklar Haraldur Ásgeirsson „Langflestir þeirra þegna sera ganga menntaveginn gera það ekki til þess að græða fé heldur til þess að störf þeirra megi koma að auknu gagni í þjóð- félaginu.“ óskiljanlegt er ljóst af henni að rík- inu hefír tekist að egna unglækna gegn sér. Ávinningur af því varð víst ekki stór. Unglæknar eru nokkuð margir, og þeir reyndust harðir í viðræðufor- sendum sínum. Því var rétt að fella niður 5Q-00 kr. skattinn. Hinsvegar kom engin krafa fram um að fella niður 75.000 kr. skattinn, sem settur var á sérfræðinga með sömu reglu- gerð. Ætli það þurfi að kosta aðra læknadeilu? Höfundur er verkfræðingur og fyrrvernndi forstjóri Rnnnsóknnstofnunar byggingariðnnðarins. Læknaskattar og laumugreiðslur eftir Harald Asgeirsson lækkað Lækningaleyfið iúr 50.000 kr. í 5.000 kr. Sérsköttun á starfsréttindi lækna hefír komið nokkru róti á hugi margra, þótt læknastétt hafí sýnt málinu mikið umburðarlyndi. Reglur um þessi mál eru settar af stjóm- völdum, án samráðs. í því felst að þær eru á ábyrgð stjórnmálamanna, en jafnframt samþykktar af fagráð- unautum, hinum lögfróðu embættis- mönnum. Grundvöllur skattlagningarinnar var sagður vera að með réttindum sínum fengju læknar aðgang að al- veg sérstæðri auðlind. Áður var lært að lækna til að líkna, ekki til að auðgast Skatturinn var ákveðinn 50.000 kr. á veitt læknisréttindi og 75.000 kr. á öll aukin sérfræðiréttindi. Mat á upphæð aðgangseyrisins getur vart byggst á öðru en geðþótta, og spurningin um réttmæti eða tilgang skattsins er 'afar áleitin. Dregið er í efa að læknar hafi almennt svo miklar tekjur að það réttlæti sérskatt á embættispróf þeirra. Matsreglurnar verða að þola dagsljós. Auðlindin er ekki áberandi í viðskiptalífínu eða hinu byggða umhverfi. Víst eru til eignamenn í læknastétt, en sem betur fer spretta slíkir menn upp úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Þess vegna má benda á að ef skatturinn er réttlætanlegur kemur fram fjöldi ónýttra skatt- stofna. Nefna má fískimannapróf, f Taliö geta greitt. fyrii' samningum lækna l SAMNINGAFL'NDL'R f deilu HjúkrahÚNKlu-krin o«; hinn opinbera ntúú lanirt fritnl A jr»nrkvölcliú. Miamunandi bjartaýni v»r rfKjandi nu-ilal MimuinK«nianna. samkvæml hrimildum Mor^unbladHÍnr, I'íí voru lu-knnr «llu bjartHýnni á HumninKn <-n fulltrúar rfkininn <»KT IU-ykjavík- urlmrirar, Skridur lii'fur v«*riú á Hamningnvidrirðum nlúustu da«a «*ftir maritra vikna lijakk I aania fari. tillÖR Hjávarútv<;(fHr< neytinu bárusl «ikki fyrr I fréttatilkynninKU frú Burnaspit- nlu Hrlntpiins nojfir aú aðgerðir að- Htoúnrlwknn hafi komiú nér mjöKjllu 1 fyrir harnadcild l^nndnpitalanH vn({naj iiljöK umfanKHtnikillur , br&ðaþjðn UHtu deildai meistarapróf, verslunarréttindi, og svo öll þessi réttindi, sem þegnamir afla sér í framhaldsskólum hér eða erlendis. Þessari skattlagningu fylg- ir líka sá stóri kostur að skatturinn er innheimtur áður en þegnarnir fara að afla framfærslutekna. Skatturinn er menntunarskattur sem fram kemur í veiðiþjóðfélagi, þar sem háskólamenntun er ekki í hávegum höfð. Það er af hinu illa að etja stétt gegn stétt svo sem gert hefir verið með sérákvæðum stjórnvalda nú og skapar það mikinn óróa, sbr. deilur við BHMR að und- anfömu. í þessu litla þjóðfélagi er mikill kjarasamanburður óhjákvæmilegur, en því miður er hann oft byggður á röngum forsendum. Launasaman- burð á ekki að gera á vergum laun- um, eins og svo oft ber við, heldur á æviráðstöfunartekjum. Stéttarfélag verkfræðinga var stofnað á grundvelli slíkra ævitekju- útreikninga. Með tölvísi var leitt í Ijós að sérfræðingar voru vanlaun- aðir í opinberum störfum. Stjómvöld afþökkuðu strax tilboð SV um samn- inga um jafnræði við aðrar atvinnu- stéttir á þeim gmndvelli. Ekki skal því haldið fram að þetta sé sú eina rétta leið til þess að koma á ævitekjujöfnuði í landinu. Engra slíkra leiða hefir hinsvegar verið leit- að, og hefur það váldið því stórslysi að launakerfí ríkisins hefur verið eyðilagt. í stað þess að binda rök- ræður um kjaramál við skilgreindar forsendur, er nú þrasað um óraun- hæfar launaflokkahækkanir og met- ist á grundvelli vergra launa. Afleið- ing af þessu er svo að launaupphæð- ir mega helst ekki koma fram í dags- ljósið, og því eru teknar upp allskon- ar laumugreiðslur í ólíkustu myndum í öllum stéttum, en upplýsingar um þær liggja ekki á lausu, þótt margt sé nú hægt að birta. Verst er þó að úthlutunarreglumar eru líka á huldu, og því er stöðugt uppi ávæn- ingur um að slíkum hlunnindum sé úthlutað eftir geðþótta ráðamanna. í launadeilum á „vinnumarkaðn- um“ eru kröfumar jafnan harðastar um lægstu launin. Náist hinsvegar einhveijar „kjarabætur" ganga þær yfir allan markaðinn, og þegar að er gáð sést að meðaltekjur á „mark- aðnum“ eru oft tvisvar til þrisvar sinnum hærri en það sem karpað var um. Launamunur milli atvinnustétta í þjóðfélaginu er ofur eðlilegur og víst er launamunur innan allra stétta, og fer þá eftir ýmsu öðru en tilfinn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.