Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 19

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 19
hugsjónir rætast. Má segja að verið hafi frá sigri til sigurs. Það er því óhætt að óska frú Magneu til ham- ingju með 1. mars 1991. Nú hlýtur að vera gleðilegt fyrir hana að horfa yfir þann mikla árangur í hljóðlátu ævistarfi, sem var þó umfangsmik- ið. Sigrarnir ekki minni inn á við. Gæfuríkt starf. Ég minnist biskups- dætra, tveggja elskulegra ungra stúlkna. Frú Gíslrún er handavinnu- kennari, maður hennar Kjartan Ólafsson. Frú Rannveig er hjúkr- unarfræðingur, gift séra Bernharði Guðmundssyni. Þorkell, tónskáld, lærði fyrst að leika á píanó hjá móður sinni. Kona hans, Barbara, amerísk. Allra prestanna minnist ég sem ungra drengja sem voru sérlega hugkvæmir og skemmtileg- ir viðtals. Séra Árni Bergur er sókn- arprestur, Áskirkju í Reykjavík, kona hans er Lilja Garðarsdóttir. Dr. Einar guðfræðiprófessor við Háskóla íslands, kona hans Guðrún Edda Guðmundsdóttir. Séra Karl, prestur í Hallgrímskirkju, kona hans Kristín Guðjónsdóttir. Ungt fólk hefur talað við mig um þá tvo þjónandi presta í Reykjavík, sem mikla predikara. Og er ég því sam- mála. Séra Björn, prestur í Svíþjóð, kona hans Ingda, sænsk. Gunnar, yngsti sonurinn, hagfræðingur, kona hans Lillian, dönsk. Hér sést að miklir hafa sigrar þeirra hjóna verið bæði inn á við og út á við. Best verður heimilislíf- inu kynnst í frásögn Rannveigar Sigurbjörnsdóttur í bók biskupsins. Öll kynni af þessari stóru fjölskyldu voru og eru sérlega góð og upp- byggileg. Þótt eigi stæði auður bak við prests- og biskupshjónin, höfðu þau bæði gjöfula hönd. Heimilis- risna var stöðug og höfðingsskapur að öllu. Þessar línur eru ritaðar til þess að óska afmælisbarninu til ham- ingju með blessunarríkt starf og þeim biskupshjónum báðum. Svo og öllum börnum þeirra og næstu venslamönnum. í bók biskups er hægt að lesa um börn, tengdabörn og barnabörn þeirra hjóna. Þakkir og kveðjur frá húsi mínu. Rósa B. Blöndals Afmælisbarnið er að heiman í dag. Gallerí Samskipti opnað NÝTT arkitektúrgallerí verður opnað kl. 18.00 í dag, föstudag- inn 1. mars, í húsnæði Sam- skipta í Síðumúla 4, Reykjavík. Ber sýningarsalurinn nafnið „Gallerí Samskipti“ og er ætlað- ur tii kynningar á íslenskum arkitektúr, arkitektum og hug- smíðum þeirra. . Valinn verður arkitekt hvers mánaðar og honum boðið að sýna verk sín og hefur það fallið í hlut Guðjóns Bjarnasonar arkitekts og myndlistarmanns að opna hið nýja gallerí. Guðjón Bjarnason lauk meist- araprófi í byggingarlist frá Col- umbía-háskóla í New York árið 1989 og hefur starfað sem aðstoð- arkennari við Rhode Isl. School of Design og gestakennari við Pratt-háskólann í Brooklyn. Á sýningunni eru fjöldamörg verk, teikningar, líkön og sam- starfsverkefni í íslensku og er- lendu umhverfi er mörg hver hafa hlotið viðurkenningar á undanf- örnum árum. Sýningin er opin á virkum dög- um frá kl. 8.00-18.00 og 10.00- 14.00 á laugardögum og lýkur 1. apríl nk. Þú svaJar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. MARZ 1991 19 Kóramót í Víðistaðakirkju KIRKJUKÓRAR Kjalarnespró- fastsdæmis munu halda, laugar- daginn 2. mars, kóramót í Víði- staðakirkju. 16 kórar eru í pró- fastdæminu sem nær frá Suður- nesjuin fram hjá Kópavogi og Reykjavík allt upp á Kjalarnes. Einnig tilheyra Vestmannaeyjar Kjalarnesprófastsdæmi. Kórarnir hittast að morgni og æfa sameiginlega nokkur lög, sem hafa verið undirbúin á heimaslóðum. Kl. 17.00 verða svo tónleikar í Víðistaða- kirkju þar sem hinir ýmsu kórar syngja hver fyrir sig og svo munu allir syngja saman og mynda þar með um tvö hundruð manna kór. Áheyrendur eru hjartanlega vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. I2utcuzcv Heílsuvötur nútímafólks SOEVARAKEPPNDi ... og það verður spennandi keppni. í kvöld ráðast úrslitin í KARAOKE SÖNGVARAKEPPNI FM 957 OG ÖLVERS. Að lokinn spennandi undankeppni þar sem 24 söngvarar reyndu með sér eru nú aðeinslO eftir sem keppa um titilinn: KARAOKE SÖNGVARINN 1991. • ••••••••••••••••• Urslitakeppnin fer fram í Danshúsinu Glæsibæ í kvöld og í beinni útsendingu á útvarpsstöbinni FM 957 (í stereo). Urslitakeppnin og útsendingin hefjast kl. 22.00 stundvíslega en húsið opnar kl. 21.00. Tekið verður á móti gestum með Gula Páfagauknum, hátíðarfordrykk í anda keppninnar. Mið averð er kr. l.OOO, ath. takmarkað upplag. Laddi og félagar verða með puttana í skipulagningu kvöldsins og því er aldrei að vita hvað ge+ist. Keppt verður um glæsileg verðlaun og um þátttöku í KARAOKE SÖNGVARAKEPPNI í GLASGOW. l.sæti Ferb fyrir 2 til Glasgow á Karaoke söngvarakeppni og PIONEER samstæða. 2.sæti 21" Elektratec sjónvarpstæki. 3.sæti Elektratec videótæki. Einnig verba sérstök verblaun veitt fyrir svibsframkomu á úrslitakvöldinu. KEPPENDUR DOMNEFND 1. Björn Þórisson 2. Heibrún Anna Björnsdóttir 3. Ásgeir Már Helgason 4. Ingibjörg Jónsdóttir 5. Gubrún Oddsdóttir 6. Jóhanna Harbardóttir 7. Kristin Leifsdóttir 8. Inga Sæland 9. Sólborg Baldursdóttir JO.Árni Jón Bggertsson 1. Sverrir Hreibarsson / FM 9S7 2. Anna Björk Birgisdóttir / FM 957 3. Magnús Páll Halldórsson / Ölver 4. Mark Brink / Ölver 5. Jónatan Garbarsson /\Steinar hf. 6. Ragnar Bjarnason / söngvari 7. Bllen Krístjánsdóttir / söngkona 8. Gestir kvöldsins Komdu á spennandi úrslitakeppni í Danshúsinu Glæsibæ í kvöld OG MÆTTU TÍMANLEGA, því vegna útsendingar á FM 957 hefst dagskráin kl. 22.00 stundvíslega. Þetta verður hörð og spennandi keppni milli 10 frábærra söngvara. <y> PIONEER OLVER GLÆSIBÆ FM#957 .. .alltaf einu skrefi framar CD PIONCeR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.