Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 20

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 20
IL' iííoi X'Akit i n’joAd'JT&OT aiaAjamjöflOM 20 :---------‘----------- MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR J. MARZ T'991 Sameining útgerðarfyrirtækja á Akranesi Sameiningin er heillaspor - segir bæjarstjóri SAMEINING fyrirtækjanna er heillaspor fyrir Akranesbæ og bæjarstjórinn telur að það marki tímamót í sögu bæjarins þcgar Haraldur Böðvarsson og co. verð- ur gert að almenningshlutafélagi. Hann telur að hagsmunum fólks verði vel borgið. „Það vita allir sem þekkja til Har- aldar Böðvarssonar og co. og sögu fyrirtækisins að ekki verður gengið fram með offorsi í endurskipulagn- ingu og þaðan af síður uppsögn- um. Ég held þetta sé heilla- spor. i Menn verða að hafa i huga að ef það þarf að hagræða þá er betra að gera það í tíma frekar en að lenda með allt á hælunum þegar fyrirtækið er að verða stopp. Forráðmenn fyrirtækj- anna eru að taka þetta skref til þess að verða á undan. Það verður bænum sérstaklega til framdráttar þegar Haraldur Böðvarsson verður gert að almenningshlutafélagi, það markar tímamót í sögú Akraness.“ Gísli sagði að búið væri að ijalla um skipulagsmál fyrirtækjanna mjög lengi. Leitað hafí verið að leiðum til að koma við hagræðingu og eftir að Akranesbær seldi hlut sinn í Síldar- og fískimjölsverksmiðjunni hefði ver- ið ákveðið að sameina fyrirtækin. Gísli sagði nokkuð ljóst, að miðað við þann hlut sem Haraldur Böðvars- son og co. ætti í Síldar- og fískimjöls- verksmiðjunni og um leið Heima- skaga, verði Haraldur Böðvarsson og co. með meirihluta. Gísli var spurður hvort eitthvert samhengi væri á milli sameiningar- innar nú og þess að Akranesbær seldi sinn hlut í Síldar- og fískimjöls- verksmiðjunni. „Það er ekki samhengi þar á milli að því leyti að við höfum haft þetta á bak við eyrað þegar bærinn seldi. Það mátti hins vegar búast við því að haldið yrði áfram þeirri vinnu sem unnin hafði verið við endurskipulagn- ingu fyrirtækjanna. Það má vel vera að það hafí auðveldað mönnum að ganga til verks eftir að Skeljungur kom inn í fyrirtækið," svaraði Gísli. Varðandi efasemdaraddir um að sala bæjarsjóðs á hluta sínum í Síld- ar- og fískimjölsverksmiðjunni og kaup á hluta í Hafeminum stuðlaði að uppbyggingu atvinnulífsins á Akranesi sagðist Gísli sannfærður um að þeim peningum væri vel varið. „Það lá alveg ljóst fyrir að ef ekk- ert hefði verið gert í sambandi við Haföminn hefðum við tapað 40-60 atvinnutækifærum. Miðað við það verð sem er á skipum og á kvóta, sem reyndar er alveg út úr kortinu, þá er ég sannfærður um að þessum peningum var vel varið.“ Gísli Morgunblaðið/Þorkell Athafnasvæði hins nýja fyrirtækis á Akranesi. Niður við höfnina sést Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan. Stóra rauða húsið er Haraldur Böðvarsson og co. og Heimaskagi er húsið á milli sem er með bláu þaki. Meirihlutafulltrúar: Sameiningin af hinu góða MENN í meirihluta bæjarstjórnar telja sameininguna af hinu góða og segja enga ástæðu til að ætla að störfum hjá fyrirtækinu fækki verulega. _ Hervarð Gunnarsson, þæjarfull- trúi, formaður verkalýðsfélagsins og formaður atvinnumálanefndar, segist ekki hafa trú á að störfum fækki mikið við sameininguna. Frystihúsin séu með tvær vinnslulínur sem báðar verði að manna. „Auðvitað hefur sameiningin ein- hver áhrif, en ég hef enga ástæðu til að ætla að verið sé að sameina fyrirtækin til að fækka störfum. Svo fremi sem atvinnutækifærum fækkar ekki þá er hagræðing af hinu góða. Tíminn mun leiða í ljós hvernig til tekst,“ sagði Hervarð. Jón Hálfdánarson, sem á sæti í bæjarstjóm og atvinnumálanefnd, segist telja eitt stórt fyrirtæki hafa betri samkeppnisstöðu en tvö lftil sem berðust í bökkum. „Eflaust hafa einhverjir áhyggjur af því að störfum fækki, en ekki ég. Menn mega ekki horfa til of skamms tíma. Sameiningin er af hinu góða,“ sagði Jón. Skynsamlegt en tregablandið skref til styrktar atvinnuiífi á Akranesi - segja framkvæmdastjórar hins nýja fyrirtækis SAMEINING sjávarútvegsfyrirtækjanna, Haraldar Böðvarssonr og co., Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar hf., Heimaskaga og Sigurðar hf., á Akranesi er merkileg fyrir margra hluta sakir. Elsta starfandi útgerð- arfyrirtæki landsins, fjölskyldufyrirtækið Haraldur Böðvarsson og co., verður gert að almenningshlutafélagi og hið nýja fyrirtæki verður eítt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins. Forráðamenn fyrirtækjanna sem sameinast ségja að stigið hafi verið skref inn í framtíðina. Skynsam- legt skref, sem ef til vill er stigið með nokkrum trega, en sé stigið til að renna styrkari stoðum undir atvinnulíf á Akranesi. Haraldur Sturlaugsson, fram- kvæmdastjóri Haraldar Böðvarsson- ar og co., og Valdimar Indriðason, framkvæmdastjóri Sfidar- og físki- mjölsverskmiðjunnar hf., voru sam- mála um að tilfinningar fólks væru blendnar. „Það eru margir sem hafa unnið hjá fyrirtækjunum í áratugi og auðvitað eru tilfínningar fólks blendnar við svona átak, en þó fyrstu skrefin séu þung þá er betra að stíga þau frekar en að gera ekkert. Þetta eru fyrstu skrefin í langri ferð og ég vona að þeir sem stjóma hinu nýja fyrirtæki beri gæfa til að gera það vel,“ sagði Valdimar. Mikilvægt að sameining fyrirtækjanna takist vel Haraldur tók í sama streng og bætti því við að sameiningin væri gerð til að styrkja stoðir fyrirtækj- anna. „Fyrirtækin eiga sér langa sögu í atvinnulífínu hér og það er eðlilegt að nokkurs trega gæti, en við teljum að til lengri tíma litið sé þetta mikilvægt skref. Það er mikil- vægt að sameiningin takist og fyrir- tækið gangi vel. Við stefnum að því að bjóða út ný hlutabréf á almennum markaði í haust. Þá geta Skagamenn og aðrir landsmenn keypt hlut i þessu sameinaða fyrirtæki og þannig fetum við í fótspor annarra sjávarútvegs- fyrirtækja sem eru á almennum hlutabréfamarkaði. Nokkrar umræð- ur hafa verið í gegnum árin um sam- einingu, en viðræður um sameiningu nú tóku um tíu daga. Það er rétt að taka fram að það er ekki búið að sameina fyrirtækin. Það liggur fyrir samkomulag frá 85% hluthafa fyrir- tækjanna um að leggja til við hlut- hafafundi að ganga til sameiningar og því á enn eftir að ganga formlega frá sameiningunni," sagði Haraldur. „Þetta er skref fram í tímann og við töldum rétt að stíga það nú þeg- Haraldur "Valdimar ar allt er í góðu lagi hjá fyrirtækjun- um. Við förum ekki út í sameining- una þvingaðir af einu né neinu,“ sagði Haraldur. Valdimar var sam- mála þessu og bætti því við að það hafi verið mjög ánægjulegt. að geta tilkynnt bönkum og öðrum peninga- stofnunum um sameininguna meðan hlutirnir værú í góðu lagi. Svipaður fjöldi starfsmanna Haraldur og Valdimar héldu fundi með starfsmönnum á miðvikudags- morgun og sögðu þeim tíðindin. Þeir voru sammála um að fyrirtækin hefðu verið mjög heppin með vinnu- afl á Akranesi. Haraldur sagði að hljóðið í starfsfólkinu hefði verið gott en auðvitað hefði fólk velt því fyrir sér hvort það héldi vinnunni. „Það starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækjunum og starfsmannafjöld- inn verður svipaður eftir sameining- una. Fyrst um sinn verður ekki ráðið í ný störf. Við munum væntanlega selja eitt loðnuskip án kvóta, Rauðs- eyna, en áhöfnin fer á nýjan togara sem fyrirtækið Haförninn er að fá, þannig að enginn missir vinnu vegna þess,“ sagði Haraldur. 'Ákveðið hefur verið að hið nýja fyrirtæki heiti Haraldur Böðvarsson og eo., enda er það elsta starfandi útgerðarfyriræki landsins og báðir aðilar væru sammála um að halda langa sögu fyrirtækjanna í heiðri. Hið nýja fyriræki kemur til með að eiga og reka fjóra togara með um 10 þúsund tonna kvóta í þorsk- ígildum. Þijú loðnuskip, með tfjóra kvóta, eru í eigu fyrirtækisins en áætlað er að selja eitt þannig að loðn- uskipin verða tvö með fjóra kvóta. Heildarvelta fyrirtækjanna í fyrra var tæplega tveir milljarðar. „Það á eftir að fara nákvæmlega ofan í hvernig rekstur frystihúsanna verður. Þau eru hlið við hlið, sem er hagkvæmt, og það býður upp á mikla möguleika varðandi sérhæfða vinnslu. Varðandi síldar- og físki- mjölsverskmiðjuna þá verður hún rekin áfram enda eru síldar- og físki- mjölsverksmiðjur orðnar tiltölulega fáar hér við Faxaflóann," sagði Valdimar. Starfsfólk treystir stjómendum fyllilega STARFSFÓLK fyrirtækjanna, sem rætt var við, er bjartsýnt á framt- íðina og segist treysta stjórnendum hins nýja fyrirtækis fyllilega til að sjá til þess að starfsmönnum fækki ekki. Morgunblaðið/Þorkell Björn Jónsson verksmiðjustjóri við skilvindurnar „Ég held að sameining sé af hinu góða. Það er orðin það mikil sam- keppni um allan afla og í þeirri bar- áttu hlýtur að vera hagkvæmara og betra að vera með eitt stórt fyrir- tæki en tvö lítil," sagði Björn Jóns- son verksmiðjustóri hjá Sfidar- og fiskimjölsverksmiðjunni. Björn sagðist ekki hræddur við að starfsfólki fækkaði mikið. „Það er sjálfsagt óhjákvæmilegt að starfs- fólki fækki eitthvað en ég held það verði ekki mikið. Svo gæti það auð- vitað gerst að fyrirtækið stækkaði og blómstraði þannig að starfsfólki fjölgaði," sagði hann. Starfsmenn á vélaverkstæði sfid- arverksmiðjunnar sögðust ekki hræddir um að fækkað yrði hjá þeim, nóg væri að gera og viðgerðir gætu ekki beðið enda væri lögð áhersla á að halda fyrirtækinu í fullum rekstri. Allir starfsmenn sem rætt var við töldu að stórt og vel stætt fyrirtæki væri samkeppnishæfara en tvö minni og því væri sameiningin af hinu góða. Menn bentu einnig á að fréttir af sameiningunni væru svo nýtilkomnar að varla væri hægt að segja mikið um málið að svo stöddu. Tíminn einn gæti leitt í ljós hvaða áhrif samein- ingin hefði. Nokkrir aðilar, sem ekki starfa hjá fyrirtækjunum, virtust ekki eins sannfærðir um ágæti sameiningar- innar, eða yfírtökunnar eins og sum- ir orðuðu það. Bentu þeir á að óhjá- kvæmilegt væri að hagræðingu fylgdu uppsagnir starfsfólks. Fyrir- tækið gæti til dæmis varla verið með tvær skrifstofur, tvö vélaverkstæði og það væri alveg ljóst að í það minnsta eitt skip yrði selt, ef ekki tvö. Einnig voru nokkrir á því að sam- einingin væri áfall fyrir meirihluta bæjarstjómarinnar. Fyrir síðustu kosningar hefði verið rætt um að efla atvinnulífið á staðnum. Bærinn seldi sinn hlut í Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjunni, til þess að færa til fé og efla þannig atvinnulífið. Bærinn keypti nýverið hlut í Hafeminum og fyrirtækið keypti togara sem kemur til Akraness um helgina. Þar áttu að skapast ný atvinnutækifæri en nú mun áhöfnin af Rauðsey, sem Haraldur Böðvarsson og co. ætlar að selja, fara á nýja togarann. HB og co. á 40% í SFA HARALDUR Böðvarsson og co. (HB) á Akranesi er elsta starf- andi útgerðarfyrirtæki á ís- landi, stofnað 1906. Síldar- og fiskimjölsverskmiðja Akraness hf. (SFA) var stofnuð árið 1937 þannig að saga fyrirtælyanna er löng. Haraldur Böðvarsson og co. er hlutafélag í eigu afkomenda stofnandans og eru hluthafar níu talsins. SFA er almenningshluta- félag, eitt hið elsta á landinu, með á annað hundrað hluthafa og á HB 40% í fyrirtækinu. Skelj- unugur á 24% og Olís 16%. Akranessbær átti hlut í SFA en seldi Skeljungi hlut sinn í fyrra fyrir rúmar 50 milljónir. Fyrirtækin sem nú verða sam- einuð era HB, SFA, Heimaskagi og Sigurður hf. Heimaskagi, sem rekur frystihús, erdótturfyrirtæki SFA. Sigurður er dótturfyrirtæki HB og rekur eitt loðnuskip.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.