Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 22

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 22
æ. M()KpUNJ31 .AI),!!) FÖSTUDAGUR j..#AK% ,iai)l "t Flokkur þjóðernissinna vann sigur í Bangladesh Pólland og Tékkóslóvakía: með kosningunum en ekki var vit- að um álit þeirra á fullyrðingu Khaledu. Forystumenn beggja stóru flokkanna eru konur; fyrir Þjóðem- issinnum fer áðurnefnd Khaleda en formaður Awami-bandalagsins er Sheikh Hasina, dóttir Mujiburs Rahmans, fyrsta forseta ríkisins. Khaleda er ekkja Ziaurs Rahmans herhöfðingja sem tók við völdum eftir að Mujibur var myrtur 1975 en Ziaur var sjálfur myrtur 1981. Mohammad Ershad hershöfð- ingja, sem stjórnað hafði með ein- ræðisaðferðum í níu ár, var velt af stóli í desember eftir fjölmennar mótmælaaðgerðir. Þótt hann sitji í varðhaldi, sakaður um spillingu og valdníðslu, fékk hann að bjóða sig fram og sigraði í fimm kjör- dæmum en alls fékk flokkur hans 35 þingsæti. Algengt er að fram- bjóðendur fari fram í fleiri en einu kjördæmi. íbúar Bangladesh, sem var hluti Pakistans fram til 1970, eru 110 milljónir og flestir múslimar. Um 62 milljónir voru á kjörskrá. Þjóð- artekjur eru með þeim lægstu í heimi og misskipting auðs mikil. Reuter Begum Zia Khaleda, leiðtogi flokks þjóðernissinna í Bangladesh, lyftir höndum í bæn við legstað eiginmanns sins í gær. Dhaka. Reuter. Þjóðernissinnaflokkurinn í Bangladesh hlaut flest þingsæti í fyrstu lýðræðislegu kosningunum sem haldnar hafa verið í tvo áratugi í landinu. Er síðast fréttist var flokkurinn búinn að tryggja sér 137 af alls 287 þingsætum þar sem úrslit voru ráðin en alls eru þingsætin 300. Awami-bandalagið kom næst, hafði fengið 85 þingsæti. Ólíklegt er talið að þjóðemis- sinnar geti myndað stjórn án stuðnings smáflokka. Begum Zia Khaleda, leiðtogi þjóðemissinna, óskaði þjóðinni til hamingju með sigur í langri baráttu fyrir lýðræði en sagði að'sigur flokksins hefði orðið enn stærri ef ekki hefðu kom- ið til umtalsverð kosningasvik. Erlendir eftirlitsmenn fylgdust Herforingjastjórnin í Tælandi: Stjórnarskrá sett til bráðabirgða Bíintrkok. Reuter. Bangkok. Reuter. TÆLENSKA herforingjastjórn- in tilkynnti í gær að hún myndi setja Iandinu nýja stjórnarskrá í Linares: Karpov segir brögð í tafli dag, föstudag. Yrði hún í gildi til bráðabirgða og til þess ætluð að auðvelda að færa völdin í hendur stjórn óbreyttra borgara. Leiðtogar herforingjastjórnar- innar sem rændi völdum í Tælandi í síðustu viku vísuðu í gær á bug fréttum þess efnis að Bhumibol konungur hefði neitað að sam- þykkja uppkast þeirra að stjómar- skrá. Linares. Reuter. GARRÍ Kasparov, heimsmeistari í skák, Iagði Míkhaíl Gúrevitsj í fjórðu umferð stórmótsins í Linar- es á Spáni sem tefld var á miðviku- dag. Anatóiíj Karpov, fyrrum heimsmeistari, var ekki sáttur við gang þeirrar skákar og sakar Gúrevitsj um að hafa leyft Kasp- arov að vinna. Helstu úrslit í fjórðu umferð urðu annars þau að Karpov og Júsúpov gerðu jafntefli, Ljubojevic vann Beljavskíj, ívantsjúk lagði Kamskíj, Gelfand vann Salov og jafntefli varð í skákum Speelmans og Timmans og Ehlvests og Anands. Staða efstu manna að loknum fjór- um umferðum er þessi: 1. Júsúpov 3 'h vinningur 2.-3. Beljavskíj og ívantsjúk 3 v. 4.-7. Ljubojevic, Timman, Anand og Kasparov 2 'h v. Áður höfðu heimildarmenn innan hersins sagt að konungur hefði hafnað uppkastinu þar sem í því hefði verið gert ráð fyrir að bráða- birgðastjórn, sem herforingjaráðið hefur heitið að skipa, fengi dóms- vald. Hafa herforingjamir jafn- framt lofað að efna til lýðræðis- legra kosninga innan hálfs árs, en stjórnmála- og menntamenn drógu í gær í efa að þeir gætu staðið við þau loforð og sögðu að seinagangur við að semja og birta nýja bráða- birgða stjórnarskrá lofaði ekki góðu. Gert var ráð fyrir því í gær að Sunthom Kongsmompong, leið- togi b'yltingarinnar, færi til kon- ungshallarinnar í borginni Chiang Mai og kynnti Bhumibol nýja stjóm- arskrá sem gerð yrði opinber síðar um daginn. Risastór stytta af Enver Hoxha felld af stalli í miðborg Tirana, höfuð- borg Albaníu. Albönum leyft að eignast bíla Vínarborg. Reuter. ALBANSKA ríkisstjórnin hefur gefið út tilskipun þar sem óbreyttum borgurum er í fyrsta sinn í 40 ár leyft að eignast einkabíla, að sögn albönsku fréttastofunnar ATA. Albanía var eina kommúnistaríki Evrópu sem bannaði alla umferð einkabifreiða. Enver Hoxha, leiðtogi albanska kommúnistaflokksins, tók þá ákvörðun en hann þótti dyggasti stalínistinn áf þjóðarleiðtogum í Austur-Evrópu eftir stríð. Hoxha lést árið 1985 og hefur Ramiz Alia, eftir- maður hans, gripið til umbóta á sviði þjóðmála. Hann er þó talinn vera að herða tökin á ný og óttast stjórnar- andstæðingar að yfirtaka hersins á völdum í landinu sé yfirvofandi. Alia hefur boðist til þess að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu um hvort reisa eigi á ný þær styttur af Hoxha sem felldar vora af stalli í mótmælaaðgerðum í síðustu viku. Styttur af Hoxha er að finna í öllum borgum og bæjum landsins og hafa stjórnarandstæðingar fellt margar þeirra af stalli síðustu daga. Stjórnin virðist þó ekki ætla að bíða eftir nið- urstöðum atkvæðagreiðslu af því tagi því í gær var hafist handa við að reisa styttur sem felldar höfðu verið af stalli í borgunum Korce í suður- hluta landsins og Fier í vesturhlutan- um. Hermt var að öflugur hervörður hefði verið við stytturnar er endur- reisnarverkið var unnið. Samið um hernaðarsamstarf Varsjá. Reuter. Vamarmálaráðherrar Póllands og Tékkóslóvakíu undirrituðu samning um hemaðarsamstarf á miðvikudag. Tveimur dögum fyrr var hernaðarsamstarfi Varsjárbandalagsins slitið. Samkomulag varð um það í við- ræðum Piotrs Kolodziejczyks, vamarmálaráðherra Póllands, og Lubos Dobrovskys, starfsbróður hans frá Tékkóslóvakíu, að ríkin tvö myndu hafa með sér hemaðar- samstarf á átján sviðum, meðal annars hvað varðar vamarstefnu, þjálfun liðsforingja, vopnafram- leiðslu og vopnakaup. Einnig til- kynntu ráðherrarnir að ríkin tvö myndu hafa sameiginlega afstöðu í afvopnunarviðræðunum í Vínar- borg. Þeir fullyrtu að hemaðar- samstarf ríkjanna væri ekki afleið- ing þess að Varsjárbandalagið væri að líða undir lok. Tékkóslóvakía, Ungveijaland og Pólland hafa lýst því yfir að þau vilji slíta pólitísku samstarfí Varsjárbandalagsins strax á þessu ári í framhaldi af því að hernaðar- samstarfinu lauk formlega á mánudag. Skipting í fjórhjóladrif á fullri ferð. 5 þverbitum, sem tryggir mikinn styrk. yfirbyggingarinnar og afburða dráttargetu. Sjálfstæð fjöðrun ■ með gormum ásamt nitrogasdempurum að framan. ___I Ný 155 ha V6 4.0 EFI vél. Tölvustýrð innspýting. Hi Fjögurra þrepa sjálfskipting eða 5 gíra beinskipting. ■i Vökva- og veltistýri. Hraðafesting. Öflug miðstöð. Loftkæling.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.