Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 23

Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 uðu þjóðanna hittist til að taka þær ákvarðanir sem nauðsynlegar eru til að stríði þessu ljúki. Akvörðunin um að hætta stríðs- aðgerðum er háð því að írakargeri hvorki árásir á hersveitir banda- manna né skjóti Scudflaugum gegn einhveiju öðru landi. Ef írak brýtur gegn þessum skilyrðum hafa her- sveitir bandamanna frelsi til að hefja aðgerðir á ný. Við öll tækifæri sem gefist hafa hef ég skýrt írösku þjóðinni frá því að ágreiningur okkar hefur ekki verið við hana heldur við leiðtoga hennar og fyrst og fremst við Sadd- am Hussein. Þetta stendur óhagg- að. Þið, íraska þjóðin, eruð ekki óvinir okkar. Við sækjumst ekki eftir tortímingu ykkar. Við höfum farið vel með íraska stríðsfanga. Hersveitir bandamanna háðu þetta stríð einungis sem lokaúrræði og biðu með tilhlökkun eftir þeim degi að írak yrði stjórnað af fólki sem væri reiðubúið að lifa í sátt og samlyndi með nágrönnum sínum. Við verðum nú að byija að horfa lengra fram á við en hvað varðar sigur og stríð. Við verðum að bregðast við áskorunum þess efnis að friður verði tryggður. Við mun- um áfram ráðfæra okkur við band- amenn okkar líkt og við höfum hingað til gert. Þegar höfum við hugleitt vandlega og gert áætlanir um það sem við tekur að loknu stríði. Hefur Baker utanríkisráð- herra þegar hafið viðræður við bandamenn okkar um vandamál Mið-Austurlanda. Það getur ekki fundist og mun ekki finnast neitt fullkomið, bandarískt svar við öll- um vandamálunum en við getum hjálpað og stutt löndin á þessu svæði og orðið að aflvaka friðar. í þessum anda mun Baker utanríkis- ráðherra halda til þessa heimshluta í næstu viku til að hefja viðræður á ný. Þetta stríð er nú að baki. Fram- undan er hið erfiða verkefni að tryggja frið sem gæti reynst sögu- legur. En í kvöld skulum við vera stolt af þeim árangri sem náðst hefur. Við skulum þakka þeim sem stofnuðu lífi sínu í hættu. Við skul- um aldrei gleyma þeim sem létu líf sitt.“ George Bush Bandaríkjaforseti í ávarpi: Þetta er sigur mann- kynsins og réttlætisins Washington. Reuter. BUSH Bandaríkjaforseti tilkynnti um sigur bandamanna í ávarpi til bandarísku þjóðarinnar aðfaranótt fimmtudagsins. Ávarpið var flutt klukkan tvö að íslenskum tíma, eða nákvæmlega sex vikum eftir að forsetinn tilkynnti í sambærilegu ávarpi að lofthernaður gegn Irökum væri hafinn. Lýsti Bush því yfir að bandamenn myndu hætta stríðsaðgerðum klukkan fimm um morguninn að íslenskum tíma, hundrað klukkustundum eftir að landhernaður hófst. ABS bremsukerfi að - aftan. Sjálfvirk driflæsing. „Kúveit hefur verið frelsað. Her Iraks hefur verið sigraður. Hernað- armarkmiðum okkar hefur verið náð. Kúveit er aftur í höndum Kúveita," sagði Bandaríkjaforseti í upphafí ræðu sinnar. „Við tökum þátt í fögnuði þeirra, fögnuði sem einungis þær raunir sem þeir hafa þurft að fara í gegn um skyggja á. í kvöld blaktir fáni Kúveit á ný yfir höfuðborg fijálsrar og sjálf- stæðrar þjóðar, og fáni Bandaríkj- anna hefur verið dreginn að hún við sendiráð okkar. Fyrir sjö mánuðum drógu Bandaríkin og heimurinn mark- alínu. Við lýstum því yfir að árásin á Kúveit myndi ekki verða liðin. í kvöld hafa Bandaríkin og heimur- inn efnt þetta loforð. Þetta er ekki stundin fyrir mikla hrifningu, og alls ekki stund til að hreykja sér, en þetta er rétta stundinn fyrir stolt, stolt yfir hermönnum okkar, stolt vegna vina okkar sem stóðu þétt við hlið okkar í vandanum, og því fólki sem með styrk sínum og ákveðni gerði sigurinn skjótan, ákveðinn og réttlátan. Og innan skamms munum við opna faðm okkar til að fagna komu hinna frá- bæru hersveita okkar til Bandaríkj- anna. Ekkert eitt land getur lýst því yfir að sigurinn sé þess. Þetta var ekki einungis sigur fyrir Kúveit heldur sigur fyrir bandamenn alla. Þetta er sigur Sameinuðu þjóð- anna, sigur mannkynsins, sigur laga og reglna og réttlætisins." Bandaríkjaforseti lýsti því síðan yfir að eftir viðræður hans við varn- armálaráðherra sinn, forseta her- ráðsins og bandamenn hefði verið ákveðið að hætta hernaðaraðgerð- um. Það færi síðan eftir afstöðu íraka hvort þessi ákvörðun yrði að varanlegu vopnahléi. Bush greindi frá þeim skilyrðum sem bandamenn settu fyrir vopnahléi: „írak verður að sleppa undir eins úr haldi öllum stríðsföngum úr röð- um bandamanna, einnig þegnum ríkja sem ekki eiga aðild að átökun- um og skila jarðneskum leifum þeijra sem hafa fallið. írak verður að láta lausa alla þá Kúveita sem haldið er föngnum. Irak verður líka að gefa kúveiskum yfirvöldum upp staðsetningu og gerð allra sjó- og jarðsprengna. Irak verður að hlíta að fullu öll- um viðeigandi ákvörðunum Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. I því felst að írakar verða að fella úr gildi yfirlýsinguna frá því í ágúst Tveggja þrepa blaðfjöðrun að aftan, tölvuvalin til að mæta nákvæmlega hleðslu bílsins hverju sinni. G/obus? Lágmúla 5, sími 681555 Reuter. George Bush, Bandaríkjaforseti, flytur ávarp sitt til bandarísku þjóð- arinnar aðfaranótt fimmtudagsins. um innlimun Kúveits og fallast á að Irak beri skylda til að greiða skaðabætur fyrir þann missi, þann skaða og þau sár sem árás þeirra hefur valdið. Bandamenn krefjast þess af rík- isstjórn íraks að hún tilnefni yfir- menn úr heraflanum sem innan 48 stunda hitti samsvarandi yfirmenn úr röðum bandamanna, á stað inn- an átakasvæðisins, sem síðar verð- ur skilgreindur, til að ræða hernað- arlegar hliðar vopnahlésins. Þar að auki hef ég beðið Baker utanríkisráðherra að leggja fram beiðni um að Öryggisráð Samein- FORD EXPLORER Loksins alvöru jeppi sem sameinar svo meistaralega lúxusbílinn, hörkutólið - og frábært verð. Finndu muninn...

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.