Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 30

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 Ekki samstaða á þingi um vegaáætlauir Sjálfstæðismenn gera sérstaka bókun VEGAÁÆTLANIR, langtíma áætlun til 2002 og vegaáætlun fyrir árin 1991-94, voru til fyrstu umræðu í sameinuðu þingi í gær. Undantekningarlítið er reynt að ná víðtækri samstöðu um vega- málin. Að þessu sinni hefur það ekki fyllilega tekist. Sjálfstæðis- menn telja ríkisstjórnina og stjórnarflokkanna vilja vera ein- ráða um þessi mál. Stuttar þingfréttir Sóttvarnarlög Frumvarp til sóttvarnarlaga hef- ur verið lagt fram. í október 1988 skipaði heilbrigðisráðherra nefnd sem falið var það hlutverk að endur- skoða farsóttarlögin frá 1958, sótt- varnarlögin frá 1954, ýmis sérlög um varnir gegn ákveðnum smit- sjúkdómum, s.s. berklavarnarlögin frá 1939, lögin um varnir gegn kynsjúkdómum frá 1978 með síðari breytingum, og lögin um varnir gegn holdsveiki frá síðustu alda- mótum. Nefndin lauk störfum haustið 1989. Frumvarp til sótt- vamarlaga sem hún samdi var lagt fram á 112. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. í frumvarpinu er kveðið á um skipulag sóttvarna, réttindi og skyldur heilbrigðisyfirvalda — og sjúklinga. Lögð er áhersla á skjótt viðbrögð og ábyrga hegðan en þess má geta að í 15. gr. stendur: „Ef maður, haldinn smitsjúkdómi, fellst ,ekki á að fylgja reglum um um- gengni við aðra eða að rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum getur sóttvarn- arlæknir ákveðið að hann skuli lagður inn á sjúkrahús í einangrun eða að hann skuli einangraður með öðrum hætti. Um þessa dvöl skulu gilda ákvæði lögræðislaga nr. 68, 30. maí 1984, sbr. 3. mgr. 13. gr. Þurfi einangrun að vara lengur en 15 daga skal gera kröfu fyrir dómi um sjálfræðissviptingu, sbr. 19. gr. lögræðislaga." Þessar vegaáætlanir eru báðar lagðar fram í formi tillagna til þing- sályktunar og eru á margan hátt samtvinnaðar. í áætlunum er m.a. kveðið á um framkvæmdaröð og ijárupphæðir til hinna ýmsu fram- kvæmda og verkþátta. I langtímaá- ætluninni er gert ráð fyrir að verja 78.122 milljónum til vegamála, þar af 23.740 á árunum 1991—94. Af einstökum liðum má nefna að til nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu eru ætlaðar 6.725 milljónir. Til stór- verkefna, jarðganga og jarðaþver- ana (þ.e.a.s. vegatenging þvert yfir fjörð með brú og • uppfyllingu), 6.789 milljónir. Gert er ráð fýrir því að fjármagn til vegaáætlunar komi alfarið frá mörkuðum tekju- stofnum, bensíngjaldi og þunga- skatti, ef frá er talið 350 milljóna króna framlag úr ríkissjóði til fram- kvæmda við Vestfjarðagöng á þessu ári. Steingrímur J. Sigfússson sam- gönguráðherra sagði eðlilegt að ræða langtímavegaáætlun og vegaáætlun fyrir 1991—94 saman. Sú síðastnefnda væri hluti og nán- ari útfærsla langtímaáætlunarinn- ar. Ráðherrann fór nokkrum orðum um forsögu langtímaáætlunarinnar. Á síðasta ári hefði hann skipað samstarfshóp undir stjóm vega- málastjóra til að gera nýja langtímaáætlun um vegafram- kvæmdir, í hópnum voru fulltrúar stjórnmálaflokkanna, auk fulltrúa samgönguráðuneytis og Vegagerð- arinnar. Þessi hópur hefði unnið mjög ötullega að gerð áætlunarinn- ar. Samgönguráðherra sagði rétt að geta þess að fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins hefðu gert sérstaka bókun — sú bókun hefði ekki fylgt tillögum nefndarinnar þegar þær hefðu kom- ið til sín og fylgdu því ekki þing- skjalinu. Ráðherra las síðan svo- hljóðandi texta: Þar sem ráðherra hefur tekið ákvörðun um að leiðir til fjáröflunar og skipting fjármagns milli rekstr- ar- og fjárfestingarliða skuli vera í höndum ríkisstjórnar og stuðnings- flokka hennar á Alþingi lýsum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins yfir, að við lítum svo á að ráðherra og ríkisstjórn vilji ekki lengur leita eft- ir pólitískri samtöðu um gerð vega- áætlunar og langtímaáætlunar um vegagerð. Við áskiljum okkur allan rétt til að endurmeta stöðu okkar í þessari nefnd út frá breyttum for- sendum. Reykjavík 13. febrúar 1991. Það var samt von og trú sam- gönguráðherra að sem víðtækust samstaða gæti náðst hér eftir sem hingað til. Hann vænti þess í fjár- veitinganefnd og þingmannahópum kjördæmanna yrði eftir föngum reynt að ná samstöðu. Breyttar áherslur Samgönguráðherra greindi frá eldri langtímaáætlun en samkvæmt henni átti að veija tilteknu hlutfalli af þjóðarframleiðslu til vegamála; þetta hefði ekki gengið fyllilega eftir. Ræðumaður benti á að tveir stærstu útgjaldaliðirnir nýbygging- ar og sumarviðhald hefðu að jafn- aði fengið einungis % þess sem ætlað hefði verið. Því væri horfið að því ráði að treysta á hina mörk- uðu tekjustofna. Meðal þess sem gera þyrfti væri að ná upp slaka í bensíngjaldi og þungaskatti — og bæta innheimtu þungaskatts. I ræðunni kom fram að í þessari nýju vegaáætlun væru nokkuð breyttar áherslur. Bundið slitlag hefði haft nokkurn forgang enda fátt þjóðhagslega hagkvæmara. Ráðherra sagði ljóst að nokkuð hlyti að draga úr hraða við þær fram- kvæmdir þegar gengi á ódýrari vegakafla og mörg dýr verk gætu ekki beðið nema takmarkaðan tíma. Margar brýr gerðust nú æði gamlar og þreyttar. Og á höfuðborgar- svæðinu — þar sem umferðaslysin og þrengslin væru mest — væri gerð ýmissa umferðarmannvirkja orðin aðkallandi. Og á landsbyggð- iríni væru ýmsir erfíðir þröskuldar sem yrði að komast yfir — eða gegn- um. Samgönguráðherra nefndi jarðgangagerð og fjarðaþveranir. Breytingar á lögum um Húsnæðisstofnun: Ekki hægt að vera með kerfi sem byggir á biðröð - segir félagsmálaráðherra JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur á þessu þingi mjög beitt sér fyrir margháttuðum breytingum í húsnæðismálum. í fyrradag lagði hún fram enn eitt frumvarpið um breytingu á lögum um húsnæðisstofnun ríkisins sem kveður m.a. á um, hvernig lánakerf- inu frá 1986 skuli lokað. Og í gær mælti hún fyrir þessu frumvarpi í efri deild. Þótt hér sé um stjórnarfrumvarp að ræða er ekki all- g)ör einhugur í stjórnarhðinu. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra gerði í sinni fram- söguræðu nokkra grein fyrir að- draganda þessa máls, m.a. mörgum nefndarálitum og skýrslum um ágalla lánakerfisins frá 1986. „Nið- urstaðan er sú að lánakerfið frá 1986 var reist á sandi. Meiru var lofað en unnt var að standa við og þess vegna hrundi kerfíð á örfáum mánuðum. Það er ekki hægt að vera með húsnæðislánakerfi sem byggir á biðröð sem mæld er í árum.“ Jóhanna reifaði nokkuð hús- bréfakerfið og framkvæmd þess. „Húsbréfakerfið leysir lánakerfíð frá 1986 fyllilega að hólmi.“ Félagsmálaráðherra gerði grein fyrir einstökum greinum frum- varpsins, m.a. því að Byggingasjóð- ur ríkisins mun eftirleiðis aðeins vera með takmarkaðar lánveitingar til sérstakra hópa. Mun þar vera um að ræða lán til bygginga heim- ila fyrir aldraða og dagvistarstofn- anir fyrir börn og aldraða, sérstök lán til einstaklinga með sérþarfir, lán eða styrkir til tækninýjunga í byggingariðnaði. Byggingasjóður- inn skal einnig annast þau lán sem veitt hafa verið. Lögð er til sú breyt- ing á lánskjörum að ríkisstjórninni verði heimilt að ákveða að vaxta- kjör breytist á lánum er nýir eigend- ur íbúða yfirtaka þau sem áhvílandi lán. í frumvarpinu er ákvæði til bráðabirgða þar sem tekið er á málum þeirra umsækjenda sem eru í biðröð kerfisins frá 1986; hafa fengið lánsloforð eða bíða eftir þeim. Haldið er opinni leið til lán- veitinga fram til 1. mars 1994. Það kom fram í ræðu félagsmálaráð- herra að stefnt væri að því að af- greiða þessar umsóknir innan þriggja ára. í tengslum við þau lán væri nauðsynlegt að lífeyrissjóðir kaupi skuldabréf af Húsnæðisstofn- un ríkisins til að unnt væri að veita umrædd lán úr Byggingarsjóði ríkisins. Samtals þarf um 10-11 milljarða króna til að afgreiða þær umsóknir sem bíða afgreiðslu og ekki hafa verið afgreiddar með láns- loforðum. í ræðulok lagði félags- málaráðherra til að málinu yrði vísað til annarrar umræðu og fé- lagsmálanefndar. Að ósk þingmanna stjórnarand- stöðu var frekari umræðu um málið frestað. Mjög stuttur tími hefði lið- ið frá því að málið var lagt fram uns það var tekið fyrir. Töldu menn þörf á meiri tíma til að kynna sér betur svo mikilvægt og viðamikið frumvarp. Frumvarp þetta er flutt sem stjómarfrumvarp en þó er ljóst að innan stjórnarliðsins eru skiptar skoðanir. Alexander Stefánsson (F-Vl) sagði í samtali við Morgun- blaðið að þetta frumvarp hefði ver- ið knúið í gegn á aukafundi í þing- flokki framsóknarmanna. — En ein- stakir þingmenn áskildu eér rétt til að hafa alla fyrirvara á um þetta frumvarp. Alexander var lang- þreyttur á því að gengið væri gegn stefnu framsóknarmanna. — Ekki hvað síst varðandi málefni þessa ráðherra, þ.e.a.s. félagsmálaráðher- rans. Halldór Blöndal Þessar breyttu áherslur hefðu reyndar þegar komið fram vorið 1989 þegar verkefnaflokkurinn stórverkefni hefði verið tekin upp. Ráðherra fór í gegnum ýmsa þætti áætlunarinnar, markmið og kostnað, og rakti margháttaðan talnafróðleik og fór orðum um ýmsa verkþætti. Hann lagði áherslu á að hvergi yrði slegið slöku við í vega- málum. Hann bað þess að þessar þingsályktanir fengu skjóta af- greiðslu og lagði til að þeim yrði vísað til íjárveitinganefndar. Villandi plagg Halldór Blöndal (S-Ne) gerði grein fyrir bókun sjálfstæðismanna. Halldór taldi ekki annað fært en að bókunin kæmi fram í þingskjal- inu og krafist þess að þingsályktun- artillagan yrði endurprentuð. Eins og það væri nú, væri það í hæsta máta villandi. Og hann frábað sér höfundarétt af mörgu sem þar stæði. Steingrímur J. Sigfússon sam- gönguráðherra kvaðst myndu beita sér fyrir því að þingskjalið yrði endurpréntað. Hann taldi það mis- tök hjá Halldóri Blöndal að afneita svo góðu plaggi, en það væri rétt að ýmsar grundvallarhugmyndir um fjáröflun hefðu verið ræddar innan ríkisstjórnarinnar og stjórn- arflokkanna. Síðan mælti ráðherra fyrir vegaáætlun næstu fjögurra ára. Ræða hans var til þess að gera stutt og dró dám af framsöguræðu hans fyrir langtímaáætluninni enda hafði hann fyrr bent á að þessar áætlanir væru samtvinnaðar og umræðan sameiginleg fyrir báðar. Þingmenn ræddu lengi dags vegamálin og þessar áætlanir. Halldór Blöndal (S-Ne) ítrekaði sína gagnrýni á málsmeðferð, en einnig taldi hann tekjuöflunarhlið áætlunarinnar næsta óljósa og óvissa. Ríkisstjórnin ætlaði sér að hækka gjöldin, hann minnti á þjóð- arsáttina og taldi þessar aukaálög- ur ekki vera í þeim anda sem aðilar vinnumarkaðins maéltust til. Pálmi Jónsson gagnrýndi hve seint þessar áætlanir væru fram komnar; minnti á að þinglok yrðu eftir hálfan mán- uð. Hann taldi gagnrýni Halldórs Blöndals styðjast við rök, honum sýndist enn vera mikið starf óunnið við langtímaáætlunina. Þingmenn ýmsir minntu á þær framkvæmdir sem þeir söknuðu helst. T.d. var þingmönnum af Vesturlandi og Vestfjörðum mjög þvert um geð, að til brúar — eða þverunar — yfir Gilsfjörð skyldu einungis vera ætl- aðar 15 milljónir á fyrsta tímabili. Alexander Stefánssyni (F-Vl) var engin launung á því að fram- kvæmdir í þéttbýli drægu til sín umtalsverðar fjárupphæðir frá öðr- um framkvæmdum. Hann og Eiður Guðnason (A-Vl) skiptust á hug- myndum um þessi efni. Eiður greindi frá væntanlegri þingsálykt- unatillögu um endurskoðun á ákvæðum vegalaga um þjóðvegi í kaupstöðum og kauptúnum. Það mátti ráða af máli Eiðs að hann teldi kostnaðarhlutdeild vel stæðra sveitarfélaga ekki með öllu óhugs- andi, var Reykjavík nefnd í því sam- bandi. Málmfríður Sigurðardóttir (SK-Ne) hefði óskað eftir metnað- arfyllri vegaáæltun til að styrkja byggð í landinu. Kristinn Pétursson (S-Al) kynnti breytingartillögu sína um sérstakan mannvirkjasjóð sam- Steingrímur J. Sigfússon gönguframkvæmda. Þessum sjóði yrði heimilt að taka innlend og er- lend lán til stórframkvæmda. Þetta væri réttlætanlegt því vegamálin væru arðvænleg tjárfesting en ekki eyðsla. Ólafur Þ. Þórðarson (F- Vf) sagði m.a. að mönnum hætti til að tala um skatta af umferðinni en þeir yrðu að líta á Vegagerðina sem fyrirtæki sem þyrfti sín þjón- ustugjöld. Steingrímur J. Sigfús- son samgönguráðherra taldi vel koma til greina að auka sjálfstæði Vegagerðarinnar um eigin rekstur og fjárhag. Og tæki sú tilhögun e.t.v. mið af því fyrirkomulagi sem Póstur og sími hefði á sinni starf- semi. Auk fyrrgreindra tóku Friðjón Þórðarson (S-Vl), Stefán Valgeirs- son (SFJ-Ne) og .Ólafur Kristjáns- son (S-Vf) þátt í umræðunni. Þessum tillögum til þingsálykt- unar var vísað til fjárveitingar- nefndar og síðari umræðu. Stuttar þingfréttir Skýrslur Skýrslur hafa verið áberandi á leslista þingmanna undan- farna daga. í sameinuðu þingi í síðustu viku var gerð grein fyrir skýrslum um norrænt sam- starf: Skýrsla íslandsdeildar Norðurlandaráðs um norrænt samstarf, skýrsla um starf norr- ænu ráðherranefndarinnar, og skýrsla um vestnorræna þing- mannaráðið. Á dagskrá sameinaðs þings síðastliðinn mánudag voru nokkrar skýrslurtil umfjöllunar: Skýrsla íslandsdeildar Alþjóða- þingmannasambandsins um 84. þing sambandsins í Punta del Este í Úrúgvæ 15.-20. október 1990 og ráðstefnu sambandsins um afvopnunarmál í Bonn 21.-25. maí 1990. Einnig var flutt skýrsla þingmannanefndar Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA. Ennfremur skýrsla um 42. þing Evrópuráðsins. Og þar að auki skýrsla frá félagsmála- ráðherra um Alþjóðavinnumála- þingið í Genf 1990. Allt fyrirgreint lesmál fjallar með einhveijum hætti um ut- anríkismál eða samstarf við aðrar þjóðir. I gær var til um- ræðu skýrsla félagsmálaráð- herra um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til ijögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra mælti í gær í efri deild fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um greiðslu- jöfnun fasteignaveðlána til ein- staklinga nr. 63./1983. í grein- argerð segir m.a. að samkvæmt núgildandi lögum um greiðslu- jöfnun fasteignaveðlána, njóta allir húsbyggjendur eða húskau- pendur greiðslujöfnunar ef mis- gengi verður, óháð eignum og tekjum. Með því að fella mis- gengi vegna raunvaxtahækkun- ar burt úr lögunum sé verið að tryggja að þeir sem eigi rétt á vaxtabótum, fái raunvaxta- hækkun bætta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.