Morgunblaðið - 01.03.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.03.1991, Blaðsíða 31
 081 Gúmmívinnslan hf.: Sundlauginni færð- ar gúmmíhellur GÚMMÍVINNSLAN færði Sundlaug Akureyrar að gjöf 17 fer- metra af gúnuníliellum í gær, en þær eru framleiddar hjá fyrirtæk- inu úr úrgangsgúmmíi. Með gjöfinni vill Gúmmívinnslan vekja athygli á mikilvægi endurvinnslu og endurnýtingu í þjóðféiaginu og því að endurvinnsla þýðir ekki að verið er að framleiða gagn- slitlar vörur, heldur er þarna á ferðinni nauðsynlegar og hagnýt- ar vörur sem stuðla að öryggi þeirra sem þær nota. Framleiðsla gúmmíhellna er nýjung hér á landi og erlendis, en þar ytra eru hellurnar einkum framleiddar úr hrágúmmíi. Hjá Gúmmívinnslunni eru hellurnar framleiddar úr úrgangsgúmmíi. Meginmarkmið fyrirtækisins hef- ur frá upphafi verið að endurvinna og endumýta hjólbarða; notaðir hjólbarðar eru sólaðir og gúmmíið sem til fellur við sólninguna er nýtt til endurvinnslunnar. Eiginleikar gúmmíhellanna em m.a. að þær dempa högg við fall, verða ekki hálar þó þær blotni, em hita- og hljóðeinangrandi, og slit og endurþol þeirra er gott. Hellurnar henta því vel við sund- laugar og potta, á gangstíga og tröppur sem og bamaleikvelli. Markmið Gúmmívinnslunnar er að efla endurvinnslu ýmiskonar og mun fyrirtækið leggja aukna áherslu á þróunarvinnu í þeim efnum, en dýrmæt þekking og reynsla hefur myndast í fyrirtæk- inu á hvers konar endurvinnslu. Sú þekking er helsti styrkur þess og er stefnt að því að nýta hann til fullnustu á næstu árum við vöruþróun, framleiðslu og mark- aðssetningu á endurunnum vömm bæði á innlendum og erlendum markaði, en fyrirtækið hefur þreifað fyrir sér í útlöndum með sölu á gúmmímottum. Gúmmívinnslan var stofnuð árið 1983 og era aðaleigendur Þórarinn Kristjánsson, sem er framkvæmdastjóri og á 50% í fyr- irtækinu, Möl og sandur, Dreki og Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar. Morgunblaðid/Rúnar Þór Við afhendingu gjafarinnar: Frá vinstri: Þóra Regína Þórarins- dóttir markaðsstjóri, Þórarinn Kristjánsson framkvæmdastjóri Ingi Björnsson formaður stjórnar Gúmmivinnslunnar og Þor- steinn Þorsteinsson sundlaugarvörður. Fjárhagsáætlun Dalvíkurbæjar samþykkt: Ráðstöfunarfé bæjarsjóðs- og fyrirtækja verður 129,5 millj. Dalvík. FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkurbæjar var samþykkt samhljóða á fundi bæjarstjórnar Dalvíkur á þriðjudaginn. Tekjuforsendur áætlun- arinnar eru þær sömu og árið 1990 að öðru leyti en því að álagning fasteignagjaída íbúðarhúsnæðis lækkar úr 0,4% í 0,375%. Við af- greiðslu áætlunarinnar var haldið við það meginmarkmið að greiða niður skuldir sem þó eru ekki umtalsverðar. Til ráðstöfunar hjá bæjarsjóði upp í afborganir lána og fjárfestingar eftir rekstrarkostn- að eru 27% af tekjum eða um 44,5 miHjónir króna. ur hefur lækkað að raungildi und- anfarin ár og hefði hækkun bygg- ingavísitölu verið fylgt við ákvörðun gjaldskrár ætti hver rúmmetri vatns að kosta um 50% meira en nú er. Þetta þýðir að hitaveitan hefur haldið aftur af gjaldskrárhækkun- um sem svarar til 11,2 milljóna króna miðað við árssölu eða um 22 þúsundir króna á hvert veitunúmer í bænum. Helstu framkvæmdir á vegum bæjarfyrirtækja em endumýjun aðveituæðar hitaveitu, bygging miðlunartanks fyrir vatnsveitu og endurnýjun á hafnarvog og uppfyll- ing við norðurgarð. Fréttaritari Ungir píanó-' nemendur leika á tónleikum YNGRI nemcndur píanódeildar Tónlistarskólans á Akureyri leika fjölbreytta efnisskár á tón- leikum sem verða í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju ái morgun, laugardag kl. 17. Nemendurnir em á aldrinum 7-15 ára og leiká m.a. verk eftir tónskáld sem sérstaklega er minnst á þessu ári, svo sem Moz- art og Prokofieff. Einnig verða leikin verk eftir Hafliða Hallgríms- son oá Elías Davíðsson, en þeir eiga báðir merkisafmæli í ár. Að- gangur er ókeypis og allir vel- komnir. Borgarbíó: Glæpir og af-' brot sýnd umhelgina KVIKMYNDIN Glæpir og afbrot (Crimes and Misdemeanors) verður sýnd í Borgarbíói um helgina, 2. og 3. mars kl. 17 og síðan á mánudag kl. 19. Sýningamar em á vegum Kvik- nrfndaklúbbs Akureyrar í samvinnií við Borgarbíó. Mynd þessi hefur hvarvetna hlotið góða dóma. Leikstjóri og handritshöfundur er Woody Allen og á meðal leikara í myndinni má nefna Martin Land- au, Alan Alda, Anjelica Huston, Mia Farrow, Sam Waterson og Woody Allen. Kvikmyndaklúbbur Akureyrar er ófélagsbundinn klúbbur fólks sem áhuga hefur á kvikmyndum og vill stuðla að að því að fá fyrr til sýn- inga á Akureyri myndir sem eru í kvikmyndahúsum höfuðborgarinn- ar auk þess að leggja áhei’slu á evrópskar kvikmyndir. Allir áhuga- nienn um góðar og hlélausar mynd- ir eru því velkomnir á sýningar þær* sem klúbburinn stendur að. í heild er ráðstöfunarfé bæjar- sjóðs og bæjarfyrirtækja 129,5 milljónir króna. Þar af hefur bæjar- sjóður einn og sér 76 milljónir króna. Til fjárfestinga verður varið 53 milljónum króna og er grunn- skólabygging stærsta framkæmdin en ráðgert er að taka 2. áfanga í notkun í haust. Aðrar stærstu fram- kvæmdir em að ráðgert er að veija 7,1 milljón króna til gatna og gang- stétta og 8,7 milljónum króna til íþrótta- og æskulýðsmála. Helstu málaflokkar þar em upbygging íþróttavallar, bygging þjónustuhúss í skíðalandi og hesthúsahverfi í Ytra-Holti. Fjárfrekustu rekstrarliðir áætl- unarinnar eru fræðslumál, en til þeirra verður varið 34,2 miiljónum króna, yfirstjórn bæjarins fær 23,7 milljónir og félagsmál fá 20,2 millj- ónir króna. í heild hækka rekstrar- gjöld að frádregnum tekjum í rekstri um 24% frá áætlun ársins 1990 en sameiginlegar tekjur um 14%. Þessi hækkun rekstrarút- gjalda skýrist að mestu í því að nú er áætlað að veija meira fé til við- halds fasteigna bæjarins og þá er meiru fé varið til félagsmála en á síðasta ári. Fjárhagsáætlunin sýnir trausta stöðu bæjarfyrirtækja og við fyrri umræðu kom fram í máli bæjar- stjóra að vatn frá hitaveitu Dalvík- HÓ í Ólafsfirði: Reynt að halda uppi samfelldri vinnu MÚLABERG ÓF landaði 60 tonnum lijá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar í gær. Að undanförnu hefur fremur lítið hráefni borist að landi sökum gæftaleysis. Jóhann Guðmundsson fram- Bekkur landaði um 60 tonnum hjá kvæmdastjóri Hraðfrystihúss HÓ í gær og verður unnið úr þeim Óláfsfjarðar sagði að frekar illa afla næstu daga, en Sólbergið land- gengi að halda uppi samfelldri vinnu,' aði í síðustu viku. „Þetta er barningur frá degi til Rækjuvinnslan hefur ekki verið í dags,“ sagði hann, „en það er mest gangi um nokkurn tíma og sagði um vert að vinnan sé samfelld." Jóhann að hún myndi væntanlega Múlabergið, sem áður hét Ólafur hefjast með vorinu. Ágreiningur um upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn: Gremjulegt að borgin hætti samstarfi núna - segir Þorleifur Þór Jónsson fulltrúi í Ferðamálaráði MIKLAR umræður urðu um uppbyggingu upplýsingamiðstöðva fyrir væri u.þ.b. 3,2 ferðamenn á fundi Ferðamálaráðs sem haldinn var á Akureyri á föstudag, en eins og fram hefur koinið hefur Iteykjavíkurborg ákveð- ið að segja sig úr samstarfi um upplýsingamiðstöð ferðamála sem rekin er í lteykjavík, af borginni, Ferðamálaráði og ferðamálasam- tökum landshlutanna. Búið er að koma upp upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Reykjavík og snýst ágreiningurinn um þá ákvörðun ferðamálasamtaka landshlutanna að knýja á um að hafist verði handa um samskonar uppbyggingu á landsbyggðinni. Þorleifur Þór Jónsson fulltrúi í Ferðamálaráði og stjórnarmaður í Upplýsingamiðstöðinni sagði að mönnum þætti ansi gremjulegt að nú, þegar búið væri að byggja upp upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn Reykjavík og komið að uppbygg- ingu út á landsbyggðinni, skyldi borgin draga sig út úr samstarfinu. „Það er alveg ljóst að landshluta- samtökin sem sum hafa lagt allt sitt í þetta eru mjög, óhress með þessa ákvörðun, sérstaklega eftir að forsvarsmenn borgarinnar hafa stillt málinu þannig upp, að þar sem Ferðamálaráð borgi hvort eð er framlag landshlutasamtakanna, þá sé eins gott að ráðið borgi allt sam- an. Þetta er ekki rétt, ferðamála- samtök landshlutanna fá sameigin- lega til ráðstöfunar í ár 2,5 milljón- ir króna frá Ferðamálaráði og það fé hefur verið notað til að standa við okkar skuldbindingar varðandi uppbyggingu upplýsingamiðstöðv- arinnar í Reykjavík," sagði Þorleif- ur Þór, en hann sagði að hlutur landshlutasamtakanna í rekstrinum milljónir króna. Astæðu ágreiningsins sagði hann vera þá að landshlutasamtökin hafí verið farin að knýja á um það ákvæði i stofnsamningi þar sem segir að stefnt skuli að uppbygg- ingu á landsbyggðinni. Þorleifur sagði að um væri að ræða stórt og mikilvægt atriði varðandi uppbygg- ingu ferðaþjónustunnar og aðilar víða um land væm tilbúnir til að leggja umtalsvert fé í þessa upp- byggingu, en m.a. hefur stjórn Ferðamálaráðs haft til skoðunar umsókn Selfossbæjar þar sem bær- inn er reiðubúinn að leggja fram yfir 50% af kostnaði og þá sagði Þorleifur að Akureyrarbær hefði stutt upplýsingamiðstöðina í bæn- um með ríflegum framlögum. Á fundi Ferðamálaráðs á föstu- dag var skipaður fimm manna vinnuhópur til að leita lausna varð- andi þetta mál.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.