Morgunblaðið - 01.03.1991, Side 32

Morgunblaðið - 01.03.1991, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1. MARZ 1991 A annað hundrað (yririðki og stofnanir eru ræstar daglega Á hverjum degi eru rðstir um 70.000 ferm Hreingerningar Aöalrðstingar Teppahreinsun Gluggaþvottur Brunarðstingar Hreinlðtisvöru- sala Fjölbýlishúsa- þnf Gardínuþrif Föst viövera öryggisvaröa á Föst viðvera öryggisvaröa við rýrnunareftirlit. Verndaöur flutningur á verömðtum milli staöa. Verkefni þar sem þörf er íyrir ákveönar öryggisaögerðir timabundiö. Til stjórnstöövar eru tengd um átta hundruö innbrota- viövörunarkerfi. Til stjórnstöövar eru tengd um sjötiu brunaviövörunar- kerfi. Til stjórnstöövar eru tengdií um fimmtíu árásahnappar. Til stjórnstöövar eru tengdar ýmsar gerðir tðkniviövarana svo sem vakt á kðlum, lofthitastigi, m I fiskeldis- stöðvum og II. Hönnun, sala og uppsetning á öllum tegundum innbrotaviö- vörunarkerfa jafnt úti sem inni Hönnun, sala og uppsetning á öllum tegundum brunaviövörunar kerfa. Hönnun, sala og uppsetning á öllum stærðum aögangskorta- kerfa. Kerfi fyrir allt aö 1024 dyr og 25000 notendur. Hönnun, sala og uppsetning á öllum stæröum og geröum myndavélakerfa. Neyöarhnappar, viövörunar- búnaöur fyrir kæla og frysta, vatnsviövörunar- kerfi, kerfi til nota viö rýrnunareftirlit og fl. Securitas á sakamannabekk fyrir því sé hundrað prósent vissa. Við full- yrðum hins vegar að starfsfólk fyrirtækisins sýnir hundrað prósent viðleitni við að koma í veg fyrir innbrot." eftirHannes Guðmundsson Setningar, s.s. — öryggisgæsla Securitas klikkar, — Securitas yfir- sást, — innbrot og skemmdarverk framin þrátt fyrir öryggisgæslu Securitas, hafa komið fyrir sjónir almennings gegnum fjölmiðla og gefið jafnan tóninn um að eitthvað hljóti að vera bogið við þjónustu fyrirtækisins. En þvert á móti, og sem betur fer, er sjaldnast um það að ræða. Heldur stafar það af því að fjölmiðl- ar hafa ekki kynnt sér þá þjónustu sem fyrirtækið rekur og greina jafnan á mjög villandi hátt frá því sem fram hefur farið. Misskilningur íog þekkingarleysi einkenna -alla opinbera umfjöllun. Fjölmiðlum er þó kannski nokkur vorkunn þar sem forráðamenn Securitas hafa af ýmsum ástæðum ekki talið heppi- legt að upplýsa almenning í smáat- riðum um þessa þjónustuflokka fyrr en nú og að gefnu tilefni. Meðferð Ríkisútvarpsins á inn- broti í Menntaskólann við Hamrahlíð fyrir skömmu var með slíkum fádæmum að ljóst var að viðbragða frá Securitas var þörf. Grundvallaratriði eðlilegrar frétta- mennsku voru þar þverbrotin og til vansæmdar þessum fjölmiðli. Um- fjöllunin skaðaði Securitas verulega eins og sjá má af viðbrögðum fólks sbr. blaðagreinar og fleira. Heil starfsstétt var dregin í gapastokk og gert lítið úr og starfsemi Securit- as dregin í efa, hvort tveggja full- komlega að ósekju. Fjölþætt þjónusta Securitas - Securitas er fyrirtæki sem auk umfangsmikillar ræstingarþjónustu hefur að meginhlutverki að þjón- usta einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir af ýmsum stærðum og gerðum, taka að sér úrlausn vanda- samra viðfangsefna fyrir þessa að- ila og skapa þeim aukna öryggis- kennd með einum eða öðrum hætti. Þetta er gert með markvissu fyrir- byggjandi starfi og inngripi í hvers 'konar vandamál sem upp geta kom- ið, reyndar oft við all óvenjulegar aðstæður. Starfsemi öryggisgæslu- fyrirtækja á borð við Securitas er fjarri Iagi einskorðuð við innbrota- varnir og málum tengdum þeim. En á hinn bóginn þar sem um inn- brotavarnir er að ræða hefur Secur- itas staðið sig vel og verið mjög farsælt í þau 12 ár sem liðin eru frá stofnun fyrirtækisins, sem merkja má af viðgangi starfseminn- ar. Undir merki Securitas starfa nú u.þ.b. 340 starfsmenn í ýmsum deildum og hafa mismunandi verk- efni með höndum sbr. skýringar- mynd. Það er fleira öryggi en inn- brotavarnir og ættu lesendur að kynna sér vandlega skýringar- myndir og texta í því sambandi. Mikil öryggisgæslustarfsemi fer fram hjá fjölmörgum fyrirtækjum sem hefur ekkert beint gildi í sam- bandi við innbrotavarnir. Við köll- um það að lágmarka áhættu innan fyrirtækisins og er þá horft á eld- hættu, sprengihættu, vatnstjón, eft- irlit með hita- og rakamælum, al- mennum frágangi glugga og hurða ásamt eftirliti með heilu vélasam- stæðunum sem eru látnar ganga í framleiðslu yfir nóttina svo fá dæmi séu nefnd. En fyrirtækið rekur eins og sjá má af meðfylgjandi myndum mjög margþætta starfsemi sem tek- ur á fjölmörgum þáttum öðrum en innbrotum eins og fram hefur kom- ið. Það er í raun furðulegt að allur almenningur telji þessa starfsemi endalausan eltingaleik við ótínda glæpamenn, þvert á móti er sá þátt- ur einungis einn rekstrarþáttur af mörgum og ekki afgerandi umfram ýmsa aðra þjónustuþætti Securitas. Þjónustu fyrirtækisins er skipt í fimm meginþætti sem aftur grein- ast í þrengri sérsvið. Auk ræstinga er um eftirfarandi fjögur öryggis- svið að ræða. Staðbundin gæsla Staöbundin gæsla er sú öryggis- gæsla kölluð þegar öryggisvörður eða öryggisverðir hafa fasta viðveru í sömu byggingunni eða á sama athafnasvæðinu. Það eru aðallega stór fyrirtæki með viðkvæma starf- semi sem þurfa að viðhafa há- gæða-öryggisgæslu sem kaupa þessa þjónustu, s.s. bankar, olíufé- lög, ýmis iðnfyrirtæki o.fl. Stað- bundin gæsla getur oft falið í sér aðgangseftirlit sem og rýrnunareft- irlit með framleiðsluvörum. í þess- ari tegund öryggisgæslu er hægt að sameina fyrirbyggjandi eftirlit sem og öflugar innbrotavarnir. Oft er tæknibúnaður, s.s. myndavélar o.fl., notað til aðstoðar þessu eftir- liti til að auka enn frekar virkni þess. Farandgæsla Hlutverk farandgæslu er fyrst og fremst fyrirbyggjandi eftirlit innan fyrirtækja. Þessi tegund öryggisgæslu er hvað mest áberandi enda fara fjöl- margir öryggisverðir Securitas á bílum milli bygginga víðsvegar um borgina. Þannig ferðast þeir frá einum stað til annars og sinna eftir- liti sínu. Öryggisverðir farandgæslu sjá um verðmætaflutninga sem er ört vaxandi þjónusta við fyrirtæki sem þurfa að safna saman fjármun- um og flytja í banka. Eins og kunn- ugt er hafa rán og ofbeldi farið vaxandi hérlendis og árásir á fólk við flutninga á peningum að sama skapi. Því hefur þróunin orðið svip- uð hérlendis og þekkist í öðrum löndum, flutningur fjármuna fer fram undir eftirliti þjálfaðra öryggi- svarða eða af þeim sjálfum. Öryggisverðir farandgæslu eru einnig sérþjálfaðir til að, sinna út- köllum til aðstoðar öldruðum, fötl- uðum og sjúkum sem hafa neyðar- hnapp tengdan Securitas. Vegna þess hve víða þessir öryggisverðir fara er ekki komist hjá að þeir sinni hinum almenna borgara við hinar ýmsu kringumstæður sem upp geta komið. Undir þessa deild falla alls konar sérverkefni, s.s. gæsla við Elliða- árnar, sýningat' o.m.fl. Stjórnstöð Securitas Stjórnstöðin er mikið tæknivirki og má segja að hún sé hjarta fyrir- tækisins. Þaðan er allri öryggis- gæslunni stjórnað ýmist með fjar- skiptatæki eða öðrum tækníbúnaði. Öll viðvörunarkerfi sem Securitas setur upp eru tengd inná stöðina og stjórnar hún öllum viðbrögðum ef neyðarboð berast. Stjórnstöðin hefur með ýmiss konar þjónustu að gera, s.s. neyðarþjónustu fyrir ferðamenn í samvinnu við Flug- björgunarsveitina og Hjálparsveit skáta, móttöku bilanatilkynninga vegna þjónustu fyrirtækja á tölvu- sviði o.fl. Ef rafmagn fer, heldur neyðarrafstöð stjórnstöðinni gang- andi. Tæknideild Hlutverk tæknideildar er að flytja inn og selja öryggisbúnað á öllum sviðum öryggismála. í flest- um tilvikum er um flókinn hátækni- búnað að ræða. Sjá nánar mynd. Jafnframt fer stór hluti starfsins í hönnun öryggiskerfa að aðstæðum viðskiptavina. Lokaorð Securitas hefur aldrei sagt að koma megi í veg fyrir innbrot þann- ig að fyrii' því sé hundrað prósent vissa. Við fullyrðum hins vegar að starfsfólk fyrirtækisins sýnir hundrað prósent viðleitni við að koma í veg fyrir innbrot. Securitas hefur frá upphafi leitast við að finna öryggisgæslunni, sem starfsgrein, þann fai'veg að þar séu gerðar kröf- ur til þeirra sem ætla sér að veita þjónustu, og á það auðvitað fyrst og fremst við um kröfur til okkar sjálfra. Fyrirtækið hefur kostað miklu til við þjálfun þeirra manna sem eiga að móta og stjórna þeirri þjónustu, sem fyrirtækið býður, með því að senda þá á námskeið erlendis hjá virtustu fyrirtækjum á sviði öryggismála. Það er von Securitas að með þessari grein hafi tekist að upplýsa á skiljanlegan hátt í hverju starf- semi fyrirtækisins er fólgin og jafn- framt hafi fordómum verið eytt. Höfundur er framkvæmdastjóri Securitas hf. Hafnarborg: Yfirlitssýning Kjart- ans Guðjónssonar Yfirlitssýning á verkum Kjartans Guðjónssonar listmál- ara verður opnuð í Hafnarborg á morgun, laugardag. Auk þess sýnir Kjartan nýjar myndir í Listhúsinu Vesturgötu 17. I formála sýningarskrár segir listamaðurinn að það sé kannski fullmikið sagt að kalla sýninguna yfirlitssýningu. „Það mætti segja að ég hafi litið um öxl. Margar myndanna hafa aldrei verið sýndar áður, einkum þær eldri, en stiklað er á stóru yfir mismunandi tíma- bil,“ segir í formálanum. Sýning Kjartans Guðjónssonar í Hafnarborg spannar árin 1943- 1990. Hún stendur til 17. mars. Kjartan Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.