Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 35

Morgunblaðið - 01.03.1991, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 35 Dökka hliðin á háaðlinum Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Sýknaður!!! — „Reversal of For- tune“ Leikstjóri Barbet Schroeder. Handrit Nicholas Kazan. Kvik- myndatökustjóri Luciano Tovoli. Aðalleikendur Glenn Close, Jer- emy Irons, Ron Silver, Uta Hag- en. Bandarísk. Sovereign Films 1990. Það fór um peningaaðalinn á Nýja Englandi er fréttist að einn meðlimur hans, milljónamæringur- inn Sunny von Bulov, væri fallinn í dauðadá og kringumstæðurnar ekki með felldu. Því þarna, á strandlengjunni frá Long Island norður undir Boston, er saman- kominn í köstulum sínum rjóminn af háaðli bandarískra og alþjóð- legra auðjöfra. Einkum þó hinn ljósfælni ameríski aðall sem hleypir ekki nema útvöldum innum garðs- hliðin og umgengst aðeins jafn- ingja. Fátt er honum verr við en hverskonar hnýsni í hvað er á seyði bak við luktar dyr hinna ótrúlegu höfðingjasetra. Stjamfræðileg auðæfi eiga að vernda einkalífið. Þetta er bakgrunnur myndarinnar um von Biiiov málið. Sunny (Close) var ein af útvöld- um íbúum Newport á Rhode Is- land. Um æðar seinni manns henn- ar, Claus van Biilov (Irons), rann blátt blóð ættstórra aðalsmanna gamla heimsins, en það er einmitt ákaflega eftirsótt til kynblöndunar í peningaaðli norðausturstrandar- innar. En auðlegð tiyggir ekki ást. Það kemur í ljós að hún er farin að fölna er myndin hefst. Von Biilov tekinn að halda við unga fegurðardís og hin lífsleiða Sunny getur ekki hugsað sér að ganga aftur í gegnum skilnaðarmál. Hún leitar lífsfyllingar í óhóflegu lyfja- áti sem að lokum verður þess vald- andi að hún fellur í dauðadá. Börn hennar frá fyrra hjónabandi ráða einkaaðila — í anda umhverfisins — til að rannsaka hörmuleg örlög hennar og sökinni er komið á stjúp- ánn, heimsborgarann, kvennagull- ið, hrokagikkinn von Biilov. Sá útsmogni, danskættaði ar- istókrat er ekki á þeim buxunum að kyngja málalokum. Ræðut' frægan lagaprófessor við Har- vard-háskóla, lagarefinn Dershow- itz (Silver). Sá fær 100 daga til að áfrýja og kemur sér upp her snjallra aðstoðarmanna sem hann sækir einkum í hóp nemenda sinna. Myndinni er ekki ætlað að svara spurningunni hvort von Biilov sé sekur eða ekki á fullnægjandi hátt. Hann er vissulega sýknaður en hvað gerðist í svefnherbergi hjón- anna unt ögurstund veit enginn nema þau sjálf. Líkur eru færðar að ýmsum hugsanlegum lausnum gátunnar og hver verður að dæma fyrir sig. Það er vissulega forvitnilegt að kíkja í gegnum skráargatið á líf aðalsins, í þessari höil er það hið rammasta óeðli að vilja taka sér eitthvað fyrir hendur og líf auðkýf- inganna sorglega firrt allri lífslöng- un og heilbrigðum lífsvenjum. Myndin er unnin af snjöllum og vandvirkum kvikmyndagerðar- mönnum, hin dökkleita paradís dregin upp af listrænni fag- mennsku í smáu sem stóru. Um- hverfið, búningar, leikmunir,' eru hannaðir af traustasta fólki í grein- inni og það er unun að virða íýrir sér þessa ómennsku veröld auðæfa einsog hún birtist í smekkvísi á heimsmælikvarða í húsgögnum, klæðaburði, skartgripum, fram- komu, hvar sem litið er í stóru og ekki síður smáu. Stjarna myndarinnar er þó engu að síður breski stórleikarinn Jer- emy Irons í sínu besta hlutverki til þessa dags. Ef hann fær ekki Óskarsverðlaunin er ég illa svikinn. Hann er nánast fullkominn sem hið hrokafuila stertimenni, það skín af honum reisn hins eðla blóðs um aldir aftur. Dregur upp persónu sem er í senn glæst, óræð og hættu- leg í tíguleik sínum. Þetta er afar erfitt hlutverk, maðurinn þarf sífellt að bera höfuð og herðar yfir aðra (en Sunny), og skrikar aldrei fótur. Og við vitum aldrei hvar við höfum hann. Irons skilar þessu öllu ótrúlega vel. Close gefur honum lítið eftir og bráðsnjöll er sú lausn handritshöfundar að nota sem sögumann; leggja henni orð í munn í dauðadáinu. Silver sleppur vei fyrir horn í hlutverki lagaprófess- orsins og sum atriðin með honum og hinum bráðvel valda hjálpar- mannaflokki eru einar þær bestu í myndinni. Hinn þýski Schroeder hefur hafið feril sinn með miklum ólíkindum vestan hafs. Fyrst hin persónulega og eftirminnilega Barfly og nú engu síðra verk, í senn svo andstyggilegt en glæst. Schroedeí' hefur greinilega gaman af að fást við þessar andstæður. til að feta mjóan veg réttvísinnar mislukkast. Sömuleiðis kynni henn- ar af karlpeningnum. Ósköp dapurleg saga en sögð á léttan hátt og það örlar á bjartsýni svona annað slagið. Janine er vissu- lega veik á svellinu en hún býr yfir óvenjulegri hreinskilni og ein- lægni, hún er skæð og brothætt í senn. Gainsbourg í aðalhlutverkin leikur þennan uppreisnargjarna karakter af dijúgu innsæi og sjarma, sömuleiðis Billery (D/va) í hlutverki gamla frændans. Hand- ritið er byggt á söguþræði sem fannst í dánarbúi Truffauts. Það hefði mátt búa yfir meiru af töfrum hins snjalla kvikmyndargerðar- manns sem féll frá svo langt fyrir aldur fram. Skæð sú stutta Regnboginn Litli þjófurinn - „La Petit Voul- euse“ Leikstjóri Claude Miller. Hand- rit Miller, Luc Beraud, Annie Miller. Byggt á hugmynd Fran- cois Truffaut. Aðalleikendur Charlotte Gainsbourg, Didier Bezace, Simon De La Brosse, Raoul Billery. Frakkland 1988. Gainsbourg leikur stelputrippið Janine sem fátt gengur í haginn. Hún er í blóma lífsins, sæt og sex- tán. En aðstæðurnar eru bágar. Móðirin stungin af til Ítalíu, sjálf elst hún upp hjá drykkfelldri móð- ursystur og rosknum frænda og fer lítið fyrir ástúðinni en meira fyrir fátæktinni. En eins og flestar aðrar ungar stúlkur dreymir haha um betra líf og reynir að bæta sér upp gráma hversdagsleikans með vin- sælasta flóttameðali þessara tíma (Frakkland er að byija að rétta úr kútnum eftir seinna stríð), langset- um í kvikmyndahúsum. En það dugar ekki til, hún er kræf og þjóf- ótt og hnuplar skartklæðum úr tískuverslunum, þær tilraunir enda með ósköpum. Til að bæta gráu ofaná svart hyggst hún rupla hús Drottins og tilraunir hennar síðan A TVINNUHÚSNÆÐI Ármúli 38- 160fm 160 fm atvinnuhúsnæði til leigu við Ármúla 38. Mjög hentugt fyrir teiknistofu, tölvu- og hugbúnaðarþjónustu o.þ.h. Upplýsingar í síma 685316 (Gyða). TILSÖtU Hlutabréf í Júpíter hf. Til sölu eru 47,5% alls hlutafjár í Júpíter hf., sem er eigandi loðnuskipsins Júpíters RE 161. Upplýsingar veitir undirritaður. Tryggvi Agnarsson hdl., Garðastræti 38, ' Reykjavík. Sími 2 85 05. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Aðalfundur badmintondeildar KR Aðalfundur badmintondeildarinnar verður haldinn fimmtudaginn 7. mars kl. 20.45 í KR-heimilinu. Stjórnin. Aðalfundur Húseigendafélagsins Á aðalfundi Húseigendafélagsins, sem hald- inn verður í Skipholti 70 1. mars nk. kl. 18.00, flytur dr. Pétur Blöndal erindi um eignaskatta á Norðurlöndunum. Stjórnin. Sveitarstjórnamenn í Reykjavíkur- og Reykja- neskjördæmum Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum minna á fund með þingmönnum um jöfnun atkvæðisréttar á morgun, laugardag, í íþróttahúsi Bessastaðahrepps kl. 10.00 ár- degis. Frummælendur verða: Þorkell Helgason, prófessor, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. og fulltrúar frá þeim stjórnmálaflokkum, sem eiga þingmenn í þessum kjördæmum. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 12= 172318'/2 = 9.0. I.O.O.F. 1 = 172318<h = Sp. ; VEGURINN V Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kóp. Kl. 20.30. Samkoma fyrir ungt fólk. Jesús hefur lausn á þínum vanda. Verið velkomin. Frá Guðspeki- fólaginu IngóHutrnti 22. Askríftartfml Ganglera ar 39673. , i kvöld kl. 21.00 flytur Birgir Bjarnason erindi eftir Sigvalda Hjálmarsson, „Snjórinn sem féll í gær", I húsi félagsins, Ingólfs- stræti 22. Á morgun, laugardag, er opið húsfrákl. 15.00 til kl. 17.00 með stuttri fræðslu og umræðum kl. 15.30. Áfimmtudögum kl. 20.30 er hugleiöing og fræðsla um hugrækt fyrir byrjendur. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. FERÐAFÉLAu © ÍSLANDS jLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Snæfellsjökull áfullu tungli 1 .-3. mars Allir eiga þá ósk heitasta að ganga á Snæfellsjökul og nú er tækifærið að komast þangað utan hefðbundinna páska- og hvítasunnuferða. Svefnpoka- gisting á Görðum. Tilvalið að hafa með göngu- eða fjallaskíði, en ekki skilyrði. Sund á Lýsu- hóli. Brottför föstudag kl. 20.00. Námskeiði í ferðamennsku að vetrl er frestað til 16. mars. Skíðagöngunámskeið fýrir byrj- endur áætlað á sunnudaginn 3. mars. Vetrarfagnaður Ferðafélagsins 9.-10. mars á Flúðum Viðburður í félagsstarfi vetrarins sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Brottför laugardag kl. 09.00, en einnig hægt að koma á eigín vegum. Göngu- ferðir á laugardeginum. Vetrar- fagnaður í fétagsheimifinu Flúðum á laugardagskvöldinu. Fordrykkur; glæsileg máltíð; góð skemmtiatriði í umsjá skemmtinefndar FÍ. Dansað langt fram á nótt. Frábær gisti- aðstaða í herbergjum. Heitir pottar á staðnum. Allir velkomn- ir, jafnt félagsmenn sem aðrir. Hagstætt verð. Pantið tíman- lega á skrifstofunni Öldugötu 3, símar 19533 og 11798. Telefax: 11765. Ferðafélag Islands. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Fimmtudagur 7. mars Aðalfundur Ferðafélagsins Aðalfundur Ferðafélagsins verð- ur haldinn fimmtudagskvöldið 7. mars í Sóknarsainum, Skip- holti 50a, og hefst hann stund- víslega kl. 20.00. Venjuleg að- alfundarstörf. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Athugið að atkvæðisrétt og kjörgengi hafa þeir einir, sem greitt hafa árgjald 1990 og gengið í félagið fyrir áramótin. Ferðafélag Islands. HÚTIVIST GRÓFINNI1 • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14601 Tunglskinsganga föstudag 1. mars kl. 20. Katla- hraun - Selatangar. Fjörubál og miðnæturrómantík í stór- brotnu umhverfi Selatanganna. Brottför frá BSÍ - bensínsölu, stansað. á Kópavogshálsi, í Garðabæ við Ásgarð og við Sjó- minjasafnið í Hafnarfirði. Gengið til baka úr Kringlunni niður í miðbæ er sýning Útivistar i Kringlunni lýkur. Laugardaginn 2. mars, verður lagt af stað kl. 16 frá sýningarbás Útivistar. Gengið suður í Leynismýri. Það- an að gömlu þjóðleiðamótum allra landshluta. Þá verður hald- ið eftir þjóðleiðinni niður í miðbæ að skrifstofu Útivistar i Grófinni. Ekkert þátttökugjald. Árshátíð Útivistar Það stendur mikið til hjá Útivist um þessar mundir, því nú nálg- ast árshátíðin óðum. Skemmti- nefndin hefur lagt nótt við dag við undirbúning og æfingu skemmtiatriða. En sjón er sögu rikari. IVIætum öll á þessa bestu skemmtun ársins sem verður haldin i Básnum f Efstalandi 9. mars nk. Hátíðarfordrykkur. Ljúffengur matur. Stórhljóm- sveit Guðmars frá Meiri-Tungu leikur fyrir dansi. Dansað til kl. 02. Allir velkomnir. Brottför frá BSÍ kl. 18.30. Miðar og pantanir á skrifstofu. Sjáumst öll! Útivist. Svigmót ÍR Reykjavíkurmeistaramót verður haldið í Bláfjöllum laugar- daginn 2. mars nk. Dagskrá: 13-14 ára. Fyrri ferð: Stúlkur skoðun 9.00-9.30. Stúlkur start 9.45-10.30. Drengir skoðun 9.45-10.15. Ðrengir start 10.30-11.15. Seinni ferð: Stúlkur skoðun 11.15-11.45. Stúlkur start 12.00-12.45. Drengir skoðun 12.00-12.30. Drengir start 12.45-13.30. 15-16 ára Fyrri ferð: Skoðun 13.15-13.45. Start 14.00-14.45. Seinni ferð: Skoðun 14.00-14.30. Start 14.45-15.30. Fararstjórafundur föstudaginn 1. mars kl. 19.30 í fundarher- bergi SKRR. Mótsstjórn. NÝ-UNG j< FU M & K FUK Samvera fyrir fólk á aldrinum 20-40 ára í kvöld í Suðurhólum 35. Bænastund kl. 20.10. Sam- veran hefst kl. 20.30. Hver er Guð? Hvað vill hann með mig? Helgun. Séra Magnús Björns- son kemur og ræðir um efnið. Ungt fólk á öllum aldri er velkom- ið. Alþjóðlegur bænadagur kvenna Almenn samkoma í sal Hjálp- ræðishersins við Kirkjustræti í kvöld kl. 20.30. Vilborg Jóhann- esdóttir og Kjellrun Langdal segja frá Kenya. Hugleiðing: Lilja S. Kristjánsdóttir. Samskot til kristniboðs. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.