Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 37 Hún fæddist á Þóroddsstöðum í Ölfusi þann 1. marz 1898. Foreldrar hennar vovu Jón Ólafsson, bóndi, og kona hans, Guðrún Gísladóttir, fædd á Þóroddsstöðum. Árið 1905 fluttust þau til Reykjavíkur, þar sem amma ólst upp. Hún giftist afa mínumj Þorvarði G. Þormar, árið 1923. Arið 1924 settust þau að á Hofteigi þar sem afi gerðist prestur, en þar fæddist Guttormur, pabbi minn, árið 1925. Vorið 1928 fluttust þau að Laufási við Eyjafjörð, þar sem afi tók við prestsembætti. Þar fæddust synir þeirra, Halldór og Hörður í gamla torfbænum og síðar bættist Vilborg fósturdóttir þeirra í barnahópinn. Seinan fluttu þau í húsið, og þar bjuggu þau, þegar ég kom til þeirra í sveit, lítil stelpa. Margt var um manninn þarna á sumrin þegar verið var að gera upp gamla bæinn, þar voru verkamenn og vinnufólk. Það hlýtur að hafa verið mikið verk að vera húsmóðir á svona stóru heimili, en amma stóð sig með mestu prýði. Mikið var nú gott að vera þarna hjá þeim, afa og ömmu, þau voru mér svo góð, að ég man ekki eftir að hafa haft heimþrá og var ég þó eina barnið á bænum. Afi spilaði við mig og við vorum oft í búðarleik, og svo smíðaði hann handa mér litla hrífu, svo ég gæti verið með að „snúa“. Amma var alltaf svo kát og skemmtileg, þrátt fyrir annríkið; við lékum alveg sérstakan leik, sem við höfum seinna haft gaman af að rifja upp saman, ég var Rósa eða Gola og amma var alltaf að spjalla við þær stöllur. Alltaf var hún líka jafn glöð, þegar ég færði henni fjólur úr fjólubrekkunni minni, og svo fékk ég að „hjálpa“ henni við kleínubakst- urinn, en át svo mikið af deiginu, að eitt sinn freistaðist hún til að baka kleinurnar meðan ég var úti. Eg held að þetta sé eina skiptið sem ég móðgaðist pínulítið við hana, en við sættumst nú fljótt, enda klein- urnar góðar. Seinna fluttu þau afi til Reykja- víkur, vegna veikinda afa. Þau bjuggu lengst af á Kirkjuteignum og var alltaf gaman að koma þang- að. Ég man þegar ég, unglingurinn, kom til þeirra, amma horfði upp til mín og sagði glettin: „Þú ert að verða eins stór og ég!“ En amma var lágvaxin og ég var löngu vaxin henni upp fyrir höfuð. Við misstum afa því miður allt of fljótt, hann dó árið 1970. Amma bjó enn um skeið á Kirkjuteignum og vann þá á Þjóðminjasafninu. Oft- ast gekk hún þaðan heim til sín á Kirkjuteiginn. Þegar hún var 83 ára, flutti hún í draumaíbúðina sína í Sólheimum. Hún var svo ánægð með þessa fall- egu íbúð og þar bjó hún alveg til dauðadags. Það var gaman að sjá hvernig hún lék á aldurinn, og ég veit það núna, að það var bjartsýnin og lífsgleðin, sem gerðu henni það kleift. Amma var afar myndarleg kona, vel af guði gerð og heilsuhraust. Ég man, hvað hún var fín í pey- sufötunum með flétturnar hvítu, og seinast, þegar hún var búin að klippa flétturnar og hætt að nota peysuföt- in, var hún samt svo falleg með glansandi hvítt hárið og tindrandi augun. Samband hennar við börnin sín var alla tíð mjög náið og voru þau flest hjá henni, þegar hún lézt á heimili sínu eftir stutta sjúkdóms- legu, sátt við lífið og tilveruna. Við munum sakna hennar, en minningin lifir. Margrét Mig langar nokkrum orðum að minnast vinkonu minnar frú Ólínu Þormar. Ég er búin að vita af henni í yfir 50 til 60 ár, þá var hún prest- kona í Laufási í Grýtubakkahreppi í S-Þingeyjarsýslu. Þegar hún um fermingaraldur missti móður sína, kom hún á heimili tengdaforeldra minna, sem síðar urðu, þeirra Ingi- leifar Bjarnadóttur og Guðmundar Egilssonar. Hún var hjá þeim til tvítugsaldurs. Það var gagnkvæm vinátta alla tíð með þeim hjónum og börnum þeirra. Hún gekk í Kvennaskólann, sem þá þótti góður skóli fyrir ungar stúlkur. Eftir að ég giftist manninum mín- um árið 1934, kom hún oft til okk- ar, þegar þau hjónin komu til Reykjavíkur á prestastefnu, sem venjulega var haldin á sumrin. Við heimsóttum þau að Laufási ásamt vinafólki okkar og börnum og var það sérstaklega ánægjulegt og okk- ur ávalit vel fagnað. Það var gaman að sjá gamla burstabæinn, sem búið var að endurnýja, en þar bjuggu þau fyrstu ár sín í Laufási og þar fædd- ust tveir yngri drengirnir þeirra. Eftir að þau hjónin fluttu til Reykjavíkur varð meiri samgangur og voru þau alltaf gestir okkar, ef einhver mannfagnaður var á okkar heimili. Það var líka alltaf mikið gaman að koma til þeirra á Kirkju- teig 18, þar sem þau bjuggu í mörg ár. Eftir að frú Ólína missti mann sinn bjó hún áfram á Kirkjuteigi í nokkur ár, en 83 ára tekur hún sig upp og flytur í Sólheima 23 og átti þar yndisleg 10 ár. Hún kunni mjög vel við sig þar, átti góða nágranna og hafði frábært útsýni, enda bjó hún á 10. hæð og ekkert mál að fara _ í lyftu. Synir hennar hafa verið henni ein- staklega góðir og umhyggjusamir og hugsað vel um hana. Síðast þeg- ar dró að leiðarlokum var hún heima og fékk frábæra umönnun. Meðal annars kom til hennar frá Akureyri Vilborg fósturdóttir hennar, sem hún tók að sér átta ára gamla þegar hún hafði misst móður sína. Var Vilborg hjá henni þar til hún andaðist að morgni 19. febrúar. Ég votta öllum aðstandendum innilega samúð. Ég veit að við mun- um öh sakna hennar mikið. Hér er góð kona kvödd. Guð blessi minn- ingu hennar. Með vinarkveðju, Marta Tómasdóttir Guðrún K. Péturs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 19. október 1913 Dáin 23. febrúar 1991 Kveðja frá barnabörnum Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. •Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Okkur langar með þessum fal- lega sálmi að kveðja ömmu okkar Guðrúnu K. Pétursdóttur sem lést á Landspítalanum 23. febrúar sl. Megi algóður guð leiða hana og vernda í nýjum heimkynnum. REYKVÍKINGAR! Ásgeir Hannes Eiriksson, þingmaður Borgaraflokksins og fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga- nefnd Alþingis, verður á Kaffi- Hress í Austurstræti í dag, föstu- daginn 1. marz, kl. 1 2.00-14.00. Komið og spjallið við eina þing- mann Reykvíkinga sem er búsettur í Breiðholti. fMfagttiililftfeifc Vörusýning Kaupmenn Innkaupastjórar Vörusýning á fatnaði frá 20 fyrirtækjum verður haldin í húsnæði okkar í Sundaborg sunnudaginn 3/3 frá kl. 10— 1 8, mánudaginn 4/3 frá kl. 9-18 og þriðjudaginn 5/3 frá kl. 9-13. Vörurtil afgreiðslu fyrirvorið og næsta haust. Tískusýningar daglega. nlki barnafatnaður cl/\|RG Wids barna(atnaður 4 FflN- FBN barnafatnaður kvenfatnaður ÍÉÉfe Trínnifih kvenundirfatnaður LO'I barnafatnaður PAS cr aMDINAVIA gallafatnaður .. CLAIRe kvenfatnaður de haan b.v. baðsloppar kven herrafatnaður • hF (ír^SíH^ l• Y mikkvimc útigallar- úlpur CappuccinO barna- og kvenfatnaður Stummer barnafatnaður Euaan flfiBT* barnafatnaður ^L°° kvenfatnaður sokk a r SCANSON herraskyrtur imfr KID's wear barnafatnað ur peysur zacho herrapeysur AGUST ARMANN hf UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 24" REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.