Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 40

Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 40
 n40 Kjartan Jóns- son - Minning Fæddur 10. ágúst 1912 Dáinn 20. febrúar 1991 Svo að lifa, ég sofni hægt, svo að deyja, að kvöl sé bægt, svo að greftrast sem guðs barn hér, gefðu sætasti Jesú, mér. (Hallgrímur Pétursson) Okkur er úthlutað fjölskyldu, en við veljum okkur vini, er skrifað einhvers staðar. Það er því gott þegar það fer saman að fjölskyldan er okkar bestu vinir. Kjartan reyndist fjölskyldu sinni góður vinur. Hann var ákaflega geðprúður maður og þegar ég hugsa til baka, man ég aldrei eftir að hafa séð hann reiðan. Við virtum skoðanir hans og leituðum ráða hjá honum, og aldrei komum við að tómum kofunum. Kjartan tengdafaðir minn var fæddur á ísafirði 10. ágúst 1912. Hann var sonur hjónanna Jóns Bjamasonar skipstjóra og Karitasar Magnúsdóttur. Hann átti fjögur systkini: Guðmundu Jónsdóttur, d. 1987, gift Bjama Pálssyni fulltrúa; Karitas Jónsdóttur, d. 1911; Bjarna Jónsson lækni, kvæntur Þóru Arna- dóttur; og Guðrúnu Jónsdóttur, d., 1980, gift Sveini Jónssyni. Tvö hálf- systkini átti Kjartan, þau Högna Jónsson, kvæntur Birnu Sigurðar- dóttur, og Sigurborgu Jónsdóttur, gift Sigurði Þórarinssyni. Kjartan fluttist ungur til Reykja- víkur. Hann starfaði um tíma við útgerð, en hóf síðan störf hjá Helga , Magnússyni og Co. og varð síðar verslunarstjóri hjá sáma fyrirtæki. Árið 1967 stofnaði hann sína eigin býggingavöraverslun og rak hana um tuttugu ára skeið, en þá hætti hann fyrir aldurs sakir. Kjartan var tvíkvæntur. Fyrri konu sinni, Margréti Magnúsdóttur Thorberg, kvæntist hann 5. maí 1948. Margrét átti tvö börn frá fyrra hjónabandi, þau Kirsten Thor- berg, búsett í Portúgal, gift Victor Sa’Macado, og Flemming Thorberg matreiðslumann, d. 1976, kvæntur Gerði Thorberg. Kjartan og Mar- grét eignuðust tvo syni, þá Magnús G. Kjartansson framkvæmdastjóra, kvæntur Auði Kristmundsdóttur kennara, og Bjarna_ Kjartansson kaupmann, kvæntur írisi Vilbergs- dóttur. Margrét lést 3. maí 1965. Síðari kona Kjartans- er Unnur Ágústsdóttir og lifir hún mann sinn. Unnur á tvö börn af fyrra hjóna- bandi, þau Hrafnhildi Schram list- fræðing og Ágúst Schram sölu- stjóra, kvæntur Báru Magnúsdóttur danskennara. Unnur er mikil félagskona og var lengi formaður í Thorvaldsenfélag- inu og í Bandalagi kvenna í Reykja- vík. Oft voru því margir kvenna- fundirnir haldnir á Sóleyjargötunni. Við stríddum tengdapabba oft með því, hvernig honum fyndist að vera nánast meðlimur í þessum félögum. Hann sagði fátt, brosti í kampinn og lét sér vel líka. Kjartan hafði unun af lestri góðra bóka og var mjög víðlesinn. Því var mjög gaman að sitja og spjalla við hann um heima og geima. Kjartan og Unnur höfðu undan- farin ár eytt nokkram mánuðum á ári hveiju á Spánarströnd. Þau nutu samverastundanna og veð- urblíðunnar þar, meðan vetrarvind- ar geisuðu heima á Fróni. í lok nóvember héldu þau í eina slíka ferð. En margt fer öðravísi en ætl- að er. Kjartan veiktist og var flutt- ur fársjúkur heim til Islands um miðjan janúar. Þrátt fyrir góða að- hlynningu á Landakoti lést hann þann 20. febrúar. Við fjölskylda hans sitjum eftir með söknuð í hjarta. Ef ég ætti að velja grafskrift hans, þá yrði hún þessi: Hann var vinur vina sinna og hann var trúr og tryggur fjölskyldu sinni. Auður Kristmundsdóttir Kjartan Gissur Jónsson, móður- bróðir minn, andaðist miðvikudag- inn 20. febrúar sl. á Landakotsspít- ala eftir skamma legu þar. Kjartan var sonur hjónanna Jóns Bjarnason- ar og Karítasar Magnúsdóttur sem bjuggu á ísafirði framan af búskap sínum en síðar í Reykjavík. Systkini Kjartans voru Guðmunda Sigríður og Guðrún Jónsdóttir, móðir þess er þetta ritar, en þær eru báðar látnar og Bjarni, yfirlæknir, sem lifír nú einn systkina sinna. Kjartan var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Margrét Thorberg sem lést 1965. Kjartan og Margrét áttu saman tvo syni, Magnús Gissur og Bjarna. Af fyrra hjónabandi átti Margrét son og dóttur, Kirsten, sem er gift stjórnmálamanni í Portúgal, og son, Flemming, sem var matreiðslu- meistari og bjó lengi í Bandaríkjun- um þar sem hann lést í slysi fyrir nokkram áram. Synir Kjartans og Margrétar, þeir Magnús og Bjarni, eru báðir kvæntir. Magnús Auði Kristmundsdóttur og Bjarni írisi Valbergsdóttur. Syinni kona Kjart- ans er Unnur Ágústsdóttir sem hann kvæntist 1967. Unnur á tvö börn af fyrra hjónabandi, þau Hrafnhildi Schram og Ágúst Schram. Kjartan, móðurbróðir minn og nafni, en ég var látinn heita í höfuð- ið á honum, var stór maður og mikill að vallarsýn. Hann var há- vaxinn og þéttvaxinn, dökkur yfir- litum með svipmikið andlit, miklar augabrúnir og nánast sambrýndur og í alla staði þannig gerður að hann vakti athygli fyrir glæsileik og höfðinglegt yfirbragð. Þessi lýs- ing á raunar við þá báða bræðurna, Kjartan og Bjarna, og mátti vart í milli sjá hvor var höfðinglegri eða glæstari að vallarsýn. En líkams- burðir og ytri glæsileiki er lítils virði eða einskis virði sé hinn innri mað- ur og hjartalagið ekki úr sama kjör- viðnum. Þar skjáplaðist skaparan- um heldur ekki er hann lagði Kjart- ani móðurbróður mínum til andleg verðmæti. Nafni minn var hveijum manni raunbetri og bóngóður, hjálpsamur og velviljaður með af- brigðum. Hann gat að vísu oft ver- ið snöggur til svars og fékkst lítt um að þóknast viðmælendum sínum með því að tala ávallt eins og þeim kynni að líka en það dró ekki úr eðlislægri góðmennsku hans og kærleiksríku hugarfari. Það er líka þannig að undir yfirborði, sem við fyrstu sýn kann að virðast hijúft, leynist oftar en ekki hinn fegursti eðalsteinn, sem skín og glitrar langt umfram það sem virðist mögulegt við fyrstu sýn. Þannig var mín reynsla af Kjartani móðurbróður mínum. Sem ungum dreng reyndist hann mér sannur og heill frændi, leiðbeinandi og félagi og sem full- orðnum manni reyndist hann mér góður vinur reiðubúinn til hjálpar og aðstoðar hvenær sem á hefði þurft að halda án þess að setja nokkurn tímann eigin hagsmuni, óskir eða hugmyndir í fyrirrúm. Ég á margar fallegar og skemmt- ilegar minningar frá samverustund- um mínum sem ungs drengs með nafna mínum, bæði hér í borginni og eins á stuttum ferðalögum um nágrenni borgarinnar og í fallegum litlum sumarbústað hans í nágrenni við Tröllafoss. Mér er líka minnis- stæð djúp og fölskvalaus systkina- ást Kjartans og móður minnar, Guðrúnar, sem ég skynjaði sjálfsagt sterkast á útfarardegi móður minnar þegar ég gat hvergi hugsað mér annars staðar að vera heldur en hjá nafna mínum. Hlýjar tilfínn- ingar móður minnar í garð bróður síns komu svo auðvitað hvergi betur fram en í því er hún kaus að fyrsta og eina barn hennar bæri nafn bróð- ur hennar. Unni Ágústsdóttur, eftiriifandi konu Kjartans, kynntist ég eftir að þau gengu í hjónaband en Unni þekkja fjölmargir Reykvíkingar, ekki síst fyrir margvísleg störf hennar að félagsmálum kvenna og líknarmálum ýmsum. Unnur reynd- ist nafna mínum með eindæmum traustur föranautur þann tíma sem þau áttu saman en atorkusemi, lífs- gleði og dugnaður skín ávallt frá henni. Unnur og Kjartan bjuggu á fallegu heimili við Sóleyjargötuna í Reykjavík og með fögram hætti gengu þau börnum hvors annars í föður og móðurstað. Var allt sam- band þeirra við stjúpbörn sín, börn hvors annars, einstaklega fallegt og gæfuríkt og var heimili þeirra unaðsrík miðstöð þessara fjöl- skyldna allra. Trygglyndi þeirra við ijölskyldur sínar og vini var mikið og heimili þeirra stóð ávallt opið gestum og gangandi og þar var öllum tekið af sömu hlýjunni og hveijum manni boðinn sami góði viðurgjörningur- inn. Eins og flestir íslendingar á aldri Kjartans Jónssonar vann hann sem ungur maður öll algeng störf til sjós og lands. Mestan hluta starfs- ævi sinnar vann hann sem verslun- armaður í Reykjavík. Lengst af eða frá 1941 til 1966 starfaði hann hjá fyrirtækinu Helgi Magnússon og Co. sem var ein af stærstu bygg- ingavöruverslunum Reykjavíkur og starfaði lengi við Hafnarstræti í Reykjavík í því húsi sem nú hýsir verslunina Rammagerðina ásamt fleiri fýrirtækjum. Kjartan var lengi verslunarstjóri þessarar verslunar. Þeim fækkar nú óðum sem minn- ast Kjartans heitins við verslunar- störf í verslun Helga Magnússonar og Co. en áreiðanlega minnast þeir, sem enn eru á lífi og nutu aðstoðar hans þar, fyrst og fremst einstakrar vöruþekkingar og í hvívetna heiðar- legra ráða og leiðbeininga. Þar voru höfð í heiðri þau sannindi, sem hver verslunarmaður ætti að temja sér, að öllu skiptir að koma heiðarlega og af drengskap fram við viðskipta- vininn, að selja honum einungis það sem hann þarf á að halda og selja honum ekki köttinn í sekknum held- ur aðeins vörar sem menn treysta sér af einlægni til að mæla með. Því slíkur viðskiptavinur er allra manna líklegastur til að koma aftur og aftur, fremur en hinn sem hefur á tilfinningunni, að með ómerkilegu skrami og áróðri hafi verið prangað inn á hann annaðhvort vörum sem hann hafði ekkert við að gera eða vörum sem voru svo lélegar að gæðum að þær hefðu betur verið ókeyptar. Slík sölumennska stríddi gegn hverri hugsun í höfði nafna míns. Slík hugsun hefði líka strítt gegn hugmyndum og stefnu þess fágaða og ágæta menningárfólks sem átti og rak byggingavöraversi- un Helga Magnússonar og Co. Þeg- ar sú verslun hætti starfsemi sinni 1966 stofnaði Kjartan sína eigin verslun á sama sviði og raunar á svipuðum stað við Tryggvagötuna. Þar rak hann verslun sem hann starfaði nánast alfarið við einn fram til 1985 er hann hætti þeim rekstri. Meginhlutann af ævi sinni vann Kjartan því þjónustustörf við aðra. Þau störf rækti hann ekki af þý- lyndi, heldur með mikilli reisn og þannig að fullkomið jafnræði var með báðum aðilum. Heiðarleiki, samviskusemi, góðvilji og dreng- skapur einkenndi hann í þeim störf- um eins og í öllu hans lífi. Ég heimsótti hann oft í litlu versl- unina við Tryggvagötu og minnist hans vel þar sem hann hnarreistur og myndarlegur leiðbeindi af ljúf- mennsku ungu fólki, sem var að stíga fyrstu skrefin við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Ég sakna nafna míns mikið þótt annir og veraldarvafstur hafi valdið því að samverustundum okkar hafi fækk- að á síðari árum, en það breytti engu í því að viðmót hans var ávallt eins og maður hefði rétt verið að enda við að kveðja hann. Ég sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Unni, bömum hennar og barnabörnum, sonunum tveimur, frændum mínum, Magnúsi og Bjarna, og fjölskyldum þeirra dýpstu samúðarkveðjur mínar og ijölskyldu minnar. Huggun þeirra eins og annarra sem þekktu Kjartan Jónsson era fallegar minningar um góðan dreng og farsælan mann- kostamann. t GUÐRÚN SALÓMONSDÓTTIR frá Ytri Skerjabrekku, siðast til heímilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, sem lést 25. febrúar sl., verður jarðsungin frá Hvanneyri í Borgar- firði laugardaginn 2. mars nk. kl. 14.00. Hreinn Gunnarsson, Sverrir Luthers. t Hjartkær móðir mín, SIGRÍÐUR FAABERG, Laufásvegi 66, lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 28. febrúar. Asta Faaberg. t Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR V. KRISTJÁNSSON frá Vatnsholti, er andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 21. febrúar, verður jarðsung- inn frá Villingaholtskirkju 2. mars kl. 14.00. Ingveldur Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför bróður okkar, GUÐMUNDAR BETÚELSSONAR, verður gerð frá Flateyrarkirkju laugardaginn 2. mars kl. 14.00. Anna Betúelsdóttir, Pátfna Betúelsdóttir, Guðbjartur Betúelsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, FRIÐGEIRS GÍSLASONAR. Sigurbjörg Unnur Óskarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Móðir mín, amma okkar og systir, SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Njálsgötu 64, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, föstudaginn 1. mars, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á kvennadeild Rauða krossins. Herdís Kristjánsdóttir, Sif Arnarsdóttir, Kristján Arnarsson, Rannveig Helgadóttir. t Bróðir minn, faðir, tengdafaðir og afi, LEIFUR ÞORLEIFSSON, Hólkoti, Staðarsveit, verður jarðsunginn frá Brimilsvallakirkju, Fróðárhreppi, laugardag- inn 2. mars kl. 14.00. Björg Þorleifsdóttir og fjölskylda, Konný Breíðfjörð Leifsdóttir, Grétar Einarsson og börn. Kjartan Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.