Morgunblaðið - 01.03.1991, Qupperneq 41
AiQRquNBLAÐiÐ yös;rypAGyR 1. iiyiARZ, 1991
41
1
Sigríður Helga-
dóttír - Minning
Fædd 21. júlí 1909
Dáin 24. febrúar 1991
„Hvað varð um yður, Austurstrætisdætur,
með æskuléttan svip og granna fætur,
sem ungir sveinar buðu í bíó forðum
og bekkjarskáldin vöfðu hlýjum orðum?“
Þessar ljóðlínur Tómasar koma
mér ósjálfrátt í huga þegar ég sest
niður til þess að skrifa kveðjuorð
til okkar kæru vinkonu, Sigríðar
Hejgadóttur.
I minningunni lifir Sigga sem
ein hinna sönnu og dáfögru Reykja-
víkurdætra, þeirra sem sprönguðu
„með æskuléttan svip og granna
fætur“ um Austurstræti, meðan
það var og hét og Tómas gerði
ódauðlegar í kvæðum sínum.
„Sumar urðu gamlar fyrr en varði“
segir svo Tómas seinna I sama
kvæði, en Sigga var ein þeirra
kvenna sem aldrei varð gömul, þó
svo að árin segðu annað. Allt fram
á síðustu stundu hélt hún sínum
æskublóma og kvenlegri reisn, öll
sín verk vann hún af æðruleysi og
vandvirkni, sem hvort tveggja er
svo einkennandi fyrir þá kynslóð
Islendinga, sem er nú óðum að
safnast til feðra sinna. Daginn sem
Sigga kvaddi var hún að undirbúa
veislu, hafði boðið nokkrum göml-
um vinkonum til að eyða með sér
dagstund. Allt var til reiðu, borðið
uppálagt, tandurhvítur dúkur og
heimabakaðar smákökur. Alúð og
umhyggja í hverjum hlut. En sú
veisla var aldrei haldin. Kallið var
komið. Og hún hlýddi því kalli af
þeirri hljóðlátu reisn sem henni
einni var svo eiginleg.
Sigríður Helgadóttir var fædd í
Skólaholtinu árið 1909. Foreldrar
hennar voru þau Helgi Helgason,
verslunarmaður, og Kristín Sigurð-
ardóttir, fangavarðar Jónssonar,
Guðmundssonar, ritstjóra. Helgi
var alla tíð verslunarstjóri hjá fyrir-
tæki Jes Zimsens í Hafnarstræti,
en var kannski þekktari meðal
Reykvíkinga sem einn af brautryðj-
endum leiklistarinnar hér á landi.
Lék hann í fjöldamörg ár og var
bæði vinsæll og vel látinn. Þeim
Helga og Kristínu varð fjögurra
barna auðið. Elstur var Jón, síðar
kaupmaður á Skólavörðustíg. Jón
er látinn fyrir allmörgum árum, en
eftirlifandi kona hans er Klara
Bramm. Næstelst var María. Hún
giftist Robert Knoop og settist að
í Suður-Ameríku. María er látin
fyrir nokkrum árum. Síðan kom
Rannveig, sem syrgir nú yngsta
systkini sitt, Sigríði. Maður Rann-
veigar var Sveinbjörn Egilsson,
útvarpsvirkjameistari, og bjuggu
þau alla tíð á Óðinsgötu 2, sem
Helgi hafði byggt snemma á öld-
inni.
Öll hlutu þau systkinin einhveija
menntun, jafnvel systurnar líka,
sem var fremur fátítt á þeim tíma.
Sigga var send í Verslunarskólann.
Seinna lagði hún land undir fót og
dvaldist í Þýskalandi við nám og
störf. Þar eignaðist hún góða vini
sem hafa haldið tryggð við hana æ
síðan.
Eftir heimkomuna fékk hún
vinnu í Reykjavíkurapóteki, í hjarta
höfuðborgarinnar. Þar starfaði hún
árum saman eða allt þar til hún
gifti sig árið 1942. Kannski var
það tiiviljun sem réði því að manns-
efni Sigríðar kom líka úr verslunar-
stétt eins og faðir hennar. Kristján
Jónsson var upphaflega innan-
búðarmaður hjá Silla og Valda. En
hann átti sér þann draum að starfa
sjálfstætt, hörkugreindur og harð-
duglegur. Innan fárra ára hafði
Kristján eignast sínar eigin versl-
anir, sem allar báru nafnið „Kidda-
búð“. Það má segja að Kiddi hafi
borið Siggu á höndum sér. Þau
áttu fallegt heimili, sem bar vitni
um fágaðan og yfirlætislausan
smekk þeirra beggja. Þau lifðu
góðu, heilbrigðu lífi á meðan Kidda
entist heilsa og líf. Því miður hefur
hann löngu kvatt þennan heim en
minningin lifir um sérstæðan per-
sónuleika og góðan dreng. Kiddi
og Sigga eignuðust eina dóttur,
Herdísi, sem nú hefur mikið misst.
Herdís varð ekkja á síðastliðnu
ári. Eiginmaður hennar var Arnar
Ingólfsson, stórkaupmaður. Börn
Herdísar og Arnars eru Sif og
Kristján.
Nú þegar komið er að kveðju-
stundinni streyma minningarnar
fram í hugann. Kiddi og Sigga
voru nánustu vinir okkar hjónanna
og barna okkar um árabil. Við átt-
um saman ótal gleðistundir, hvort
sem það var upp til fjalla eða úti
við strendur, heima eða erlendis.
Þau voru höfðingjar heim að sækja
og aðeins það besta borið á borð.
En „öllu er afmörkuð stund“ og
„tíminn, það er fugl sem flýgur
hratt“. Kveðjustundin er runnin
upp og aðeins minningin lifir. Það
sem okkur er efst í huga er þakk-
læti, þakklæti til forsjónarinnar
fyrir að hafa átt þetta yndislega
fólk að vinum, og að við skyldum
hafa fengið að njóta samvista við
Siggu svona lengi. Við drúpum
höfði og biðjum fyrir dóttur henn-
ar, Herdísi og barnabörnunum
tveimur. Guð veri með þeim og
gefi þeim styrk í sorg sinni.
Aldís, Björgvin
og fjölskylda.
Sigga okkar er látin. I huga
okkar býr minningin um hjarta-
hlýja, glæsilega konu sem okkur
var einkar kær. Lífsgleði hennar
var mikil. Ahugi hennar beindist
að tónlist og leiklist og ferðalög
voru hennar yndi. Hún ferðaðist til
landa nær og fjær, en einkar kær
var henni staður í íslenskri sveit,
við Álftavatn. Þar dvaldi hún oft
og við ljölskyldan áttum þar góðar
stundir saman og nutum kyrrðar
og náttúrufegurðar í góðu yfirlæti.
Hlýlega heimilið á Njálsgötunni
bar þess glöggt merki hve Sigga
unni fögrum munum. Á hverjum
jólum áttum við fjölskyldan þar
yndislega stund. Það var stutt í
brosið hjá Siggu og notalegt að
vera með henni. Jólahátíðin verður
tómleg án hennar. Við minnuinst
hennar með hlýjum hug og þakk-
læti fyrir liðnar stundir. Yfir ævi
Siggu var reisn sem hún hélt til
síðustu stundar.
Elsku Heddý, Sif og Kristján.
Guð blessi ykkur og styrki á sorgar-
stund.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna,
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
Berglind K. Þórsteinsd.
og fjölsk.
Einar S. Sigurðs-
son - Minning
Fæddur 20. júní 1949
Dáinn 21. janúar 1991
Eg ætla ekki að skrifa æviminn-
ingar Einars heitins, en mig og fjöl-
skyldu mína langar að minnast vin-
ar okkar og frænda með nokkrum
fátæklegum orðum.
Þegar foreldrar Einars fluttu frá
Sandgerði til Grindavíkur árið 1968
þá vildi hann vera eftir hér í-fæð-
ingarbæ sínum, sem honum þótti
afar vænt um. Einar var fæddur í
Sigtúni hér í bæ, sem nú er Tjarnar-
gata 10. Hér á heimili okkar hjóna
var Einar heitinn kærkominn gest-
ur og kom fyrir að hann gisti hjá
okkur nótt og nótt. Honum fannst
gaman að koma til okkar, því kona
mín er móðursystir hans. Einar
heitinn var alveg sérstakur persón-
uleiki, hann var vinur vina sinna
og líkaði öllum vel við hann. Hann
var hreinn og beinn, hann var
skemmtilegur í hvívetna, duglegur
og ósérhlífínn við hvaða vinnu sem
var, bæði til sjós og lands. Sjórinn
heillaði hann alla tíð og þar undi
hann sér best. Kona Einars heitins
er Guðbjörg Ólafsdóttir frá Reykja-
vík og eiga þau tvær yndislegar
dætur, 9 og 6 ára gamlar, og verða
þær nú að sjá á eftir elskulegum
manni og föður. Og nú þegar við
öll sjáum á eftir góðum vini og
félaga eru minningarnar bæði
bjartar og fagrar. Einar lætur eftir
sig 19 ára gamlan son frá fyrri
sambúð og vottum við honum
dýpstu samúð. Við biðjum góðan
guð að styrkja og varðveita eftirlif-
andi eiginkonu og elskulegar dætur
og vottum við þeim okkar dýpstu
samúð. Sömuleiðis vottum við for-
eldrum og systkinum og öðrum
aðstandendum okkar dýpstu samúð
og biðjum góðan guð að varðveita
þau öll í Jesú nafni.
Okkur finnst þessi sálmur eiga
vel við, hann er eftir Ólínu Andrés-
dóttur, sem var frænka Einars heit-
ins.
Þó missi ég heym og mál og róm
og máttinn ég þverra finni,
þá sofna ég hinst við dauðadóm,
ó, Drottinn gef sálu minni
að vakna við sönjjsins helga hljóm
í himneskri kirkju þinni.
(Sálmur 461)
Blessuð sé minning hans.
Henrik Jóhannesson og fjölskylda,
Norðurgötu 20, Sandgerði.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BJARNA ÓLAFSSONAR
verkstjóra,
Hringbraut 71, Keflavik,
verður gerð frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 2. mars kl. 14.00.
Erla Olsen,
Fanney Bjarnadóttir,
Ólafur Birgir Bjarnason,
Aðalheiður Bjarnadóttir,
Olga Sædís Bjarnadóttir,
Laufey Jónsdóttir,
og barnabörn.
Gunnólfur Arnason,
Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Leifur Kristjánsson,
Árni Heiðar Árnason,
Kristinn Arnberg
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
EYSTEINN EINARSSON
frá Brú,
verður jarðsunginn frá Stóradalskirkju, Vestur-Eyjafjöllum, laugar-
daginn 2. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hins
látna, er bent á að láta Ljósheima á Selfossi njóta þess.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður,
JÓHÖNNU PÉTURSDÓTTUR,
Dölum 4,
Patreksfirði.
Hannes Ágústsson,
Valgerður Lára Hannesdóttir, RolfTenden,
Sigurður Pétur Hannesson.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VIGGÓS K. Ó. JÓHANNESSONAR
frá Jófríðarstöðum.
Rebekka ísaksdóttir,
Bjarney K. Viggósdóttir, Guðmundur H. Gislason,
ísak Þ. Viggósson,
Jóhannes Viggósson, Ragnheiður H. Hilmarsdóttir,
Málfríður Ó. Viggósdóttir, Ólafur B. Ásmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móur okkar,
GUÐNÝJAR J. OTTESEN,
Túngötu 36a,
Reykjavík.
Guðlaug Ottósdóttir,
Birgir Ottósson,
Guðmundur K. Ottósson,
Karl Jóhann Ottósson
og fjölskyldur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar og stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGHVATAR EINARSSONAR
fyrrum bónda á Tóftum
í Stokkseyrarhreppi.
Sigurður Kristinn Sighvatsson,
Ólafur Þórir Sighvatsson,
Einar Sighvatsson,
Ingunn Sighvatsdóttir,
Hjalti Sighvatsson,
Sighvatur Einar Sighvatsson,
Bryndfs Sveinsdóttir,
barnabörn og bí
Fjóla Hildiþórsdóttir,
Ýr Viggósdóttir,
Úrsúla Sighvatsson,
Guðrún Frímannsdóttir,
Ása Kristín Jónsdóttir,
Jón Ingibergur Guðmundsson,
Lokað
Vegna jarðarfarar SVANBJARGAR HALLDÓRS- DÓTTUR verður skrifstofan lokuð eftir hádegi í
dag, föstudag. Bjarni Þ. Halldórsson, heildverslun, Skútuvogi 11, Reykjavík.