Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 48

Morgunblaðið - 01.03.1991, Page 48
MORGtfNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1991 48 íied/nAtm f?ú ert i blóðflpfcki A B eldfinnt.// Ast er... /í-ZW .. aðklóra henni á bakinu. TM Reg. U.S. Pflt Off.—all rights reservod ° 1990 Los Angeles Times Syndicate y/tW J<0 Leitt að þurfa að kalla á þig í sumarleyfinu. Bréfið er mjög áríðandi. taylor* Ég spurðj: Hver var ástæða þess að þú hættir í fyrra starfi. HOGNI HREKKVISI Misnotkun unglings á ster- 1 um til rannsóknar hjá RLR I Rannsóknarlögrcgla ríkisins hefur til rannsóknar mál sem Matthías sagði að ekki einungis sprottið er af grun um að unglingsstúlku hafi verið útveguð horm- gætu lyf þessi valdið stórhættu- ónaiyf, svokallaðir sterar, sem hún hafi notað í þeim mæli í legri brenglun á líkamsstarfsemi tengslum við íþróttaiðkun að líkamsstarfsemi hennar hafi beðið manna, ekki síst þegar um karl- nokkurn skaða af. Lyfjanefnd ÍSÍ hafði frumkvæði að því að mál hormónalyf væri að ræða, heldur H þetta var sent til lögreglurannsóknar en samkvæmt uppiýsingum fylgdi hætta á smitsjúkdómum, H frá landlæknisembættinu er talið að þessum lyfjum hafi verið svo sem alnæmi, ef steralyf eru H - - smyglað til landsins og að útilokað sé að lyfjunum hafi verið tekin í sprautuformi, einsoggrun- H HHflflÍÍSÍ^Í^PiHlili^HHIii^HHHH^^^HHHHIIHMIBMMHMM^^HHIHIi fjjjj Einkennilegt inn- flutningsbann Slæm um- gengni Til Velvakanda. Á sunnudaginn var fórum við hjónin í gönguferð niður að Tjörn með barnabarnið okkar til að sýna því þessa perlu borgarinnar. Okkur til mikillar hrellingar tókum við eftir því að mikið magn af brauði maraði í kafí alls staðar meðfram bökkum hennar. Eins voru hún og bakkar hennar stráð plastpokum af öllum gerðum og litum. Hafði hluti þeirra fokið á grindverk og trjágróður í nágrenninu svo helst minnti á illa farna jólatrésskreytingu. Endur og svanir héldu sig úti á miðri Tjörn, þótt enn stæðu nokkrir Reykvíkingar, sennilega þar sömu erinda og við hjónin, og köstuðu brauði til fuglanna. Þeir sýndu þessu örlæti borgarbúa aftur á móti hið mesta tómlæti, syntu um eða snyrtu fjaðrir sínar, greinilega pakksaddir. Það er einlæg von okkar að borg- arbúar sjái nú að sér, hætti að kasta brauðafgöngum, plastpokum og öðru rusli út í Tjörnina og noti held- ur til þess gerða sorpkassa, sem finna má á víð og dreif umhverfis hana eða taki það með sér heim aftur. Öll viljum við halda þessari perlu Reykjavíkur hreinni og fag- urri, svo að við getum notið hennar með börnum og barnabörnum okk- ar, stolt af fegurð hennar á sólfög- rum sunnudegi. Hjón í Vesturbænum Til Velvakanda. Fólk hefur eflaust lesið frétt á baksíðu Morgunblaðsins um stera- notkun ungrar stúlku. Við lestur slíkra frétta hneykslast eflaust margir á því að íþróttafólk skuli yfir- höfuð vilja nota svoleiðis lyf. Ég ætla ekki að /éttlæta notkun stera á neinn veg. Ég vil hins vegar vekja athygli á hverskonar valkostum margir íþróttamenn standa frammi fyrir. Einhver lög segja að ekki megi flytja inn alls konar vaxtarhvetjandi efni. Þessi efni eru ótalmörg og virka misvel og getur fólk kynnt sér þau í amerískum og breskum vaxtar- ræktartímaritum. Þessi efni eru ekki sterar né hormónar heldur t.d. alls- kyns hvatar og amínósýrur. Þessi efni eru seld í búðum erlendis, oft í matvöruverslunum. Þessi efni geta íþróttamenn hérlendis ekki fengið, eiga þess aðeins kost að borða gamla próteinríka skyrið eða taka stera. Já, ég get vitnað um það að ef ég hefði áhuga á gæti ég farið og keypt mér stera á morgun. En ef ég hins vegar vil fá mér amerískan pró- teindrykk með meltingarhvötum þarf ég að smygla honum inn til lands- ins. Það stendur ekki undir sér að smygla inn efnum en ýmsir ónafn- greindir menn sjá „bisness" í stera- sölu. Ég trúi ekki öðru en að sú vara sem FDA (Lyfja- og matvælaverslun Bandaríkjanna) samþykkir geti ekki eins verið samþykkt hér. Ef ég þekki íslenskt stjórnkerfi rétt verður engin breyting á þessu en mér finnst þetta samt umhugsunarvert og vildi ég gjaman að Lyfjaeftirlit ríkisins gæfi þessari umfjöllun gaum. íþróttamaður Þessir hringdu ... Bílastæði Okumaður hringdi: „Reykjavíkurborg hefur áreið- anlega miklar tekjur af stöðumæi- um, og þá ekki síður af stöðumæl- asektum sem eru mjög háar miðað við afbrotið. Mikill bílastæðavandi er þó í Miðbænum og oft verður maður að leggja víðs fjarri þeim stað sem maður ætlar á. Væri ekki rétt að veija öllum þeim pen- ingum sem inn koma í stöðumæla í Miðbænum til að bæta úr ástand- inu þar?“ Úr Kvenúr fannst fyrir utan Kaup- stað fimmtudaginn 21. febrúar. Upplýsingar í síma 79740 eftir hádegi, Sigríður. Kettlingur Svartur kassavanur kettlingur fæst gefins. Upplýsingar í síma 35099. Taska Svört æfingataska með Braun rakvél, æfíngaskóm o. fl. tapaðist við Barónstíg föstudaginn 22. febrúar. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Sigurð í síma 612043. Fundarlaun. Armband Gullarmband með plötu merkt „Þórun Sig.“ tapaðist í Hlíðunum fyrir nokkru. Finnandi er vinsam- legast beðinn að hringja í síma 681416. Hringsagir Þijár hingsagir töpuðust af bíl í grennd við Húsasmiðjuna föstu- daginn 15. febrúar. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í Rúnu í síma 611525. Köttur Bröndóttur köttur með hvítar loppur og hvíta bringu fór . að heiman frá sér í Neðstaleiti fyrir nokkru. Vinsamlegast hringið í síma 31453 ef hann hefur ein- hvers staðar komið fram. Gullarmband Gullarmband tapaðist 20. fe- brúar, sennilega við Hverfisgötu eða fyrir utan JL-húsið. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 14434. Víkyerji skrifar * Agæt kunningjakona Víkveija er um þessar mundir að velta því fyrir sér hvort hún eigi að taka löggildingarpróf í skjalaþýðingum. Skýrði hún Víkveija frá þessum áformum og blöskraði honum veru- lega sá kostnaður sem slíku prófi fylgir fyrir þá sem það taka. Til að fá að taka þátt í prófinu verður að greiða 40.000 krónur í óendur- kræft próftökugjald og til að fá síðan löggildingarstimpilinn verður að greiða 50.000 krónur til viðbót- ar. Þannig er þetta orðið að 90.000 krónum sem viðkomandi verður að láta af hendi rakna áður en hann fær að kalla sig löggiltan skjalaþýð- anda. Ef þar að auki er tekið undir- búningsnámskeið fyrir prófið kostar það hátt í tíu þúsund krónur til við- bótar. Þetta er því ekki svo lítill peningur, ekki síst þegar haft er í huga að oft er um að ræða ungt fólk í máladeildum háskólans. Auð- vitað er einhver kostnaður prófun- um samfara en varla nema brot af þessari upphæð. Er þarna kannski um dulda skattheimtu að ræða álíka þeirri og þegar lækningaleyfi voru hækkuð upp úr öllu valdi? Viðbrögð unglækna við þeirri ákvörðun fjár- málaráðuneytisins voru mjög hörð og leyfin voru lækkuð á ný. Enda er það hæpið að reyna að hafa sem mest fé af fólki sem er að fara út í einhveija atvinnugrein. % XXX Kunningjahjón Víkveija fóru í Húsdýragarðinn í Laugardal um síðustu helgi og tóku auðvitað börnin með. Fjölskyldan hafði mikla ánægju af að rölta um garðinn og skoða dýrin og börnin spurðu í þaula um allt sem vakti áhuga þeirra. Eftir drykklanga stund voru for- eldrarnir orðnir lúnir og kaffiþyrst- ir og jjölskyldan fór á kaffistofuna. Þar vakti það athygli að umhverfið var allt mjög snyrtilegt og boðið upp á ágætis meðlæti með kaffinu. Hins vegar stóð fjölskyldan stutt við, því nær ólíft var inni vegna tóbaksreyks. Skýtur það ekki skökku við að svo skuli hátta til í Húsdýragarðinum, sem án nokkurs efa er jákvæður þáttur í uppeldi barnanna? Þessu hlýtur að vera hægt að kippa í liðinn og eðlilegast væri auðvitað að banna reykingar með öllu á þessum samkomustað fjölskyldunnar. xxx Itilefni af athugasemd í Víkverja í gær fer hér áeftir athugasemd Óskars Guðmundssonar, ritstjóra Þjóðlífs, sem okkur hefur borist: Víkveiji í Morgunblaðinu í gær (28. febrúar) segir frá skoðana- könnun sem Félagsvísindastofnun Háskólans gerði um það hvaða stjórnmálamenn nytu mests trausts til þess að gegna embætti forsætis- ráðherra næsta kjörtímabil. Af þessu tiiefni skal tekið fram að umrædd könnun var gerð fyrir fréttatímaritið Þjóðlíf og birtast nið- urstöðurnar í Þjóðlífi sem kemur út í næstu viku. Með kveðju, Óskar Guðmundsson, rit- stjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.