Morgunblaðið - 13.03.1991, Side 1

Morgunblaðið - 13.03.1991, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 BLAÐ 4 Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipa Kvótinn 5 Endurskoðuð út- hlutun aflakvóta smábáta Viðtal 3 Höskuldur Ásgeirsson hjá lceland Seafood í Boulogne Markaðsmál 10 Fiskeldið eykur eftirspurn eftir mjölinu Netin dregin Morgunblaðið/Sigurgeir Jónaason Á myndinni sést Benóný Benónýsson, skipverji á Gullborgu VE, við rúlluna. Mikið er af þorski við Suðuriand á þessari vertíð og jafn- vel meira en undanfarin ár. Uppistaðan í aflauum er 5 kílóa þorsk- ur, að sögn Sveins Jónssonar skipstjóra á Jóhanni Gíslasyni frá Þorlákshöfn. Margir reyna að forðast þorskinn til að spara kvótann en ufsinn hefur lítið gefið sig í vetur. Þorskaflinn góður en ufsinn gefur sig lítíð Þórunn Sveinsdóttir VE aflahæst með 550 tonn „VIÐ erum búnir að landa um 550 tonnum frá áramót- um,“ segir Sigurjón Oskars- son skipsljóri á Þórunni Sveinsdóttur VE, sem er afla- hæsti báturinn á vetrarvertíðinni. Mikið er af stórum þorski á vertíðarsvæð- inu við Suðurland en ufsi hefur lítið gefið sig þar í vetur. Styrmir VE hefur landað næst mest af Vestmannaeyjabátum á vertíðinni, eða 497 tonn- um. Aflahæsti báturinn frá Þorlákshöfn er Jóhann Gíslason ÁR með 358 tonn en aflahæsti báturinn frá Grindavík er Hafberg GK með 429 tonn. í Þorlákshöfn var landað 4.038 tonn- um í febrúar í fyrra en um 2.300 tonn- um í febrúar í ár. Þar af lönduðu 19 netabátar 1.300 tonnum en 20 netabát- ar lönduðu 2 þúsund tonnum í Þorláks- höfn í febrúar í fyrra. Skýringin á afla- samdrættinum er sú að Þorlákshafnar- bátar komust ekki á sjó vegna brælu fyrstu tíu dagana í febrúar síðastliðn- um og ufsinn hefur ekki gefið sig á þessari vertíð, að sögn Jónu Engilberts- dóttur á hafnarvoginni í Þorlákshöfn. I Grindavík var landað um 2.250 'tpnnum'í febröár síðástliðriúnfen 3i4ö,0J 'tohnum í íeDrúar í íýrr á. ‘þár var lána-J að um 850 tonnum í janúar siðastliðn- um en 1.244 tonnum í sama mánuði í fyrra. „Við erum með 1.400 tonna afla- kvóta og gætum veitt allan kvótann á vertíðinni en verðum að geyma eitthvað af honum," segir Siguijón Óskarsson. Þórunn Sveinsdóttir VE er með 500 tonna ufsakvóta en á eftir að veiða um 300 tonn af honum. „Við höfum verið að eltast við ufsa í-hálfan mánuð en hann hefur lítið gefið sig á þessari vertíð," segir Sigurjón. Hann segist ' ;ekki' hafa fenþið herhá’.éitt tonri af ýsu ':'frk'áfarnótuln/,ÍH<ugsanlégt er að ufei og ýsa hafi verið ofveidd í sóknarmark- inu. Hins vegar er mikið af þorski í Köntunum en við merkjum ekki að Grænlandsþorskur sé genginn á miðin hér.“ Atli Sigurðsson, skipstjóri á Styrmi VE, segist hafa reynt að forðast þors- kinn undanfarið til að spara þorsk- kvóta sinn. „Það virðist vera nóg af þorski i Köntunum hér og helmingurinn af þeim þorski, sem við höfum veitt, er 5 kíló. Ufsinn er hins vegar voðaleg- ur ræfill en við ætlum að veiða löngu, sem er utan kvóta,“ segir Atli. „Það er nóg af þorski hér í Kantinum og jafnvel meira en undanfarnar ver- tíðir. Uppistaðan í okkar afla er 5 kílóa þorskur og við lönduðum til dæmis 155 tonnum af þorski í síðustu viku,“ segir Sveinn Jónsson skipstjóri á Jóhanni Gíslasyni ÁR. Sveinn segist hafa leitað að ufsa í rúman hálfan mánuð á ver- tíðinni en gefist upp á. því, „Ég held áð 'ufsinn 'komi ekki á þettU svæði úr 'þe'ss’u," segir Svéinri. Fréttir Markaðir Telja afkomu sinni stefnt í mikinn voða H STJÓRN Landssambands smábátaeigenda telur, að breytingar, sem gerðar voru á fyrirkomulagi fiskveiða um síðustu áramót, stefni af- komu margra smábátaeig- enda ekki aðeins í tvísýnu, heldur blasi gjaldþrot við þeim mörgum. Hafi eignir margra verið gerðar verð- lausar og atvinnan einskis virði með lagasetningu, sem fari í bága við stjórnar- skrána. Telur Landssam- bandið sig knúið til að höfða prófmál grípi stjórnvöld ekki til aðgerða./2 ----------- Kerfið ónýtt og eftirlitið skrípaleikur ■ STJÓRNUN fiskveiða í Evrópubandalaginu er gjald- þrota að margra mati og ekki er eftirlitið með þeim betra ef marka má fréttir frá Esbj- erg í Danmörku. Er það haft eftir formanni sjómannafé- lags á vesturströnd Jótlands, að í raun hafi verið leyfðar frjálsar veiðar á síðasta ári og fyrrverandi eftirlitsmaður segir, að eftirlitið sé bara til að sýnast./3 ----------- Líkamleg óþægindi í fiskvinnu ■ FISKVINNAN er lýjandi og bendir könnun Vinnueft- irlitsins til, að óþægindi í hreyfi- og stoðkerfi séu al- gengari meðal fiskvinnslu- fólks en hjá þjóðinni al- mennt. Raunar er ástandið verra hér á landi en erlendis hvað þetta varðar./8 ----1 ♦ t-- • • Orvar með forystu í vinnuvernd ■ MIKIL bylting hefur orðið á vinnuaðstöðu um borð í frystitogaranum Örvari frá Skagaströnd og er það stefna Skagstrendings lif. að hlúa sem best að sínu fólki. Hefur útgerðin fengið Magnús Ól- afsson sjúkraþjálfara í lið með sér og hefur hann í sam- vinnu við áhöfnina gengist fyrir mörgum breytingum, sem gera vinnuna létt- an./12 í lö Fersku flökin eru dýrust SÖÖkp/kg ■ BRETAR borga vel fyrir fersk þorskflök eða um 420 krónur að meðaltali á kíló miðað við verð í desember síðastliðnum. Um er að ræða flök með roði, en séu sömu- flökin fryst um borð í fiski- skipi lækkar verðið niður í 330 krónur og enn lækkar það, séu flökin frysti í landi, því þá fást aðeins um 270 krónur fyrir kilóið. Um 42 krónur kostar að flytja hvert kíló af þessum flökum utan með flugi og er því að frá- dregnum þeim kostnaði enn svigrúm, þar sem verð fyrir fersku flökin er enn nokkru hærra en þau frystu. Fersk flök hæst tolluð 40kp\kg ■ TOLLARafþessumaf- urðum eru hins vegar afai’ mismunandi, engir á frystum flökum, en 18% á ferskum flökum og 20% á söltuðum flökum, en 3,7% á heilum fiski. Þegar þessir tollar eru reiknaðir inn í dæmið, stenzt útflutningur á ferskum flök- um ekki samkeppnina. Sé tollurinn yfirfærður í hrá- efniskíló, svarar hanntil 36,40 króna á ferskum flök- um en aðeins 6,10 af heilum fiski. Tölur þessar eru fengn- ar úr tillögu til þingsályktun- , ai’ urn mótun fiskvinnslu- ,,@tefrjíu. -txjnnií.eÓðrd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.