Morgunblaðið - 13.03.1991, Page 3

Morgunblaðið - 13.03.1991, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ B 3 Morgunblaðið/Björn Blöndal Loðnuhrogn í Keflavík ■ keflavík-frysting á loðnuhrognum hófst í Keflavík fyrir rúmri viku. Um 45 tonn voru fryst og voru það fyrstu hrognin sem fryst eru á Suðurnesjum á loðnuvertíðinni. Loðnan var úr Kefivíkingi KE lOþ sem landaði 827 tonnum í tveim sjóferðum. Hrognin voru fryst í húsi Keflavíkur hf. sem er í eigu Miðness hf. í Sandgerði. ------------ Sandhverfa vistuð í Limafirði ■ í APRÍL og maí ætlar danska hafrannsóknastofn- unin að sleppa 100.000 lif- andi sandhverfum í Lima- firði í þeirri von, að fiskurinn ílendist þar og verði upphaf- ið að nýjum stofni. Verður fiskurinn keyptur frá Noregi en hrygningarstofn innlendu sandhverf unnar er löngu hruninn þótt einhvern slæð- ing sé þar enn að finna. 25.000 fiskar verða merktir og á að bera saman vöxt þeirra og innlendu fiskanna og kanna hvort þeir verða um kyrrt eða leita út úr firð- inum í vetur. Mjöhykið ekki hollt ■ STARFSMÖNNUM í fiski- nyölsverksmiðjum er hætt- ara en öðrum við þrálátum lungnasjúkdómum eins og astma og lungnakvefi. Er þetta niðurstaða köununar, sem vinnusjúkdómadeild sjúkrahússins í Álaborg í Danmörku gekkst fyrir. Var kannað heilsufar 25 maiuta, sem störfuðu eða höfðu starf- að í fiskimjölsverksmiðjum í Esbjerg og Skagen, og reyndust 12 vera veikir í lungum. Er það rakið til mjölsins, þessa fína ryks, sem fyllir loftið í verksmiðjunum. Drauganet í Eystrasalti ■ DANIR telja, að um 300 sovésk og pólsk skip týni frá sér netum í Eystrasalti á ári hverju og veldur þetta öðrum sjómönnum, ekki síst Borg- undum, verulegum vandræð- um. Hefur verið áætlað, að 30-60.000 drauganet séu þar á reki og mörg þeirra halda „veiðunum“ áfram með al- varlegum afleiðingum fyrir þorskstofninn. Hefur danska sjávarútvegsráðuneytið beð- ið sjómenn á Borgundar- hólmi og aðra að safna sam- an öllum upplýsingum um þessi mál og á síðan að taka það upp í Eystrasaltsfisk- veiðiráðinu, sem kemur sam- an til fundar í september. 1 ................... Fiskveiðistjómumn ónýt og eftírlitið skrípaleikur í Esbjerg er gengið út frá, að allir veiði ólöglega AÐ undanförnu hafa átt sér stað miklar umræður innan Evrópu- bandalagsins um fiskveiðisljórnunina og þótt flestir virðist sammála um, að hún hafi brugðist í flestu, er engin samstaða um hvað við skuli taka. Það er þó ekki aðeins, að fiskveiðistjórnunin hafi reynst ónýt, heldur er sjálft eftirlitið með henni einn allsherjarskrípaleikur ef marka má orð og yfirlýsingar formanns sjómannafélagsins í Hanstholm í Dan- mörku og fyrrverandi veiðieftirlitsmanna. Hlutverk danskra fiskveiðieftir- litsmanna á vesturströnd Jótlands er tvíþætt, annars vegar að kæra tiltekinn en lítinn fjölda sjómanna fyrir ólöglegar veiðar til að þóknast Evrópubandalaginu og hins vegar að skipta sér ekki af lögbrotunum til að ganga ekki of nærri hagsmun- um sjómannanna. „Ef þeir kærðu sig um gætu þeir stöðvað lögbrotin á einni viku en Kent Kirk sjávarútvegsráðherra heimilaði í raun og veru fijálsar veiðar allt síðasta ár,“ segir Peter Sand Mortensen, sjómannafélags- formaður í Hanstholm. Vilja styrk á hvert kíló SAMTÖK útgerðarmanna í Tromsö hefur lagt til við norsk stjórnvöld, að á fyrsta verðlags- tímabili verði greiddur 0,65 nkr. flatur styrkur, rúmar sex kr. ísl., á hvert kíló físks og rækju upp að 80 tonnum. Gerir tillagan ráð fyrir nokkru minni ríkisstyrk en á síðasta ári en þá var styrkurinn reiknaður þannig, að hann ininnkaði eftir því sem aflinn jókst. Nú er hins vegar að auki beðið um sérstakan styrk við veiðar, sem þykja ekki jafn arð- bærar og aðrar. Styrkurinn skal greiddur eftir á og hann má skerða ef aflinn verður meiri en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þá er þess krafist, að styrkur- inn fyrir hvert veitt kíló af keilu, blálöngu, hrognkelsi, skarkola og öðrum flatfiski og háf verði ein króna norsk eða um 9,30 kr. ísl. Þetta á einnig við um báta, sem eru minni en 45 fet, og stunda ufsa-, hlýra- eða karfaveiðar. Ufsaveiðar í nót eru þó undanskildar. í tillög- unni segir, að engu skipti í hvers konar vinnslu aflinn fari, bræðslu, frystingu, söltun, skreið eða tii neyslu sem ferskur. Námskeið í fískiðnaði STYKKISHÓLMI - í VETUR hefir staðið yfir hér í Stykkis- hólmi námskeið fyrir fiskvinnslu- fólk á staðnum og þar hefir fólki verið leiðbeint um allt sem að fiskiðnaði lýtur og fengnir menn til fyrirlestrahalds. Námskeiðið sóttu 20 manns sem starfa hjá fiskvinnslunni hér í bæn- um og töldu þeir sem nutu leiðbein- ingarinnar að þetta námskeið hefði borið mikinn árangur og væri nauð- synlegt. Upplýsingar þær sem væru á boðstólum kæmu vel að gagni. Þetta námskeið var haldið í húsa- kynnum verkalýðsfélagsins hér. Formaður verkalýðsfélagsins, Einar Karlsson, sagði að nú væru liðin 5 ár frá því seinasta námskeið þessar- ar tegundar hafi verið haldið í Stykkishölmi. Þá var einnig rætt á þessu nám- skeiði um komandi kjarasamninga og hvernig myndi rétt vera að standa að þeim. A seinasta námskeiðinu var Giss- ur Pétursson leiðbeinandi en hann er forstöðumaður SF. Hann fjallaði ,um mannleg samskipti, ; i Samsæri þagnarinnar Kent Kirk vísar þessu á bug og segir allt með felldu en fyrrverandi veiðieftirlitsmaður, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir, að starf- ið felist aðallega í að gera ekki neitt enda standi sjómenn, eftirlits- menn og yfirvöld saman. „Það er nú einu sinni okkar lifi- brauð að veiða og selja fisk og eftir- litið er bara til að sýnast fyrir Evr- ópubandalaginu. Ef ráðuneytið ósk- aði einhvers annars fengjum við skipanir í samræmi við það.“ Kærum fyrir ólöglegar veiðar er haldið í algjöru lágmarki en þó er ekki hægt að fá uppgefið hjá sjávar- útvegsráðuneytinu danska hve margar þær eru. Per Lackmann, yfirmaður veiðieftirlitsins, segist ekki vita það og ber því-við,- að að verið sé koma upp nýju tölvukerfi. Samkvæmt upplýsingum frá eftir- litsumdæmunum virðist hins vegar sem kærurnar hafi verið um eða innan við 100 allt síðasta ár. Sjó- menn segja, að lögbrotunum fjölgi stöðugt en kærufjöldinn breytist ekkert og í sumum umdæmum hef- ur þeim fækkað. Ein kæra er nóg í Esbjerg svo tekið sé dæmi er gengið út frá því sem vísu, að allir stundi ólöglegar veiðar. Þegar skip- stjóri er kærður og verður sannur að sök er sektin þung en vegna þess, að það vakir ekki fyrir yfír- völdum að setja memrá hausinn þótt brotlegir séu, er þess gætt, að sama skipið sé ekki tekið tvisvar. Auk þess fylgjast sjómennirnir og þeirra fólk í landi vel með ferðum eftirlitsmannanna, sem gera lítið að því að koma mönnum á óvart nema þegar þarf að fylla kærukvót- ann. ■ Stöku sinnum kemur nefnd manna frá yfírstjórn EB í Bmssel til að kanna hvernig danska eftirlit- ið stendur sig í starfí og það á að heita, að hún geri engin boð á und- an sér. Yfirleitt vita þó allir um komuna með hálfs mánaðarfyrir- vara vegna þess, að nefndarmenn panta sér ávallt hótelherbergi á við- komandi stað í tíma. Trúlega er það engin tilviljun, að þessi háttur er á hafður. Þrátt fyrir allt er eftirlitið nokk- urt og sjómennirnir geta aldrei ver- ið alveg öruggir um, að röðin sé ekki komin að þeim. Er það haft eftir eiginkonum þeirra, að þetta fari mjög illa með þá, þeir séu upp- stökkir og ergilegir vegna óvissunn- ar um að geta ekki stundað ólögleg- ar veiðar í friði. Nýjung ! Suða og skurður með sama tækinu ! Með Migcut 250/50 hefur ESAB tekist að gera eitt tæki bæði fyrir PLASTMASKURÐ (50 Amp.) allt að 15 mm efnisþykkt og HLÍFÐARGASSUÐU (250 Amp.) Hafðu samband við sölumenn okkar sem veita allar nánari upplýsingar. Forysta ESAB er trygging fyrir gæðum og góðri þjónustu. = HÉÐINN = SELJAVEGI 2, SlMI 624260 VERSLUN - RAÐGJÖF lltgeráamiw - skipstiírar Vegna hagstæðra innkaupasamninga getum við nú boðið ýmsarvindurá hagstæðu verði. Togvindur, grandaravindur, gilsvinduro.fi. Stærðir 3 til 10 tonna. Getum útvegað lán vegna vindukaupa, 70% af kaupverði til allt að 5 ára. Einnig getum við boðið dælur og ventla frá Denison á mjög hagstæðu verði. Hönnum og setjum upp vökvakerfi. VÉLAVERKSTÆÐI SIG. SVEINBJÖRNSSONM HF., SKEIÐARÁSI, 210 GARÐABÆ, SÍMI 91-52850, FAX 91 -652860 ■SSBBE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.