Morgunblaðið - 13.03.1991, Page 12

Morgunblaðið - 13.03.1991, Page 12
SÉRBLAÐ UM SiÁVARÚTVEG MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991 Aukiðnám Ýsunni pakkað í fiskvinnslu í Færeyjum Vinnuaðstöðu um borð í • • togaranum Orvari bylt FISK VINNSLU SKÓLINN í Vest- manna I Færeyjum útskrifar fyrstu nemendur sína í vor. Jafnframt verð- ur skipan námsins þá breytt og náms- tími lengdur í þrjú ár og fræðslan aukin. Fyrstu nemendumir verða þó útskrifaðir eftir tveggja ára nám. Nemendur em nú 34. Fiskvinnsluskólinn í Vestrnanna hef- ur aðeins verið starfræktur i tvö ár, en þó hefur verið ákveðið að lengja náms- tímann úr tveimur árum í þijú. Mesta breytingin verður á öðru námsárinu, þar sem nemendur velja sér sjálfír starfs- verkefni og eiga að því loknu að verða betur undir framhaldsnám búnir. Reynslan af beinni starfsþjálfun hefur verið misjöfn, því misjafnt er hve geng- ur að fylgjast með þjálfuninni. Þá hafa sumir sótt starfsþjálfun til annarra landa. Því er ætlunin að samræma þessa þjálfun betur. Morgunblaðið/Sigurgeir ÞAÐ era mörg handtökin við flskinn áður en hann fer á markað er- lendis. Einna mest vinna er við pökkun í fimm punda pakkningarnar fyrir Bandaríkin, enda er það einhver verðmætasta pakkningin, seld á 3,30 dollara pundið. Stöllumar Guðrún og Birgitta í „Hraðinu“ í Eyjum vinna við að taka pönnumar frá borðunum og líkar það vel. Skagstrendingur hf. í fremstu röð í vinnuvernd SKAGASTRÖND - GJOR- BYLTING liefur orðið á vinnuaðstöðu um borð í fyrstitogaranum Örvari frá Skagaströnd eftir sam- vinnu sjómanna og sjúkraþjálfarans Magnúsar Olafssonar. Arni Sigurðsson * stýrimaður á Örvari segir að það eigi sérstaklega við um blóðgunarkerfið sem var hannað upp á nýtt í samvinnu við Magnús. Einnig hefur verið kornið fyrir hækkanlegum pölium við vélarnar svo hver maður getur staðið í réttri hæð við þær. „Sumir voru dálítið tortryggnir á breytingarnar í fyrstu en ég held ég megi fullyrða að allir eru ánægðir í dag og veikindi vegna bakverkja og vöðvabólgu hafa minnkað stórlega," sagði Arni. í síðustu inniveru mætti áhöfnin á frystitogaranum Örvari á fund með Magnúsi Olafssyni sjúkraþjálfara. Fund- urinn var haldinn að undirlagi útgerðar- innar og tilgangur hans var að bæta heilsu og líðan sjómanna á Örvari. Sumarið 1989 fékk Skagstrendingur hf. Magnús Ólafsson sjúkraþjálfara til að fara út á sjó með skipum félagsins, Arnari og Örvari, til að geta bent á hvað betur mætti fara í vinnulagi og vinnuaðstöðu um borð. í framhaldi af því mætti Magnús á fund með áhöfninni og læknum úr héraðinu. Á þeim fundi benti Magnús sjómönnum á ýmsar leiðir til að draga úr sjúkdómum í baki og fótum og til að koma í veg fyrir vöðva- bólgu, en nokkuð hefur borið á slíkum kvillum um borð í íslenskum frystiskip- um. Einnig lagði Magnús fram nokkrar tillögur að úrbótum með staðsetningu véla og færibanda með hliðsjón af að gera sjómönnum verk sín sem auðveld- jist. Telur Magnús að Skagstrendingur hf. sé í fremstu röð meðal útgerða hvað vinnuvernd snertir. Að sögn Sveins Ingólfssonar fram- kvæmdastjóra Skagstrendings er til- gangurinn með þessari vinnu að bæta heilsu áhafnarinnar. Telur hann að slíkt muni skila sér í bættri líðan og ánægð- ari áhöfn sem aftur verður til þess að vinnan gengur betur og be'tri nýting fæst úr hráefninu. Sveinn sagði að út- gerðin legði mikla áherslu á að sjómenn- irnir tækju sér frí reglulega, helst þriðja FÓLK Sýnir gott fordæmi ■ HREINLÆTI við fisk- vinnslu eins og hverja aðra matvælaframleiðslu er mikil- vægt. Því skiptir miklu máli að allir fari eftir sett- um reglum og yfirmennirnir sýni gott for- dæmi. Það gerir Tryggvi Finnsson, framkvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Hann lætur ekki undir höfuð leggjast að setja upp hárnetið og fara í sloppinn, þegar kom- ið er í vinnslusalinn. Tryggvi Finnsson Andri stjórnar fiskmarkaði Þorlákshafnar ■ ANDRI Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýstofnaðs Fiskmarkaðar í Þorlákshöfn. Andri er 34 ára innfæddur Reykvíking- ur. Hann lauk prófi frá Sjáv- arútvegshá- skólanum í Tromsö 1987 og réðst þá sem markaðsfulltrúi að Istess hf á Akureyri. Frá áramótum 1989 var Ándri í hálfri stöðu sem kennari í fisk- eldisfræðum á Klaustri og hálfri stöðu hjá Búnaðarsambandi Suðurlands við að athuga möguleika á bleikjueldi sem aukabúgrein fyrir bændur. Andri Guðmundsson Síldarsnúðar með brúnni sósu og kræklingskrókettur ■ ISLENDINGAR háfa lengst af verið ónýtir við að borða síld og krækling þó ýmislegt hafi _ verið reynt. Velunnari okkar Ur verinu gaukaði að okkur merki- legum bæklingi, sem Fiskifélag íslands gaf út árið 1916 og heitir hann Ódýr fæða - leiðbein- ingar um matreiðslu á síld og kræklingi. Bæklingurinn er þýddur af Matthíasi Ólafssyni, ráðunaut, upp úr tveimur norsk- um smábæklingum. I formála segir hann meðal annars svo: „Væri það mjög mikill hagur fyrir íslenzku þjóðina, ef hún neytti síldar að miklum mun meir en hún gjörir, því auk þess sem hún að næringargildi jafn- ast á við nautakjöt, er hún ljúf- fengur matur, ef hún er sæmi- lega matreidd, og að mun ódýr- ari en kjöt jafnvel þótt tillit sé tekið til hins háa verðs, sem nú er á henni.“ Uppskriftirnar eru margar bæði girnilegar og fram- andi og nefnast til dæmis síldar- býtingur, síldarómelett, síld- arsnúðar með brúnni sósu, hrognabýtingur, kræklings- snúðar og kræklingskrókett- ur. Hafnarhús í Grindavík ■ IVFTThafnarhús, sem á meðal annars að geyma hafnar- vigtina og Fiskmarkað Suður- nesja, á að vera komið upp í Grindavík fyrir haustið. Var þetta samþykkt á almennum fundi í Sjómannastofunni Vör fyrir nokkru og skipuð nefnd til að annast framgang málsins. Er hún skipuð fulltrúum atvinn- ulífsins í Grindavík og Jóni Gunnari Stefánssyni bæjar- stjóra. Er áætlað, að húsið muni kosta 50-60 milljónir kr. SJOMANNAMAL Að draga á bátinn Síðast var talað um orðtakið: Það gaf á bátinn. No. bát- ur kemur fyrir f ýmsum öðrum orðasamböndum eða orðtök- um, sem voru eðlilega í upphafí tengd máli sjómanna, en urðu svo síðar eign almennings og þá í breyttri merkingu. Að draga á bátinn hlýtur upphaflega að hafa verið haft um fiskidrátt. En frá 18. öld er það þekkt orðtak um það að taka hraustlega til matar síns. Frá síðari hluta 19. aldar er annað dæmi í OH, sem hljóðar þannig: „hann hafði dreg- ið nógu mikið á bátinn' af öllu góðgætinu." Líkingin við fiskidrátt er auðsæ. í Sturlungu kemur svo fyrir orðtakið að sjá fyrir báti sínum. í bardaganum á Þveráreyrum þótti Þorgilsi skarða, að frændi sinn, Sturla Þórðarson, færi óvar- lega. Því svaraði Sturla með þessum orðum: „Lát mig sjá fyrir báti mlnum, frændi, sem auðið má verða.“ Líkingin er dregin af bátseiganda, sem sjálfur viil ráða ferðinni, eins og HH bendir á í ísl. orðtökum. En Sturla vildi einmitt ráða sjálfur ferðum sínum í bardaganum. - JAJ 21 paHur. 1 x 20 lbs. Pryst fLök. TilBremerliaveiL Ámánudagskvöld. Pyrir kl. 22:00? 1 O/ J10/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.