Morgunblaðið - 21.06.1991, Blaðsíða 23
22 C;L T : MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
ÁgústlngiJónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
íslenzki
dansflokkurinn
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands:
95% SVAKENDA HLYNNT-
1R SAMMGN Á FISKI-
MWVM ÞJÓÐARINNAR
Máiefni íslenska dansflokksins,
og ballettlistarinnar í heild,
;t komin í miklar ógöngur. Eins
og fram hefur komið í fréttum hér
í Morgunblaðinu, er enginn listdans-
stjóri starfandi við Þjóðleikhúsið, og
engar reglur eru enn til um starfslok
listdansara. Auk þess hefur álit
nefndar, sem sérstaklega var skipuð
af fyrrverandi menntamálaráðherra,
týnst einhvers staðar í kerfinu. En
þetta bága ástand er ekki nýtt af
nálinni og það eru ekki ný sannindi
að starfsaldur ballettdansara er til-
tölulega stuttur.Í grein, sem birtist
í menningarblaði Morgunblaðsins í
vetur, kom fram að meðlimir íslenska
dansflokksins óskuðu sjálfir eftir því
fyrir fimm til sex árum að hugað
yrði að starfslokareglum þeirra. Frá
þeim tíma virðist ekkert hafa gerst,
annað en að fólk hefur verið skipað
í nefnd sem hefur skilað áliti, sem
hefur gufað upp.
í umræddri grein kemur líka fram
að setning reglugerðar um starfslolt
hjá íslenskum listdönsurum, við Þjóð-
leikhúsið, sé þáttur í allshcrjar reglu-
gerð um íslenska dansflokkinn, sem
á að grundvallast á nýjum lögum
fyrir Þjóðleikhúsið. Og nú liggja til-
lögur að framtíð listdansins og Þjóð-
leikhússins í menntamálaráðuneyt-
inu og bíða afgreiðslu. Eftir að stjóm
íslenska dansflokksins hefur fjallað
um tillögur nefndarinnar, er það
Þjóðleikhússráðs að fjalla um þær, í
tengslum við tilvonandi lög um Þjóð-
leikhúsið og að lokum er það mennta-
málaráðherra að bera þau upp sem
lagafrumvarp og fá samþykkt. Eða
eins og einn viðmælandi Morgun-
blaðsins sagði í frétt hér um helgina;
yfirstjóm ballettmála er eins og
tvíhöfða þurs.
Það er sláandi að sjá að dansarar
og annað hæfileikafólk sem getur
ljáð þessari listgrein lið, er orðið
þreytt á seinagangi kerfisins og er
í óðaönn að yfirgefa landið. Þrátt
fyrir margra ára baráttu virðist ekk-
ert gerast. Afleiðingin af þessu er
óstjóm og glundroði og er það
kvíðvænlegt að loksins þegar einhver
tekur ákvörðun, verða líklega allir
sem geta lagt hönd á plóginn komn-
ir til starfa erlendis.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur fengið stunda
um 800 böm nám í listdansi í
Revkjavík, bæði í einkaskólum og í
Listdansskóla Þjóðleikhússins. En
eins og ástandið er í dag, em fram-
tíðarhorfur þessara barna ekki bjart-
ar. Viðmælendur Morgunblaðsins
undirstrikuðu það um síðustu helgi,
þegar þeir sögðu að hér á landi væri
engin raunhæf fyrirmynd fyrir böm-
in, auk þess sem ekki væri að neinu
að stefna hér heima í framtíðinni,
eins og ástandið er í dag.
Listdansskóli Þjóðleikhússins var
stofnaður árið 1952 og vafalaust
hefur verið hugur í þeim sem að
stofnuninni stóðu. Það liðu þó rúmir
tveir áratugir áður en íslenskum
dansflokki var komið á fót við sömu
stofnun. Og hefur verið látið þar við
sitja. Við erum stolt af löndum okkar
sem ná langt erlendis, en það er
verðugt umhugsunarefni, hversu
lengi Helgi Tómasson, aðalstjómandi
San Francisco-ballettsins, hefjði enst
í baráttunni hér. Það virðist stað-
reynd að um leið og víð bendum með
stolti á þá sem gera garðinn frægan
erlendis á einhveiju sviði, gerum við
ekkert til að huga að framtíðinni hér
heima.
Helgi Tómasson hefur lýst vinnu-
aðferðum sínum sem listdansstjóri,
meðal annars hér í Morgunblaðinu,
og sagt að sem listdansstjóri geri
hann kröfu um að vera einvaldur
þess flokks sem hann stjórnar. List-
dansstjóri mótar stefnuna, velur sér
fólk til að framfylgja þeirri stefnu
og sem hefur hæfni til að dansa þau
hlutverk sem verkefnaval listdans-
stjórans krefst. Hér hefur það aftur
á móti viðgengist árum saman, að
dansaramir em fastráðnir og sá list-
dansstjóri, sem ráðinn er til starfa
hveiju sinni, verður að miða verk-
efnavalið og stefnuna við ástand
flokksins. Það er því ljóst að listdans-
stjórar íslenska dansflokksins hafa
aidrei fengið svigrúm til að móta
eigin stefnu. Þeir verða að aðlaga
vinnubrögð sín flokknum.
í fréttum Morgunblaðsins um
síðastliðna helgi kom einnig fram að
leitað hefur verið til Maríu Gísladótt-
ur, um að taka að sér listdansstjóra-
stöðuna, sem hefur verið laus frá því
um áramót. María, sem hefur starfað
sem fyrsti sólódansari, bæði í Þýska-
landi og Bandaríkjunum, síðastliðin
fimmtán til tuttugu ár, gerir sömu
kröfur hér og Helgi Tómasson í San
Francisco og þar með virðist hnútur
kominn á málið. Innan ramma Þjóð-
leikhússins virðist ekki vera svigrúm
til að sýna listdansstjóra fulit traust
og möguleika á að byggja hér upp
flokk, sem er samkeppnisfær við at-
vinnuflokka erlendis. Listdansstjór-
inn verður að beygja sig undir starf-
semi íjóðleikhússins og þær venjur
sem þar hafa viðgengist; venjur sem
að mestu hafa mótast af aðgerða-
leysi stjómvalda og yfirstjórn Þjóð-
leikhússins. Það hlýtur að vekja upp
spurningar, þegar fólki, sem á tutt-
ugu ára starfsferil að baki, er boðið
upp á að lúta stjórn þeirra sem ekki
hafa sérþekkingu á þörfum og vinnu-
brögðum listdansara.
A síðastliðnum árum hafa þeir sem
starfað hafa að listdansi innan
veggja Þjóðleikhússins reynt að láta
í sér heyra, vegna starfsaðstöðunn-
ar. Aðfinnslurnar snúast fyrst og
fremst um sýningar og þá staðreynd
að íslenska dansflokknum er boðið
upp á að æfa klukkustundum saman,
dag hvem, í tíu mánuði á ári, til
þess eins að setja upp eina sýningu.
Óll list felur í sér þörf fyrir tjáningu.
Ekki tjáningu í lokuðu herbergi, held-
ur tjáningu sem leiðir til samskipta
við annað fólk. Þessa tjáningu hefur
íslenska dansflokknum að mestu
leyti verið neitað um og nú er ástand-
ið orðið þannig að dansararnir eru
eins og Garðar Hólm, sem var söngv-
ari en söng aldrei. '
Að lokum hlýtur það að vera um-
hugsunarefni, hvort ekki sé orðið
tímabært að skilja íslenska dans-
flokkinn frá Þjóðleikhúsinu. Tillögur
um það er að flnna í nefndaráliti því
sem legið hefur í menntamálaráðu-
neytinu á annað ár. Hver listgrein
lýtur sínum lögmálum og það má
vera augljóst, hveijum sem það vill
sjá, að það hefur ekki verið listdans-
inum til framdráttar hér á landi, að
lúta lögmálum leiklistarinnar og
hennar stofnunar.
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gerði könnun á viðhorfum
íslendinga til sjávarútvegsmála
fyrir Morgunblaðið dagana 6.-12.
júní. Hér á eftir eru raktar saman-
dregnar niðurstöður könnunar-
innar.
Markmið könnunarinnar var að fá
ítarlega mynd af viðhorfum íslend-
inga til nokkurra þátta sjávarútvegs-
mála, sem mikið hafa verið til um-
ræðu að undanförnu. Spurningar um
efnið voru lagðar fyrir svarendur úr
1.500 manna úrtaki landsmanna á
aldrinum 18-75 ára. Niðurstöður eru
settar fram á tvo vegu, annars vegar
í yfirlitstöflum þar sem sjá má hvern-
ig allir svarendur og þeir sem af-
stöðu taka svara spurningunum, hins
vegar er ítarlegri greining þar sem
sjá má hvemig afstaðan er misjöfn
eftir kynjum, aldurshópum, búsetu,
starfsstétt, atvinnugrein og stuðn-
ingi við stjómmálaflokka. Svarenda-
hópurinn endurspeglar þjóðina á
aldrinum 18-75 ára ágætlega og
ættu upplýsingarnar því að gefa
góða mynd af viðhorfum kjósenda
til þeirra atriða sem spurt var um.
Spumingarnar eru birtar orðréttar
með hverri töflu.
Mikill meirihluti, eða 95% svar-
enda sem afstöðu taka, eru hlynntir
því að fiskimið í íslenskri landhelgi
verði áfram skilgreind sem sameign
þjóðarinnar. Tæplega 2% eru andvíg-
ir því og tæplega 3% telja það ekki
skipta máli. Lítill munur er á þessari
afstöðu milli þjóðfélagshópa.
Um 54% allra svarenda eru hlynnt-
ir því að útgerðarmönnum sé gert
að greiða gjald í sameiginlegum sjóð
fyrir veiðiheimildir, um 21% fínnst í
lagi að veiðiheimildirnar séu veittar
án endurgjalds, 6% nefna annað fyr-
irkomulag og tæp 20% eru óvissir í
afstöðu eða neita að svara. Ef aðeins
eru teknir þeir sem afstöðu taka er
það tæplega 67% sem finnst að út-
gerðarmenn ættu að greiða eitthvert
gjald í sameiginlegan sjóð fyrir veiði-
heimildirnar (kvótana), tæplega 26%
fínnst að veita eigi veiðiheimildir án
afnotagjalds, og um 8% telja eitt-
hvert annað fyrirkomulag heppileg-
ast (tafla 2). í ítarlegri greiningu
(töflu 14) kemur fram að þeir sem
starfa í sjávarútvegi eru í mun meiri
mæli á því en aðrir, að veiðiheimildir
séu veittar án endurgjalds, eða um
45% þeirra sem afstöðu taka. Þeir
sem starfa í landbúnaði fylgja þar á
eftir (35%), en meðal þeirra sem
starfa í öðrum greinum atvinnulífsins
eru frá 22% til 25% á þessari skoð-
un. Yngra fólk er oftar á því en eldra
fólk, að veiðiheimildir séu veittar án
afnotagjalds, sömuieiðis þeir sem búa
í þéttbýli þar sem sjávarútvegur er
veigamesti þáttur atvinnulífsins
(„meiri sjávarbyggðir"). Loks er að
nefna að af einstökum starfsstéttum
eru það sjómenn sem í mestum
mæli aðhyllast úthlutun veiðiheim-
ilda án endurgjalds. Um 56% sjó-
manna eru þeirrar skoðunar, um 33%
vilja að útgerðarmenn greiði gjald
fyrir veiðiheimildirnar og tæp 12%
nefna annað fyrirkomulag. Meðal
stuðningsmanna Alþýðuflokksins er
mest fylgi við gjaldtöku fyrir veiði-
heimildir (80%), en meðal stuðnings-
manna hinna flokkanna er fylgið við
þá afstöðu á bilinu 62-70%.
í töflu 3 kemur fram að stór meiri-
hluti þeirra sem afstöðu taka, eða
rúmlega 82%, telja að við úthlutun
veiðiheimilda sé æskilegt að tiyggja
einstökum byggðarlögum einhveija
lágmarkshlutdeild, þ.e. byggðakvóta.
Ríflega 8% eru á móti byggðakvóta
en rúmum 9% finnst þetta ekki skipta
máli. Þetta er greint eftir þjóðfélags-
hópum og kemur til dæmis fram að
þeir sem starfa við landbúnað eru
afgerandi mest á þessari skoðun, en
þeir sem starfa við sjávarútveg
leggja minnsta áherslu á byggða-
kvóta.
í töflu 4 má sjá að 63% þeirra sem
afstöðu taka telja æskilegt að veiði-
heimildir á íslandsmiðum séu veittar
útgerðarmönnum til skamms tíma í
senn, en ríflega 27% telja æskilegt
að veita þær til langs tíma í senn.
Tæplega 10% telja þetta ekki skipta
máli.
í töflu 5 kemur fram að tæplega
10% svarenda sem afstöðu taka telja
að ríkið ætti að úthluta miðunum til
einkaaðila án endurgjalds, ef til þess
kæmi að stjórnyöld vildu koma
fiskimiðunum við ísland í einkaeign.
Rúmlega 39% vilja að ríkið selji mið-
in, ef til slíks ætti að koma, en tæp-
lega 50% eru hins vegar alfarið á
móti slíkri einkavæðingu fiskimið-
anna. ítarlegri greining á svörum við
þessari spurningu sýnir að eldra fólk
er meira á móti einkavæðingu fiski-
miðanna, og yngra fólkið aðhyllist
frekar sölu miðanna.
Tæpiega 70% þeirra sem afstöðu
taka eru sammála því að stjórnvöld
ættu að stuðla að aukinni hag-
kvæmni í sjávarútvegi, jafnvel þó það
kostaði nokkra byggðaröskun (tafla
6), en um 31% eru því ósammála.
Rúm 17% taka hins vegar ekki af-
stöðu til þessa máls. ítarlegri grein-
ing sýnir að þeir sem búa í þéttbýli
þar sem meira en 35% ársverka eru
í sjávarútvegi („meiri sjávarbyggð-
ir“) eru frekar ósammála þessu, og
hið sama gildir um þá sem búa í
dreifbýli og þéttbýli þar sem minna
en 15% ársverka eru í sjávarútvegi
(„Annað þétt- og dreifbýli"). Þá
leggja stuðningsmenn Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks mesta áherslu á
aukna hagkvæmni í sjávarútvegi
jafnvel þó það kosti nokkra byggða-
röskun.
í töflu 7 kemur fram að tæplega
87% þeirra sem afstöðu taka finnst
það óréttlátt að eigendur fiskiskipa
geti hagnast á sölu veiðikvóta sem
þeim er úthlutað án endurgjalds en
tæplega 12% finnst það réttlátt. Sjá
má að yngra fólki finnst þetta frekar
réttlátt en þeim sem eldri eru, en
að öðru leyti er lítill munur á þessu
milli þjóðfélagshópa.
í töflu 8 má sjá að um 21% þeirra
sem afstöðu taka finnst að til greina
komi að semja við Evrópuþjóðirnar
um takmarkaðar veiðiheimildir
þeirra á íslandsmiðum gegn því að
Islendingar fengju bætt viðskipta-
fríðindi hjá Evrópubandalaginu í
staðinn, en tæplega 71% sögðu nei
við þeirri spurningu. Tæplega 9%
sögðu að það væri ýmsu háð. I ítar-
legri greiningu kemur fram að konur
eru mun fijálslyndari en karlar í
þessu efni (27,5% á móti 15% hlynnt-
ir). Þá eru yngri svarendur frekar
með þessu en þeir sem eldri eru, eða
um 35% 18-24 ára á móti 5,3% svar-
enda sem eru 60-75 ára. Þeir sem
búa á höfuðborgarsvæðinu og fólk
sem starfar í öðrum atvinnugreinum
en landbúnaði og sjávarútvegi eru
sömuleiðis frekar hlynntir því en
aðrir að veita veiðiheimildir gegn
bættum viðskiptafríðindum hjá Evr-
ópubandalaginu. Ekki er marktækur
munur á afstöðu til þessa máls milli
stuðningsmanna ólíkra stjómmála-
flokka.
Þá voru svarendur spurðir áfram
að því, hvort til greina kæmi að semja
við Evrópuþjóðir um veiðiheimildir í
vannýttum fiskistofnum hér við land,
gegn því að íslendingar fengju veiði-
heimildir hjá Evrópuþjóðunum auk
bættra viðskiptafríðinda. Þá breyttist
myndin talsvert og 49% þeirra sem
afstöðu tóku sögðust því hlynntir,
en 41% voru andvígir. Um 10% sögðu
það ýmsu háð hvort slíkt yrði ásætt-
anlegt (tafla 9). Mestur munur er á
þessu eftir aldri, þannig að yngra
fólk er hlynnt þessu í mun meiri
mæli en þeir sem eldrí eru. Það er
því mjög afgerandi kynslóðamunur í
afstöðu til samninga um þessi atriði
við Evrópuþjóðirnar.
Um 53% svarenda segjast treysta
íslenskum stjórnmálamönnum til að
ná slíkum samningum sem væru ís-
lendingum hagstæðari en núverandi
Tafla 1
Fiskimiðin í íslenskri landhelgi eru nú skilgreind í lögum sem sameign
þjóðarínnar allrar. Ertu hlynnt(ur) því eða andvíg(ur) að svo verði áfram,
eða fmnst þér þetta ekki skipta máli?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Hlynnt(ur) 950 91,3 95,2
Andvíg(ur) 17 1,6 1,7
Skiptir ekki máli 29 2,8 2,9
Annað 2 0,2 0,2
Svara ekki 42 4,0
Alls 1040 100% 100%
Tafla3 Ertu hlynnt(ur) því eða andvíg(ur) að við úthlutun veiðiheimilda verði einstökum byggðalögum tryggð einhver lágmarkshlutdeild, þ.e. byggða- kvóti, eða finnst þér þetta ekki skipta máli?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Hlynnt(ur) byggðakvóta 789 75,9 82,3
Andvíg(ur) byggðakvóta 80 7,7 8,3
Skiptir ekki máli 90 8,7 9,4
Svara ekki 81 7,8 -
Alls 1040 -100% 100%
Tafla2
Fiskimiðin eru nú nýtt á þann hátt, að heildarafla af miðunum er skipt
milli fiskiskipa með svokölluðu kvótakerfi, þ.e. einstökum skipum er
úthlutað veiðiheimildum án endurgjalds fyrir þær. Þessar veiðiheimildir
eru verðmætar og geta gengið kaupum og sölum milli útgerðaraðila.
Finnst þér í lagi að veiðiheimildirnar (kvótarnir) séu veittar útgerðar-
mönnum án endurgjalds, eða fmnst þér að útgerðarmenn ættu að greiða
eitthvert gjald í sameiginlegan sjóð fyrir veiðiheimildirnar (kvótana)?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Veiðiheimildir án endurgjalds 214 20,6 25,7
Útgerðarmenn greiði gjald 557 53,6 66,8
Annað 63 6,1 7,6
Svara ekki 206 19,8 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla4 Hvort finnst þér æskilegra, að veiðiheimildir á íslandsmiðum séu veittar útgerðarmönnum til skamms tíma í senn eða að þær séu veittar til lengri tíma, eða finnst þér þetta ekki skipta máli?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra semtakaafstöðu
Skammtímaveiting veiðih. 570 54,8 63,0
Langtímaveiting veiðiheimilda 245 23,6 27,1
Skiptir ekkimáli 90 8,7 9,9
Svara ekki 135 13,0 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla5
Ef til þess kæmi að stjórnvöld vildu koma fiskimiðunum við ísland í
einkaeign, finnst þér þá að ríkið ætti að úthluta miðunum til einkaaðila
án endurgjalds, eða ætti að selja þau?
Fjöldi Hlutfall Hlutfall þeirra
% sem taka afstöðu
Úthluta án endurgjalds 89 8,6 - 9,8
Selja 356 34,2 39,4
Annað 17 1,6 1,9
Eru á móti einkavæðingu 442 42,5 48,9
Svara ekki 136 13,1 -
Alls 1040 100% 100%
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ-1991
oi Gia
i .
skipan mála (tafla 10), en ríflega 36%
treysta þeim ekki til þess. Tæplega
11% sögðu að það væri ýmsu háð.
í töflu 11 kemur fram að tæplega
46% telja mikla hættu á því að íslensk
fiskvinnsla fái ekki nægilegt hráefni
til vinnsiunnar, vegna vaxandi út-
flutnings á óunnum físki, rúmlega
36% telja nokkra hættu á slíku, en
ríflega 18% telja litla hættu á að
íslensk fiskvinnsla fái ekki nægilegt
hráefni til vinnslu.
Loks var spurt um afstöðu fólks
til þess sérstaka frádráttar frá tekju-
skatti sem sjómenn njóta umfram
aðrar starfsstéttir í landinu (tafla
12). Meirihluti svarenda, eða um 69%
þeirra sem afstöðu tóku, segjast
hlynntir því að sjómenn njóti þessara
fríðinda, en 31% eru því andvígir.
Um 98% sjómanna eru hlynntir þess-
um fríðindum, en hjá öðrum starfs-
stéttum er stuðningurinn frá 63% tii
70%.
Tafla6
Ertu sammála því eða ósammála, að stjórnvöld eigi að stuðla að auk-
inni hagkvæmni í sjávarútvegi, jafnvel þó það kostaði nokkra byggða-
röskun?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Sammála 592 56,9 68,8
Ósammála 268 25,8 31,2
Svara ekki 180 17,3 - '
Alls 1040 100% 100%
Tafla 7
Finnst þér réttlátt eða óréttlátt að útgerðarmenn og eigendur fiskiskipa
geti hagnast á sölu veiðikvóta, sem þeim hefur verið úthlutað án endur-
gjalds?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra semtakaafstöðu
Réttlátt 116 11,2 11,8
Óréttlátt 852 81,9 86,9
Annað 12 1,2 1,2
Svaraekki 60 5,8 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla8
Finnst þér að til greina komi, að semja við Evrópuþjóðir um takmarkað-
ar veiðiheimildir þeirra á íslandsmiðum gegn því að við fáum bætt við-
skiptafríðindi hjá Evrópubandalaginu í staðinn?
Fjöldi Hlutfall Hlutfall þeirra
% semtakaafstöðu
Já 199 19,1 20,8
Nei 677 65,1 70,6
Ýmsu háð 83 8,0 8,7
Svara ekki 81 7,8
Alls 1040 100% 100%
Tafla9
Finnst þér til greina komi að semja við Evrópuþjóðir um veiðiheimildir
á vannýttum stofnum, gegn því að íslendingar fái veiðiheimildir hjá
Evrópuþjóðunum auk bættra viðskiptafríðinda?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Já 469 45,1 49,2
Nei 389 37,4 40,8
Ýmsu háð 96 9,2 10,1
Svara ekki 86 8,3 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla10 Treystirðu íslenskum stjórmnálamönnum til að ná slíkum samningum sem væru íslendingum hagstæðari en núverandi skipan mála?
Fjöldi Hlutfall Hlutfall þeirra
% sem taka afstöðu
Já 503 48,4 52,9
Nei 344 33,1 36,2
Ýmsu háð 103 9,9 10,8
Svara ekki 90 8,7 -
Alls 1040 100% 100%
Taflall
Telurðu mikla, nokkra eða litla hættu á því, að íslensk fiskvinnsla fái
ekki nægilegt hráefni til vinnslunnar, vegna vaxandi útflutnings á óunn-
um fiski (t.d. í gámum)?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Mikla 438 42,1 45,5
Nokkra 349 33,6 36,3
Litla 175 16,8 18,2
Svara ekki 78 7,5 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla 12
Ertu hlynnt(ur) því eða andvíg(ur) að sjómenn njóti sérstaks frádráttar
frá tekjuskatti umfram aðrar starfsstéttir í landinu, eins og nú er (sjó-
mannafrádrátturinn)?
Fjöldi Hlutfall % Hlutfall þeirra sem taka afstöðu
Hlynnt(ur) 659 63,4 68,6
Andvíg(ur) 302 29,0 31,4
Svara ekki 79 7,6 -
Alls 1040 100% 100%
Tafla 14 Fiskimiðin eru nú nýtt á þann hátt, að heildarafla af miðunum er skipt milli fiskiskipa með svokölluðu kvótakerfi, þ.e. einstökum skipum er úthlutað veiðiheimildum án endurgjalds fyrir þær. Þessar veiðiheimildir eru verðmætar og geta gengið kaupum og sölum milli útgerðaraðila. Finnst þér í lagi að veiðiheimildirnar (kvótarnir) séu veittar útgerðar- mönnum án endurgjalds, eða finnst þér að útgerðarmenn ættu að greiða eitthvert gjald í sameiginlegan sjóð fyrir veiðiheimildirnar (kvótana)?
Veiðiheimild án endurgjalds Útgerðarmenn greiði gjald Annað Alls
Allir 25,7 66,8 7,6 834
Kyn*
Karl 29,5 62,8 7,7 465
Kona 20,9 71,7 7,3 368
Aldur**
18-24 ára 35,6 . 61,0 3,4 118
25-34 ára 31,5 63,5 4,9 203
35-44 ára 26,4 63,5 10,2 197
45-59 ára 16,7 74,2 9,1 186
60-75 ára 19,2 71,5 9,2 130
Búseta*
Meiri sjávarbyggðir 32,6 59,7 7,8 129
Minni sjávarbyggðir 24,3 64,3 11,4 70
Annað þétt- og dreifbýli 32,6 62,5 4,9 144
Höfuðborgarsvæðið Stétt*** 21,9 70,3 7,8 489
Verka- og afgreiðslufólk 23,2 70,0 6,8 220
Iðnaðarmenn/verkstjórar 20,7 68,6 10,7 140
Skrifstofu- og þjónustufólk 19,1 75,1 5,8 173
Sérfræðingar/atvinnurek. 29,6 65,6 4,8 125
Sjómenn 55,8 32,6 11,6 43
Bændur 32,6 62,8 4,7 43
Ekki útivinnandi 26,8 62,2 11,0 82
Atvinnugrein***
Landbúnaður 35,3 60,8 3,9 51
Sjávarútvegur 44,7 43,5 11,8 85
Iðnaður 24,8 66,1 9,1 121
Opinberþjónusta 23,0 70,9 6,1 213
Verslun, samg. ogþjónusta Stuðningur við flokk* 21,5 72,2 6,3 288
Alþýðuflokkur 14,7 80,0 5,3 75
Framsóknarflokkur 34,6 62,2 3,1 127
Sjálfstæðisflokkur 27,3 64,7 8,0 249
Alþýðubandalag 25,2 70,1 4,7 107
Kvennalisti 19,3 68,4 12,3 57
Nefnaekkiflokk 23,6 Miðað er við .001 (***), .01 (**) og .05 (*). 65,6 10,8 212