Morgunblaðið - 21.06.1991, Blaðsíða 41
IRÍ’t Ivn'TT. f<? HTfOACmTBÖT (TIGAJíTV'iUOflQM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1991
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Afglöp í vegagerð
Góð grein
Eg vil þakka fyrir góða grein sem
birtist í Morgunblaðinu fyrir
nokkru, bar fyrirsögnina Ný
byggðaþróun, höfundur Gestur
Sturluson. Það er engum til hags-
bóta að fólk flytji af landsbyggðinni
og hópist allt á suðvestur hornið.
Þessi öfugþróun í byggðamálum,
sem verið hefur síðustu áratugi, á
eftir að snúast við. Framtak Slátur-
félags Suðurlands, að flytja stóran
hluta starfsemi sinnar frá Reykja-
vík, er þarft og gott framtak. Fleiri
fyrirtæki ættu að sigla í kjölfarið
og láta langdsbyggðarmenn njóta
þeirra atvinnunnar sem þau skapa.
Eg vil þakka fyrir þessa góðu grein.
J. Guðmundsson
Einhvern tíma á árunum 1966 til
1968 var haldið alþjóðlegt mót í
badminton í Reykjavík. Mótið var
kennt við Loftleiðir og var líklega
hið fyrsta sinnar tegundar hér. Eft-
ir því sem næst var komist var það
haldið í Valsheimilinu. Ungur Breti,
Robert (Bobby) Turton að nafni, tók
þátt í mótinu og sigraði í tvfliðaleik
karla. Hann hefur öðru hveiju síðan
heimsótt ísland og við þau tæki-
færi leitað upplýsinga um þetta mót
í þeirri von að finna myndir af sér
og meðspilara sínum, en nafn hans
er ókunnugt. Sú leit hefur ekki
borið árangur. Vini Roberts hér á
landi langar til að gleðja hann í til-
efni af fimmtugsafmæli hans í sum-
ar með því að færa honum mynd-
ina. Þess vegna er hér lýst eftir
upplýsingum um hvar vænlegt sé
að leita og hvort hægt sé að fá leyfi
til að taka eftirmynd af frummynd-
Fyrir nokkrum árum uppgötvuðu
hinir gáfuðu vegagerðamenn okkar
nýja aðferð við að leggja bundið
slitlag á vegakerfi íslands, svokall-
aða klæðingu.
Slitlagslagning þessi fer þannig
fram að tjörudrullu er hellt á veginn
og síðan er dreift yfir hann möl.
Síðan hypjar Vegagerðin sig í burtu
frá öllu saman og lætur umferðina
um að þjappa möl og tjöru saman
í „bundið slitlag".
A meðan mölin er laus er gífur-
leg hætta á ferðum, því ekki eru
allir sem átta sig á aðstæðum, því
mikið gijótkast myndast undan
hjólum bílanna, og eins og reynslan
hefur sýnt hafa orðið bílveltur og
umferðaróhöpp sem beint má rekja
til þessarar „vegagerðar".
Bílstjórar góðir, við höfum nú
þegar greitt vegagerð þjóðarinnar
í bensínverðinu sem við höfum þurft
að borga háu verði í gegnum árin.
Því krefjumst við þess að Vegagerð-
in ljúki við vegalagninguna með því
inni ef hún fínnst. Þeir sem gætu
gefið upplýsingar eru beðnir að
hafa samband við Þórhall Jósepsson
í síma 691127 virka daga eða
38321.
Öryggismál í umferðinni eru sí-
fellt í deiglunni eins og vera ber.
Ökumenn hafa verið skyldaðir til
að aka með ljós í sólskininu og
hafa beltin spennt undir öllum
kringumstæðum. Yfirvöldin standa
sig ekki eins vel þegar að þeim
kemur að sjá til þess að óþarfa
hætta skapist ekki í umferðinni. Á
Reykjanesbraut er nú heimilaður
90 kílómetra hraði á klukkustund
en þar eru jafnan rollur á beit í
vegkantinum, sem rása þvert yfir
hraðbrautina þegar minnst varir.
að þjappa lausamölina áður en hún
lýkur við verkið og hleypir umferð
á í staðinn fyrir að láta ökumenn
vinna það verk sem þeir hafa þegar
greitt fyrir að sé gert, auk þess að
þurfa sjálfír að bera það stórtjón
sem þeir verða fyrir á bílum sínum,
bæði á lakki og rúðum.
Ólafur Ólafsson
----♦ ♦ ♦-
Hættulegir
tímar
í Morgunblaðinu þann 13. júní
birtust tvær greinar, sem voru með
hollráð til íslensku þjóðarinnar.
Önnur hét Þjóðarsátt, eftir Gísla
Sigurbjörnsson, en hin Með þessu
máli verður fylgst, eftir Eyjólf
Konráð Jónsson.
Ég kann vel að meta svona stutt-
ar greinar, sem lýsa í fáeinum orð-
um staðreyndum sem blasa við. Það
munu vera erfiðir og jafnvel hættu-
legir tímar framundan í nýju
Evrópu, sem er að skapast. Þegar
sovétskur kommúnismi og engilsax-
neska einingarstefnan eru á undan-
haldi, þá má búast við þjóðernis-
kreppu um alla Evrópu. En þrátt
fyrir allt - hin sanna þjóðernisstefna
íslensku þjóðarinnar mun aldrei
bregðast. Að lokum segi ég: íslandi
allt.
Víða er vegkannturinn fyrirtaks
beitiland, því sáð hefur verið í hann,
og er því ekki furða þó rollurnar
haldi sig þar með lömbin. Á þessu
vori hafa að minnst kosti orðið tvö
slys vegna þessa, eigum við að bíða
eftir því að það verði stórslys áður
en tekið verður á þessu máli?
Þarna á að gera annað af tvennu,
losna við þessar vegrollur af svæð-
inu eða girða veginn af. Þetta
ófremdarástand, sem þarna hefur
skapast, gengur einfaldlega ekki.
Ökumaður
Loftleiðamót í bad-
minton 1966-’68
Villijálmur Alfreðsson
Vegrollurnar við Reykjanesbraut
Fallar hf.
Dalvegi 16,
200 Kópavogi.
Símar 42322 - 641020.
■■■■■■■■■
Eigum fyrirliggjandi:
100/200 kg
200 kg
300 kg m/brautargrind
500 kg m/brautargrind
800 kg m/brautargrind
kr. 39.960 m/vsk.
kr. 61.276m/vsk.
kr. 93.600 m/vsk.
kr. 106.198 m/vsk.
kr. 122.607 m/vsk.
Vörur úr lífrænt ræktuðu komi
- betra getur það varla veríð
Heíldsöludreífing: Faxafell hf. símí 51775
Veitum upplýsingar um útsölustaði
NYVARA, NYIRLITIR,
NÝJAR PAKKNINGAR
Kringlunni
Föróun á staónum.
újhJfj
Glæsibæ
SA hr
t\ i A