Morgunblaðið - 05.07.1991, Page 1
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
;\v\mvwm
A BOLAKAFI 4 5
Vatnsþjálffun ungbarna á vaxandi vinsældum aá fagna
hér á landi. Tæpt ár er liðið síðan Snorri Magnússon þroska-
þjálfi og íþróttakennari fékk aðstöðu til slíkrar þjálfunar í
sundlauginni við Skálatúnsheimilið og í vor hófu hjónin Jón
Júlíusson og Helga Gunnarsdóttir íþróttakennarar að kenna
ungbarnasund í Suðurbæjarlauginni í Hafnarfirói. Ásókn er
mikil og margir foreldrar panta tíma meðan barnið er enn í
móðurkviði, enda ekki ráð nema í tíma sé tekið því best er
að barnið sé tveggja til þriggja mánaða og a.m.k. fjögur
kíló þegar því er fyrst dýft í kaf. Ýmis varnarviðbrögð, þ. á m.
kafviðbragðið, eru mjög sterk fyrstu mánuðina eftir fæðingu
en markmiðið með vatnsþjálfun ungbarna er m.a. að við-
halda þessum meðfædda eiginleika.
Daglegt llf heimsótti Snorra Magnússon í Skálatúnslaugina
og fylgdist með viðbrögðum nemendanna.