Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 4

Morgunblaðið - 05.07.1991, Side 4
4 D MORGUNBLAÐIÐ I- 5AGUR 5. JULI 1991 Vatnsþjálfun ungbarna ÞAÐ ER hin mesta raun fyrir marga óreynda foreldra að baóa nýfætt barn sitt. Meó ólikindum er hversu skerandi kvein geta komió úr litlum barka sé réttum handtökum ekki beitt vió athöfnina. Án efa þætti þessum sömu foreldrum skelfileg tilhugsun aó stinga barni sinu, aóeins tveggja mánaóa, á bólakaf i vatn, enda hefur slikt ekki tiókast. En timarnir breytast og sifellt koma fram nýjar kenningar, ekki hvaó sist varóandi uppeldismál og meóferó ungbarna. Eins og gengur sýnist sitt hver jum, sumt reynist vel, annaó ekki t.d. eru menn ekki lengur á eitt sáttir um ágæti þess aó láta kornabörn sofa úti i vagni óháó þvi hvernig vindar blása. Snorri Magnússon, þroskaþ jálf i og iþróttakennari segir aó hver ju heilbrigóu barni sé hollt aó venjast vatni strax og þaó hefur burói til aó þola smávægilega „vosbúó". Yf irleitt er þaó um tveggja mánaóa aldur, þegar barnió er oróió a.m.k. fjögur kiló. m Arnaldur Ingvaldsson, fjögurra mánaða, sýnir jafnvægislistir og lætur sig síðan ekki muna um að taka smádýfu á eftir. F Gústafsson fylgjast meó. , 118 i HHI I S I )RHw undlaugin við Skálatúnsheimilið er hringlaga og inni í glerskála. Loftslagið minnir einna helst á milt hitabeltisloftslag, enda er vatnið í lauginni 35 u.þ.b. 50 heitara en í almenningssundlaugum. Þar hefur Snorri kennt vatnsþjálfun ungbarna um tæplega eins árs skeið. Andrúmsloftið er afslappað, á laugarbakkanum sitja mæður, gefa börnunum brjóst, ræða saman og miðla hver annarri af reynslu sinni. Börnin í lauginni eru misjafnlega langt á veg komin í þjálfuninni, sum eiga allmargar dýfur að baki og bregður ekki hið minnsta þótt þau ' séu sett á bólakaf, enda fer Snorri öruggum höndum um börnin og leggur áherslu á að foreldrar geri slíkt hið sama. Galdurinn virðist sáraeinfaldur, bara að horfa framan í börnin, tala við þau sefandi rómi, blása léttframan íþau... og dýfa þeim síðan á kaf. Þarna snýst allt um börn, þetta er þeirra tími og þau fá athyglina óskipta. Snorri segir að lítil börn séu ótrúlega næm á umhverfið og finni fljótt ef sá sem meðhöndlar þau er hikandi og taugaóstyrkur. „Kennslan felst m.a. í því að kenna foreldrum rétt handbrögð og fræða þá um ýmislegt sem viðkemur vatnsþjálfun ungbarna. Stundum eru foreldrar uggandi um líðan barnsins og hafa jafnvel á tilfinningunni að þeir missi það óvart ofan í vatnið. Slíkt getur hugsanlega gerst, en hættan er engin því viðbrögðin eru snögg, barninu bregður e.t.v. og þá er mikilvægast að foreldrarnir haldi ró sinni og gefi sér góðan tíma til þess að barnið öðlist öryggi á nýjan leik. Mér finnst foreldrar barna, sem koma hingað, vera mjög yfirvegaðir og áhugasamir. Flestir hafa lesið sér eitthvað til um efnið, eru áhugasamirum þróun uppeldismála og vilja börnum sínum einungis það besta. Það eru helst ömmurnar og afarnir, sem hafa áhyggjur og finnst algjört ábyrgðarleysi af hálfu foreldranna að leggja slíkar þrautir á litla krílið, sem betur væri komið sofandi íbómullarvöggunni sinni. Til þess að sjá þessar svaðilfarir barnabarnanna hafa áhyggjufullar ömmur og afar lagt leið sína hingað. Mér sýnist þeim létta mikið þegar þau sjá að hér er aðbúnaður allur hinn ákjósanlegasti og þau eiga erfitt með að leyna stoltinu þegar þau sjá hetjuleg tilþrif afkomandans." - Miðast þjálfunin við að þessi börn verði afreksmenn í framtíðinni? „Alls ekki, ég er hins vegar þeirrar skoðunnar að hér gæti vissrar tilhneigingar til að ofvernda börn og er eindregið fylgjandi því að foreldrar byrji strax að örva hreyfiþroska barna með þvíað hnoðast sem mest með þau á rúmum og dýnum í vernduðu umhverfi. Nú orðið sér maður stundum fimm til sex ára börn, sem aldrei hafa einu sinni farið í kollhnís. Sumir telja að námsárangur, vitsmunaþroski og hreyfiþroski haldist í hendur. Sé eitthvað til í því þá hefur hvers kyns líkamsþjálfun auðvitað ótvírætt gildi.“ - Erörvunhreyfiþroskansþá megintilgangurinn með vatnsþjálfun ungbarna ? „Það er meginmarkmiðið, þótt fleira vinnist. Kornabarn, sem ekki getur stjórnað hreyfingum sínum, hefur meiri möguleika á að örva hreyfifærni sína í vatni og flestum líður vel, sé rétt hitastig á vatninu. Hendur og fætur verða virkari og viðbragðshreyfingar sneggri. Börn fljóta betur en fullorðnir vegna þess að eðlisþyngd þeirra er minni og þau anda að sér meira súrefni. Með vatnsþjálfun aukast félagsleg tengsl foreldra og barns. í vatninu fá foreldrar tækifæri til að meðhöndla barnið á annan hátt og við aðrar aðstæður. Kafþjálfunin hjá mér er einungis fyrsta skrefið, því að um eiginlega sundkennslu er ekki að ræða, framhaldið er í höndum foreldranna. Ég tel skynsamlegt að lítil börn kynnist því að vera í meira vatni en í baðkarinu heima hjá sér. Annars getur sundlaugin virst eins og sjálft Atlantshafið, víðáttumikið og ógnvekjandi, þegareiginleg sundkennsla hefst um sex ára aldur. Síðast en ekki síst tel ég vatns- og kafþjálfun vera mikilvæga af öryggisástæðum. Ef rétt er að málum staðið, þá verður barnið óhrætt í vatni og getur síðar meir, bjargaðsérásundi." Snorri útskrifaðistfrá Iþróttakennaraskóla íslands árið 1988 og fjallaði í lokaritgerð sinni um ungbarnasund. Sjálfur hefur hann verið viðloðandi sund frá tíu ára aldri, bæði keppt og þjálfað, enda uppalinn á Akranesi, þar sem sund og fótbolti hafa löngum keppt um hylli yngri kynslóðarinnar. Áhuga sinn á ungbarnasundi segir hann að megi rekja til ársins 1987 er hann hlýddi á fyrirlestur Norðmannsins Björns Nybakken á ráðstefnu Sundsambands íslands. Þá hafði ungbarnasund verið kennt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.