Morgunblaðið - 05.07.1991, Qupperneq 6
UNGLINGAR
& LEIKLIST
Ef það er rétt að hugurinn beri menn
háifa leið, ber viljinn og atorkan menn
áreiðanlega hinn helminginn. Það á alltj-
ent við um Gamanleikhúsið, sem í gær
frumsýndi söngleikinn Grænjaxla. Gam-
anleikhúsið samanstendur af 60 ung-
mennum sem hafa eitt stórt áhugamál;
leiklistina. Krakkarnir, sem segjast frek-
ar vilja sinna leiklistinni en að hanga á
Hallærisplaninu eða í sjoppum, eru bæði
kraftmiklir og áhugasamir. Þar að auki
eru þeir skemmtilegir og hugmyndafrjó-
ir. Daglegt líf leit inn á æfingu á Grænj-
öxlum fyrir skömmu og ræddi við einn
höfuðpaur Gamanleikhússins, Magnús
Geir Þórðarson, 17 ára, en hann hefur
verið í leikfélaginu frá stofnun þess,
1985.
öngleikurinn
Grænjaxlar er eftir Pétur Gunnars-
son rithöfund, Spilverk (heitið) þjóð-
anna og leikhóp Þjóðleikhússins
1976 til 1978. Aðeins sex leikarar,
sem allir eru á aldrinum 15 til 17
ára, taka þátt í uppfærslu Gaman-
leikhússins, en hlutverkin eru milli
30 og 40. „Við erum á leiðinni til
írlands og Höllands á leiklistarhá-
tíðir og til að halda kostnaði í skefj-
um var ákveðið að fara ekki með
fjölmenna sýningu," segir Magnús
Geir, sem auk þess að leika í sýn-
ingunni, leikstýrir henni.„Þetta er
erfiðasta sýning sem ég hef sett
upp,“ segir hann. „Svona sýning
reynir ofboðslega á leikarana, því
hlutverkin eru mörg og atburðarás-
in hröð." Magnús Geir segir að
s'■*:*■*•-*■Ttwws. n m *
Vimr TFff-tiTTTHTT mr*li ’irHíTfn*,TTi’*e:'Vlr,i:' , •”"-iT-i‘ir»<rrr^1