Morgunblaðið - 05.07.1991, Page 7

Morgunblaðið - 05.07.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991 operunni hópurinn geri upphitunar- og slök- unaræfingar í einn og hálfan klukku- tíma fyrir hverja sýningu.„Svo tekur að minnsta kosti tvo tíma að ná sér niður á jörðina aftur eftir sýningu," segir hann. Fyrst börn, svo unglingar Pétur Gunnarsson rithöfundur og einn höfunda Grænjaxla sagði í samtali við Daglegt líf að söng- leikurinn hefði verið barn síns tíma, þar sem þjóðmálaumræðan og klassísk vandamál unglinganna hefðu verið tekin til umfjöllunar. Fjórir leikarar Þjóðleikhússins, ásamt leikstjóra kölluðu Pétur og Spilverk þjóðanna til samstarfs haustið 1976 og Grænjaxlar urðu til í svokallaðri leiksmiðju, þar sem hver þátttakandi lagði sitt af mörk- um. Pétur segist hafa verið ritari hópsins. „Ég blaðsetti hugmynd- irnar sem komu upp, svo unnum við úr þeim,“ segir hann. Umgjörð- in var skýr, leikritið átti að höfða til unglinga. Grænjaxlar voru síðan sýndir 1977 og 1978 í grunnskól- um, í Þjóðleikhúsinu og á Kjarvals- stöðum. „Þroskasaga fjögurra barna er rakin í Grænjöxlum," seg- ir Pétur. „Það er fylgst með þeim í leikskóla og síðan er þeim fylgt eftir upp unglingsárin." Margir þekkja tónlistina Létta ádeilu er að finna í Græn- jöxlum, en henni er komið á fram- færi með hnitmiðaðri kímni og létt- leika, enda segir Pétur Gunnars- son að það sé þorin von að ætla að fjalla um mannlífið án þess að láta húmorinn fylgja. Hluti tónlist- arinnar er þekktur og kom út á plötu Spilverks Þjóðanna, „Sturlu". „Það var heilmikið mál að grafa upp þá tónlist sem ekki hafði kom- ið út á plötu," segir Magnús Geir leikstjóri hjá Gamanleikhúsinu. „Hún leit út fyrir að vera glötuð, en við höfðum uppi á tónlistar- mönnum sem léku hana með leik- hóp Þjóðleikhússins 1977 og 1978 og þeir rifjuðu hana upp fyrir okk- ur. Við fengum síðan tónlistar- menn í lið með okkur og tókum tónlistina upp bæði með og án söngs. Á sýningum verður lifandi tónlist, það er að segja við syngj- um beint en undirspilið verður á bandi.“ Magnús Geir segir að sexmenn- ingarnir sem leika í Grænjöxlum hafi æft frá klukkan átta á morgn- ana fram yfir miðnætti á hverjum degi frá því að vorprófum lauk. „Við ákváðum að sleppa sumar- vinnunni þar til í ágúst, en þá ætl- um við að vinna öll kvöld og allar helgar.“ Gamanleikhúsið sýndi Línu langsokk í Iðnó og íslensku óper- unni í vetur og var uppselt á allar sýningar. „Við hefðum gjarnan vilj- að sýna oftar," segir Magnús Geir og heldur áfram: „Hins vegar voru prófin í nánd svo við ákváðum að einbeita okkur að skólanum." Áætlað er að sýna Grænjaxla fjór- um sinnum, en síðan heldur hópur- inn til frlands og Hollands þar sem söngleikurinn verður sýndur á leik- listarhátíðum. „Við ætlum að nota tækifærið og fara á námskeið í leiklistaskóla á írlandi. Við höfum gert það áður og höfðum bæði gott og gaman af.“ Gamanleik- húsið hefur tekið þátt í leiklistarhá- tíðum víða í Evrópu á síðustu árum, auk þess að hafa skipulagt og staðið fyrir námskeiðum í ýms- um þáttum sem tengjast leikhús- vinnu, svo sem líkamsbeitingu og förðun. Þeir sem leika í Grænjöxlum eru: Auður Sverrisdóttir, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Hólmfríður Lydía Ellertsdóttir, Magnús Geir Þórðarson, Magnús Þór Torfason og Ragnar Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.