Morgunblaðið - 10.08.1991, Page 7

Morgunblaðið - 10.08.1991, Page 7
B 7 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1991 ana. Árið 1760 vígðist hann svo til þingaprests í Sólheima- og Dyrhóla- þingum með búsetu á Felii. í Mýr- dalnum lenti hann í mesta stappi og málaþrasi við öfundarmenn sína, sem ófrægðu hann á ýmsa lund og reyndu jafnvel að koma því til leiðar að hann missti hempuna. Þetta endalausa málaþras mun hafa valdið því að losna tók um hann og hann fór að renna augum til annarra prestakalla. „Árið 1778 féll til þetta Kirkjubæj- arklaustursprestakall. Eftir langa umþenking og bæn til guð réði ég það af að sækja það,“ segir Jón í ævisögunni. Þegar hann flytur að Kirkjubæjar- klaustri er hann kominn í það hérað á íslandi, sem best hafði sloppið við harðindin eftir miðja öldina. I sveit- unum austan Mýrdalssands var slík árgæska að bændur vissu ekki kinda sinna tal og vinnufólk og húsgangs- lýður var orðinn svo uppástöndugur að ekki vildi neyta nema hinnar krydduðustu og sætustu fæðu. Og svo magnað var ástandið, að sumir prestar þar töldu sig ekki geta mess- að nema þeir hefðu tóbaks- og brennivínshressing. Þannig lýsir séra Jón sveitar- bragnum í sveitunum milli Sanda og von hann vitni í Ovidus — og segir að hér eigi við: Luxuriant animi rebus plerumque secundis sem þýðir: Að jafnaði leggj- ast menn í óhóf, þá allt lætur í lyndi. Frá sjónarmiði Jóns, sem var auð- vitað mótað af trúarskoðun aldarinn- ar, var því engin furða þótt skapar- inn gripi um taum og reiddi dóms- svipuna yfir þennan lífsnautna lýð. Og enn slógu örlagadísirnar vef- inn. Nú var séra Jóni ætlað miklu stærra hlutverk en venjulegum sveitapresti, enda birtust senn í leiftrandi skini forystuhæfileikar hans. Áður en eldurinn yfirféll birtist fjöldi teikna bæði á himni og á jörðu, sem gáfu til kynna hvað í vændum var. Vatnsskrímsli sáust í Feðgakvísl í Meðallandi, eldhnettir og maurildi hjá Steinsmýri, hljóðfæri í jörðu og klukknahljóð í lofti. Pestarflugumar voru stórar sem mannsfingur og lömb og kálfar fæddust vanskapaðir, t.d. á Hunkubökkum var eitt lambið með hræfuglsklær í stað lágklaufa. Allt þetta taldi séra Jón guðs bend- ing þess, sem í vændum var - og fyrr en varði skall ógnin yfir. „Árið 1783 þann 8. júní, sem var hvítasunnuhátíð, í heiðríku og spöku veðri um dagmálabil kom upp fyrir norðan næstu byggðarfjöll á Síðunni svart sandmistur og mökkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna og nokkuð af Fljóts- hverfinu, svo þykkt að dimmt v^rð í húsum og sporrækt á jörðu. Var það duft, sem niður féll, sem út- brennd steinkolaaska. En af þeirri vætu, sem úr þeim svarta mökk ýrði þann dag í Skaftártungunni, var það duft, sem þar niður féll, svört bleyta sem blek. Fyrir landsunnan hafkalda létti þessum mökk frá og tilbaka um daginn, svo ég sem aðrir prestar hér kunnum undir blíðum himni þann hátíðisdag framflytja guðsþjónustu- gjörð hver gleði snögglega umbreytt- ist í sorg“.2 Hér er áhorfandi að lýsa upphafi ægilegustu náttúruhamfara íslands- sögunnar, gosinu í Lakagígum, mesta hraungosi í veröldinni á sögu- legum tíma. Næstu vikur og mánuðir voru skelfingartímar í sveitunum milli Sanda. Hraunflóðið vall fram Skaft- árfarveginn, breiddi úr sér yfir landið gróna, eyddi byggðum og boðaði ógn. Þann 22. júní afbrann sú væna og nýbyggða Hólmaselskirkja í Með- ailandi með öllum ornamentum, bók- um og graftólum ásamt klukkunni stóru frá Þykkvabæjarklaustri. í byijun júlí eyddust stórbýlin Holt og Skál — ásamt kirkjunni í Skál, og næstu daga stefni hraunflóðið fram Skaftárfarveginn í áttina að Kirkju- bæjarklaustri." „Þann 20. júlí, sem var 5. sunnu- dagur eftir trinitatis, var sama þykk- viðri með skruggum, eldingum og skruðningi og undirgangi. En af því að veður var spakt fór ég og allir, sem hér voru þá hér á Síðunni, inn- lendir sem aðkomnir, sem því gátu viðkomið til kirkjunnar með þeim ugga og sorgbitna þanka, að það kynni að verða í seinasta sinni að í henni yrði embættað, af þeim ógnum sem þá fóru í hönd og nálægðust, er litu svo út, að hana mundi eyði- leggja, sem hinar tvær. Nær vér þangað komum, var svo þykk hita- svækja og þoka, sem lagði af eldinum ofan árfai'veginn, að kirkjan sást naumlega eður svo sem í grillingu úr klausturdyrunum. Skruggur með eldingum svo miklar kippum saman, að leiftraði inn í kirkjuna og sem dvergmál tæki í klukkunum, en jarð- hræringin iðuleg. Sú stóra neyð, sem nú var á ferð og yfirhangandi, kenni mér nú og öðrum að biðja guð með réttilegri andakt, að hann af sinni náð vildi ei í hasti eyðileggja oss og sitt hús, þá var so hans al- mættiskraftur mikil í vorum breysk- leika. Ég og allir þeir, er þar voru, vorum þar aldeilis óskelfdir inni, enginn gaf af sér nokkurt merki til að fara út úr henni eður flýja þaðan meðan guðsþjónustugjörð stóð, sem ég þó hafði jafnlengri en vant var: nú fannst ei stundin of löng að tala við guð. Hver og einn var án ótta biðjandi hann um náð og biðjandi þess, er hann vildi láta yfir koma. Ég kann ei annað að segja, en hver væri reiðubúinn að láta lífið, ef hon- um hefði svo þóknazt, og ei fara þaðan burtu, þó að hefði þrengt, því hvergi sást nú fyrir, hvar óhult var orðið að vera.“:l Þannig lýsir séra Jón eldmessunni í Eldriti sínu og verður þar ekki um bætt. Slík hefur þessi stund verið svo kynngimögnuð að nær útilokað er fyrir okkur nútímafólk að setjáokkur í hans spor, þegar hann stendur fyr- ir altari kirkjunnar og horfir með eigin augum á eldflóðið steypast fram, en síðan stöðvast undir emb- ættinu, eins og hann orðar það sjálf- ur. Aldrei verður hann samstilltari söfnuði sínum en á þessari stund, fólkinu, sem nú átti aðeins vonina eina og treystir í bæn sinni á hjálp guðs, sem fjöllin og hraunin hafði skapað, „Fannst nú ei stundin of löng að tala við guð ..." Næstu daga og nætur, vikur og mánuði var séra Jón vakinn og sof- inn að hjálpa sóknarbörnutn sínum. Þegar leið fram á útmánuði 1784 og mannfallið var í algleymingu þá segist hann í sex vikur samfleytt ekki hafa farið úr fötum hvorki á nóttu sem degi — og stöðugt verið á ferðinni „til að þjónusta fólkið, bæði það sem burtkallaðist og hitt sem af hjarði, er ei korriSFtil kirkj- unnar“. Árin eftir að Eldinum linnti urðu séra Jóni mikil raunaár, sér í lagi eftir að hann missti Þórunni konu sína haustið 1784, en hjónaband þeirra hafði þá staðið í 31 ár. Vetur- inn eftir mátti hann húka í myrkri og kulda í húsi sínu á Prestbakka, enda segir hann að sú tíð hafi verið einhver sú daufasta, sem hann hafi lifað. Dætur hans hvöttu hann til að kvænast í annað sinn, en bónorðsför hans um sumarið varð hin mesta raunaganga. Að lokum gaf þó drottinn honum þá veleðia jómfrú Margréti Sigurðar- dóttur og stóð brúðkaup þeirra í sept- ember árið 1787. Margrét varð honum yndi og stoð þau ár sem hann átti eftir ólifuð. Hann andaðist á Prestbakka hinn 11. ágúst 1791 og var jarðsettur við kórgafl kirkjunnar á Kirkjubæjar- klaustri - við hlið Þórunnar konu sinnar. Stuðlabergsdrangur hvílir á leiði þeirra. 1 Formáli Kristjáns Albertssonar að Ævi sögu Jó'ns Steingrímssonar, Helgafell, Rvík 1973. 2 Eldrit séra Jóns Steingrímssonar, bls. 346. Prentað aftan við Ævisögu hans, útgefna af Helgafelli, Rvík 1973. s Eldrit séra Jóns Steingrímssonar, bls. 362. Prentað aftan við Ævisögu hans, útgefna af Helgafelli, Rvík 1973. lýsing á leikmynd og áður en varði var þetta byrjað að mótast sem leik- sýning. Jón var afskaplega trúaður á drauma og alls kyns fyrirboða og það bauð uppá notkun lýsingar til þess að skilja á milli draums og veruleika." Að sögn Viðars spannar leikritið líf Jóns og fylgir honum um landið en hann kom ekki að Klaustri fyrr en fimmtugur að aldri, þá búinn að lifa stormasama ævi og verða bitbein slúðurs og sveitarógs bæði norðanlands og sunnan. Alls taka 18 manns þátt í sýningunni en fjöldi hlutverka er alls 75 svo hver og einn leikur ýmis hlutverk og Viðar segir að búningarnir séu m.a. hugs- aðir til að hjálpa áhorfendum að átta sig á framgangi sögunnar, „að ný persónu kemur til sögunnar þó um sama leikarann sé að ræða. Það var einfaldlega ófært að manna verkið með 75 leikurum þó ekki væri vegna annars en að á Klaustri búa 150 manns og fullmikið að ætlast til þess að annað hvert mannsbarn tæki þátt í sýningunni!" „Sýningin fer fram í gömlu kirkj- unni á Prestbakka sem er vissulega skemmtilegur og vel viðeigandi staður en setur okkur óneitanlega nokkrar skorður í útfærslu því kirkjan er friðuð og þar má ekki hrófla við neinu. Fyrir vikið er erfið- ara að nýta hana sém leikhús en þetta hjálpar nútímafólki vafalaust að mæta þeim tíma sem verkið lýs- ir. Kirkjan er reyndar frá miðri 19. VIÐAR EGGERTSSON leikstjori. öld en engu að síður frá tíma sem er nægilega fjarlægur okkur í dag til að skapa fornlega umgjörð. Þrátt fyrir friðun kirkjunnar höfum við mætt miklum skilningi sóknar- prests og sóknarnefndar til að gera sýninguna mögulega og við höfum fengið leyfi til að tjalda kirkjuna og „fela“ hana til að geta fellt tjöld- in fyrir hápunktinn sem er auðvitað eldmessa Jóns Steingrímssonar." Eldmessan sjálf, tex'ti hennar, hefur ekki varðveist og Viðar segir það dæmigert fyrir trúarskoðun Jóns að hógværð hans hafi hindrað hann í að skrifa upp ræðuna. „Hann þakkaði ekki sjálfum sér stöðvun hraunflaumsins, heldur Guði, svo við höfum reynt að geta í eyðurnar en okkur fannst ómögulegt annað en hafa eldmessuna með, þar sem nafn Jóns hefur kannski fyrst og fremst haldist á lofti vegna hennar og áheyrendum gæti fundist þeir sviknir ef henni væri alfarið sleppt. Þar áttum við hauk í horni sem er sóknarpresturinn hér á Klaustri, séra Sigmjón Einarsson, en hann skrifaði fyrir okkur eldmessu enda er hann með fróðari mönnum um Jón Steingrímsson." Með helstu hlutverk í sýningunni fara Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Hjalti Þór Júlíusson og Vignir Snær Vigfússon; tónlist er eftir Jóhann Moravek en alls taka um 30 manns þátt í sýningunni á einn eða annan hátt. H0PUR TONLISTARFOLKS HELDUR ÞRENNA T0NLEIKA Morgunbladið/Einar Falur Þaé er einvalaliö tónlistarfólks sem stendur aö þrennum kammertónleikum ó Kirkjubæjarklaustri um næstu heigi. EDDA ERLENDSDÓTTIR, HELGA ÞORARINSDÓTTIR, GUÐNÝ GUÐ- MUNDSDÓTTIR, GUNNAR KVARAN, ÓLÖF K. HARDARDÓTTIR, PÉTUR JÓNASSON, SELMA GUÐMUNDSDÓTTIR OG SIGRÚN ED- VALDSDÓTTIR. Kammertónlist á Klaustri ÞAÐ ER óhætt að segja að hver menningarviðburðurinn reki annan á Kirkjubæjarklaustri nú í ágúst. Ekki verður fyrr búið að frumsýna leikritið um ævi Jóns Steingrímssonar eldklerks er 8 af okkur fremstu tónlistarmönnum koma sér fyrir á Klaustri til að æfa saman kammertónlist sem siðan verður flutt á þrenn- um tónleikum dagana 16.17. og 18. ágúst. Þetta eru þau Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Helga Þórarinsdóttir lágfiðluleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleik- ari, Ólöf K. Harðardóttir sópransöngkona, Pétur Jónasson gítar- leikari, Selma Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigrún Eðvalds- dóttir fiðluleikari. Upphafsmaður þessarar hug- myndar, að nokkrir tón- listarmenn safnist saman úti á landi til ótruflaðra æfinga um hríð og haldi síðan tónleika, er Edda Erlendsdóttir píanóleik- ari sem starfað hefur í París um margra ára skeið. Hún segist þó eiga sterkar rætur uppi á Islandi og þá sérstaklega í Vestur- Skaftafellssýsluna svo staðai’val- ið skýrir sig kannski sjálft. Reyndar kemur fleira til eins og Edda segir sjálf. „I fyrra var keyptur vandaður konsertflygill í félagsheimilið á Klaustri og siíkt hljóðfæri breytir miklu um mögu- leikana til tónleikahalds á staðn- um. Þetta hljóðfæri hefur einnig gjörbreytt aðstöðu tónlistarskól- ans til kennslu og nemendatón- leika. En hugmyndin að tónleik- unum var í upphafi sú að skapa aðstöðu fyrir tónlistarfólk til að koma saman til æfinga og í nokk- ur ár hefur það verið draumur okkar, sem að þessu stöndum að geta hist upp í sveit í nokkra daga til æfinga að sumrinu.“ Edda segir leynast að baki þessarar hugmyndar fijókorn ýmissa stærri drauma um fram- tíðarfyrirkomulag á tónleikahaldi af þessu tagi. „Við erum mjög spennt að vita hvort einhver kem- ur að hlusta á okkur því þarna erum við að fitja upp á draum sem felur í sér eins konar tónlist- arhátíð á landsbyggðinni; fólk gæti komið og dvalið á Klaustri eina helgi og notið góðrar tónlist- ar og fagurs umhverfis, en það er einnig mikilvægur þáttur í þessu að þarna býðst heimafólki tækifæri til að sækja tónleika í sinni heimabyggð." Tónleikarnir verða þrennir og mismunandi efnisskrá á þeim öll- um þar sem uppistaðan á hveij- um tónleikum verður eitt stórt kammerverk ásamt nokkrum smærri perlum úr kammertón- listinni. Hljóðfæraskipanin er nokkuð óvenjuleg, því auk strengjahljóðfæranna eru tvö píanó, sópranrödd og gítar með í hópnum og það býður upp á efnisskrá sem verður að ýmsu leyti nýstárleg fyrir unnendur kammertónlistar. Til að gefa les- endum hugmynd um hvað verður í boði á tónleikunum má nefna sónötu fyrir gítar og víólu eftir Telemann, Der Hirt auf dem Felsen eftir Schubert fyrir sópr- an, fiðlu og gítar, píanókvintett eftir Schumann, píanókvartett eftir Mozart, strengjatríó eftir Beethoven, svítu fyrir tvær fiðlur og píanó eftir Moskovskí, sónötu fyrir fiðlu og gítar eftir Paganini og Navarre fyrir tvær fiðlur og píanó eftir Sarrasate. Þá er ekki allt talið því einsöngslög við und- irleik gítars eða píanós eftir ís- lensk og erlend tónskáld verða einnig á efnisskrám tónleikanna þriggja. Eflaust verða margir þess fýsandi að fara að Kirkju- bæjarklaustri um næstu helgi. „Við höfum flest öll spilað saman áður og vitum þvi að sam- vinnan gengur vel og getum tre- yst á árangur af samstarfinu," segir Edda brosandi og bætir því við að tónleikahaldið sé liður í M-hátíð á Suðurlandi sem staðið hefur í sumar. „Þetta er nánast allt tónlist eftir 18. og 19. aldar tónskáld og efnisvalið er því ólíkt Skálholtstónleikum þar sem áherslan hefur verið á annars vegar barokktónlist og svo nýja tónlist. Við höfum valið okkur farveg þarna á milli og höfum leikið okkur að þeirri hugmynd að þarna bjóðist valmöguleiki við rokkútihátíðirnar fyrir þá sem hafa meira gaman af klassískri tónlist.“ hs hs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.