Morgunblaðið - 18.08.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1991
Flóttamaiuiabúöir í Parí§
í tjaldbúðunum í Tolbiac hafast við 372 heimilislausir Parísarbúar
af afrískum ættum.
HUNDAR reikuðu um grýtta jörð-
ina og ryk þyrlaðist upp í kæf-
andi hitanum. Blökkukonur í
þjóðleguin, afrískum klæðum
reyndu að baða börnin sín í því
litla vatni sem til var. Auk 50
brúnna kakítjalda voru þarna
sjúkraskýli og bráðabirgðasal-
emi. í bakgrunninum blasti Eiff-
elturninn við.
■ ■
011 þessi lýsing gæti hæglega átt
við um flóttamannabúðir í
Súdan, nema hvað þótt Eiffelturninn
sé 300 metra hár þarf eitthvað meira
en góða sjón til þess að sjá hann
alla leið frá Afríku. En turninn var
hvorki hilling né heiftarlegur sólst-
ingur.
Tjaldbúamir í Tolbiac á bökkum
Signu komust á forsíður franskra
dagblaða í liðinni viku þegar þeir
neituðu að hypja sig og stöðvuðu
með því framkvæmdir við stærsta
bókasafn í heimi. Hið umdeilda
bókasafn á að vera í fjórum 85
metra háum glerturnum sem gagn-
rýnendur segja reyndar að séu bæði
fjárhagsleg og listfræðileg fjar-
stæða. Bókasafnið er undir verndar-
væng Francois Mitterrands og bygg-
ingarlóðin hefur orðið átakasvæði
forsetans og Jacques Chiracs, borg-
arstjóra Parísar. Chirac hefur þráast
við að láta lóðina formlega af hendi
vegna óánægju með stefnu frönsku
stjórnarinnar í málefnum Parísar.
En nú hefur borgarstjórinn geng-
ið í lið með ijandvini sínum og heit-
ið því að koma tjaldbúunum af lóð-
inni. Tjaldbúarnir hótuðu þá að flytja
sig á fræga ferðamannastaði og
borgarstjórinn svaraði um hæl með
því að lýsa stríði á hendur öllum
þeim sem tjölduðu ólöglega. Lög-
reglan lét til skarar skríða gegn
hundruðum erlendra ferðamanna
sem meðal annars höfðu tjaldað við
Eiffelturninn. Margir þeirra eru blá-
snauðir og illa séðir ferðamenn frá
Austur-Evrópu. Þeim var vísað á
opinber tjaldstæði sem þegar voru
yfirfull.
Tolbiac
Frakkar hafa deilt hart um hvem-
ig eigi að bregðast við ólöglegum
innflytjendum. Chirac hefur að und-
anförnu hert tóninn og forsætisráð-
herrann, Edith Cresson, útilokar
ekki stórfellda nauðungarfiutninga.
En tjaldbúamir í Tolbiac eru ekki
ólöglegir innflytjendur þótt flestir
þeirra séu af afrískum uppruna.
Skipuleggjendur búðanna segja að
95% íbúanna séu franskir ríkisborg-
arar og að 80% þeirra hafí fastar
tekjur.
Tjaldbúðirnar hafa leitt athyglina
að ástandinu í húsnæðismálum
Parísar. Margir tjaldbúanna segjast
hafa verið bornir út úr leiguíbúðum
vegna fasteignabrasks eigendanna.
Sumir hafa verið á biðlista eftir
húsnæði árum saman og ekki hjálp-
ar hörundsliturinn. Því er haldið
fram að yfirvöld jafnt sem húseig-
endur vilji hreinsa miðborgina af
fátæklingum og innflytjendum. Sagt
er að á sama tíma og 60.000 manns
skorti húsnæði séu 117.000 auðar
íbúðir í París.
Búðirnar í Tolbiac voru settar á
stofn 13. júlí síðastliðinn. Skipu-
leggjendurnir segja að af 372 íbúum
séu 200 börn og þau þjáist mest.
Hitinn í tjöldunum getur farið yfír
60 gráður á Celsíus og úti leika
börnin sér í hættulegu og heilsuspil-
landi umhverfi. Heilsufar er slæmt
en sjúkraskýlið er aðeins opið einn
klukkutíma á dag. íbúarnir skiptast
á um að vakta búðirnar allan sólar-
hringinn af ótta við árásir þjóðernis-
sinna. Nú óttast þeir jafnvel enn
meira að yfirvöld sendi óeirðalög-
reglu gegn þeim og reki þá á brott
í stað þess að veita þeim aðstoð.
„...............
WIRUS/;///y)/V
Vandaöar þýskar
innihurðir á
fróbæru verði.
◄
Tvöfaldar
forstofuhurðir
með eða ón pösta.
►
Wirus hljóðeinangrandi hurðir fyrir fyrirtæki,
skóla, sjúkrahús, spón- eða plastlagðar.
Kynningarvero á sléttum, spónlögðum
hurðum. Verð á 80 cm hurð í karmi,
mAormlislum, skrá og lömum
frá kr. 16.950. •
BYGGINGAVORUR
Wirus spjaldahurðir með eða ón
SKEIFUNNI 11 ■ SIMI 681570
B 13
SÍMI:
FASTEIGNA OG FIRMASALA AUSTURSTRÆTI 18
Einbýl
Arnartangi — Mos.
Vandað einb. ca 145 fm á einni hæð
auk 47 fm bílsk. 4 svefnherb. Parket.
Gróinn garður. Verð 13 millj.
Melabraut — Seltjn.
Virðulegt einb. á þremur hæðum ca 250
fm. Glæsil. ræktuð lóð. Hús í mjög
góðu standi.
Raðhús — parhús
Vesturberg
Glæsil. raðh. á einni og hálfri hæð.
Mjög fallegur ræktaður garður. Bílsk.
Eign í sérfl.
Ægisíða
Parhús 140 fm skiptist í 2 stofur, 3-4
svefnherb. Nýtt gler. parket. Glæsil.
baðherb. Mögul. á íb. í kj. 29 fm bílsk.
Góð áhv. lán 6,0 millj. Verð 11,6 millj.
Fagrihjalli
Vorum að fá í einkasölu glæsil. raðhús
tvær hæðir og ris að grunnfleti samtals
200 fm ásamt innb. bílsk. Húsið er
fullfrág að utan og íbhæft. en ekki
fullfrág. að innan. Verð 12,5 millj. Áhv.
húsbréf 6,2 millj. Eignaskipti mögul.
Ásgardur
Vorum að fá i einkasölu einstakl.
snyrtil. raðhús. Húsið er á þremur hæð-
um og er í góðu standi. Mikið endurn.
Bollagarðar
Fallegt raðhús. Skiptist m.a. í 4 svefn-
herb., 2 stofur, eldh. m/borðkrók. Innb.
bílsk. Fráb. útsýni.
Mosbær — Lindarbyggð
175 fm parhús á einni hæð. Skiptist í
3 svefnherb., eldh., borðstofu og stóra
stofu. Laust nú þegar. Ýmis eignaskipti
mögul.
Kambasel
Endaraðh. tvær hæðir og ris m. innb.
bílsk. Á neðri hæð er m.a. 4 svefnh.
og bað. Á efri eru stofur, eldh. og búr,
1 svefnh. og snyrting. í risi er baðst.
Engjasel
Pallaraðhús sem skiptist m.a. í 4 svefn-
herb., 2 stofur, tómstundaherb., sjón-
varpsherb. o.fl. Húsið er allt nýtekið í
gegn. Ákv. sala. Bílskýli. Laust fljótl.
Sérhæöir
Bárugata
Vorum að fá í einkasölu sérlega glæsi-
lega hæð, sem skiptist í 2 stofur, sjón-
varpsherb., 2 svefnherb. eldh. og bað.
Eigninni fylgir bílsk. Eign í sérl. góðu
ástandi. Skuldlaus.
Grænahlíð
Glæsil. neðri hæð í mjög góðu húsi ca
150 fm. Skiptist í stórt eldhús, 2 stórar
stofur, 2-4 svefnherb., sólstofu og
flísalagt bað. Eignin er öll hin glæsil.
Rúmg. bílsk. Fallegur garður. Verð 14,5
millj.
Álfhólsvegur
Mjög góð 117 fm efri hæð. Glæsil. út-
sýni. Góður bílsk. fylgir. Eignask. mögul.
Hagamelur
Vorum að fá í einkasölu 130 fm
íb. ó 2. hæð v/Hagamel. Skiptist
í 2 stórar stofur, 3 svefnherb.,
stórt eldhús og bað. Rúmg. bílsk.
Laus fljótl.
Melabraut — Seltjnesi
Neðri sérhæð í tvíbhúsi ásamt hluta í
kj. Á hæðinni eru stofur, eldhús, 2
svefnherb. og bað. í kj. 2 svefnherb.
og þvottah. Hringstigi úr stofu milli
hæða. Mikið endurn.; nýtt gler, nýtt
parket og nýjar innihurðir. 45 fm bílsk.
4ra—5 herb.
Fornhagi
4ra herb. mjög góð kjíb. i þrib. Sérinng.
Falleg ræktuð lóö. Góð eign.
Við miðbæ
Falleg 110 fm nýstandsett ib. á
4. hæð. Parket og flisar. Stórar
svalir. Laus. Lyklar á skrifst.
Fífusel
4ra herb. ib. á 2. hæð. Laus nú þegar.
Húsið ný lagfært að utan. Hagst. verð.
3ja herb.
Smáragata
Vorum að fá í sölu glæsil. 3ja herb. íb.
á 1. hæð í fjórbhúsi. Stór bílsk. Falleg
eign.
Goðheimar
Falleg 3ja herb. sérh. á jarðh. Skiptist i
2 svefnherb., stofu og stóran skála.
Áhv,. veðd. ca 3,0 millj. Verð 5950
þús. Falleg eign.
Álftahólar
Vorum að fá í einkasölu 3ja herb. mjög
góða íb. á 4. hæð í lyftuhúsi m. bílsk.
Laufásvegur
Skemmtileg 3ja-4ra herb. íb. í kj. Býður
uppá mikla mögul. Mikið endurn. Verð
4,9 millj.
Kjarrhólmi
3ja herb. mjög góð íb. á 4. hæð. Suð-
ursv. Fráb. útsýni.
2ja herb.
Frostafold
Glæsil. rúmg. íb. á 1. hæð. Vandaðar
innr. Þvherb. innaf eldhúsi. Áhv. veð-
deild ca 3,2 millj. Verð 6,4 millj.
Pósthússtræti
Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæð. Allar innr.
sérl. vandaðar. Bílskýli.
Frakkastígur
2ja herb. íb. á 1. hæð í nýl. húsi með
bílskýli.
Engjasel
Snyrtileg 2ja herb. íb. á jarðhæð. Verð
4,4 millj. Áhv. 2 millj.
Stúdíóíb. í gamla bænum
Liðlega 50 fm. Arinn í stofu. Flísar á
götu. Fráb. útsýni. Svalir. Öll ný upp-
gerð. Laus.
Kaplaskjólsvegur
Einstaklingsíb. ca 45 fm á góðum stað.
Áhv. veðdlán 2,4 millj. Verð 3950 þús.
Vesturgata
Einstakl. risíb. 2 herb. og eldhús. Út-
sýni. Verð 1,7 millj.
Sólvallagata
Ósamþ. einstklíb. 40 fm jarðh. V. 2,6 m.
I smiðum
Álfholt - Hf.
.Vorum að fá í sölu 3ja og 4ra herb.
íbúðir í fjórbhúsi við Álfholt. íb. seljast
tilb. u. trév. Öll sameign að utan sem
innan frág. þ.m.t. lóð. íb. eru til afh.
fljótl. Teikn. á skrifst.
Grasarimi
Vorum að fá í sölu nokkur mjög glæsil.
raðhús á tveimur hæðum með innb.
bílsk. Seljast frág. að utan en í fokh.
ástandi að innan. Teikn. á skrifst.
Fagrihjalli
2ja herb. íb. á jarðh. í tvíbhúsi. Selst í
fokh. ástandi að innan en húsið frág.
að utan. Hagst. greiðsluskilm.
Hrísrimi
Vorum að fá í sölu nokkrar 3ja
og 4ra herb. íbúðir í 3ja hæða
sambýlishúsum. íbúðirnar eru til
afh. í okt./nóv. tiib. u. trév. en
sameign fullfróg. 4ra herb. íb.
fylgja bílastæði í kj. Byggingam.
Haukur Pétursson.
Miðhús
Einbhús á tveimur hæðum m/bílsk. Hvor
hæð 96 fm. Efri hæð: 3 svefnh., fjölsk-
herb. og bað. 1. hæð: Eldhús, 2 stofur,
herb., geymsla og snyrting. Selst fokh.
á kr. 7,5 millj., að mestu frág. að utan á
kr. 8,8 millj.
Sveighús
Fallegt pallaeinbýlishús að grfl. 162 fm
auk tvöf. bílsk. Selst fullfrág. að utan,
ómálað, en í fokheldu ástandi að innan.
Teikningar á skrifst.
í Setbergshlíð — Hf.
Vorum að fá í sölu nokkrar 4ra-5 herb.
íb. tilb. u. trév. og máln. Öll .sameign
frág. utandyra sem innan. íb. til afh. í
apr. nk. Verð 8,2 millj. Traustir byggaöil-
ar. Teikn. á skrifst.
Vantar allar gerðir fasteigna á söluskrá
SÖLUSTJÓRI LÖGMENN
AGNAR ÓLAFSSON SIGURBJÖRN MAGNÚSSON
GUNNAR JÓHANN BIRGISSON
Sölumenn
JON STEFANSSON -SIGURÐUR HRAFNSSON
Hs. 29184 Hs. 677311
AGNAR AGNARSSON, VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR.