Morgunblaðið - 16.11.1991, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
9
••
BORÐSTOFUHUSGOGN
Ný sending___
Mikið úrval af borðstofuhúsgögnum úr bæsaðri
eik - hvítu - svörtu - mahóní
á mjög hagstæðu verði.
Petra borð + stólar í beyki - hvítu - svörtu.
Borð + 4 stólar kr. 35.700,- stgr.
Visa - Euro raðgreiðslur
OPID í DAG TIL KL. 16
SUNNUDAG FRÁ KL. 14-16
□□□QQEZD
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRDI SÍMI 54100
I 1 turjpm! jrl
Bladið sem þú vaknar vió!
Nýtt hlutverk Atlants-
hafsbandalagsins
Samskipti við fyrrum fjendur í Austur-
Evrópu, ný varnarstefna og hlutur Evr-
ópuríkjanna í vörnum Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) voru til umræðu á fundi
leiðtoga aðildarríkjanna 16 í Rómarborg
í síðustu viku. Á fundinum var m.a. ákveð-
ið að hefja formlegt samráð við ríkin í
Mið- og Austur-Evrópu og samþykkt var
ný varnarstefna sem einkum tekur mið
af óvissuástandi í álfunni austanverðri
og gerir ráð fyrir mun minni herafla á
vegum NATO en áður. ítrekuð var nauð-
syn þess að Bandaríkjamenn haldi úti
liðsafla í Evrópu en jafnframt komu skýrt
fram á fundinum þær hræringar sem eiga
sér stað um þessar mundir á vettvangi
evrópskra öryggismála. Breska dagblað-
ið The Daily Telegraph telur að á fundin-
um hafi ekki tekist að eyða efasemdum
um framtíðarhlutverk Bandaríkjanna inn-
an bandalagsins. Bandaríska dagblaðið
The Washington Post telur hins vegar
að bandarískir ráðamenn megi ekki fyll-
ast óþolinmæði þó svo ýmsar þær hug-
myndir um samstarf Evrópuríkjanna á
sviðu öryggis- og varnarmála falli þeim
ekki í geð.
Róttæk breyt-
ing
Breska dagblaðið The
Daily Telegyaph segfir í
forystu'grein: „Rómaryf-
irlýsingin um frið og
samstarf þai- sem er að
finna viðbrögð NATO við
hruni kommúnismans og
upplausn Varsjárbanda-
lagsins felur í sér róttæk-
ustu breytingu á stefnu
NATO allt frá því að
bandalagið var myndað
árið 1949. Heraflinn
verður minni og hreyfan-
Iegri en áður. Hlutur
kjarnorkuvopna í vörn-
um bandalagsríkjanna
mun minnka verulega og
kenningin um sveigjan-
leg viðbrögð á átakatím-
um, sem fól í sér hugsan-
lega beitingu kjarnorku-
vopna á upphafsstigum
átaka, hefur verið lögð
til hliðar. Þrátt fjTÍr að
þessi niðurskurður hafl
verið ákveðinn er nauð-
synlegt að bandalagið
verði áfram öflugt í Ijósi
þeirrar óvissu sem skap-
ast kann í austri og
suðri.”
Síðar segir í greininni:
„Á fimmtudag hvatti Ge-
orge Bush Bandaríkja-
forseti starfsbræður sína
til að skýra frá því með
ótvíræðum hætti hvort
þeir vildu enn að Banda-
ríkin tækju þátt í vömum
Evrópuríkjanna.” Blaðið
telur forsetann liafa
fengið jákvætt svar við
þeirri spurningu þar sem
vísað sé til þess í lokayfir-
lýsingu fundarins að
samvinna ríkjamia
beggja vegna Atlants-
hafsbandalagsins verði
áfram algjörlega nauð-
synleg. „Hins vegar
munu umræður um sam-
skipti Evrópu og Banda-
ríkjanna magnast eftir
því sem leiðtogafundur
Evrópubandalagsins í
Maastricht færist nær.
Tillaga Frakka og Þjóð-
veija um að myndaður
verði lier til þess að gera
Vestur-Evrópusamband-
ið starfhæft og sá vilji
þeirra að fella Vestur-
Evrópusambandið inn í
Evrópubandalagið getur
orðið til þess að grafa
undan Atlantshafsbanda-
laginu á sama tíma og
þess verður vart að ein-
angrunarhyggja fer vax-
andi á meðal þingmaima
í Bandaríkjunum . . .
Breytingar á vettvangi
NATO nú þegar kalda
stríðinu ér Iokið em
nauðsynlegar. En það
væri heimskulegt að
veikja samstarf Norður-
Ameríku og Evrópurílq-
anna, í því felst hiim ein-
staki styrkur Atlants-
hafsbandalagsins.”
Samvinna og
samkeppni
Bandaríska dagblaðið
The Washington Post
segir í forystugrein er
birtist í The Intemation-
al Ilerahl Tribune á
mánudag að mesta afrek
Bandaríkjamanna í Evr-
ópu eftirstríðsáranna
hafi verið að tryggja frið
og samvinnu lýðræðis-
ríkjanna, sem áður höfðu
barist og enn vom full
grunsemda. Sá samruni
sem stefnt hafi verið að
í Evrópu hafi ávallt falið
í sér þann möguleika að
Evrópuríkin yrðu ekki
eingöngu bandamenn og
tilbúnir til að lúta forystu
Bandaríkjmina heidur
einnig keppinautur.
Blaðið víkur síðan að
áhyggjum þeim er fram
komu í ræðu Bush
Bandaríkjaforseta og tel-
ur að það sé eðlilegt að
í Bandaríkjunum velti
menn því fyrir sér hvem-
ig bregðast beri við sí-
fellt auknu samstarfi
Evrópuríkjanna á vel-
flestum sviðum auk þess
sem fyrir liggi að al-
menningur í Bandaríkj-
unum hafi uppi efasemd-
ir um tilgang þess að
halda úti liðsafla í Evr-
ópu er kosti mikið fé.
Síðan segir í forystu-
grein bandaríska dag-
blaðsins: „Nú er því tími
til kominn að Banda-
ríkjamenn og Evrópubú-
ar ræði skipan heims-
mála eftir að ógnunin af
Iiálfu Sovétríkjanna
heyrir sögunni til. En
menn verða að fara var-
lega. Bandaríkjamenn
mega ekki missa þolin-
mæðina og krefjast þess
í raun að Evrópuríkin
annaðhvort viðurkenni
forystuhlutverk Banda-
rikjamanna eða vísi þeim
á dyr. . . Bandalag lýð-
ræðisríkjanna beggja
vegna Atlantshafsins
hefur hlutverki að gegna
nú þegar kalda stríðinu
er lokið og réttu leiðirnar
til að skilgrcina það hlut-
verk liggja einnig fyrir.”
Há ávöxtun á erlendum verðbréfum
Opið í Kringlunni í dag á milli kl.10 og 16.
Ráðgjafi Fjárfestingarfélagsins í erlendum verðbréfum,
Agnar Jón Ágústsson hagfræðingur, verður í
Kringlunni í dag. Hægt verður að fá fróðlegt upplýsingaefni
um horfur á helstu hlutabréfamörkuðum. Verið velkomin!
Raunávöxtun í Skandifond verðbréfasjóðunum frá áramótum:
Continental Europe.....-0,11%
FarEast................ 30,58%
Global................. 25,23%
Intemational............12,48%
Japan.................. 12,95%
Mediterranean...........-7,22%
Natural Resources........7,45%
Nordic...................1,54%
North America...........42,93%
United Kingdom.......... 2,82%
Q2>
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700