Morgunblaðið - 16.11.1991, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
120 fm íbúðir til sölu
Á veðursælum stað í Grafarvogi eru til sölu vel skipu-
lagðar íbúðir. Góðar suðursvalir. Stórar stofur og
þvottahús á hæðinni. Bílskúr fylgir. íbúðirnar seljast
tilbúnar og sameign fullfrágengin. íbúðirnar verða til
sýnis, fullbúnar, á næstu dögum.
Örn Isebarn, húsasmíðameistari,
sími31104.
Húseign í Hafnarfirði
Nýkomið í einkasölu sem nýtt og fallegt timburhús við
Suðurgötu. 163 fm 7 herb. íbúð á hæð og í risi. 36 fm
kjallari og 35 fm bílskúr. Parket á gólfum.
Opið í dag
frá kl. 12-17
Árni Gunnlaugsson, hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI
KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL, löggiltur fastíignasau
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Glæsileg ný íbúð með bílskúr
við Sporhamra 118,3 fm á 1. hæð. Svalir. Sér lóð. Sér þvottah. Full-
gerð sameign. Húsnæðislán kr. 5 millj. til 40 ára.
Góð íbúð - laus strax
Á vinsælum stað við Fellsmúla 4ra herb. suðurib. á 3. hæð um 100 fm.
3 svefnherb., þar af eitt forstofuherb. Mikil og góð sameign. Útsýni.
Góð eign - tvær íbúðir - verkstæði
Á vinsælum stað í Langholtshverfi reisulegt steinhús með 3ja herb. íb.
á neðri hæð og 3ja herb. á efri hæð. í kj. er þvottah., geymslur og
föndurherb. Góður bílskúr (verkstæði 45 fm). Tilboð óskast.
Rétt við Álftamýrarskóla
3ja herb. góð íb. á 3. hæð. Rúmg. stofa, sólsvalir. Ágæt sameign
nýlega endurbætt. Bílskúrsplata fylgir.
Við Hraunbæ - laus strax
2ja til 3ja herb. góð ib. á neðri hæð. Nýtt bað. Góð geymsla. Ágæt
sameign. Vinsæll staður.
„Stúdíó”-íbúð í lyftuhúsi
Eins herb. ibúð með stórum suðursvölum og góðri innr. i nýendurb.
lyftuhúsi v. Tryggvagötu. Sanngjarnt verð.
Stór og góð í lyftuhúsi
4ra til 5 herb. íb. ofarlega í lyftuhúsi við Hrafnhóla. Húsvörður. Út-
sýni. Laus fljótlega. Tilboð óskast.
Stór og góð við Arahóla
2ja herb. íb. á 1. hæð, 65,3 fm. Sér þvottah. í íb. Nýl. parket. Geymsla
og föndurherb. í kj. Laus strax. Frábært útsýni.______
Opið í dag frá kl. 10-16.
Nokkrar 2ja -3ja herb. ódýrar
íbúðir f gamla bænum.
ALMENNA
FASÍ EIGNASAIAW
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
II
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Fjórði og síðasti undirflokkur
a-stofna er ia-stofnar. í þessum
flokki er aragrúi orða, bæði í
karlkyni og hvorugkyni, og sí-
fellt bætast fleiri við. Fljótlegast
væri reyndar að segja að í þess-
um flokki væru öll karlkynsorð
sem enda í nefnifalli eint. á ir,
nema faðir og bróðir, og öll
hvorugkynsorð sem enda á i.
Fyrst ætla ég að nefna nokk-
ur gömul dæmi í karlkyni: drell-
ir, fylkir, hersir, læknir,
skelmir, stillir (= konungur) og
vísir. Beyging í eintölu: læknir-
lækni-lækni-læknis; í fleirtölu:
læknar-lækna-læknum-lækna.
Prófessor Halldór Halldórsson
segir í Málfræði handa æðri
skólum, bls. 90: „í nútíðarmáli
láta sumir r haldast í allri beyg-
ingunni, t.d. læknir, læknir,
læknir, læknirs; læknirar,
læknira, læknirum, læknira,
en það er ekki talið rétt.”
Halldór Briem segir í sinni
málfræði (4. útg. endursk. 1921,
bls. 17) að fleirtala af læknir
sé læknar, en bætir við í sviga:
„í nútímamáli oft læknirar”.
Þessi „læknira”-fleirtala hef-
ur nú verið bannfærð og henni
að mestu útrýmt, og ekki ætla
ég að mæla með henni. Sum orð
í þessum beygingaflokki eru þó
þess eðlis, að slík fleirtala er
myndarlegri og „áhrifameiri”
einhvern veginn. Umsjónarmað-
ur var einu sinni að kenna mjög
ungu fólki, og mær var að segja
frá henni kisu sinni. Allt í einu
kom hún (mærin) þar að sem
kisa hennar var umkringd fress-
köttum. „Þessir þá líka litlu
drellirar,” sagði mærin og hafði
hræðst fyrir hönd kisu sinnar.
Þessari orðmynd treystist ég þá
ekki tii að breyta í „drellar”.
Mér þótti sem frásögnin hefði
liðið við það. Þá þykir mér
áhrifameira að segja „skúrkar
og skelmirar”, heldur en skúrkar
og skelmar (= illmenni, óþokk-
ar), samkvæmt strangasta ritú-
ali.
Mýgrútur gerandnafna var og
er myndaður í flokki ia-stofna,
orð eins og geymir, kælir,
hermir og hrellir, svo og fjöldi
mannanafna: Heimir, Þórir,
Birnir, Reynir o.s.frv. Óneitan-
lega hljóma sum þeirra eins og
fleirtala, t.d. Birnir og Ernir.
Hvorugkynsorð í hópi ia-stofna
eru yfirleitt auðveld viðureignar
og beygingar. Dæmi: kvæði-
kvæði-kvæði-kvæðis; flt.
kvæði-kvæði-kvæðum-kvæða.
Þess er þó að gæta að þau þeirra,
sem hafa g eða k á undan i-end-
ingunni, frá j í þgf. og ef. flt.,
dæmi ríki og tæki. Þá segjum
við frá ríkjum og tækjum og
til ríkja og tækja. Þess er enn
að gæta að sum þeirra orða
henta illa í fleirt., svo sem beyki
og vægi.
Þegar þessi einfalda beyging
er höfð í huga, er enn furðu-
legra að heyra orð eins og happ-
drætti beygt rangt í dagskár-
kynningu Stöðvar 2, sjá annars-
staðar í þættinum.
Að lokum er þess að geta, að
nokkur orð, sem voru hreinir
a-stofnar, hafa við áhrifsbreyt-
ingu farið í flokk með ia-stofn-
um: sík > síki, beisl > beisli, eng
> engi, nest > nesti og reip verð-
urreipi. Gamlir menn töluðu til
dæmis um vegnest, þar sem við
segjum veganesti, en ennþá lif-
ir reip í máltækinu að hafa við
ramman [mann] reip að draga
= þurfa að togast á um reipi við
sterkan mann, og síðan í yfir-
færðri merkingu að eiga í erfið-
leikum, glíma við erfiða þraut.
Umsjónarmaður hefur fyrri
talað um það, hvernig málvillur
koma eins og í kippum eða
hvelfiskúrum í ijölmiðlum. Ein
gusan var nú í vetrarbyijun,
einkum á Stöð 2. Ég hef áður
talað um eldinn sem sí og æ
„verður laus”, en er hættur að
kvikna eftir eðli sínu.
Feðgar eiga sama afmælis-
dag. Nú vildi svo til að yngra
karlmanninum fæddist dóttir
615. þáttur
þennan sama dag mánaðarins.
Það hét í fréttum að fæðinguna
hefði borið upp á sama mánaðar-
dag þrisvar í röð „í beinan karl-
legg”. Var þó nær upphafi frétt-
ar skýrt tekið fram að nýfædda
barnið væri stúlka (mær), en
ekki piltur (sveinn). Ég veit svo
sem ekki hvort þetta telst mál-
villa eða einhver önnur villa.
Og svo er það eignarfallsleys-
ið. í dagskrárkynningu var talað
um eitthvað það sem var „í boði
Happdrætti Háskóla íslands”,
ekki Happdrættis. Er hægt að
ögra óspilltri máltilfinningu með
öllu gróflegri hætti?
Þá var sagt frá mönnum sem
skutu liggjandi. En það var of
einfalt. Þetta þurfti að hafa á
ensku, þó orðin væru að vísu
íslensk: þeir skutu „í liggjandi
stellingu” (in a lying down pos-
ition). Svo auglýsir þetta sig
„gefandi” stöð að skandinavísku
máli og hefur týnt íslenskunni
gjöfull. „Þú” ert mjög hissa á
þessu öllu saman, heitir þetta
víst á fréttamannamáli, sumra
hverra.
„Um haustið lést Ormur bysk-
up [Ásláksson], og varð hann
engum harmdauður á Islandi,
svo um það sé getið, nema Arn-
grími ábóta. Hann var byskup
14 vetur, og lengstum erlendis
í þeim erindum að ákæra undir-
menn sína; er ei þess getið, að
hann hafi bætt staðinn, prýtt
eða auðgað kirkjuna, haldið lær-
ingarskóla, sem forveijar hans,
né bætt eða styrkt Kristindóm-
inn, en sóað heldur miklu
kirkjufé til óþurftar, og er eigi
meira frá hönum að segja.” (Jón
Espólín 1769-1834.)
★
Salómon sunnan kvað:
Og það var hún Herþrúður Heiðarbrá,
svo hress þegar Geirmundur reið þar hjá,
með æmum góðvilja
hún vild ’onum ylja
eftir skaðvæna sundreið í Skeiðará.
Hausthefti Skírnis
HAUSTHEFTI Skírnis, Tímarits
Hins íslenska bókmenntafélags,
165. árgangur, er komið út. Heft-
ið er 270 bls. að lengd.
Bókmentitafélagið er 175 ára á
þessu ári og fylgir Sigurður Líndal
heftinu úr hlaði af því tilefni. Mun
Skírnir nú vera eitt elsta menning-
artímarit sem út kemur í Evrópu. I
Jólastjðrnur - okkar verö
Jólastjarna 1. fl. kr. 767,-
Jólastjarna 2. fl. kr. 695,-
Jólastjarna (mini) kr. 295,-
Stöndumst verósamanburó!
Blómahöllin, Kópavogi, sími 40380
Blómastofan, Kringlunni, sími 681222
Blómastof an, Eióistorgi, sími 611222
Blómaverkstæði Binna, Skólavöróustíg 12, sími 19090
heftinu eru ritgerðir eftir íslenska
og erlenda fræðimenn. Einar Már
Jónsson skrifar ritgerð um efnisskip-
an í kaupmannabálki Konungs-
skuggsjár, Rory McTurk fjallar um
merkingu nafnsins „loðbrók” og
tengir það Gunnlaðarsögu, og
Andrew Wawn segir frá Þorleifi
Repp og Færeyingasögu. Gísli Jóns-
son fjallar um nöfn Dalamanna
1703-1845, Sveinn Einarsson ritar
um leikskáldskap Steingríms Thor-
steinssonar og Sveinbjörn Rafnsson
skrifar stutta ritgerð sem hann nefn-
ir „Af fiskrykni og hvalbera”. Þá
skrifar Ágúst Hjörtur Ingþórsson
ítarlega ritgerð um lýðræði.
Vilhjálmur Árnason fjallar síðan
einnig um jýðræðishugtakið í Skírn-
ismálum. í öðrum Skírnismálum er
ritað um deiluefni sem þar hafa
gengið að undanförnu. Guðbergur
Bergsson skrifar um hlutverk rithöf-
unda, Halldór Guðjónsson um hlut-
verk háskóla og Þorsteinn Gylfason
heldur enn uppi vörnum fyrir kristna
trú.
Þrjár greinar eru um bækur.
Kristján Kirstjánsson skrifar yfirlits-
grein um heimspekirit Páls Skúlas-
onar, Halldór Stefánsson fjallar um
bók Gísla Pálssonar, Sambúð manns
og sjávar, og Einar Falur Ingólfsson
ritar um Mýrarenglarnir falla eftir
Sigfús Bjartmarsson og Svefnhjól
Gyrðis Elíassonar.
Skáld Skírnis að þessu sinni er
Vigdís Grímsdóttir. Einnig er birt
þýðing Sverris Hólmarssonar á
„Mansöng J. Alfreds Prufrock” eftir
T.S. Eliot, ásamt stuttri ritgerð
þýðandans um ljóðið. Myndlistar-
maður Skírnis er Jóhannes Geir og
prýðir mynd hans, „Bið”, kápu heft-
isins. Aðalsteinn Ingólfsson fjallar
um myndina.
Ritstjórar Skírnir eru Vilhjálmur
Árnason og Ástráður Eysteinsson.
Ritstjóri Bókmenntaskrár, sem nú
fylgir Skími í 23. sinn, er Einar
Sigurðsson. Afgreiðsla Hins íslenska
bókmenntafélags, Síðumúla 21, er
opin daglega kl. 13-17.
Rafmagns-
bilun í Reyk-
hólahreppi
Miðhúsum.
AÐFARANÓTT þriðjudagsins
gerði hér leiðindaveður og brotn-
uðu tveir raflínustaurar, annar
þjá Kambi og hinn hjá Garpsdal
í Gilsfirði. Samkvæmt upplýsing-
um frá Guðmundi Ólafssyni raf-
veitustjóra komst rafmagn þar
ekki á fyrr en um hádegisbilið í
dag.
Vararafstöðin á Reykhólum gekk
frá því á þriðjudagsnótt þangað til
á fimmtudag og þannig varð minna
vart við rafmagnsbilunina nema á
nokkrum bæjum.
Guðmundur sagði að mældur
hefði verið ísþungi á línunni í Gils-
firði og hefði hann verið um 7 kg á
lengdarmetra.
Kennsla í Reykhólaskóla féll niður
á þriðjudag og miðvikudag vegna
óveðurs og hálku, en öllum börnum
utan Reykhóla er ekið ,i skólann.
-jjouitou bf* Il(ir - Sveinn
.aniaijín l>irtf>v