Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NOVEMBER 1991
11
Verkfræðing-
ar óttast
ekki erlenda
samkeppni
VEGNA umræðna sem orðið
hafa um stöðu íslenskra verk-
fræðinga í samkeppni við verk-
fræðinga frá löndum Evrópu-
bandalagsins vill Verkfræðinga-
félag íslands taka fram:
„íslenskir verkfræðingar hafa
langa reynslu af samkeppni við
erlenda kollega sína og hafa staðið
sig vel í þeirri samkeppni.
Þannig voru sett skilyrði frá
Alþjóðabankanum um að • okkar
fyrstu stórvirkjanir væru hannaðar
erlendis. Þessu fékkst síðan breytt
og dettur engum lengur í hug að
leita til erlendra verkfræðinga með
þessa hönnun, enda hefur vinna
íslensku verkfræðinganna verið
mun hagkvæmari og sérþekking á
islenskum aðstæðum hefur nýst
vel í þeirri vinnu.
Einnig má benda á að ávallt er
íslenskir verktakar hafa tekið að
sér störf erlendis, hafa þeir notað
íslenska verkfræðinga við þessi
störf og hafa talið það hagkvæm-
ast.
Með tilkomu evrópska efnahags-
svæðisins opnast einnig möguleik-
ar fyrir íslenska verkfræðinga til
að hasla sér völl á erlendri grund.
Hér á landi er til staðar sérfræði-
þekking sem mögulegt ætti að
vera að koma á framfæri erlendis,
má þar nefna virkjanir, hagnýtingu
jarðhita og ýmislegt varðandi sjáv-
arútveg.
Menntun íslenskra verkfræð-
inga er mjög fjölbreytt, þannig
hafa þeir flestir hlotið hluta af, eða
alla menntun sína erlendis. Einnig
má benda á að íslenskir námsmenn
taka gjarnan þátt í atvinnulífinu á
námsárum sínum langt umfram
það sem tiðkast í öðrum löndum
og eru því betur í stakk búnir til
að takast á við fjölbreytt viðfangs-
efni í starfi sínu heldur en flestir
erlendir verkfræðingar.
Verkfræðingafélag íslands telur
því enga ástæðu til að óttast sam-
keppni frá verkfræðingum í lönd-
um Evrópubandalagsins vegna
samninga um evrópska efnahags-
svæðið.”
Ráðstefna
um úrgang
SAMBAND íslenskra sveitarfé-
laga og Hollustuvernd ríkisins
í samvinnu við umhverfisráðu-
neytið, Félag íslenskra iðnrek-
enda, Iðntæknistofnun, Endur-
vinnsluna hf. og Sorpeyðingu
höfuðborgarsvæðisins bs.
standa fyrir ráðstefnu um spilli-
efni og förgun úrgangs 26. nóv-
ember nk.
Áhersla er lögð á að ræða
vandamál sem atvinnulífið stendur
frammi fyrir varðandi kostnaðar-
aukningu við förgun úrgangs og
þá sérstaklega förgun hættulegra
efna. Ræddir verða möguleikar á
breyttri hráefnanotkun og minnk-
un urgangs.
Á ráðstefnunni verður fjallað
um reynslu af rekstri Sorpu, m.a.
spilliefnamóttökunni. Leitast verð-
ur við að svara spurningunum:
Hvað eru spilliefni? og Af hverju
eru þau hættuleg umhverfinu og
heilsu manna?
Ráðstefnan er sniðin að þörfum
tæknimanna sveitarfélaga, sveit-
arstjórnarmanna, heilbrigðisfull-
trúa sveitarfélaga, ráðamanna
iðnfyrirtækja og fyrirtækja sem
selja vörur og þjónustu í úrgangs-
geiranum.
Allar nánari upplýsingar gefur
Birgir Þórðarson hjá Hollustu-
vernd ríkisins.
BIKARINN
AKSTURSÍÞRÓTTAMAÐUR
ÁRSINS
1991
KARL GUNNLA UGSSON
SUZUKI 750 GSXR
Aörir sem voru tilnefndir:
Árni Grant sandspyrna, Árni Kópsson torfæra,
Guölaugur Halldórsson vélsleöar, Hlöðver
Gunnarsson kvartmíla, Ingimar Baldvinsson
rally cross, Sigurjón Haraldsson sandspyrna,
Steingrímur Bjarnasson torfæra, Steingrímur
Ingason, Tómas Jóhannesson rallakstur.
Bíkarinn verður til sýnis í Miklagarði ásamt Suzuki sigurhjóli
Karls Gunnlaugssonar.
luZMMA'UMM' fColUl
/
Allt í einu timariti!
• Skotveiði, líflegt viðtal við skyttuna Einar Pál Garðarsson
• Fyrirsætan Claudia Schiffer þénar 200 milljónir á ári
• Aeróbickennarinn Dísa í World Class í fullu fjöri
• Tennisstjarnan Boris Becker í fjötrum frægðarinnar
• Flugmaóurinn Húnn Snædal smíðaði tvíþekju í bílskúrnum
• Ævintýraferðin framhaldsgrein um Vatnajökulsferðina
• Myndbönd, nýja framúrstefnu myndbandsupptökuvélin
• Ökukappinn, Akureyringurinn Árni Grant opinberar allt
• Meistaraslagurinn, torfærukapparnir og raunir sumarsins
• Jeppabreytingar, hvað kosta þær og nýjustu jepparnir
FÆSTÁ NÆSTA BLAÐSÖLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 677766
VERÐ íLAUSASÖLU KR. 290,-