Morgunblaðið - 16.11.1991, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
Aðalfundur Bílgreinasambandsins:
Velja megi skoðun hjá verk-
stæðum eða Bifreiðaskoðun
Miklar álögur og há gjöld á bíla úr takt við tímann
AÐALFUNDUR Bílgreinasam-
bandsins, sem haldinn var í Kefla-
vík fyrir skömmu, samþykkti
ályktun þar sem hvatt er til þess
að viðurkennd verkstæði fái heim-
Ólafsfjörður:
Sjö milljónir
kr. í atvinnu-
leysisbætur
GREIDDAR hafar verið út tæp-
lega 7 milljónir króna í atvinnu-
leysisbætur hjá vinnumiðluninni
í Olafsfirði á þessu ári, en allt
síðasta ár voru greiddar 5,5 millj-
ónir króna í atvinnuleysisbætur.
Fjórtán vor skráðir atvinnulausir
í Olafsfirði um síðustu mánaða-
mót. Þetta kom frani á fundi at-
vinnumálanefndar Olafsfjarðar
fyrir skömmu.
Fyrstu níu mánuði ársins höfðu
verið greiddar atvinnuleysisbætur
hjá vinnumiðluninni í Ólafsfirði að
upphæð um 6,8 milljónir kóna, en
á sama tíma í fyrra námu greiðsl-
urnar tæplega 4,8 milljónum króna.
A síðasta ári voru greiddar út um
5,5 milljónir króna í atvinnuleysis-
bætur. Bótadagar voru 3.796 fyrstu
níu mánuði ársins, en voru 2.596 á
síðasta ári.
ild til að taka að sér almenna skoð-
un ökutækja. Vill fundurinn að
bifreiðaeigendur geti valið milli
skoðunar hjá Bifreiðaskoðun Is-
lands hf. og viðurkenndum verk-
stæðum. Með því móti megi spara
og veita bifreiðaeigendum um
land allt betri þjónustu.
Á aðalfund Bílgreinasambandsins
mættu 120 þátttakendur, félags-
menn, makar þeirra og gestir. Á
fundinum flutti Ari Edwald, aðstoð-
armaður dómsmálaráðherra, erindi
þar sem hann ræddi m.a. nýlegar
breytingar á reglugerð um gerð og
búnað ökutækja, einkum hvað varð-
aði mengunaiTeglur. Einnig var sér-
staklega rætt um árgerðaskráningu
bifreiða og almenna skoðun og áhrif
EES samninga á þessi mál, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu frá
Bílagreinasambandinu.
í aðalfundarsamþykkt Bílgreina-
sambandsins segir að miklar álögur
og há gjöld á bíla séu úr takt við
tímann, ekki síst nú á tímum aukinn-
ar samvinnu milli landa og með til-
komu sameiginlegs markaðar í kjölf-
ar samninga um Evrópska efnahags-
svæðið. Hvatt er til lækkunar á þess-
um gjöldum. Fundurinn telur áríð-
andi að ákvæði um tollalækkanir á
bílum í EES samningunum leiði til
raunverulegrar lækknunar en að ekki
verði tekin upp önnur gjöld í staðinn.
Þá er vakin athygli á því að háir
tollar á vörubifreiðum skekki sam-
keppnisstöðu þeirra sem þá nota, í
samkeppni við erlenda aðila.
Ályktað var gegn „svartri” atvinn-
ustarfsemi og bent á nauðsyn eftir-
lits og aðgerða gegn henni. Bent er
á að sala tjónabna sé uppspretta
„svartrar” atvinnustarfsemi. í álykt-
un fundarins er fagnað framkomnum
hugmyndum um sérstakan Bílgrein-
askóla og eru yfirvöld hvött til þess
að hraða ákvörðunum og fram-
kvæmdum í því efni.
Reuter
Landbúnaðarráðherra ávarpar
þing FAO
Halldór Blöndal, landbúnaðairáðherra, sat í gær 26. þing mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Róm og
var myndin tekin þegar ráðherra ávarpaði þingið.
Breytingartillögur við frumvarp til fjáraukalaga 1991:
Operan fær 10 milljónir
Hr í seyj arferj a 7 milljónir - Ferðamálaráð 16 milljónir
O'
SAMKVÆMT breytingartillögum fjárlaganefndar við frumvarp til
fjáraukalaga fyrir árið 1991 hækka „útgjöld samkvæmt heimildará-
kvæðum” fjárlaga um 700 m. kr. vegna fasteignakaupa á árinu.
Teknir eru inn nokkrir nýir fjárlagaliðir, m.a. Ferðamálaráð 16
m. kr. vegna skulda við ferðamálasjóð, Islenzka ópéran, 10. m.
kr., Hríseyjarferja 7 m. kr, veiðistjóri 9.5 m. kr., vegna flutnings
INNLENT
og halla á rekstri frá fyrra ári.
Meðal fasteigna, sem ríkið hefur
nýlega fest kaup á, er svonefnt
SS-hús við Laugamesveg. Það var
metið á 430 m. kr. Þar af greiddi
ríkissjóður 50 m. kr. í peningum,
80 m. kr. með skuldabréfum og
afhentar vom fasteignir í eigu
ríkissjóðs sem metnar voru á 300
m. kr. „í fjáraukalögum fyrir árið
1991 er tekjufært andvirði þeirra
eigna sem ríkissjóður lét í maka-
skiptum fyrir SS-húsið,” segir í
nefndaráliti fjárlaganefndar, „þó
Tvö verk eftir Áskel Más-
son flutt á Norðurlöndunum
Hætt við flutning óperu á Listahátíð
VERK eftir Áskel Másson, tón-
skáld, var flutt í Danmörku á
fimmtudagskvöld og var það
tekið upp af danska ríkisútvarp;
inu og verður útvarpað síðar. I
síðustu viku voru tvö verk eftir
Áskel frumflutt í Svíþjóð. Frum-
flutningi á óperu eftir Áskel,
sem vera átti á Listahátíð, hefur
hins vegar verið frestað.
Áskell Másson sagði í samtali
við Morgunblaðið að fimmtudag-
inn, 7. nóvember, hefði verið frum-
fluttur eftir sig marimbukonsert, í
Gautaborg í Svíþjóð, og hefði ein-
leikari verið Roger Carlsson, mar-
imbuleikari. „Það var troðfullt hús
og þegar tónleikunum var lokið
voru einleikarinn og hljómsveitar-
stjórinn, Juníchi Hirokami, hylltir
og þegar ég var kallaður upp á
svið stóð allur salurinn upp og
ætlaði fagnaðarlátunuin seint að
linna,” segir Áskell. „Daginn eftir
var verkið tekið upp á geisladisk,
sem kemur út næsta vor. Á laugar-
daginn, 9. nóvember, voru tónleik-
arnir svo endurteknir og á sunnu-
dag var frumflutt eftir mig verk í
Stokkhólmi á stórri slagverkshátíð,
sem þar var. Þetta var einleiksverk
sem ég samdi upp úr marimbukons-
ertinum.”
„Sama kvöld,” segir Áskell, „var
flutt eftir mig verkið Októ Nóvemb-
er, fyrir strengjasvéit, í Vaxjö, í
Morgunbl aðið/Bj ami
Áskeli Másson tónskáld.
Svíþjóð. Það verk hefur síðan verið
flutt í fimm borgum í Svíþjóð. Það
er Musica Vitae kammersveitin
ásamt Petri Zakari, hljómsveitar-
stjóra, sem hefur flutt það.”
Það var þessi kammersveit sem
flutti verkið í Danmörku á fimmtu-
dag. Áskell sagði að marimbukon-
sertinn hefði hann samið eftir pönt-
un af Nomus sjóðnum, sem sé sjóð-
ur sem öll Norðurlöndin taki þátt
í og úr honum séu pöntuð tónverk.
Skilyrði um að verkið yrði frum-
flutt í Svíþjóð, hafi fylgt þessari
pöntun.
Aðspurður um framhaldið, sagði
Áskell að uppi væru áform um að
meira yrði spilað eftir hann. „Það
virðist vera mikill áhugi, bæði hjá
Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar og
þeim aðilum sem reka Musica Vitea
kammersveitina, en þeir heita Mus-
ik i Kronoberg, og reka þeir bæði
kammersveitina og blásarakvint-
ettinn Quintessence. Ég er einmitt
að ljúka við stórt verk fyrir blásara-
kvintettinn, sem einnig er eftir
pöntun. Þetta verk verður frum-
flutt bæði á íslandi og í Svíþjóð í
janúar á næsta ári, í tónleikaferð
Quintessence hópsins.”
Það hefur nú verið á döfinni í
nokkurn tíma að ópera éftir Áskel
yrði frumflutt á Listahátíð. Ekkert
hefur orðið að því enn og nýlega
var hætt við vegna ijármagnsleys-
is. „Listahátíð vissi að ég væri með
óperu, og átti hún að vera frum-
flutt núna á næstu hátíð, en það
fékkst ekki fjármagn. Nú er því
rætt um að flytja hana á Listahá-
tíð 1994, en það er alls óvíst. Þetta
er með viðamestu verkum sem hér
á landi hafa verið samin." Áskell
segir að hann sé orðinn þreyttur á
þessu máli. „Ég hef þrívegis tekið
stór lán til þess að geta unnið að
þessu verki og hef enn ekki fengið
neinn samning um uppfærslu þess.
Ég stend þess vegna ákaflega illa
af þéssum sökum,” sagði Askell
Másson að lokum.
að engar peningagreiðslur hafi átt
sér stað en kaupverð eignarinnar
er ekki gjaldfært á móti. Þannig
er misræmi milli færslna á tekna-
og gjaldahlið sem sýndi betri af-
komu ríkissjóðs en raun er á”.
Nánari grein er gerð fyrir bók-
haldsmeðferð þessara og annarra
fasteignakaupa og síðan segir: „I
fjárlögum og fjáraukafrumvarpi
fyrir árið 1991 er gerð grein fyrir
tveimur atriðum í þessu sambandi:
heimildum fyrir peningagreiðslum
að fjárhæð 580 m. kr. og tekjum
vegna virði eigna sem ríkissjóður
lét af hendi i makaskiptum. Hins
vegar er ekki færður til gjalda sá
hluti kaupverðs sem greiddur er
með lánum eða sá hluti sem greidd-
ur var með öðrum eignum. Hér er
um að ræða rúmlega 700 m. kr.
gjaldfærslu á skuldbindingum rík-
issjóð en án greiðsluheimilda.”
Meðal breytingartillagna fjár-
laganefndar, sem fela í sér út-
gjaldaauka á árinu, eru:
* Alþingi, 5,1 m. kr.
* íslenzka óperan, 10 m. kr.,
* Framhaldsskóli á Húsavík,
nýbygging, 5 m. kr.
* Jarðræktar- og búfjárræktar-
framlög, hækkun, 35 m. kr.
* Lögreglustöð í Grindavík,
hækkun, 2 m. kr.
* Biskupsembættið (m.a. til
alþjóðasamvinnu), hækkun, 2.8
m. kr.
* Sjúkrahús í Keflavík, nýr lið-
ur, 3. m. kr.
* Ríkisspítalar, hækkun, 21
m. kr.
* Fasteignakaup, hækkun, 700
m. kr.
* Halli á Hríseyjarfeiju, 7. m.
kr.
* Rannsóknarnefnd flugslysa
1,5 m. kr.
* Hótel, framlög (skuldum við
ferðamálasjóð breytt í hlutafé, í
samræmi við skuldbindingar þar
um), 16 m. kr.
* Styrkveiting til Hitaveitu
Hvalfjarðar, 3 m. kr.
* Veiðistjóri vegna flutninga
og halla frá síðasta ári, 9.5 m. kr.
* Landmælingar íslands, korta-
gerð, hækkun, 2 m. kr.
Nefndaráliti fjárlaganefndar um
frumvarp til fjáraukalaga fylgir
yfirlit um lækkun framlaga til
framkvæmda, m.a. við skóla,
sjúkrahús og vegagerð.
LANDSLAGIÐ1991, SÖNGLAGAKEPPNIÍSLANDS
ATKV ÆÐASEÐILL
Landslagið 1991 er að mínu mati:
□ DansaÖu við mig - Eldfuglinn
□ ÞaÖ er ekki hægt annaÖ - ómar og ÞuríÖur
□ Vængbrotin ást - Þúsund andlit
□ Enginn er eins og þú - Herramenn og Ruth
□ Ég vil dufla og daöra - Edda Borg
Merkið aöeins viö eitt lag.
AtkvæÖaseÖlar þurfa aÖ hafa borist
til Rásar 2 fyrir 26. nóvember.
Utanáskriftin er: Rás 2, Landslagið,
Efstaleiti 1,150Reykjavík.
□ HlustaÖu - Ruth Reginalds
□ Reykjavflc - Ágúst Ragnarsson
□ Sigrún ríka - íslandsvinir
Q Ég aldrei þoröi - Anna Mjöll
Q Svo lengi - SigríÖur GuÖnadóttir.
Nafn:.............................
Heimilisfang:.....................
Póstnr.:.................... Sími:
Landslagskeppnin hefst
SÖNGLAGAKEPPNIN Landslagið 1991 er haldin um þessar mund-
ir. Það eru alls tíu lög sem keppa til úrslita, og eru þau kynnt í
þáttunum 9-fjögur og Landið og miðin á Rás 2, frarn til 29. nóvember.
Þau tíu lög, sem keppa til úr-
slita, voru valin af dómnefnd fyrr
í haust. Nú hefur verið skipuð átta
manna dómnefnd, sem velur lands-
lagið í ár. Atkvæðaseðill, sem hér
er birtur, verður að hafa borist Rás
2. fyrir -26. nóvember, Atkvæði
hlustenda gilda 20% á móti atkvæð-
um dómnefndar og atkvæðum gesta
á lokakvöldinu, sem verður haldið
á Hótel íslandi, föstudagskvöldið,
29. nóvember. Verður því útvarpað
í beinni útsendingu í Sjónvarpinp
og-á Rás-2:---------;--------------