Morgunblaðið - 16.11.1991, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
Finnland:
Gengið fellt og
þjóðarsátt í hættu
Ilelsinki. Frá Lars Lundsten. fréttaritara Morgunblaðsins.
STJORN Finnlands lækkaði gengi finnska marksins á fimmtudag
og Finnar óttast að gengisfellingin leiði til mikillar verðbólgu og
þess að aðilar vinnumarkaðarins nái ekki samkomulagi um fram-
kvæmd þjóðarsáttarinnar, sem hefur verið í undirbúningi undanfarn-
ar vikur.
Stjórnin ákvað í gær að tengja
markið aftur við evrópsku myntein-
inguna, Ecu, en það verður hins
vegar skráð á 14% lægra gengi en
áður. Gengi marksins lækkaði að
meðaltali um 12,3% miðað við aðra
gjaldmiðla.
Erlendar skuldir Finna námu alls
160 milljörðum fmnskra marka
(2.300 milijarða ÍSK) ogjukustþær
sem nemur gengisfellingunni. Enn-
fremur eru nú miklar líkur á að
verðbólgan fari ört vaxandi en hún
hefur ekki verið teljandi undanfarin
ár. Þess vegna virðist nú ólíklegt
að vinnuveitendur og launþegasam-
tök geti náð samkomulagi um fram-
kvæmd þjóðarsáttar, sem felur í sér
þriggja prósenta launalækkun, eins
og stefnt hefur verið að undanfarn-
ar vikur. Kalavi Sorsa, einn stjórn-
armanna finnska seðlabankans,
sagði sig í gær úr bankastjórninni
og hætti jafnframt að stjórna við-
ræðunum um þjóðarsátt. Sorsa átti
Sænska þingið:
Barátta gegn
kynþáttahatri
Stokkhólmi. Frá fréttaritara Morgun-
blaðsins, Erik Liden.
SÆNSKA þingið ætlar að hefja
baráttu gegn innflytjendaandúð
og kynþáttahatri. Verður það
gert með formlegri yfirlýsingu,
sem lögð verður fyrir þingið og
vafalaust samþykkt þann 10. des-
ember nk., á Nóbeldeginum og
flóttamannadegi Sameinuðu
þjóðanna.
hugmyndina að því að samið yrði
um launalækkanir.
Gengisfellingin hefur einnig
valdið fjaðrafoki innan ríkisstjórn-
arinnar og í stjórn seðlabankans.
Talið var í gær að Esko Aho forsæt-
isráðherra (Miðfl.) myndi standa af
sér vantrauststillögu á þinginu seint
í gærkvöldi. Ennfremur þótti víst
að Iiro Viinanen fjármálaráðherra
(Hægrifl.) sitji áfram þrátt fyrir
hótanir hans um að hann myndi
segja af sér ef til gengisfellingar
kæmi.
Reuter
David Duke kyssir litlar, ljóshærðar og vafalaust bláeygðar stúlkur í kosningabaráttunni. Frambjóðand-
inn var Ku Klux Klan-leiðtogi og aðdáandi Hitlers yngri árum, segist nú hafa varpað kynþáttahleypidóm-
um sínum fyrir róða en ráðgjafar hans ræða þungbúnir um kynblöndun og hættur sem steðji að hvíta
kynstofninum.
Nýr ríkisstjóri valinn í Louisiana í dag:
Bush forseti hvetur flokksmenn
sína til að kjósa demókratann
New Orleans, Washington. Reuter, Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR repúblikana gera nú allt sem þeir geta til að reyna að
koma í veg fyrir að öfgasinninn David Duke verði kjörinn ríkisstjóri
Louisianaríkis í kosningnum sem fram fara í dag, laugardag. Duke
segist vera repúblikani og engin lög geta bannað honum það né flokk-
urinn rekið hann þar sem flokksskirteini tíðkast ekki. George Bush
forseti hefur notað óvei\ju sterk orð til að vara kjósendur við Duke,
segir að þeir megi ekki „styðja hleypidóma, gyðingahatur, kynþáttafor-
dóma og allan (jótleikann sem stafar af þessum maimi”. Duke svarar
því til að innra með sér sé Bush á sama máli og hann. Frambjóðand-
inn minnir auk þess á að Bush var sakaður um að höfða til kynþátta-
fordóma í baráttu sinni við Michael Dukakis 1988. í skoðanakönnunum
kemur fram að 70% Bandaríkjamanna eru andvíg Duke sjálfum en
sammála helstu stefnumálum hans.
Duke segist vera dyggur stuðn-
ingsmaður hugsjóna repúblikana og
leggur áherslu á baráttu gegn kerf-
inu. Hann reynir að höfða til
óánægðra, hvítra kjósenda sem telja
að hörundsdökku fólki sé hyglað um
of á kostnað þeirra. Duke vill skera
niður velferðarkerfið og leggur til
að þeim sem þiggja aðstoð verði
gert skylt að vinna auk þess sem
hætt verði að láta blökkumenn
ganga fyrir þegar ráðið er í störf.
Það sem veldur ugg eru ekki þessi
stefnumál í sjálfu sér enda er hann
ekki einn um þau, heldur fortíð fram-
bjóðandans og ýmsar yfirlýsingar
hans um sambúð kynþáttanna. Hann
var eitt sinn æðsti prestur Ku Klux
Klan-samtakanna, er misþyrmdu
blökkumönnum og hefur við nokkur
tækifæri lýst aðdáun sinni á leiðtoga
þýskra nasista, Adólf Hitler. Nú full-
yrðir Duke, sem er 41 árs, að Hitlers-
dýrkun hans hafí verið unggæðings-
háttur, segist vera orðinn sanntrúað-
ur, kristinn maður.
Duke sigraði starfandi ríkisstjóra,
Buddy Roemer, sem er repúblikani,
í forkosningum en Roemer reyndi
ákaft að hreinsa til í stjórnmálum
ríkisins sem hefur áratugum saman
verið alræmt fyrir spillingu. Tekjur
af olíuvinnslu ollu því að flestir höfðu
það ágætt og skattar voru lágir en
nú hefur sigið á ógæfuhliðina, olíu-
lindirnar að þverra. Roemer þótti
hins vegar hrokafullur og vann ekki
hylli landsmanna. Bush forseti hvet-
ur repúblikana í Louisiana til að
gleyma flokkstryggðinni að þessu
sinni og kjósa frambjóðanda demó-
krata, Edwin Edwards, sem var rík-
isstjóri í mörg ár. Hann er sagður
dæmigerður fulltrúi spillingarinnar.
Hann hafnar reyndar ekki þeim
ásökunum og hefur verið ákærður
tvisvar fyrir svindl, einnig er
kvennafar hans afar skrautlegt.
Áhersla verður lögð á aukna
fræðslu en andúð á innflytjendum,
sem var mjög áberandi fyrir um
tveimur árum hefur blossað upp
aftur í Svíþjóð. Hafa þar meðal
annars verið að verki stuðnings-
menn hreyfíngarinnar „Svfþjóð fyr-
ir Svía” og lögreglan oft fengið lít-
ið að gert. Þá hafa nokkrir innflytj-
endur og verslunareigendur í
Stokkhólmi verið myrtir og fyrir
viku var íranskur námsmaður drep-
inn fyrir utan Tækniháskólann þar
í borg.
smáskór
Ullarfóðruð Moonbuds í st: 22-30.
Litir: Bleikur
eða mint
grænn.
Verð: 2.885.-
Svartir.
Stærðir:
31-35.
Verð: 2.485..
Smáskór,
Skólavörðustíg 6B.
Póstsendum, s: 622812
Opið laugardag kl. 10-16.
James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Kína:
Ólíklegt talið að Kínverjar fallist
á úrbætur í mannréttindamálum
Pekmg. Reuter, The Daily Telegraph.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í gær til
Peking til tveggja daga viðræðna við kínverska ráðamenn. Búist
er við að hann vekji máls á mannréttindabrotum kínversku sljórnar-
innar en ólíklegt er þó talið að hún breyti stefnu sinni, meðal ann-
ars, vegna þess að viðhorf hennar til mannréttinda eru allt önnur
en Bandaríkjamanna.
Baker er æðsti embættismaður
Bandaríkjanna sem farið hefur í
opinbera heimsókn til Kína eftir
fjöldamorð kínverska hersins á
Torgi hins himneska friðar í byijun
júní árið 1989. Ljóst er að George
Bush Bandaríkjaforseti tekur
mikla áhættu með því að senda
utanríkisráðherrann til Kína því
hann hefur sætt gagnrýni fyrir lin-
kind í garð þarlendra stjórnvalda.
Bush knúði það í gegn í sumar
að samningur um hagstæðustu
viðskiptakjör til handa Kínverjum
yrði framlengdut um eitt ár þrátt
fyrir að meirihluti þingsins væri
því andvígur. Á næsta ári, þegar
Bandaríkjamenn ganga til forseta-
kosninga, kann þingið að setja það
skilyrði fyrir áframhaldandi bestu-
kjaraviðskiptum að stjómvöld í
, Peking láti pólitíska fanga lausa
og virði mannréttindi. Bush vonast
til að heimsókn Bakers verði til
þess að kínversk stjórnvöld fallist
á nægar tilslakanir til að Kína
verði ekki eitt af kosningamálun-
um á næsta ári.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Peking telja hins vegar ólíklegt
að heimsóknin leiði til meiriháttar
breytinga á stefnu kínversku
stjómarinnar í mannréttindamál-
um þótt hún kunni að láta lausa
nokkra andófsmenn, sem voru
handteknir þegar herinn kvað nið-
ur mótmælin í Peking 1989.
Kínverjar líta mannréttindi
öðrum augum
Áður en kínverski herinn lét til
skarar skríða gegn mótmælendun-
um í Peking var kínverskum ráða-
mönnum hampað á Vesturlöndum
sem umbótasinnum. Eftir fjglda-
morðin hefur hins vegar verið litið
á þá sem blóðhunda.
Kínversk stjórnvöld hafa hins
vegar allt aðrar skoðanir á mann-
réttindamálum en Bandaríkja-
menn og aðrir Vesturlandabúar.
Þau líta svo á að fjöldamorðin í
Peking séu smámunir í saman-
burði við ógnaröldina sem ríkti í
Kína í menningarbyltingunni
1966-76 og hörmungamar sem
gengu yfír landið í „Stóra stökkinu
fram á við” 1958-60, er milljónir
manna urðu hungurmorða vegna
róttækra efnahagsaðgerða stjórn-
valda.
Margir af núverandi valdhöfuni
í Kína voru sjálfír fómarlömb þess-
ara herferða og hafa svarið þess
eið að þær verði ekki endurteknar.
Þeir leggja áherslu á að efnahags-
leg umbótastefna þeirra hafí borið
mikinn árangur frá því þeir kom-
ust til valda fyrir rúmum áratug.
Þeim hafí tekist að tryggja 1,1
milljarði Kínveija rétt til þess að
hafa í sig og á. Þeir hafí stórbætt
heilsugæsluna, samgöngumar og
skólakerfíð.
„Það er mjög eðlilegt að Kínverj-
ar og Bandaríkjamenn hafí ólíkar
skoðanir á ákveðnum sviðum
mannréttindamála,” sagði Wu
Jianmin, talsmaður kínverska ut-
anríkisráðuneytisins. „Þetta ætti
samt ekki að koma niður á sam-
vinnu þeirra.”
Kínverskum stjórnvöldum virð-
ist þó svíða undan ásökunum
Bandaríkjamanna um mannrétt-
indabrot því þær urðu til þess að
kínverska stjórnin birti í fyrsta
sinn bækling um mannréttindamál
nýlega. Þar segir meðal annars að
án réttarins til að hafa í sig og á
séu önnur mannréttindi merking-
arlaus. Stefna stjórnarinnar í
mannréttindamálum sé í algjöru
samræmi við menningarhefðir
Kínveija og stöðu kínversks efna-
hags.
Stjórnarerindrekar segja að
æðstu erobættismennirnir í Peking
árf 4»^ V
líti á ásakanir Bandaríkjamanna
sem lið í tilraunum til að grafa
undan kínversku stjórninni í kjölf-
ar hruns kommúnismans í Sovét-
ríkjunum, Austur-Evrópu og víðar
í heiminum. „Þeir taka þetta per-
sónulega og telja að þeim stafí
hætta af Bandaríkjamönnum þar
sem baráttumennirnir gegn kom-
múnismanum geti nú aðeins beint
sjónum sínum til Kína," sagði einn
þeirra.
Líkur á samkomulagí um
vopnasölu
Bandaríkjamenn hafa einnig
gagnrýnt Kínveija fýrir sölu á
vopnum, meðal annars kjarnorku-
eldflaugum, til Austurlanda nær.
Liklegt er að heimsókn Bakers
verði til þess að Kínveijar skuld-
bindi sig til að takmarka vopna-
sölu sína til svæða þar sem hætta
er á stríði. Ennfremur er búist við
að Baker leiti eftir samkomulagi
um að Bandaríkjamenn og Kín-
veijar beiti sér í sameiningu fyrir
því að Norður-Kóreumenn hætti
við áform sín um að framleiða
kjarnorkuvopn. Þá er talið að kín-
versk stjórnvöld kunni að gefa út
yfírlýsingu um að fangar verði
ekki notaðir til að framleiða vörur,
sem fluttar eru út til Bandaríkj-
anna, en slík nauðungarvinna hef-
ur sætt harðri gagnrýni í Banda-
ríkjunum.