Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
21
Noregur:
Arne Tre-
holt neitað
um náðun
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara
Morgunblaósins.
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið
mikið deilt í norsku stjórninni
um mál njósnarans Arne Tre-
holts en ríkisstjórnin ákvað í gær
að hafna umsókn hans um náðun.
Vitað er að margir ráðherrar í
stjórn Verkamannaflokksins voru
hlynntir því að umsókn Treholts
yrði veitt brautargengi. Meðal
þeirra voru Torbjorn Berntsen um-
hverfismálaráðherra og Tove
Strand atvinnumálaráðherra, sem
bæði voru kunningjar njósnarans,
en Kari Gjesteby dómsmálaráð-
herra var mjög andvíg náðun.
Gjesteby sagði stjórnina hafa
komist að þeirri niðurstöðu að rangt
væri að framkvæmdavaldið gripi í
raun fram fyrir hendurnar á dóms-
valdinu með því að náða njósnar-
ann. Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra og Thorvald Stolten-
berg utanríkisráðherra voru bæði á
móti náðun. Treholt hefur setið inni
í átta ár en hann var dæmdur í 20
ára fangelsi fyrir að njósna fyrir
Sovétmenn.
Reuter
Ashrawi verði dregin fyrir rétt
Lögregluyfirvöld í ísrael lögðu til í gær að Hanan Ashrawi, talsmað-
ur palestínsku fulltrúanna á ráðstefnunni um frið í Miðausturlönd-
um í Madrid, yrði dregin fyrir rétt vegna tengsla við Frelsissam-
tök Palestínumanna (PLO). Ashrawi sagði þetta lið í tilraunum
Israela til að þagga niður í henni. Á myndinni ávarpar hún fund
palestínskra háskólanema á Vesturbakkanum í gær.
Rússland:
Ríkiseinokun í utan-
ríkisverslun afnumin
••
011 olíuútflutningsleyfi numin úr gildi
Moskvu. Reuter.
iZutcUlCL
Heilsuvörur
nútímafólks
Misstu ekki af ódýrustu
fermingarmyndatökunum í
vor !
Myndatökur á kr. 10.500,00 innifalið 6 myndir 9 x 12 cm og 2
stækkanir 20 x 25 cm.
og ein stækkun 30 x 40 cm í ramma
Ljósmyndastofumar:
Bama og fjölskylduljósmyndir Armúla 38 sími 677-644
Ljósmyndastofan Mynd Hafnarfirði sími 65-42-07
Ljósmyndatofa Kópavogs sími 4-30-20
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti gaf í gær út tilskipanir um víðtækar
efnaliagsráðstíifanir sem hann sagði stjórn sína hafa samþykkt.
Meðal annars afnam hann ríkiseinokun sem gilt hefur um öll utanrík-
isviðskipti.
Jeltsín, sem einnig gegnir starfi
forsætisráðherra Rússlands, gaf
m.a. út tilskipun þar sem yfirstjórn
gull- og demantavinnslunnar í
Rússlandi er tekin úr höndum sovét-
stjórnarinnar og færð undir ríkis-
stjórn hans. Sömuleiðis nam hann
öll olíuútflutningsleyfi úr gildi. Að
sögn Jegors Gajdars, fyrsta aðstoð-
arforsætisráðherra, er það gert til
að tryggja nægt olíu- og eldsneytis-
framboð heima fyrir.
í þingræðu sagði Jeltsín að stjórn
sín hefði samþykkt að opna landið
fyrir erlendum fjárfestingum og
myndu útlendingar fá jafnan rétt
til íjárfestinga í rússnesku efna-
hagslífí og heimamenn. Tilskipan-
irnar höfðu ekki verið birtar opin-
berlega í gær en Jeltsín sagði í þing-
inu að rússneska stjórnin hefði nú
tekið yfir stjórn verulegs hluta sov-
ésks atvinnu- og efnahagslífs. Hann
boðaði breytingar á ríkisstjórn sinni
og sagði að ráðherrum yrði fækkað
úr 46 í 23.
■ BELFAST - Bresk yfirvöld
sendu í gær hundruð hermanna til
Belfast til viðbótar þeim sem voru
þar fyrir eftir að þrír menn, tveir
kaþólikkar og einn mótmælandi,
höfðu verið skotnir til bana. Talið
er að mótmælendur hafi myrt
mennina til að hefna drápa írska
lýðveldishersins (IRA) á fjórum
mönnum daginn áður.
■ TYRUS - Þrjú börn biðu
bana í gær þegar ísraelskir her-
menn og líbanskir bandamenn
þeirra gerðu stórskotaárásir á þorp
í suðurhluta Líbanon's. Þetta er
harðasta árásin sem gerð hefur
verið á svæðinu á undanförnum
vikum.
■ TAPAI - Að minnsta kosti 33
manns fórust og rúmlega hundrað
slösuðust þegar hraðlest rakst aftan
á kyrrstæða lest í norðvesturhluta
Tævans í gær. Þetta er mesta lest-
aslys í sögu landsins. Talsmaður
samgönguyfirvalda sagði að hrað-
lestin hefði komið „mínútu á
undan áætlun”.
Kœrar þakkir til allra þeirra, er sýndu mér
hlýhug á sjötugsafmœlinu mínu.
Guðmunda Jónasdóttir,
Höfðagötu 21, Stykkishólmi.
Stórlækkað verð á jólastjörnu,
frákr. 560.-
BIómastofaFriófínns
Suðurlandsbraut 10,108 Reykjavík, sími 31099.
Maður, líttu þér nær!
Hjá okknr tærðii Hlleg föt
á oróöii \ eröi
t ’
dnengjjapeysa kr. 1.995
drengjjabuxur kr. 2.495
henrapeysa kr. 3.995
herrabuxur kr. 2.995
I rullukragabolur kr. 995 1
I telpnapeysa kr. 2.495
1 telpnabuxur kr. 1.995 1
ríítlukragabolur kr. 495
dömupeysa kr. 3.995
domubuxur kr. 2.995
1 rullukragafeolur kr. 995 |
ii k' M
I V 1
(tjp :*&
*í'þwL.í :»... ... 'éi
ssgsséfefta '* ■ H.
<r •'*.'*
i
T'i
I
Mk\
a
KAUPSTAÐUR yHIKUG4RDUR