Morgunblaðið - 16.11.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ 'LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
25
Lakkrís eftir fiðlutíma
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Henni Sunnu þótti upplagt að tylla sér aðeins
niður og maula lakkrís á meðan hún beið eftir
að mamma kæmi að sækja hana eftir fiðlutíma
í Tónlistarskólanum á Akureyri.
Listvinafélag stofnað
við Akureyrarkirkju
LISTVINAFÉLAG við Akureyrarkirkju verður stofnað á fundi í safnað-
.arheimili kirkjunnar kl. 16 á morgun, sunnudag. Markmið félagsins
verður að efla tengsl kirkjunnar við listafólk. Hátíðarmcssa verður í
Akureyrarkiriyu á morgun, en þann dag er vígsluafmæli kirkjunnar.
Undirbúningur vegna stofnunar
Listvinafélagsins hefur staðið yfir
um skeið og á morgun verður stofn-
fundur haldinn í Safnaðarheiinili
Akureyrarkirkju. Þann dag er vígslu-
afmæli kirkjunnar, en 51 ár er liðið
frá því hún var vígð og eitt ár frá
því Safnaðarheimilið var tekið í notk-
un.
Bjöm Steinar Sólbergsson organ-
isti við Akureyrarkirkju sagði að
markmið Listvinafélagsins yrði að
efla og styðja við listastarfsemi af
ýmsu tagi við Akureyrarkirkju og
hyggðist féiagið ná markmiðum sín-
um með því að hvetja til listsköpunar
er tengist kirkju og kristindómi auk
þess sem félaginu væri ætlað að
vera vettvangur umræðna um kirkj-
ulist.
Kirkjulistavika hefur tvívegis verið
haldinn við Akureyrarkirkju og þá
hefur kirkjan í samvinnu m.a. við
Húsavíkurkirkju og Reykjahlíðar-
kirkju í Mývatnssveit staðið fyrir
Sumartónleikum í þessum kirkjum 5
síðastliðin sumur.
Hátíðarmessa verður í kirkjunni á
morgun, sunnudag á vígsluafmæli
hennar og mun Kvenfélag Akur-
eyrarkirkju efna til basars og kaffi- ‘
sölu að lokinni messu í Safnaðar-
heimilinu, en ár er liðið frá því það
var tekið í notkun.
Akureyrarbær og Raupfélag Eyfirðinga:
Meira tap vegna gjaldþrots
Istess en gert var ráð fyrir
Einföld ábyrgð vegna láns upp á 33 milljónir fellur líklega á þessa aðila
AKUREYRARBÆR mun tapa mun meira fé vegna gjaldþrots ístess
hf. en gert var ráð fyrir í endurskoðaðri fjárhagsáætlun, en líklegt
er að einföld ábyrgð sem bærinn ásamt Kaupfélagi Eyfirðinga veitti
fyrir tveimur árum muni falla á þessa aðila. Fóðurverksmiðjan Laxá
hf. sem stofnuð var eftir gjaldþrot ístess síðasta sumar hefur óskað
eftir kaupum á verksmiðjuhúsi í Krossanesi, en bærinn hefur tekið
sér frest til 27. nóvember til að svara tilboðinu.
Akureyrarbær og Kaupfélag Ey-
fírðinga voru í ábyrgðum vegna
láns sem tekið var í ágúst árið
1989 að upphæð 23 milljónir króna,
en það var tiyggt með veði í
verskmiðjuhúsi Istess hf. í Krossa-
nesi. Upphæðin er nú komin í tæp-
ar 33 milljónir króna, sem skiptist
jafnt á milli bæjaris og KEA, þann-
ig að líklegt er að rúmlega 16 millj-
ónir króna muni falla á þessa aðila
til viðbótar því sem áður hafði ver-
jð gert fyrir.
Laxá hf. hefur óskað eftir kaup-
um á verksmiðjuhúsinu við Krossa-
nes og hljóðar kauptilboðið upp á
28 milljónir króna. Bæjarráð Akur-
eyrar hefur tekið sér frest til 27.
nóvember til að svara kauptilboð-
Harka hlaupin í mjólkursamlagsdeiluna;
Utilokað að hækka launin
nema til komi hagræðing
- segir Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri Vmnumálasambandsins
inu, en verði því tekið er ljóst að
lánið mun falla á bæinn og kaupfé-
lagið.
Heimir Ingimarsson formaður
bæjarráðs sagði ljóst að skellur
bæjarins yrði mun meiri en gert
hafi verið ráð fyrir þegar fjárhagsá-
ætlun yfirstandandi árs var endur-
skoðuð í ágúst síðastliðnum. Bær-
inn muni tapa umtalsverðum fjár-
munum vegna gjaldþrotsins auk
þess sem allt hlutafé hans í fyrir-
tækinu um 80 milljónir króna tapist.
Rekstur Laxár gengur mun betur
en búist hafði verið við og sagði
Einar Sveinn Ólafsson verksmiðju-
stjóri að sala hafi verið mun meiri
en von var á. Þar komi m.a. til
gott árferði síðasta sumar, sem
varð til þess að laxinn óx hraðar
og þurfi þar af leiðandi meira fóð-
ur, þá hafi þeim Laxármönnum tek-
ist að smíða margskonar búnaði til
framleiðslu seiðafóðurs, en það var
áður flutt inn.
Söfnun til
kaupaá
nýrnavél fyr-
irFinnEydal
SÖFNUN á fé til kaupa á
„nýrnavél” fyrir Finn Eydal
tónlistarmann er að hefjast á
vegum Zontaklúbbsins Þór-
unnar hyrnu á Akureyri. Finn-
ur er kiarinettuleikari og tón-
listarkennari og landsmönn-
um að góðu kunnur fyrir
framlag sitt til íslensks tónlist-
arlifs. Hann er nýrnasjúkling-
ur og þarf að nota „nýrnavél”
þrisvar í viku, en hún er stað-
sett á Landspítalanum. Af því
hlýst að Finnur getur ekki
stundað starf sitt við Tónlist-
arskólann á Akureyri og horf-
ir fjölskylda hans fram á að
þurfa að flytja til Reykjavíkur.
Zontakonur vilja gera Finni
kleift að eignast eigin „nýma-
vél” sem staðsett yrði á heimili
hans, eins og sérfræðingar mæla
eindregið með og gera á þann
hátt fjölskyldu hans mögulegt
að búa áfram á Akureyri. Þegar
að því kemur að Finnur þarf
ekki að nota „nýmavélina” leng-
ur, muni Norðlendingur sitja fyr-
ir með afnot af henni.
Ákveðið hefur verið að efna
til styrktartónleika vegna söfn-
unarinnar og verða þeir haldnir
í Reykjavík 5. desember næst-
komandi og á Akureyri degi síð-
ar eða 6. desember. Fjölmargir
landskunnir listamenn sunnan
og norðan heiða munu stilla sam-
an strengi sína af þessu tilefni,
en á meðal aðila sem stuðla að
skemmtuninni eru Tónlistarskól-
inn á Akureyri, Tónlistarskóli
Eyjafjarðar, Lúðrasveit Akur-
eyrar, Jazzklúbbur Akureyrar,
Sjallinn og Jazzvakning í
Reykjavík.
Tónlistarmönnum sem vilja
leggja málinu lið er bent á Atla
Guðlaugsson hja Tónlistarskóla
Eyjafjarðar eða Kolbein Gíslason
í Sjallanum.
Þá munu félagar úr Þómnni
hyrnu leita til fyrirtækja og fé-
lagasamtaka um framlög, en
safna þarf um 1,5 milljónum
króna til tækjakaupanna.
MIKIL harka virðist hlaupin í deilu Vinnumálasambands samvinnufélag-
anna og Iðju, félags verksmiðjufólks og Verkalýðsfélags Húsavíkur
vegna ágreinings um námskeiðsálag til ófaglærðs starfsfólks mjólkur-
samlaganna. Verkfall var í samlögunum i gær, föstudag og svo verður
einnig á mánudag og þriðjudag, en unnið verður í Mjólkursamlagi KEA
á Akureyri í dag, laugardag. Sáttasenyari hefur boðað fund í deilunni
á Akureyri á miðvikudag, en finnist ekki lausn skellur á ótímabundið
verkfall frá og með 25. nóvember næstkomandi.
Ekkert þokaðist í samkomulagsátt
á fundi deiluaðila með sáttasemjara
á fundi á fimmtudagskvöld. Hjörtur
Eiríksson framkvæmdastjóri Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna
sagði í gær að enginn árangur hefði
orðið á fundinum. Ljóst væri að um
afar erfitt mál væri að ræða og aðil-
ar gerðu sér grein fyrir þunga þess.
Hann sagði að námskeiðsálagið sem
deilan snýst um og tíðkast í öðrum
greinum matvælaiðnaðar hefðu kom-
ið til á sínum tíma vegna þess hversu
lág laun voru greidd í matvælaiðnaði
og 'á cihhvétrt ■hóft hefði þurft að
lyfta þeim upp. Ófaglært starfs-
fólk í mjólkuriðnaði hefði hins
vegar búið við önnur og betri kjör.
„Það er útilokað að við getum
hækkað launin, nema þá að eitthvað
komi á móti, einhvers konar hagræð-
ing sem hefði það í för með sér að
ekki yrði um að ræða kostnaðarauka
fyrir samlögin. Við ræddum þessi
mál lítillega á fundinum og munum
eflaust fara betur í saumana á
þeim möguleikum sem fyrir hendi
er á þeim vettvangi,” sagði Hjört-
ur. „Staðan er mjög þung og því
miður sýnist mér á öllu að'stefnt
geti í langt verkfall. Ég hef af því
þungar áhyggjur,” sagði hann.
Kristín Hjálmarsdóttir formað-
ur Iðju sagði félagið myndi ekkj
hvika frá sínum kröfum. „Við vilj-
um ná fram viðurkenningu á
starfsnámi þessa fólks, það er
okkar krafa og frá henni verður
ekki hvikað.” Félagið hafnaði alf-
arið tilboði Vinnumálasambands-
ins um eingreiðslu vegna nám-
skeiðanna á þessum forsendum.
Þórarinn E. Sveinsson mjólkur-
samlagsstjóri sagði að ríflegur
skammtur af mjólkurvörum hefði
verið sendur í verslanir á fimmtudag,
þá yrði unnið við átöppun og út-
keyrslu í dag, laugardag og ættu
birgðir því að endast fram á þriðju-
dag er verkfalli lýkur. Fólk ætti því
ekki að svo stöddu að verða vart við
skort á mjólkurvörum vegna verk-
fallsins, en þó gæti vantað einstaka
tegundir í verslanir eftir helgi.
Töfrallautan - miiapantanir
Islenska óperan sýnir Töfraflautuna eftir
Mozart í félagsheimilinu Ydölum, Aðaldal
sunnudaginn 24. nóvernber kl. 15.00 og
20.30.
Miðapantanir eru teknar í síma félagsheim-
ilisins, 43588, fró mónudegi 18. nóv. til
föstudags 22. nóv. kl. 17-19. Laugardag
23. nóv. kl. 14-17 og sýningardag.
Sala aðgöngumiða og pantana við inn-
ganginn.
Menor - Félagsheimiliö Ýdalir.