Morgunblaðið - 16.11.1991, Blaðsíða 32
c~
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
Gunnlaugur Jónas-
son fv. bankagjaldkeri,
Seyðisfirði - Minning
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast Gunnlaugs Jónassonar,
en hann lést 10. nóvember sl. á
sjúkrahúsinu á Seyðisfírði. Gunn-
laugur fæddist á Eiðum í Eiðaþing-
há 18. janúar 1895. Hann var því
á 97. aldursárinu þegar hann lést.
Foreldrar Gunnlaugs voru Jónas
Eiríksson, þá skólastjóri á Eiðum,
og Guðlaug Margrét Jónsdóttir frá
Eiríksstöðum á Jökuldal. Gunn-
laugur stundaði nám á Eiðum og
á Hólum, en þaðan varð hann bú-
fræðingur árið 1913. Fljótlega upp
úr því fluttist hann til Seyðisfjarðar
og vann að mestu við verslunar-
störf á Vestdalseyrinni. Þar var þá
mikil verslun og sóttu Héraðsmenn
og Jökuldælingar mikið verslun
þangað. Var því talsvert um að
vera á Vestdalseyrinni í þá daga.
Árið 1931 fékk Gunnlaugur
vinnu í útibúi Utvegsbanka Islands
á Seyðisfirði og gerðist bankagjald-
keri. Þar vann hann í 30 ár eða til
ársins 1961. Þegar hann nú var
kominn í fasta vinnu og fluttur inn
í bæ, lét hann verða af því að festa
ráð sitt og 19. desember 1931
kvæntist hann Vilhelmínu Jóns-
dóttur, sem átti heima á Fossi, úti
á Vestdalseyri. Skömmu síðar eign-
uðust þau húsið nr. 48 við Austur-
veg. Þar bjuggu þau mest allan
sinn búskap og ólu upp börnin sín
5, sem öll eru á lífi.
Það var í bankanum, sem ég
eiginlega kynntist Gunnlaugi fyrst,
en ég hóf starf þar árið 1946. Það
kom mikið í hlut Gunnlaugs að leið-
beina mér, óreyndum og fákunn-
andi, um starfið í bankanum. Ég á
margar ljúfar og skemmtilegar
endurminningar frá þeim tíma og
samveru okkar í bankanum. Til
dæmis minnist ég ferða inn í Bank-
asel, en þennan sumarbústað voru
þeir bankamenn búnir að byggja,
'pegar ég kom í bankann. Fyrst,
áður en menn áttu almennt bíla,
'pótti talsvert ferðalag og mikil til-
ireyting að fara þangað inneftir
mda var talsvert gert af því og
afnvel verið þar um helgar. Gunn-
íaugur var einna duglegastur af
)kkur að nota þennan sumarbú-
’.tað. Ég man, að minnsta kosti,
;ftir einu sumri, sem hann bjó þar
,nnfá með alla fjölskylduna. Hann
ijólaði í vinnuna á morgnana og
nneftir á kvöldin. En þá þurfti
iann að leiða hjólið ipest alla leið,
)ví að oftast var hann með talsverð-
m farangur, mat og annað, sem
ii þurfti og brekkurnar erfiðar.
Gunnlaugur hafði mikinn áhuga
i skógrækt og raunar á hverskonar
•æktun. Hann var einn af stofnend-
ím Skógræktarfélags Seyðisfjarð-
ir og sat lengi í stjórn þess. Skóg-
•æktarfélagið hóf skógrækt „inni
landa”, rétt við hliðina á Bankasel-
nu, í kjarrivaxinni hlíðinni. Það var
)ví engin furða þótt Gunnlaugur
íyti þess að vera þama innfrá.
Jann átti stóran þátt í því gróður-
setningarstarfi sem þar var unnið.
A'í miður átti skógræktin þama
engi vel erfitt uppdráttar vegna
ígengs búfjár. En þegar búfé
’ækkaði og nú þegar við emm al-
reg laus við það, er að koma í ljós
ill myndarlegur skógur barrtijáa
)g birkitrjáa. Stóru grenitrén, sem
nð sjáum nú í garðinum við Austur-
'eg 48, eru verðugt minnismerki
im elju og dugnað Gunnlaugs í
rjárækt. Þau sýna hvað hægt er
\ð gera í trjárækt hér á Seyðis-
irði, eins og Gunnlaugur sagði oft
nð mig. Tré þessi eru sprottin upp
if fræum sem hann sáði um 1946.
Þegar ég kom í bankann og
nörg ár eftir það var ekki eins
nikið að gera og er nú til dags.
Jenn vom almennt ekki með
ékkareikninga og yfirleitt minni
nðskipti almennings við bankann.
3að vom því oft hlé hjá gjaldkera.
Junnlaugur notaði þennan tíma oft
il að ganga um gólf. Hann gat
íotað breidd hússins ng úg dáöisi
að því hvað hann sveiflaði sér létti-
lega í hring á öðram hælnum, þeg-
ar hann sneri við, við gluggann á
norðurhliðinni og við gluggann á
suðurhliðinni, gegnt gjaldkera-
stólnum. Með tímanum var komin
afmörkuð slóð í gólfdúkinn, sér-
staklega á snúningsstöðunum. Ég
vissi að Gunnlaugur var mjög
slæmur í hnjáliðunum, þeir vildu
stirðna ef hann sat lengi. Hann
þurfti því að liðka sig. Ég tók eftir
því að hann var oft mjög hugsandi
á þessum gönguferðum. Hann var
þá kannski að bijóta eitthvað mál
bæjarins til mergjar eða þá að
semja blaðagrein eða eitthvað í þá
áttina. Gunnlaugur var nefnilega
störfum hlaðinn fyrir utan gjaldke-
rastarfíð. Hann sat í bæjarstjóm í
26 ár, eða frá 1924 til 1950, þar
af var hann forseti bæjarstjómar
í 17 ár. Hann var líka forseti
Fjórðungsþings Austfirðinga frá
stofnun þess árið 1943 og samfellt
í 20 ár. Fleiri embætti hafði hann
á vegum ríkis og sveitafélaga. Svo
var hann ritstjóri Gerpis, meðan
það tímarit var gefíð út. Ég man
að það fór mikið af tíma hans í
þetta blað og ég held að hann hafí
kappkostað að hafa það sem veg-
legast. Það var augljóst að það var
ýmislegt, sem var að bijótast um
í kollinum á Gunnlaugi og engin
furða þótt hann notaði hléin til að
hugsa. Öll þessi störf og embætti
fyrir utan fjöldan allan af blaða-
greinum tóku vitaskuld mikið af
tíma hans.
Þó að það hafí verið rólegt í
bankanum fyrstu árin eftir að ég
byijaði að vinna þar, hafði það
ekki alltaf verið svo, eftir því sem
þeir sögðu mér eldri starfsmennirn-
ir. Þeir töluðu oft um stríðsárin.
Þá vom á Seyðisfirði nokkur þús-
und hermenn og höfðu þeir mikil
viðskipti við bankann og margir
með tékkareikninga. Þá var allt
handfært og mest allt handreiknað.
Þeir hafa þá haft nóg að gera baka-
mennirnir.
Gunnlaugur var ekki alltaf við
kassann. Seinustu árin hans í bank-
anum gegndi hann starfi bókara
og var þá jafnframt fulltrúi útibús-
stjóra.
Þegar Gunnlaugur hætti í bank-
anum árið 1961, eftir 30 ára starf,
var hann búinn að ávinna sér full
eftirlaun og enn með fulla starfs-
örku. Hann gat ekki hugsað sér
að hætta alveg að vinna. Hann tók
því að sér bókhald hjá Síldarverk-
smiðju ríkisins og gegndi því starfí
í allmörg ár.
Fyrir nokkrum árum fór Gunn-
laugur að tapa sjón, sem svo ágerð-
ist. Hús þeirra hjóna við Austurveg
var orðið of erfítt fyrir þau. Það
var því ráðist í að festa kaup á
þjónustuíbúð við Múlaveg og selja
gamla húsið. Þau fluttu í nýju íbúð-
ina um mitt sumar 1990. Þau
kunnu fljótt mjög vel við sig þar
og Gunnlaugur var furðu fljótur
að læra að rata um hana, enda
mjög þægileg, lítil og engir stigar,
eins og voru á Austurveginum.
Mikið var hann feginn þegar hann
fékk píanóið sitt í nýju íbúðina.
Hann sagði mér, þegar ég heim-
sótti hann, að hann hafí orðið svo
hissa þegar hann settist við það
og hann hafði getað spilað, fingurn-
ir hafí bókstaflega ratað um nótna-
borðið.
Því miður naut Gunnlaugur ekki
þess að vera lengi í nýju íbúðinni.
Hann veiktist skömmu fyrir síðustu
áramót; svo að leggja varð hann
inn á sjúkrahúsið. Þaðan átti hann
ekki afturkvæmt. Hann náði sér
nokkuð eftir veikindin en hann
þurfti það mikla umönnun að hann
gat ekki verið heima. Það tók hann
mjög nærri sér. Hann gerði sér
alltaf grein fyrir því hvert stefndi
og hann sagði mér oft að hann
óttaðist ekki dauðann.
. - -Má^bs£3JLÍtunalaugat-,M^-
fengið hvíldina sem hann þráði svo
mjög, þakka ég honum samfylgd-
ina.
Konan mín og ég sendum Mínu
og börnum hennar og öðru vensla-
fólki hugheilar samúðarkveðjur og
biðjum þeim öllum Guðs blessunar.
Guðmundur Gíslason
Stormurinn gnauðaði fyrir utan
og birtu var tekið að bregða. Fyrsti
snjór vetrarins hafði fallið, vetur
konungur enn einu sinni sigrað
sumarið, sumar sem varð eitt það
besta í manna minnum fyrir gróður
landsins og mennina sem á því
búa. Kyrrðin inni fyrir var rofín
af hvellri símhringingu. Hin aldna
eik hafði fallið, hún hafði ekki stað-
ið af sér þennan síðasta storm,
ekki einungis bognað eins og fyrr
heldur brostið. Afí okkar Gunn-
laugur Jónasson hafði andast að
kvöldi 10. nóvember, 96 ára að
aldri.
Hugurinn reikar rúma öld til
baka, til þess tíma og til þess jarð-
vegs sem afi er sprottinn úr og
þeirrar ævi sem hann hafði lifað.
Þannig reikaði hugurinn til slíkra
atburða eins og landnáms í himin-
geimnum, lýðveldistökunnar,
tveggja heimsstyijalda, kreppunn-
ar, aldamótanna, allt til þess tíma
þegar íslensk bændamenning stóð
hvað hæst. Aldahvörf, upphaf ald-
arinnar. Stórhugur og framfarir.
Sá tími sem Ísland braust úr ein-
angrun sinni til að öðlast gildi
meðal erlendra þjóða. Aldamóta-
menn. Vissu sem var að íslands
beið allt það sem í fólkinu bjó og
framtíð þess var í því fólgin. Úr
engu verður ekkert. Aldamóta-
menn. Margir og áttu það sameig-
inlegt að vilja framfarir. Byggja
brú, reisa höfn, virkja, bora, vinna!
Afí var aldamótamaður. Hafði
hugsun og trú á landi og þjóð sem
við í núinu vart skiljum. Hann fyllti
sinn flokk. Þeirra tími kemur.
Faðir afa var Jónas Eiríksson,
fæddur á Skriðuklaustri 1851,
lengstum skólastjóri á Eiðum, en
móðir hans Guðlaug Margrét Jóns-
dóttir, fædd 1853, en hún var afar
mikilhæf kona. Synir Jónasar og
Guðlaugar urðu sex, Halldór, f.
1882, heimspekingur og lengi
starfsmaður á Hagstofu Islands;
Jón Gunnlaugur, f. 1883, málara-
meistari og kaupmaður á Seyðis-
fírði; Benedikt, f. 1884, kaupmaður
og konsúll á Seyðisfírði; Þórhallur,
f. 1886, hreppstjóri og bóndi á
Breiðavaði; Gunnlaugur afí, f.
1895; og Emil Biynjólfur, f. 1897,
símstöðvarstjóri á Seyðisfirði. Einn
son, Friðrik, fyrmm kennara í
Reykjavík, átti Jónas eftir lát konu
sinnar með ráðskonu sinni, Helgu
Baldvinsdóttur, Guðmundssonar.
Allir bræðurnir sjö talsins eru
nefndir Eiðabræður cinu nafni. Af
bræðrunum sjö er Friðrik einn á
lífi. Afí kvæntist 19. desember
1931 Vilhelmínu Jónsdóttur,
fæddri 15. nóvember 1906, þá bú-
settri á Vestdalseyri. Þeim varð
fímm barna auðið og eru þau öll á
lífi. Áslaug, gift Hjalta Nielsen sem
lést 1967; Jónas, giftur Margréti
Pétursdóttur; Hallfríður, gift
Bjarna Þorsteinssyni; Lárus, giftur
Höllu Gísladóttur, og Jón, giftur
Pálínu Karlsdóttur.
Við sem njótum nú allrar þeirrar
menntunar sem við óskum og sum-
irjafnvel meiri en þeir kjósa beruin
ekki skyn á þá þrá sem fólk af
eldri kynslóð hafði til menntunar.
Skiljum ekki að menntun er munað-
ur. Ekki vegna einhvers heldur
hennar sjálfrar vegna. Vegna þess
gildis sem hún hefur fyrir hvern
þann sem vill reyna tilveruna og
tilverurnar. Skiljum ekki að í besta
falli, og þó sjaldnast, var aðeins
eitt barnanna sent til menntunar.
Eiðabræður, spekingarnir. Einn
valinn. Halldór. Sjálfsmenntun.
Löngun og þrá til að vita það sem
maður veit ekki. Þessa löngun hafði
afí og vissi að þekkingin 'er ein-
hvers virði. Hann hafði yndi af tónl-
ist og samdi fjölmörg tónverk fyrir
píanó. Hann var læs á fjölmargar
erlendar tungur, s.s. norðurlanda-
’málin,"
gagnmenntaður maður sem reyndi
sig á mörgum sviðum. Ekkert var
ósnertanlegt. Allt á sér tilgang sem
þó vart verður skilinn. Heims- og
lífsspekúlant „par excellence”.
Hafði enda eytt hálfri ævinni í að
afla sér þekkingar á því sem skipti
máli beggja megin tilvemnnar.
Hann hafði áhuga á svo mörgu.
Þar kippti honum í kynið. Löngum
stundum sat hann með bræðram
sínum, Eiðabræðmm, í hásal hug-
myndanna og virti fyrir sér leik-
sviðið, þar sem mennirnir stigu sinn
dans og hann átti sín spor; hvar
verkin falla eða slá í gegn, sumir
vinna leiksigra og aðrir ekki en þar
sem allir eru þó hluti af sýning-
unni, einn styður annan og enginn
má án hins vera. Þetta skildi afí
mönnum betur.
Hugtakið Eiðamenn hefur verið
haft um þá menn sem komið hafa
nálægt sögu Eiðaskóla, bæði bún-
aðarskólans og seinna alþýðuskól-
ans, menn sem hafa lifað með skól-
anum, vilja veg hans sem mestan
og helgað skólanum hug sinn og
hjarta. Eiðabræður verða að teljast
mestir Eiðamenn enda aldir upp á
Eiðum og Breiðavaði, nági-annabæ
Eiða. Þessir menn gátu fylgst með
starfi skólans frá fyrstu tíð og voru
kunnugir mönnum á hverri skólatíð
eftir aðra. Bræðurnir mótuðust
mjög af dvöl og starfí fpreldra sinna
í Eiðaskóla og átti það eftir að
hafa djúpstæð áhrif á skaphöfn og
líf þeirra allra. Á upphafsárum ald-
arinnar voru Eiðar bústaður framf-
ara og framsækinnar hugsunar og
þeir Eiðabræður fóru ekki á mis
við það. Þarna komust þeir í snert-
ingu við nýja strauma erlendis frá.
Búnaðar- og ræktunarmál, virkjan-
ir, jarðgangagerð, vegafram-
kvæmdir og brúarsmíði. Þeir sáu
ljósblik nýs dags fyrir þjóð sína og
heimabyggð. Þeir voru þó tákn síns
tíma, fulltrúar gamalla tíma og
manngilda. Engu að síður. Heims-
menn. Bændasynir en aðeins einn
þeirra búmaður. Sérvitringar?
Spjátrungar? Með skilning og sýn
á lífið í heild sinni, tilfinningu fyrir
erlendum vemleik, erlendu lífi, nýj-
um gildum og nýjum tímum. For-
boðnum veruleik sem ef til vill er
best skilinn við rætur hárra fjalla,
fjarri honum sjálfum. Ekkert var
þeim bræðrum óviðkomandi og
minnugar eru stundirnar þegar afí
sat með bræðrum sínum og ræddi
þessa heims mál og annarra. Þá
stilltu afabörnin háreysti sína og
hlýddu á spekina andaktug og góð.
Afí hafði mikil afskipti af félags-
málum og var kosinn í bæjarstjórn
Seyðisfjarðar 1924 og sat þar til
1950 eða í 26 ár samfleytt. Þar
af sem forseti bæjarstjórnar í 17
ár frá 1930. Árið 1943 stofnuðu
sýslu- og bæjarfélög í fjórðungnum
til samstarfs sín á milli undir nafn-
inu Fjórðungsþing Austfirðinga og
var hann forseti þess í samfellt 20
ár. Árið 1947 hóf Fjórðungsþing
Austfirðinga útgáfu mánaðarrits
er hlaut nafnið Gerpir. Annaðist
afi ritstjórn þessa tímarits þau
fimm ár sem það kom út, 1946-
1951. Þar setti hann fram skoðan-
ir sínar á margvíslegum málefnum.
ensku, • þýsku, frönsku, Ast hans á heimabyggðinni,
■ff Hann.^-------AiiiiluriimAi-öllu.-Lam.ck'A.WtKb'iufl
í skrifum hans, eins og þema, eins
og tilsögn ... til þeirra sem vilja
hlusta. Hann hafði skoðanir hann
afi. Margur þætti róttækari í dag
með lágfleygri skoðanir. í skrifum
hans kemur svo vel fram kristaltær
hugsun hans og þekking á svo
mörgum viðfangsefnum mannsins.
Skipti þá litlu hvað til umfjöllunar
var, á flestu hafði hann þekkingu.
Mátti þar einu gilda hvort hann
tjáði sig um heimspeki, trúfræði,
listir, pólitík, hagfræði eða þjóð-
félagsmál, alls staðar kom fram
innsýn hans í viðfangsefnið. Eitt
var það viðfangsefni afa sem átti
hug hans allan en það var skóg-
rækt. Strax sem ungur maður sá
hann fyrir sér að skógrækt yrði
atvinnugrein hérlendis og á Fljóts-
dalshéraði yrði ræktaður nytja-
skógur. Fátt veitti honum meira
yndi en gönguferð í laufguðum
skóginum, líf í hverri grein, þytur
í stráum og laufi. Hallormsstaður,
Guttormslundur, Atlavík. Og
vitund hans. I garðinum heima hjá
sér ræktaði hann margar tegundir
tijáa og gerði tilraunir eins og
vísindamaður. Ræktaði afbrigði
sem við hann er kennt. Lagði fræ
til moldar og í áranna rás uxu tré
sem byrstu sig við húsið. Þetta
hús? spyr maður í fomndran. Aust-
urvegur 49? Hátt húsið með reistu
þaki, tákn afa og ömmu, traust
eins og fjallið sem það krýpur við.
Tákn þeirra og upprunans. Gleym-
ist aldrei. Andi þeirra ... og þetta
hús.
Nú litast afí um hinu megin, lít-
ur þar frændur og vini, sest enn í
hásal þar sem sýnin er tryggust
yfir sviðið, betri en nokkru sinni
fyrr, þegar hann var sjálfur þátt-
takandi í uppfærslunni. Ekkert
okkar gleymir heimsóknunum.
Leikur við afabörn. „Við skulum
róa á selabát...”, skellur fíngur á
kinn. „Loffmalakoff.” Eftir stendur
minningin um hann, tilfinning og
vitund barns, sem fátt skildi en
skildi þó. Það er dýrast.
Allir heimar snúast um fastan
punkt. Líka heimur afa. Amma stóð
við bak hans og veitti honum þá
festu og öryggi sem spekingar eins
og hann þurfa. Megi algóður Guð
gefa ömmu okkar líkn, hennar er
missirinn mestur.
Arfleifð afa og ömmu verður
aldrei metin og seint skynjuð. Hafí
elsku afí þökk fyrir allt. Góður Guð
geymi hann.
Gunnlaugur, Kristín Theó-
dóra, Vilhelmína, Þóra
Lind, Axel Emil og Hjaiti.
Gunnlaugur Jónasson var fædd-
ur 18. janúar 1895 á Eiðum i Eiða-
þinghá í Suður-Múlasýslu. Foreldr-
ar hans vom, Jónas Eiríksson
skólastjóri þar, síðar bóndi á
Breiðavaði í sömu sveit. Kona hans
var Guðlaug Margrét Jónsdóttir frá
Eiríksstöðum á Jökuldal. Nám við
Búnaðarskólann á Eiðum veturna
1905-1906 og 1909-1910. Bú-
fræðingur frá Hólum 1913. Vann
fjögur sumur 1912—15 við tilraun-
astöð Búnaðarsambands Austur-
lands á Eiðum. Fluttist til Seyðis-
fjarðar haustið 1915 og vann þar
við verslun og fiskverkun til 1931.
Gjaldkeri og bókhaldari útibús Út-
vegsbanka íslands á Seyðisfírði
1931—61. Skrifstofustjórþhjá Síld-
arverksmiðjum ríkisins þar frá
1961—68. Bæjarfulltrúi á Seyðis-
firði 1924—1950 þar af- forseti
bæjarstjórnar í 17 ár. Forseti
Fjórðungsþings Austfirðinga
1943—1963. I staðsetningarnefnd
embætta og ríkisstofnana 1959—
1962. Rit: Ritgerð í tilefni 50 ára
afmælis bæjarstjórnar Seyðisfjarð-
ar (bæklingar með myndum af öll-
um bæjarfulltrúum á því tíma-
skeiði) 1945. Ritstjóri mánaðarrits-
ins „Gerpis” 1947—1951. Kvæntist
19. desember 1931 Vilhelmínu Sól-
gerði fædd 15. nóvember 1906
Jónsdóttur trésmiðs á Seyðisfírði
Erlandssonar, kona han var Ragn-
heiður Marteinsdóttir.
Gunnlaugur andaðist 10. nóv-
ember á sjúkrahúsi Seyðisfjarðar-
! kaupstaðar.
I______________±::±_:;3X_1