Morgunblaðið - 16.11.1991, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991
43
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND
Eyjólfur Swerrisson hefur staðið sig vel með VfB Stuttgart að undanförnu
og gerði eitt mark gegn Wattenscheid í gærkvöldi.
Eyjólfur skoraði
EYJÓLFUR Sverrisson gerði
þriðja mark Stuttgart í gær-
kvöldi er liðið sigraði Watt-
enscheid, 3:1, á útivelli i'þýsku
úrvalsdeildinni.
Eyjólfur var í framlínunni með
Fritz Walter og lék í peysu
númer tíu, en Ásgeir Sigui-vinsson
lék jafnan í peysu
með því númeri þeg-
ar hann lék með lið-
inu.
Sigurinn var ós-
anngjarn því Wattenscheid sótti
nær látlaust allan tímann og fékk
fjölda tækifæra til að skora. Stutt-
gart fékk hins vegar aðeins fjögur
færi í leiknum og nýtti þrjú þeirra
FráJóni
Halldórí
Garöarssynii
Þýskafandi
— öll í fyrri hálfleik. Guido Buch-
wald gerði fyrsta markið á 12. mín.
með giæsilegu skoti, annað markið
var sjálfsmark á 28. mín. og Eyjólf-
ur gerði það þriðja á 36. mín. eftir
fyrirgjöf frá Walter. Eyjólfur skutl-
aði sér fram fyrir varnarmann og
skoraði af stuttu færi. Mjög vel
gert.
Tveir aðrir leikir vonj í gær-
kvöldi; Werder Bremen sigraði
topplið Frankfurt 1:0 og var það
gamla kempan Klaus Allofs sem
gerði eina mark leiksins á lokamín-
útunum, eftir að hafa komið inn á
sem varamaður. Þá gerðu Duisburg
og Bayern Munchen jafntefli, 1:1.
Duisburg komst yfir en Wolfgang
Wohlfarth jafnaði undir lokin.
GETRAUNIR
Sameiginlegur pottur
íslendinga og Svía
Sölukössum verður lokað á hádegi í dag
Fyrsti getraunaseðilinn í sameiginlegum getraunapotti sænska fyrir-
tækisins AB Tipstjanst og Islenskra getrauna verður í dag og
má búast við að 13 réttir gefi vinningshafa allt að 30 milljónum
króna. Röðin á getraunaseðlinum kostar nú 10 krónur í stað 20 krón-
ur áður. Sölukössum verður lokað kl. 12 á hádegi.
Þrettán leikir eru á getraunaseðlinum og fara 27% vinningsupphæð-
ar í fyrsta vinning, 17% verða greiddar fyrir 12 leiki réttá, 18% fyrir
11 leiki rétt og 38% fyrir 10 rétta. Vinningur á eina röð getur samt
aldrei orðið hærri en 10 milljónir sænskar krónur, eða tæplega 30
milljónir íslenskar krónur.
JUDO
Frey Gauta
gengur vel
Freyr Gauti Sigmundsson jú-
dómaður frá Akureyri hefur
staðið sig vel á Evrópumeistara-
móti 21 árs og yngri í Finnlandi.
Hann keppir í dag um 3. - 7. sæti.
Freyr Gauti sat hjá í fyrstu
umferð, en sigraði Guksel frá
Tyrklandi í 2. umferð á fallegu
„taio-toshi” bragði og fékk þar
með „ippon” eða fullnaðarsigur.
í 3. umferð tapaði hann fyrir
Eggenfellner frá Austurríki, en
sá komst’ í fjögurra manna úrslit
og fékk Freyr Gauti því uppreisn-
arglímu. Þar vann hann Saksa
frá Tékkóslóvakíu, náði fastataki
í góifi þegar 40 sek. voru eftir.
Um helgina
Körfuknattleikur
Sunnudagur:
1. deild karla: _
Hagaskóli KFR - ÍR_...............kl. 14
Sandgerði Reynir - IS..........kl. 17
Blak
Laugardagur:
1. deild karla:
Digranes HK-hrótturR..............kl. 16
1. deild kvenna:
Höfn Sindri - Víkingur............kl. 14
Húsavík Völsungur- ÍS.............kl. 12
Knattspyrna
Í dag verður leikið til úrslita í framhalds-
skólamóti KSÍ. Leikið verður á sandgras-
vellinum í Kópavogi. K\. 13.30 leika Há-
skóli íslands og Fjölbrautarskólinn í Breið-
holti í stúlknaflokki, en Verslunarskóli Is-
lands og Tækniskóli Islands í karlaflokki
kl. 15.
fslenska A-landsliðið spilar æfingaleik
gegn U-21 árs landsiiðinu á Sangrasvetlin-
um í Kópavogi kl. 11.30 i dag.
Sund
Bikarkeppni 2. deildar i sundi fer fram
í Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Keila
í dag kl. 10 fer fram Aisca mótið, sem
árlegt mót milli flugfólaga og mætast Flug-
leiðir og SAS í Öskjuhlíð. Kl. 14 hefst lands-
leikur Islands og Bandaríkjanna og ki. 20
hefst Öskjuhliðannótið.
Á morgun verður mót á.vegunr KFR ég
KR og hefst það kl. 12.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Fjöldi dauðafæra í
súginn og ísland
lá gegn Austurríki
ISLENDHMGAR töpuðu fyrsta
leik sínum á fjögurra þjóða
móti í handknattleik i borginni
Györ í Ungverjalandi í gær;
mættu Austurríkismönnum,
sem sigruðu 23:20. Austurrík-
ismenn voru yfir í leikhléi,
12:10. í hinum leik gærdagsins
sigruðu Ungverjar lið ítaia
24:16.
Þorbergur Aðalsteinsson, lands-
liðsþjálfari, var auðvitað ekki
ánægður með útkomuna en sagði
Austurríkismenn hafa tekið miklum
framförum og vera með ágætis lið.
„En ég held að fyrst og fremst
hafi verið um rosalegt vanmat
minna manna að ræða. Ég vissi
auðvitað af þeim möguleika og var
búinn að vara þá við, en engu að
síður er þessi hætta alltaf fyrir
hendi,” sagði Þorbergur.
„Undirbúningurinn fyrir þetta
mót var allt of lítill. Ein æfing með
öllum leikmönnunum og tvær eða
þijár með hálfum hópnum. Þetta
gengur ekki. Þessar þjóðir eru ekki
svo slappar að það þýði að bjóða
upp á svona lagað. En þrátt fyrir
lítinn undirbúning verð ég að segja
að við áttum að vinna þennan leik.”
Þorbergur sagði Austurríkis-
menn hafa komið íslendingum á
óvart með því að leika 3-2-1 vörn,
mjög framarlega. Júgóslavar beita
þessari varnaraðferð iðulega, en
það er einmitt Júgóslavi sem þjálfar
lið Austurríkis nú. „Þetta reyndist
okkur erfitt, en þó náðum við að
skapa okkur mikið af færum, en
við klúðruðum 10-12 dauðafærum.
Þar af þremur vítum og fimm
hraðaupphlaupum.” Þá vörðu ís-
lensku markverðirnir iítið — Guð-
mundur Hrafnkelsson stóð í mark-
inu fyrstu 20 mínúturnar og varði
ekki eitt einasta skot. Bergsveinn
Bergsveinsson kom þá inn á og
varði átta skot það sem eftir var
leiksins. Það fyrsta þegar fimm
mín. voru liðnar af síðari hálfleik!
Þorbergur sagðist ekki örvænta
þrátt fyrir tap. „Við verðum að líta
á þetta sem hluta af lengra pró-
grammi. Það er ef til vill hollt að
fá svona rassskell einhvern tíma á
undirbúningstímanum,” sagði
hann.
Mörk íslands gerðu: Birgir Sig-
urðsson 6/3, Valdimar Grímsson
3, Sigurður Bjarnason 3, Sigurður
Sveinsson 3, Oskar Ármannsson 2,
Einar Sigurðsson 2, Konráð Olav-
son 1.
BLAK
Hörkuspenna á Akureyri
STÚDENTAR sigruðu KA-menn
3:2 í toppslag 1. deildar karla
í blaki á Akureyri í gærkvöldi.
Þarna voru greinilega bestu lið
deildarinnar á ferðinni og var
viðureign þeirra mjög
skemmtileg og spennandi.
Stúdentar byijuðu leikinn af
miklum krafti og unnu fyrstu
hrinu auðveldiega, 15:3. KA-menn
Reynir
Eiríksson
skrífar
komu mjög ákveðnir
til þeirrar næstu og
fóru þá með sigur
af hólmi, 15:11.
Þriðja hrina var
Stúdenta, þeir sigruðu 15:12 eftir
spennandi leik. KA-menn komust
svo í 8:0 í fjórðu hrinu og lögðu þá
í byijun grunninn að 15:7 sigri.
Á lokasprettinum reyndust Stúd-
entar svo sterkari og sigruðu í odda-
hrinu 15:11 og rhikilvægur sigiir
þeirra var þar með í höfn.
Leikurinn var skemmtilegur og
brá fyrir mjög góðu spili á báða
bóga. Boðið var upp á allt sem
hægt er að óska eftir í einum blak-
leik. Góðri vörn, fallegu uppspili,
föstum og vel útfærðum skellum
og mikilli spennu.
Bestur hjá Stúdentum var Þor-
varður Sigfússon en Bjarni Þór-
hallsson var bestur hjá KA.
Lið Stúdenta er nú það eina tap-
lausa í deildinni en þetta var fyrsta
tap KA.
KORFUBOLTI
Pétur Guðmundsson
Pétur til
Tindastóls?
FORRÁÐAMENN körfuknatt-
leiksdeildarTindastóls hafa
gert Pétri Guðmundssyni til-
boð um að koma til íslands og
leika með liðinu í vetur. Pétur
tók vel í það, en tók sér f rest
fram á miðvikudag til að gefa
Tindastólsmönnum ákveðið
svar.
Pétur lék sem kunnugt er með
Tindastóli á síðasta keppnis-
tímabili, en átti það við meiðsli að
stríða í síðustu leikjunum. Hann
hélt síðan til Bandaríkjanna þar sem
hann ætlaði að reyna að komast
að hjá liði í NBA-deildinni, en það
tókst ekki. Síðustu vikur hefur hann
leikið í CBA deildinni með liði Sky-
force.
Tindastólsmenn gera ráð fyrir
því að Pétur taki tilboðinu geti leik-
ið með liðinu á Sauðárkróki gegÁ
Grindavík 24. nóvember.
Þrírfara
fráÞór
Wjarðvíkingarnir þrír sem
leikið hafa með Þórsiiðinu
frá Akureyri í körfuknattleik,
hafa allir ákveðið að hætta með
liðinu. Það eru bræðurnir Sturla
og Gunnar Örlygssynir og Georg
Birgisson.
Osætti kom upp milli þre-
menninganna og Brad Caseys,
þjálfara og sú staða kom upp
að annað hvort færi hann frá
félaginu eða þeir.
Stjórn körfuknattleiksdeildar
Þórs var klofin í afstöðu sinni í
málinu. Bandaríkjamanninum
Joe Harge, sem ieikur með Þór,
var boðið að taka við þjálfun
meistaraflokks og Casey var
boðið að taka að sér þjálfun
yngri flokka félagsins. Því hafn-
aði hann, og Harge var óákveð-
inn. Jafnvel var talið að hann
færi elnnig úr landi ef Casey
yrði látinn fara.
Eftir mikil fundarhöld ákvað
stjórnin að halda þjálfaranum
og þá kom af sjálfu sér að þre-1
menningarnir hættu, sem er
vissulega mikil blóðtaka fyrir
liðið sem er án stiga eftir sex
leiki. Vegna þessa hefur Helgi
Sigurðsson sagt af sér sem for-
maður körfuknattleiksdeildar
Þórs.
Enn tapar
landsliðið
W
Islenska landsliðið í körfuknattleik
tapaði enn einum leiknum í æf-
ingaferð sinni í Bandaríkjunum á
fimmtudag gegn College of South-
ern Idaho, 95:59. Staðan í hálfleik
var 43:34.
Magnús Matthíasson skoraði 23
stig og átti 10 fráköst. Bárður
Eyþórsson átti góðan leik og gerði
16 stig. Rúnaf Árnason og Einar
Einarsson áttu einnig góðan leik.