Morgunblaðið - 14.01.1992, Blaðsíða 3
B 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROI I IRpRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1992
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Wasmeier
sterkur
á svellinu
Margirféllu illa í Kandahar-brunbrautinni
. Reuter
Patrick Holzer frá Italíu, sem er nú á öðru ári í heimsbikarkeppninni, vann fyrsta sigur sinn — vann keppni í risasvigi
í Þýskalandi. Hér er hann á fullri ferð í brautinni á sunnudaginn.
Slór helgi hjá Ginhter
MARKUS Wasmeierfrá Þýska-
landi kom, sá og sigraði íbruni
karla í Garmish-Partenkirchen
í Þýskalandi á laugardag. Hann
hafði rásnúmer 38 og áttu því
fáir von á því að hann blandaði
sér ítoppbaráttuna. Brautin
var mjög erfið og fóru margir
keppendur út úr og þrír meidd-
ust það illa að þeir missa af
Ólympíuleikunum, þar á meðal
Norðmaðurinn Atle Skárdal.
Wasmeier, sem vann heims-
meistaratitilinn í stórsvigi
1985, hafði á laugardag ekki unnið
brunmót í fimm ár. „Það gefur sigr-
inum enn meira gildi að vinna á
heimavelli,“ sagði Wasmeier, sem
var að hugsa um að hætta eftir
síðasta keppnistímbil vegna lélegs
árangurs.
Kandahar brunbrautin var eins
og svell yfir að líta og hættuleg
keppendum og féllu þrír úr fyrsta
ráshópi illa í brautinni. Það voru
þeir Atle Skárdal, Noregi, Þjóðveij-
inn Berni Huber og Rob Boyd frá
Kanada. Meiðsli þeirra voru talin
það sjæm að þeir myndu missa all-
ir af Ólympíuleikunum í Albertville.
Wasmeier, sem er 28 ára, fór
brautina á 1:50.58 mín. og gerði
sigurvonir Austurríkismannsins
Patrick Ortleib, sem hafði rásnúmer
eitt, að engu. Otlieb, sem hefur aldr-
ei unnið heimsbikarmót, var 0,06
sek. á eftir Wasmeier. Þjóðveijinn
Hansjörg Tauscher varð þriðji
1:51.35 mín.
Skárdal ekki á
ÓL vegna meiðsla
Skárdal, sem var annar í þessari
brunbraut í fyrra, datt á svellbungu
neðarlega í brautinni og hentist
langar leiðir og staðnæmdist loks
meðal áhorfenda. Hann meiddist
illa á vinstri fæti og hnéi. Hann fór
flugleiðis heim til Noregs og var
lagður inn á spítala í Osló þar sem
hann gekkst undir aðgerð.
Huber var fluttur á sjúkrahús
með þyrlu eftir slæmt fall efst í
TVÖ efstu lið 1. deiidar kvenna
í handknattleik unnu örugga
sigra á mótherjum sínum um
helgina. Víkingar sigruðu ÍBK
28:20 og Stjarnan vann Gróttu
22:15. Framstúlkur mega hins
vegar hrósa happi eftir viður-
eign sína við KR sem þær unnu
naumlega 15:14. Valur sigraði
Ármann með tíu marka mun,
25:15 og FH-stúlkur burstuðu
nágranna sína út Haukum
27:15.
Viðureign Víkinga og ÍBK var mun
jafnari og meira spennandi en
lokatölurnar gefa til kynna. Fyrri
hálfleikur var jafn á
Hanna Katrín öllum tölum. Vík-
Fnðriksen ingsliðið var yfírleitt
skrifar fyrra til að skora, en
ÍBK fylgdi fast á eft-
ir og munaði þar mest um góðan leik
hinnar ungversku Hajni Mezei.
Víkingsstúlkur náðu góðum leikk-
afla í upphafi ' íðari hálfleiks, náðu
brautinni. Hann fékk mikið högg á
bakið og meiddist á læri og ökkla.
Mínútu áður datt Kanadamaðurinn,
Boyd, á sama stað. Hann sleit lið-
bönd í hægra hnéi og keppir að
öllum líkindum ekki meira í vetur.
Þetta var fyrsta keppni hans í
nokkra mánuði eftir að hafa átt við
meiðsli að stríða.
Fyrsti sigur ítalans
Italinn Patrick Holzer, sem er
21 árs, vann fyrsta heimsbikarsigur
sinn á sunnudaginn er hann sigraði
í risasvigi. Hann var þremur hundr-
uðustu úr sekúndu á undan Paul
Accola frá Sviss. Austurríkismaður-
inn Peter Rzehak varð þriðji, 0,07
sek. á eftir Holzer, sem er á öðru
ári í heimsbikarinum.
Bianchi vann fyrsta sigur
Frakka í sjö ár
Frakkinn Patrice Bianchi, sem
er frá skíðabænum Val d’Isere,
vann fyrsta heimsbikarmótið er
hann sló Hubert Strolz og Ólympíu-
meistaranum Alberto Tomba við í
svigi í Garmich-Partenkirchen í
gær. Hann er fyrsti Frakkinn til
að vinna svig síðan Didier Bouvet
vann í Parpan í Sviss 1986. Bianchi
var í öðru sæti á eftir Thomasi
Stangassinger eftir fyrri ferð, en
náði sér vel á strik í síðari ferðinni
og náði besta samanlagða tímanum,
1:37.21 mín. Strolz varð annar á
1:37.67 og Tomba þriðji á 1:37.72
mín.
Paul Accola, sem hafnaði í 8.
sæti í sviginu og í níunda sæti í
bruninu á laugardag, sigraði í alpat-
víkeppninni og náði því að skjótast
upp fyrir Alberto Tomba í heildar-
stigakeppninni. Tomba keppir ekki
í bruni og risasvigi, en sagði á
sunnudaginn að hann yrði sjálfsagt
að keppa í risasvigi til eiga mögu-
leika gegn Accola. Marc Girardelli
frá Lúxemborg, sem er í þriðja
sæti í stigakeppninni, fór út úr
brautinni í fyrri ferð í gær.
■ Úrslit / B7
fimm marka forskoti 18:13 og virtust
hafa gert út um leikinn. Þá snerist
leikurinn, ÍBK gerði 5 mörk á móti
einu marki Víkinga og hleypti spennu
í leikinn með því að minnka muninn
í eitt mark, 19:18. Góður endasprett-
ur Víkinga gerði hins vegar endan-
lega út um leikinn og sigurinn var
öruggur.
Víkingsliðið var mjög jafnt í leikn-
um eins og svo oft áður, en hjá ÍBK
var Ólafía Bragadóttir best, átti mjög
góðan leik á línunni og Hajni var
atkvæðamikil í fyrri hálfleik.
Reynslan gerði gæfumuninn
Það má segja að reynsla Fram-
stúlkna og reynsluleysi KR hafi
gert gæfumuninn þegar Fram
tryggði sér sigurinn með þremur
mörkum í röð á síðustu þremur
mínútunum. KR hafði þannig
tveggja marka forystu rétt í lokin,
en náði ekki að halda í hana og
mátti þola eins marks tap í jöfnum
SABINE Ginhterfrá Austurríki
hafði ríka ástæðu til að fagna
i' Schruns um helgina því hún
vann sér inn 200 stig í heims-
bikarinum. Hún sigraði í svigi
og alpatvíkeppni á sunnudag
og varð önnur á eftir þýsku
stúlkunni Seizinger í bruni á
laugardag.
Ginther var 0,22 sek. á undan
spænsku stúlkunni Fem-
andez-Öchoa í sviginu á sunnudag.
En það óvænta var að Annelise
og spennandi leik.
Fram hafði tveggja marka for-
ystu í leikhléi, 9:7, en annars var
leikurinn jafn á öllum tölum þar til
KR náði forystunni undir lokin og
missti hana síðan til Fram.
Rutmeð 13 mörk
Nágrannaslagurinn milli FH og
Hauka endaði með stórsigri þeirra
fyrrnefndu sem höfðu yfirhöndina
alveg frá upphafi. Staðan í leikhléi
var 14:7. Rut Baldursdóttir var
mjög atkvæðamikil fyrir FH með
13 mörk og Jolia Klimavicena gerði
6, en Margrét Theódórsdóttir gerði
bróðurpartinn af mörkum Hauka
eða 9.
Kaflaskipt hjá Val og Ármann
Ármann hóf leikinn gegn Val af
krafti og náði strax forystunni.
Valsstúikum gekk illa að ná saman
vörninni og um miðjan fyrri hálfleik
hafði Ármann gert 11 mörk á móti
5 mörkum Vals. Valsstúlkur löguðu
Coberger frá Nýja-Sjálandi varð
þriðja og var þetta í fyrsta sinn sem
skíðamaður frá þeirri þjóð kemst á
verðlaunapall í heimsbikarnum.
Coberger er 25 ára frá bænum
Chrischurch, en hefur dvalið í Evr-
ópu undanfarin ár og æft í St.
Anton í Austurríki.
Petra Kronberger, handhafi
heimsbikarsins, náði sér ekki á strik
og fór útúr í síðari umferð svigs-
ins. Hún heldur þó enn forystunni
í keppninni samanlagt með 419 stig
og er 7 stigum á undan Katja Seiz-
stöðuna aðeins síðustu mínútur
hálfleiksins og var staðan í leikhléi
8:11.
Fljótlega í síðari hálfleik jafnaði
Valur og fram undir miðjan hálf-
leikinn var jafnt á öllum tölum. Þá
kom góður leikkafli hjá Valsstúlk-
um sem gerðu endanlega út um
leikinn með sterki vörn og hrað-
aupphlaupum. Hanna Katrín Frið-
riksen gerði sjö mörk fyrir Val og
Berglind Ómarsdóttir 5, en Ellen
Einarsdóttir var atkvæðamest hjá
Ármanni með 6 mörk.
Öruggt hjá Stjömunni
íslandsmeistarar Stjörnunnar
áttu ekki í erfiðleikum með að inn-
byrða sigurinn vegna Gróttu. Liðið
hafði fimm marka forystu í leikhléi
og um miðjan síðari hálfleik var
munurinn orðinn tíu mörk. Rétt
undir lokin náðu Gróttustúlkur að
klóra í bakkann og þegar upp var
staðið var munurinn sjö mörk.
inger, sem er aðeins 19 ára og sigr-
aði í fyrsta sinn í bruni á sama stað
á laugardaginn.
Vreni Schneider, sem var einu
stigi á eftir Kronberger í heildar-
stigakeppninni fyrir helgina, keppti
í bnminu á laugardag til að freista
þess að vinna sér inn stig í alpatví-
keppninni. Hún hafnaði í 32. sæti
í bruninu, en keyrði síðan út úr
brautinni í sviginu á sunnudag og
fékk því ekkert stig þessa helgina.
■ Úrslit / B7
M RAUÐA Stjarnan frá Júgó-
siavíu hefur áhuga á að leika
„heimaleiki" sína í Evrópukeppninni
á Ítalíu, segir í ítalska dagblaðinu
Gazzetta Sportiva á sunnudaginn.
Knattspymusamband Evrópu,
UEFA, leyfir ekki að Evrópumeist-
ararnir leiki í Belgrad vegna
ástandsins í landinu. „Ef UEFA
bannar okkur að spila í Belgrad
höfum við mestan áhuga á að leika
í Verona eða Bergamo," sagði
talsmaður Rauðu Stjörnunnar við
Gazzetta. Rauða Stjarnan á eftir
að leika heimaleiki sína gegn Samp-
dori og Panathinaikos og fara
þeir fram í mars. Liðið hefur leikið
„heimaleiki" sína í Ungverjalandi,
en aðsókn hefur verið dræm og
þess vegna á að flytja leikina til
Italíu.
H RODGER Davis, kylfingur frá
Ástralíu, sigraði á opnu golfmóti í
Sanctuary Cove í Ástralíu á
sunnudaginn. Hann hafi fimm
högga forskot fyrir síðasta daginn,
en lék þá á 77 höggum og vann
með tveggja högga mun. Gant
Waite frá Nýja-Sjálandi varð ann-
ar en hann lék á 70 höggum á
sunnudaginn. Veður var ekki mjög
hagstætt á sunnudaginn og fór
vindhraðinn þá upp í 60 hnúta.
■ VICTOR Piturca var á laugar-
daginn ráðinn þjálfari rúmenska
knattspyrnuliðsins Steaua Búkar-
est. Piturca, er 38 ára, og lék áður
með Steaua. Hann tekur við af
Emerich Jenei, sem hefur verið
ráðinn þjálfari ungverska landsliðs-
ins.
KNATTSPYRNA / EM
Talsmaður Knattspyrnusambands Júgóslavíu:
Við verðum með
Hátt settur forystumaður í júgóslavneska knattspymusambandsins
sagði um helgina að Júgóslavar yrðu á meðal þátttakenda í úrsli-
takeppni Evrópumóts landsliða í Svíþjóð í sumar, þó svo formaður
UEFÁ, Svíinn Lennart Johansson teldi líkurnar á því hverfandi fyrir
helgi, eins og fram kom í Morgunblaðinu.
„Menn hafa verið að velta vöngum yfir því að Danir taki sæti okkar
í keppninni, en það er fjarstæða," sagði Dusan Marovic í viðtali við
fréttamann Reuters. „Við erum fullgildir meðlimir samkvæmt lögum
UEFA. Júgóslavía er enn aðili að Sameinuðu Þjóðunum og Alþjóða
knattspyrnusambandinu, FIFA, og tilraunir ýmissa til að þurrka okkur
út af kortinu hafa ekkert að gera með knattspymuna.“
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Öll úrslitin eftir bókinni