Morgunblaðið - 14.01.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.01.1992, Blaðsíða 8
KORFUBOLTI p|SBRp$’v í' s'fí'i•%w®WSfSSIIi*?í iPRúmR SKIÐI 79 svigmótið til - sagði Kristinn Björnsson sem varð í 3. sæti á alþjóðlegu stigamóti í Austurríki KRISTINN Björnsson, skíða- maður frá Ólafsfirði, varð í 3. sæti á alþjóðlegu stigamóti í svigi sem f ram fór í Flachau í Austurrríki á sunnudag. Hann hlaut 42,00 stig fyrir árangur sinn. „Þetta er besta svigmótið hjá mér til þessa. Æf ingarnar í Noregi eru greinilega að skila sér. Markmiðið hjá mér er að komast undir 40 stig í svigi,“ sagði Kristinn Björnsson ísam- tali við Morgunblaðið. Kristinn náði fjórða besta tíman- um í fyrri umferð, en í síðari umferð gerði hann enn betur og var með næst besta tímann. Hann fékk tímann 1:34.39 mín. Sigurvegari var góðkunningi íslendinga, Tékk- inn Peter Jurko, sem keppti á Flug- leiðamótinu hér á landi í fyrravet- ur. Hann fékk tímann 1:31.69 mín. Austurríkismaðurinn Thomas Lo- edler varð annar á 1:34.39 mín. Ömólfur Vadimarsson, Valdemar Valdemarsson og Arnór Gunnars- son voru úr leik. Eins og áður segir hlaut Kristinn 42,00 FlS-stig og er það besti ár- angur hans. Hann átti áður best 43,93 sig er hann náði fimmta sæti á alþjóðlegu stigamóti í Trysel í Noregi í byijun desember. „Það hefur gengið vel hjá mér og ég er bjartsýnn á framtíðina. Þetta er búið að vera svolítið erfitt þar sem við höfum tekið þátt í svo mörgum mótum á skömmum tíma,“ sagði Kristinn. Kristinn og Örnólfur kepptu í svigi á Evrópubikarmóti í Austur- ríki í gær. Kristinn varð í 64. sæti eftir fyrri ferð, en Örnólfur í 70. sæti. Þeir fengu ekki að fara síðari umferðina þar sem aðeins 60 bestu fá að fara síðari umferð. Keppendur voru 110. „Við áttum báðir slakan dag og náðum okkur ekki á strik í þessu móti,“ sagði Kristinn. Á sama tíma kepptu Amór Gunn- arsson og Valdemar Valemarsson í risasvigi í St. Lardrecht. Arnór komst niður og var 10 sekúdnum á eftir Helmut Maier, sem sigraði. Valdemar varð úr leik. Ásta í 7. sæti Ásta Halldórsdóttir frá ísafirði varð í 7. sæti í svigi á alþjóðlegu stigamóti í St. Lardrecht í Áustur- ríki á föstudag. Hún hlaut 50,23 FÍS-stig og er það besti árangur hennar í vetur. Harpa Hauksdóttir lauk ekki keppni. 80 keppendur tóku þátt í mótinu. Á laugardaginn kepptu þær í stórsvigi á sama stað. Ásta hafnaði í 31. sæti og hlaut 86 stig, en hún hafði rásnúmer 63. Harpa í 67. sæti og hlaut 123 stig. 90 keppend- ur tóku þátt í mótinu. íslenska karlaliðið keppir í stórs- vigi í St. Lardrecht í dag og síðan verður keppt í þremur mótum í Cortina á Ítalíu í lok vikunnar. Ásta og Harpa keppa í Frakklandi í dag og á morgun. Morgunblaðið/Bjarni Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði hefur staðið sig vel í skíðabrekkum á meginlandi Evrópu að undanförnu. Hann varð þriðji á alþjóðlegu móti í Austur- ríki á sunnudag. Bikarkeppni KKÍ: Páll tryggði KR sigur KR, UMFN, ÍBK, Haukar, Þór og Valur eru komin í 8-liða úrslit bikarkeppni KKÍ. Bikarmeistarar KR sluppu með skrekkinn gegn Skallagrími í Borg- arnesi í gærkvöldi og unnu 88:87. Birgir Mikaelsson kom heimamönn- um yfír, 87:86, þegar sex sekúndur voru eftir, skoraði úr tveimur víta- skotum og heimamenn fögnuðu ákaft. En Páll Kolbeinsson, sem lék meiddur, skoraði sigurkörfu KR á síðustu sekúndu. Birgir var stigahæstur hjá Skallagrími með 28 stig, Maxím Krupatsjev skoraði 23 og Hafsteinn Þórisson 12. Jon Baer skoraði 26 stig fyrir KR, Guðni Guðnason 24, Hermann Hauksson 14 og Ólafur Gottskálksson 13. Valur vann Tindastól að Hlíða- renda, 75:71. Tindastóll hafði for- ystu í leikhléi, 37:45. Þrátt fyrir að Booker hvíldi tókst Val að jafna um miðjan síðari hálfleik 54:54. Síðan var allt í járnum þar til Valur fékk sex stig úr einni sókn. Stigahæstir í liði Vals voru Franc Booker með 29 og Magnús Mattías- son með 20 stig. Pétur Guðmunds- son og Ivan Jónas gerðu 20 stig hvor fyrir Tindastól. Haukar unnu Snæfell 107:63 í Hafnarfirði. Pétur Ingvarsson var stigahæstur í liði Hauka með 17 stig, Bragi Magnússon og Jón Arn- ar Ingvarsson komu næstir með 15. stig. Hjörleifur Sigurþórsson var stigahæstur gestanna með 18 stig, Bárður Eyþórsson kom næstur með 14 stig. Þórsarar unnu 1. deildar lið Hatt- ar frá Egilsstöðum 78:93. Á föstu- daginn burstaði Njarðvík ÍA á Akranesi, 73:155, og ÍBK vann b- lið UMFN með 112 stigum gegn 67. KNATTSPYRNA / AFRIKUKEPPNI LANDSLIÐA Meistaramir töpuðu Alsír, sem á titil að veija í Afr- íkukeppni landsliða í knatt- spyrnu, tapaði óvænt 3:0 fyrir Fíla- beinsströndinni í c-riðli keppninnar í gær og Egyptaland mátti þola 1:0 tap fyrir Zambíu í d-riðli. Kamerún og Nígería byijuðu hins vegar betur á sunnudaginn — Kamerún vann Marokkó 1:0 í b-riðli, en í a-riðli fór Nígería með 2:1 sigur af hólmi í Senegal. Leikmenn Fílabeinsstrandarinn- ar gerðu út um leikinn fyrir hlé og gerðu þá tvö mörk. í stöðunni 1:0 var einum leikmanna Alsír vikið af velli, en þrír leikmenn Fílabeins- strandarinnar fengu að sjá gula spjaldið. Andre Kana-Biyik, sem leikur í Frakklandi, tryggði Kamerún sigur í Dakar með skalla af sex metra færi eftir innkast um miðjan fyrri hálfleik. Marokkó missti varnar- manninn Fadel Jilal og Zaki Badou markvörð meidda af velli í fyrri hálfleik, en lét mótlætið ekki á sig fá og barðist til síðustu mínútu. Kamerún, sem hefur tvisvar sigrað í keppninni, var langt frá sínu besta, en mætir Zaire á fímmtudag. Marokkó og Zaire leika á morgun. Stephen Keshi, vamarmaður hjá Strasborg í Frakklandi, gerði sigur- mark Nígeríu á 89. mínútu. Samson Siasia, leikmaður Lokeren í Belgíu, gaf Nígeríu tóninn á 13. mínútu, en Jules Bocande, sem leikur með Lens í Frakklandi, jafnaði skömmu fyrir hlé. Sigur Nígeríu var sanngjarn og liðið lék mjög vel, en leikurinn var mun betri en opnunarleikur keppn- innar. Kenya og Nígería leika í a- riðli á morgun, en Senegal og Kenya a'fímmtudag. RUÐNINGUR / BANDARIKIN Reuter Cornelius Bennett, leikmaður Buffalo Bills reynir að stöðva John Elway (7), leikstjórnanda hjá Denver Broncos, í viðureign liðanna í undanúrslitum um helgina. GETRAUNIR: X 1 X X12 X 2 X 112 Buffalo og Wash ington í úrslitin BUFFALO Bills og Washington Redskins, sem hafa verið lang- bestu liðin í vetur, leika til úr- slita í bandaríska fótboltanum „Super Bowl“ í Minneapolis 26. janúar. Það má því segja að um draumaúrslitaleik verði að ræða. Buffalo vann Denver Broncos 10:7 í undanúrslitum á sunnu- dag í leik hinna sterku varna. Buff- alo komst í 10:0, en Frá Gunnari undir lokin var mikil Valgeirssyni spenna og má segja íBandaríkjunum að Buffalo hafi marið sigur. Þetta er annað árið í röð sem Buffalo leikur til úrslita, en í fyrra tapaði liðið fyrir New York Giants, 22:21. Washington Redskins vann auð- veldan sigur á Detroit Lions, 41:10, í hinum undanúrslitaleiknum. Redskins hafði mikla yfirburði og komst fljótlega í 10:0 og jók síðan forystuna jafnt og þétt og það var aldrei spurning hvar sigurinn lenti. Úrslitaleikurinn fer fram í Minneapolis í Minnesota eftir tvær vikur. Liðin æfa heima þessa vik- una, en fara síðan til Minnesota og undirbúa sig síðustu vikuna. Leik- urinn fer fram á íþróttahöll sem tekur um 70 þúsund áhorfendur. LOTTO: 5 20 27 34 35 (3)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.