Morgunblaðið - 17.01.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992
Morgunblaðið/RAX
Komið úr róðri
Vinnudegi sjómanna er sjaldnast lokið þótt báturinn hafi lagst við bryggju. Á þessari mynd sjást Rúnar
Benjamínsson og Þorgrímur Benjamínsson síðla kvölds um borð í skipi sínu Skálavík SH-208 í Olafsvíkur-
höfn taka bjóðin í land eftir veiðiferð.
Rætt við Norðmenn
• •
um sölu á ms. Oskju
Sjö fundir með ríkisstarfsmönnum í næstu viku:
Ekki verður um launa-
hækkanir að ræða í ár
- segir formaður Samninganefndar ríkisins
SJÖ samningafundir hafa verið
boðaðir með félögum opinberra
starfsmanna og Samninganefnd
ríkisins í næstu viku. Ágúst Ein-
arsson, formaður Samninganefnd-
ar ríkisins, segir að á þessum
fundum verði þráðurinn tekinn
upp þar sem frá var horfið í des-
ember.
„Eg held það séu alltaf fleiri og
fleiri að gera sér grein fyrir því að
það verði ekki um kauphækkanir að
ræða á þessu ári og gengið verði
óbreytt. Miðað við það erum við að
tala um 2,4% verðbólgu á árinu og
með því móti höldum við atvinnu-
leysi í algeru lágmarki og höldum
kaupmáttarrýrnun í skefjum eins og
nokkur kostur er miðað við aðstæð-
ur. Þannig náum við einnig niður
vöxtunum," sagði Ágúst ennfremur.
Hann sagði að ef fallist yrði á ein-
hveijar kaupbreytingar í ár þá héldi
gengisstefnan ekki lengur. Afleiðing-
in yrði aukin verðbólga og þar með
minni kaupmáttur en ella, auk þess
sem þá myndi ekki takast að ná nið-
ur vöxtum. „Þetta er skynsamlegasta
leiðin og mér fínnst fólkið í landinu
alltaf að gera sér þetta ljóst betur
og betur. Því miður getur þetta ekki
verið ár kjarabóta. Menn verða að
horfast í augu við staðreyndir, en
það kemur ár eftir þetta ár,“ sagði
Ágúst.
Hann sagðist gera sér vonir um
að gangur fari að komast á viðræður
í átt til samninga, þrátt fyrir svolítið
háttstemmdar yfírlýsingar ýmissa
forsvarsmanna í þessum málum.
„Það er eins og gengur þegar menn
eru búa sig til viðræðna, en mér
fínnst orðinn mun meiri skilningur á
því meðal almenns fólks í þessu landi
að sú leið sem við höfum verið að
tala um frá upphafi veldur öllum
minnstri röskun á þessu ári.“
-----♦ ♦ ♦-----
Fimmtán
tilboð í flug-
sljórnar-
miðstöð
TILBOÐ hafa verið opnuð í
byggingu flugstjórnarmiðstöðv-
ar á Reykjavíkurflugvelli.
Fimmtán tilboð bárust. Að sögn
Péturs Einarssonar, flugmála-
stjóra, er nú verið að fara yfir
tilboðin. Hann segir að búast
megi við ákvörðun um hvaða til-
boði verði tekið fyrir lok þessa
mánaðar.
Búið er að steypa sökkla að bygg-
ingunni og á að skila henni tilbú-
inni undir tréverk í þessum áfanga.
Kostnaðaráætlun er upp á um það
bil 139,5 milljónir króna og skal
verkinu vera lokið fyrir haustið.
Samgöngnráðherra gagnrýndur harðlega á Alþingi
SAMNINGAR Samskipa hf. og samgönguráðuneytis um ms. Esju
liggja fyrir með fyrirvara um endanlegt samþykki ráðherra og
stjórnar Samskipa, að sögn Ómars Jóhannssonar, framkvæmda-
sljóra Samskipa. í gær var farið yfir tæknileg atriði samningsins
í fjármálaráðuneytinu. Þá eru viðræður einnig í gangi við nor-
skan aðila um kaup á ms. Oskju sem fara fram með milligöngu
norks skipamiðlara, samkvæmt upplýsingum Benedikts Jóhann-
essonar, stjórnarformanns Ríkisskipa, sem stýrir viðræðunum
fyrir hönd ráðherra.
Benedikt sagði að Samskip
hefðu einnig sýnt áhuga á að
kaupa aðrar eignir Ríkisskipa og
ms. Hekla hefði verið nefnd en
engar viðræður um slíkt hefðu
Ríkið kærir
verkfalls-
boðun FÍN til
Félagsdóms
TÍMABUNDIN verkfallsboðun
Félags íslenskra náttúrufræð-
inga 11. febrúar næstkomandi
verður kærð til Félagsdóms
þegar hún kemur fram, að sögn
Ágústs Einarssonar, formanns
samninganefndar ríkisins.
Ágúst sagði að ágreiningur
væri milli félagsins og ríkisins um
það hvort lög um samningsrétt
opinberra starfsmanna heimiluðu
tímabundin verkföll og því myndi
ríkið vísa ágreiningnum til úr-
skurðar Félagsdóms.
„Okkur sýnist að það sé ekki
heimilt að fara í tímabundin verk-
föll og höfum látið Félag íslenskra
náttúrufræðinga vita um þessa
skoðun okkar. Það er óheppilegt
að það ríki vafi um svona atriði
og komi til verkfallsboðunar mun-
um við skjóta henni til Félagsdóms
eins og ráð er fyrir gert í lögum.
Ég held það sé jafn mikilvægt
fyrir báða aðila að vita hvar þeir
standa,“ sagði Ágúst.
Lög um samningsrétt opinberra
starfsamanna sem færðu meðal
annars samnings- og verkfallsrétt
frá heildarsamtökunum til ein-
stakra aðildarfélaga eru frá árinu
1986.
hafist. Að sögn Ómars hafa óform-
legar viðræður þegar hafist um
hugsanlega leigu á ms. Heklu auk
fleiri eigna. -Sagði hann að niður-
staða þeirra kynni að liggja fyrir
um helgina. Vildi hann ekki greina
frá efni samningsins um ms. Esju.
Strandferðaskipið Askja var
sett á sölulista sl. haust og ákvað
samgönguráðherra að leggja skip-
inu um áramót. Stærstu eignir
Ríkisskipa eru strandferðaskipin
þijú og vöruskemma en aðrar
eignir, svo sem gámar og lyftarar,
verða væntanlega auglýstar til
sölu fljótlega. Nú er verið að útbúa
eignalista vegna væntanlegrar
sölu. „Það hefur komið í ljós að
það er mikill áhugi á öllum eignum
og hefur mikið verið um fyrir-
spurnir að undanförnu,“ sagði
Benedikt.
Samgönguráðherra var gagn-
rýndur harðlega á Alþingi í gær
fyrir að hafa ekki veitt þinginu
upplýsingar um að samningum
væri lokið þegar umræður fóru
fram um málið á þingi á mánu-
dag. Ráðherra sagðist hafa skýrt
þinginu satt og rétt frá því hvern-
ig málin stóðu. Eyjólfur Konráð
Jónsson, alþingismaður og for-
maður undirbúningsnefndar um
stofnun hlutafélags um strand-
ferðir, gagnrýndi samgönguráð-
herra fyrir meðferð málsins og
sagði þetta mál í heild sinni heldur
dapurlegt. „Ég get naumast tekið
þátt í umræðum við hæstvirtan
ráðherra um þetta mál. Mér ofbýð-
ur,“ sagði Eyjólfur.
Sjá þingsíðu á bls. 24
Engin hrygningarloðna
úti fyrir Norðurlandi
BRÆLA var á loðnumiðunum fyrir Austurlandi í fyrrinótt og loðnan
stóð djúpt og því veiddist lítið. Einhveijir bátar fengu smáslatta í fyrra-
kvöld. Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson hefur ekki orðið vart við
hrygningarloðnu fyrir Norðurlandi.
Bjöm Ingimarsson skipveiji á
Hilmi SU 171 sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þeir hefðu
kastað á torfu sem stóð á 45-50
föðmum en lítið komið út úr því.
Loðnan er á stóru svæði út af Aust-
fjörðum og er allur loðnuflotinn þar,
auk norskra loðnuskipa og margra
skuttogara. Hilmir var um 50 mílur
austur af Dalatanga þegar Morgun-
blaðið ræddi við Bjarna um hádegis-
bilið í gær og var þá komið ágætis
veður sem Bjarni vonaði að héldist
þannig að veiði glæddist með kvöld-
inu.
Rannsóknaskipið Bjami Sæ-
mundsson hefur verið við loðnuleit
fyrir Austur- og Norðurlandi frá því
5. janúar. Leiðangurinn hófst við
sunnanverða Austfírði og síðan var
farið norður með Austfjörðum og
vestur með Norðurlandi. Fannst ný
ganga af hrygningarloðnu út af
Langanesi og Melrakkasléttu.
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur
um borð í Bjarna Sæmundssyni sagði
að sú ganga væri mun minni en aðal-
gangan sem nú gengur suður fyrir
land. Hann sagði þó að hún væri það
langt á eftir fýrri loðnugöngunni að
hún kæmi sér vonandi vel, myndi
teygja úr veiðitímabilinu þar sem hún
hiygndi mun seinna.
Bjarni Sæmundsson er nú úti fyr-
ir Norðurlandi en þar hefur ekki orð-
ið vart við hrygningarloðnu. Næstu
daga leitar skipið vestur með Norður-
landi og út af Vestfjörðum.
Alþýðusamband íslands:
Ríkið breyti ákvörðunum
sínum um kj araskerðingri
Getur ráðið úrslitum um hvort samningar nást, segir forseti ASÍ
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands íslands hefur skrifað forsætisráð-
herra bréf þar sem ítrekuð eru mótmæli samtakanna gegn „árásum
ríkisstjórnarinnar á lífskjör launafólks". Jafnframt er áréttað að í
þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir verði knúið á um það
að ríkissljórnin breyti ákvörðunum um hækkun þjónustugjalda, gjald-
skrárhækkanir, skerðingu barnabóta og sjómannaafsláttar, sem hafi
í för með sér rúmlega 2% skerðingu á ráðstöfunartekjum að meðal-
tali.
„Við erum þarna að árétta efni
sem við höfum ítrekað komið á
framfæri við ráðherra og þing-
nefndir án teljanlegs árangurs,"
sagði Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, við Morgunblaðið en hann átti
fund um þetta mál með Davíð Odds-
syni forsætisráðherra í gær. „Við
töldum ástæðu til að árétta það
sérstaklega núna að það sem þarna
gerist mun kalla á viðbrögð okkar
í tengslum við kjarasamninga. Þær
viðræður eru nú á vettvangi félaga
og sambanda en við gerum ráð fyr-
ir að þegar kemur að því að tala
um tryggingar og fleira þá muni
verða einhveijar sameiginlegar við-
ræður. Ég ítrekaði það við forsætis-
ráðherra að það hvernig ríkisvaldið
bregst við í þessu efni getur ráðið
úrslitum um það hvort samningar
takast eða ekki, og þá hvort þeir
takast með friði eða hvort þar verða
átök,“ sagði Ásmundur.
í bréfi ASÍ til forsætisráðherra
segir að hækkun þjónustugjalda,
m.a. fyrir lyf og læknisþjónustu,
raunhækkun skatta, skerðing
barnabóta, sjómannaafsláttar og
gjaldskrárhækkanir hafi í för með
sér rúmlega 2% skerðingu á ráðstöf-
unartekjum að meðaltali og kaup-
máttarskerðing sé enn meiri hjá
barnafjölskyldum og þeim sem mest
þurfa á heilbrigðisþjónustu að
halda. Skattleysismörk séu nú rúm-
lega 2.000 krónum lægri á mánuði
en ætti að vera, miðað við lánskjara-
vísitölu, og þá sé einnig stefnt að
því að skerða ellilífeyri og fella
burt ríkisábyrgð á lífeyrisréttindi
við gjaldþrot. A sama tíma hafi rík-
isstjórnin enn vikist undan því að
skattleggja fjármagnstekjur.
J