Morgunblaðið - 17.01.1992, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 17.01.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1992 9 Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem sýndu mér hlýhug og vináttu á sextugsafmœli mínu. Lifið heil. Árný Friðriksdóttir. ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA Valborg, Laugavegi Valborg, Borgarkringlunni LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. é Lán og saltsíld Nokkur hvellur hefur orðið út af neitun Landsbankans að lána Rússum 800 milljónir króna til að greiða fyrir saltsíld frá íslandi. Bankinn leitaði eftir áliti ríkisstjórnar og Seðlabanka á þessum viðskiptum og til- kynnti um neitunina að því fengnu. Þessari niðurstöðu hefur verið mótmælt af hags- munaaðilum og hafa þau fyrst og fremst beinzt gegn ríkisstjórninni. DV og Alþýðu- blaðið skrifuðu forystugreinar um málið í gær og er vitnað til þeirra í Staksteinum í dag. Furðuleg um- ræða DV skrifar forystu- grein um saltsíldarmálið í gær og segir m.a.: „Furðuleg umræða lief- ur sprottið upp vegna hugsanlegra síldarkaupa Rússa. Síldarútvegsnefnd hefur farið fram á það við Landsbankann að bankinn láni síldarkaupendum í Rússlandi fyrir kaupum á 300.000 tunnum af salt- síld. Landsbankinn skrif- aði ríkisstjóminni bréf og leitaði álits hennar á þessu erindi. Ríkisstjórnin gaf bankanum einfalt svar sem var efnislega á þá leið að það væri bankans að meta slík lánaviðskipti. I framhaldi af þeim bréfa- skiptum hefur Lands- bankinn hafnað tillögu Sfldarútvegsnefndar og gerir það á þeirri for- sendu að ríkisstjómin hafi dregið úr honum lgark- inn. Þetta sérkennilega mál hefur svo verið tekið upp á alþingi þar sem einstak- ir þingmenn gagnrýna ríkisstjómina fyrir að koma i veg fyrir síldarsölu til Rússlands og nokkrir þingmenn Framsóknar- flokksins hafa beinlínis lagt fram tiUögu um að ríkisstjórninni verði heim- ilt að ganga í ábyrgð fyrir láni, allt að 300 milþ'ónir króna, til að greiða fyrir síldarviðskiptum við Rúss- land.“ Annaðhvort eða Síðan segir DV :„Allt er þetta dæmalaus mála- tilbúnaður. Fyrir það fyrsta getur það undir engum kringumstæðum verið hlutverk í-íkisstjóm- arinnar að segja Lands- bankanum fyrir verkum í almennum Iánaviðskipt- um. Annaðhvort veðjar bankinn á sina viðskipta- vini og þau viðskipti sem þar um ræðir eða ekki. Hafa ekki bankarnir sí- fellt verið að leggja áherslu á sjálfstæði sitt og hafa ekki bankamir einmitt verið gagnrýndir fyrir ábyrgðarlausar lán- veitingíu-, þar sem verið er að gera greinarmun á Jóni og séraJóni? Hvemig fór fyrir Útvegsbankan- um gamla og af hverju er verið að tala um að breyta ríkisbönkunum í hlutafélög, nema til að útrýma þeirri spillingu sem felst í pólitiskum af- skiptum af rekstri lána- stofnana?" Ríkiðalls staðar DV segir ennfremur: „í öðm lagi er ósanngjamt að keima ríkisstjórninni um það að sfldarsalan geti ekki farið fram til Rússa. Ríkisstjómin gerði ekki aimað en það sem henni ber að gera, það er að segja að vísa málinu til afgreiðslu þeirra sem hagsmuna hafa að gæta. Ef íslendingar vilja koma skikki á sín efnahagsmál verða þeir að vegja sig af þcim hugsunarhætti að ríkisvaldið sé alls staðar með puttana og safni öll- um skuldum og skuldbmd- inguni á bak við sig. Skuldir þjóðarinnar, hall- inn á fjárlögum og erfið- leikar atvinnulífsins em allt afleiðingar þess hugs- unarháttar, að ríkið eigi öllu að bjarga og geti sí- fellt á sig blómum bætt. Annað hvort er markaður fyrir síldina eða það er ekki markaður og annað hvort em kaupendur borgunarmenn og ábyrgðarmenn fyrir kaupum sínum eða ekki. Islenska rfldsvaldið á ekki og getur ekki selt síld til útlanda eða lánað öðmnt til að fá lán l\já okkur með því að gangast í ábyrgð fyrir greiðslu sem kaupendur eiga að standa skil á. Ríkið á ekki að koma nálægt þessu máli.“ Fleiri spreyti sig Loks segir DV: „Ef Sfld- arútvcgsnefnd er svo mik- ið í mun að selja Rússun- um síldina af því nefndin telur það vænleg viðskipti þá er henni væntanlega í lófa lagið að gangast sjálf í ábyrgð og sildarútvegur- imi tekur þá áhættuna sjálfur. Það er engin frá- gangssök, enda segjast þeir hafa góða reynslu af viðskiputm Rússa og vissulega er þama stór markaður og margt hægt að gera amiað en að selja allt eða ekkert. Em ekki vömskipti möguleg? Get- ur ekki Landsbankinn gert einhveija greiðslu- samninga í almennum bankaviðskiptum við Rússland? Er ekki kominn tími lil að útflutnings- verslunin leiti annarra leiða og til annarra átta um sölu á góðri síld? Er ekki kominn tími til að fleiri en Síldarútvegs- nefnd fái að spreyta sig á þessum viðskiptum?" Má ég ekki mamma...? I fomstugrein Alþýðu- blaðsins segir m.a.: „Ef Landsbankinn væri alvömviðskiptabanki hefði bankastjórn bank- ans afgreitt lánsumsókn Rússa upp á eigin spýtur. Bankastjómm hefði hug- að að hagsmunuin sinum, jafnvel sett skilyrði um minni afhendingu síldar og lægri lánveitingu, beð- ið innlenda síldarsöluaðila um tryggingar eða keypt tryggingar á alþjóðlegum tryggingamarkaði gegn því að Rússlandsbanki vanefndi skuldbmdingar sínar. Ekkert af þessu gerði bankastjóm Lands- bankans. Þess í stað skrif- aði baukastjómin bréf til ríkisstj ó rnari i mar um af- stöðu hennar til málsins: „Má ég ekki mamma, ineð í leikinn þramma?" Þessi málsmeðferð bankasljórn- ar Landsbankans sýnir í hnotskura ósjálfstæði bankans i veigameiri mál- um sem hingað til hafa verið afgreidd i flokka- kerfhiu og skilaboðm send til kommissaranna i bankaráði eða bankastjó- rastöðum Landsbankans. Nú situr hins vegar ríkis- stjórn við völd sem hefur hug á að mhuika pólitísk afskipti i bankakerfinu. Þessi ríkisstjóm svaraði pólitiska byltingarliðinu í Landsbankanum, að þeir yrðu að standa á eigin fótum. Og þá meldaði Landsbankinn pass og benti á ríkisstjórnina sem sökudólg sem vildi ekki gefa sér línumar. Og stjórnarandstaðan og þó aðallega þingmenn ríkis- forsjárflokkanna tóku undir raunasöng komm- issaranna í Landsbankan- um. Enginn treysti sér í skessuleik alþjóðlegra lánaviðskipta án þess að spyija mömmu.“ SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.