Morgunblaðið - 25.01.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.01.1992, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992 „Skúlptúr án titils." Krít, grafít og olía á prent, 1991. „Ef við lítum á ready-made verk sem eru skyld innbyrðis eins og Flora (1987) og Dit is Zwitserland (Þetta er Sviss) (1988), síðan á ljós- myndirnar í Openings og svo á teikningarnar sem ég er að gera núna þá er hægt að segja að Open- ings sé eins konar brú þarna á milli. Þegar ég tók bækur sem heita „Dit is Zwitserland" og rammaði þær inn þá var ég einfaldlega að kanna hvernig áhrif það hefur að taka svona upplýsingar bókstaflega og sýna þær sem einhvern sannleik á bak við gler, án þess að breyta hlutnum að öðru leyti. Ég hefði getað gert það sama við ljósmyndirnar sem ég var búinn að sanka að mér þúsundum saman. Ég hefði alveg getað sett 32 þeirra satnan í bók og sagt sem svo: val þessara mynda eða það að þær eru í þessari bók er það sem skiptir máli. En það dugði mér ekki. Ég vildi nefnilega undirstrika eitthvað ákveðið í hverri mynd, afhjúpa for- sendurnar fyrir valinu. Forsendurn- ar gátu t.d. verið þær að ég tengi mann og hund með svörtum fleti eða þá að ég vil undirstrika ástand með því að gera einhveija mann- eskju svarta o.s.frv." — Það sem þú svertir í myndinni er þá alltaf það sem þú vilt leggja áherslu á. „Já, það sem skiptir mig máli í myndinni án þess að ég geti gert nokkra nákvæma grein fyrir því.“ — En þú afmáir það um leið og þú leggur áherslu á það. „Já þetta er svona svipað og þegar nakin kona heldur um sköpin þá er hún hvort tveggja í senn að hylja og draga athyglina að. Vinnu- brögðin í Openings fólust þannig í því að breyta ready-made hlutum fremur en setja hann eingöngu í eitthvert nýtt samhengi eins og áður. Það sama var uppi á teningn- um í sjálfsmyndum sem ég gerði með því að velja andlitsmyndir úr ítölskum tískublöðum, árita þær og stimpla: „The selfportrait series“. Með þessu var ég að sýna fram á Morgunblaðið/Einar Falur Þorvaldur Þorsteinsson Frummyndasaln Þorvaldar Þorsteinssonar Leitið og „SIGGA og Addi komu einu sinni í heim- sókn að sumri til og gáfu mér appelsínu sem þau höfðu keypt í Reykjavík áður en þau lögðu af stað í bílnum sínum. Þetta fannst mér miklu merkilegri appelsína en þær sem fengust í kaupfélaginu af því að hún hafði komið til Reykjavíkur." Þ essa stuttu sögu skrifar Þorvaldur Þor- steinsson myndlistarmaður ásamt mörgum öðrum í bókina Hundrað fyr- irburðir sem kom út árið 1987 og var um leið lokaverk- efni hans við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Sagan er mjög gott dæmi um þann hugsunarhátt sem einkenndi verk Þor- valdar á þessum árum, en þá lagði hann mikla áherslu á „að einfalda munid nnast veruleikann til þess að geta höndlað hann — skilið hann betur“. Síðan Þorvaldur lauk framhalds- námi frá Jan van Eyek Akademie í Maastricht 1989, heur hann hald- ið einkasýningar í Hollandi, Belgíu og Þýskalandi og tekið þátt í mörg- um samsýningum heima og erlend- is. Sýningin sem hann opnar í dag í Nýlistasafninu er stærsta einka- sýning hans á íslandi til þessa; þar sýnir hann verk sem unnin eru á síðastliðnu ári, en einnig stendur sýning yfír á verkum hans á Mokka við Skólavörðustíg. „Ég fór líka í tímaritin, Æskuna, Heima er best og gömlu skólabæk- umar. Ég var heillaður af þessu vegna þess að þetta var svo einfalt og saklaust og það var ekki fyrr en löngu seinna að ég fór að velta því fyrir mér, af hveiju ég væri svona hrifinn af þessu. Þessar sög- ur eru flestar lyklar að alls kyns viðhorfum. Þær afhjúpa ýmislegt í sambandi við gildismat minnar kyn- slóðar og hafa því verið mjög mikil- vægar fyrir mig,“ segir Þorvaldur, þegar hann er spurður út í tilurð fyrstu verka hans og um bókina Hundrað fyrirburðir. — En ertu þá ennþá upptekinn af þessum bernskuhugmyndum þín- um eða finnst þér þú hafa fjar- lægst þær? „Ég er ennþá upptekinn af þeim og jafnvei í ríkara mæli en áður, þó að í millitíðinni hafi ýmislegt mikilvægt gerst. Það má segja að þetta sé alltaf leitin að lykli eða lyklum sem að ganga að sem flest- um skrám. Ég er alltaf að safna og raða saman. Ég sagði einu sinni að ég væri eins og púsluspil og með því að raða saman brotum ytri veru- leikans þá gæti ég smám saman fengið mynd af þeim innri. Þessi brot hafa hins vegar alltaf reynst mjög fjölbreytt, jafnvel virst ósam- stæð, þannig að lengi vel hafði ég áhyggjur af því hvað tjáningarleið- irnar voru margar; teikningar, skúlptúrar, vasaleikrit, klippimynd- ir, myndbönd, ready-made o.s.frv. og hélt ég þyrfti að velja þama á milli. En sem betur fer er ég laus við þessar áhyggjur núna. Ég veit að þetta tilheyrir allt sömu mynd- inni, auk þess sem við lifum á tím- um Endurreisnar og dagar sérhæf- ingadýrkunarinnar því senn taldir.“ — Afstaða þín til tilverunnar er n\jög „realísk“ eins og kemur reyndar strax fram í bamabókinni Skilaboðaskjóðan sem þú skrifaðir 1986. „Já, hún er fremur jarðbundið ævintýri og í því verki eins og mörgum öðrum reyndar kemur fram þessi árátta hjá mér að vera alltaf með ailt í kring um mig allan tímann, reyna að skilja það og koma því í eitthvert samhengi. I Skilaboð- askjóðunni þurfti ég t.d. endilega að hafa Ævintýraskóginn afmark- aðan heim þar sem öll ævintýrin gátu gerst. í öðrum verkum nota ég gjarnan „herbergi þar sem allt á að vera ... Aður en ég fór í nám til Hollands (1987) var ég allt- af að sanka að mér alls konar hlut- um, myndskreytingum og öðru slíku sem tilheyrðu í rauninni ákveðnu „safni“ af því sem ég þurfti að hafa í kring um mig og skiptu mig miklu máli. Þegar ég kom út gerði ég mér grein fyrir því að ég var með of staðbundið efni og ég vildi breyta því, víkka efnisvalið út og færa mig nær nútímanum, en um leið halda í þetta sakleysi sem ég var að sækj- ast eftir. En það má segja að ég hafi strax lagt grunninn að ákveðnum vinnu- brögðum og ákveðinni afstöðu í Myndlista- og handíðaskólanum, þó svo að fókusinn hafi skerpst til muna eftir að ég kom út til Ma- astricht. Allt í einu hafði ég allt hráefni Evrópu við hendina og þá var eins gott að vita hvað ég vildi nota og hvers vegna.“ — Hvernig velur þú? „Mottóið er leitið og þér munið finnast," segir Þovarldur sposkur. „Ég bara veit það, þegar ég sé eitt- hvað, frétti af því eða dett um það, að akkúrat þetta þurfi ég að nota, „Úr Bibliuseríunni.11 Olía á prent, 1991. hvort _sem ég skil það núna eða ekki. Ég treysti bara innsæinu.“ Það eru hlutirnir sem velja þig. „Þeir kallast á við frummynd sína í höfðinu á mér og mitt hlutverk er að skerpa stöðugt heyrnina svo ég heyri til þeirra. En ég nota líka mikið þá ágætu aðferð einfaldlega að vinna og meðan ég er að vinna kvikna nýjar og oft markvissar hugsanir sem kreQast þess að ég leiti að einhvetju ákveðnu hráefni til ákveðinnar útfærslu. Hráefni sem ég oftar en ekki hef eignast löngu áður og hefur beðið þolinm- ótt eftir að öðlast nýjan tilgang.“ — Þú hefur talað um mikilvægi bókarinnar Openings og sagt að hún sé eins konar þröskuldur á þín- um listferli, upphafið á því sem þú ert að gera núna. Getur þú útskýrt það nánar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.