Morgunblaðið - 25.01.1992, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 25.01.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JANUAR 1992 B 3 að það er önnur meðvitund í þessu en virðist við fyrstu sýn. Með því að sverta dró ég athyglina að ákveðnum atriðum í Openings, en í nýrri verkuknum, þeim sem ég sýni núna og hef verið með á Aur- ora sýningunni í Finnlandi og víðar að undanförnu, vinn ég með and- hverfuna, þ.e.a.s. ég tek allt annað í burtu en formið sem ég vel í myndinni. Það verður óljóst hvaðan þetta form kemur, hvað það verður og hvar það stendur. Þessi flötu form eru færð út úr myndrýminu yfir á stöpul þannig að þau mynda eins konar skúlptúr sem tilheyrir rými sem á sér samsvörun í höfðinu á mér. Með því að nýta tvívíðan veruleika og opna hann inn í sjálfan sig þá opna ég um leið inn í hug- lægt rými. Til þess að gera því skil finnst mér hins vegar ekki nægja að nota ljósmyndir heldur nota ég mikið af myndskreytingum líka, t.d. teikningar af dýrum og biblíumyndir vegna þess að þar er afstaðan hrein. Myndskreytingin er laus við þessa blekkingu sem er viðloðandi ljósmyndina. Myndskreytingin reynir ekki að vera annað en tákn- mynd raunveruleikans og er þegar best lætur dæmigerð fyrir þær táknmyndir sem við erum alin upp við að tileinka okkur sem fulltrúa raunveruleikans. Táknmyndin, þetta lifseiga afsprengi menningar- innar, er oft mun handhægara verk- færi en raunveruleikinn sjálfur. Ég hef t.d. meiri áhuga á fallegum teikningum af hundum heldur en hundunum sjálfum og ég skil miklu betur stóra teikningu af flugu með viðeigandi skýringarörvum heldur en fluguna sjálfa þegar ég horfi á hana. Þetta eru tveir ólíkir hlutir, flugan og skýringarmyndin af flug- unni. Þetta eru tveir veruleikar og sá veruleiki sem ég þrífst á er frek- ar sá síðarnefndi, þ.e.a.s. sá sem ég fæ í gegnum skýringarmyndina. Hinn sýnilegi raunveruleiki kemst hvort sem er ekki inn í höfuðið á mér öðruvísi en að búa til mynd af honum. Og þessi mynd verður að nýrri frummynd í hausnum á mér og fer í frummyndasafnið sem er vandlega skipulagt og flokkað af einhveijum meðfæddum mekan- isma eða alvitrum galdrameistara sem kemur mér sífellt á óvart með starfi sínu. Það eina sem ég þarf að gera sjálfur er að passa að fóðra safnið reglulega með opnum huga og láta innsæið velja. Ég hef mjög gaman af því að kanna hvernig meistarinn raðar hlutunum," segir Þorvaldur og leggur áherslu á orð sín með því að benda fingri hér og þar í hausinn á sér. — Þetta eru mjög súrrealískar vangaveltur hjá þér. „Já, ég skal ekki neita því. Ég hef gaman af svona undirmeðvit- undargælum og treysti undirmeð- vitundinni betur og betur eftir því sem ég kynnist henni meir. Kannski eru stóru teikningarnar sem ég sýni núna í Nýlistasafninu alvarlegasta tilraunin til þess að sýna mönnum beint inn í þennan heim, þar sem ég geri raunar ekki annað en labba úr einu herbergi í annað í hausnum á mér. Það gat stundum orðið bein- línis ónotalegt að vinna þær vegna þess að ég hafði það á tilfinning- unni að ég væri að hætta mér inn á varasöm svæði.“ — Þú hefur líka mjög sterka þörf fyrir að setja auðþekkta hluti eða verur inn í þessar teikningar. „Ég verð að halda mig við raun- veruleikann, annað gengur ekki, þ.e.a.s. táknmyndir raunveruleik- ans. Þegar ég var kominn svolítið áleiðis í Myndlista- og handíðaskól- anum var ég beðinn að mála ab- strakt mynd. Ég hlýddi því og mál- aði mjög stórt abstrakt málverk og vandaði mig mikið. Það var allt í lagi með málverkið, en mér leið afskaplega illa yfir þessu og var eiginlega friðlaus vegna þess að mér fannst ég ekki hafa neinar for- sendur og vissi alls ekki hvaða vídd- ir þetta voru. Það var ekki fyrr en ég var búinn að mála örlitla mörgæs neðarlega í myndina að mér fór að líða betur — þá vissi ég loksins hvar ég hafði verkið.“ Maastricht 1991 Layfey Helgadóttir. í sígildri ritgerð sinni um Tómas Guðmundsson (1961) skrifar Kristján Karlsson: „Byltingar í skáldskaparmáli einhverrar tungu gerast í höfuðatriði jafnan á eina lund. Þær hefja daglegt mál og prósa til vegs í skáldskap.“ Um byltingu Tómasar segir Kristján enn fremur í sömu ritgerð að um leið og „hann gefur skáldskap sínum einatt áferð, hrynj- andi og tón talaðs orðs og hagnýtir svo eftirminnilega ljóðræna möguleika hversdagslegra orða, þá auðnast honum með alveg sérstökum hætti að gefa tiltekinni menningarlegri hefð í fyrsta sinn rödd í íslenzkum skáldskap og móta hana persónulegum svip“. Kristján Karlsson skoðar samband ljóðs og prósa í ljóðum Tómasar Guð- mundssonar í öðrum hluta fyrrnefndrar ritgerðar (1981), en hann er skrifað- ur í tilefni fimmtu og síðustu ljóðabókar Tcmasar, Heim til þín Island, sem kom út 1977. Þar talar Kristján Karlsson um „heils- usamlega, nálæga rödd“ sem hann kailar „rödd óbundins máls í ljóðum Tómasar" og segir einnig um þessa „rödd prósans“ að hún sé „rödd tvíræðni, mótsagnar og íróníu". Þá eru hugleiðingar um þverstæðuna, „paradoxinn" sem er Tómasi svo eiginlegur ekki langt undan. Við skulum að þessu sinni halda okkur við óbundið mál sem eins og Kristján bendir á er jafnharðan orðið skáldskaparmál þegar það birtist í ljóði eftir Tómas. Daglegt mál er að vísu ekki allt jafn vand- að, en það hlýtur að vera eitt hlut- verk skáldanna af mörgum að klæða það í ljóðrænan búning, þ.e.a.s. opna vé ljóðsins fyrir því. Er ekki hver ný skáldakynslóð bundin viðteknu skáldskaparmáli og uppreisnin gegn því í raun fremur máttlítil? Þessu svarar Kristján Karlsson með eftirfarandi hætti: „Allur skáldskapur er að vísu háður einhverri hefð, hann getur verið afneitun hennar, en án henn- ar væri hann óskiljanlegur.“ Hversu „skáldlegt" eða hve gott efni í skáidskap er það mál sem nú er talað, þau orð sem mest eru notuð? Og er það hvers- dagslega líf sem nú er lifað jafn kjörið yrkisefni og þegar Tómas gerði sína byltingu með því að yrkja um þorp sem var orðið bær, bæ sem var að breytast í borg. Þannig mætti endalaust spyija. Hversdagsleikinn, daglegt líf okkar, heldur áfram að kalla á skáld sín. En hvaða svæði eru bannsvæði, hvað er það sem ekki getur orðið að ljóði? Það er IJoIA nn skáldanna að fmna þá staði flclO 01 og freista þess að yrkja um - þá, orða það sem ekki hefur 3f 116111111 verið sagt áður, með öðrum orðum gera byltingu. TlClfflSlf Þegar ljóðlistin er orðin **■ ** of háfleyg, takmörkuð við boð turnsins, of reyrð í fjötra kenninga um hvernig ljóð eigi að vera, get- ur bjargvættur hennar orðið prós- inn með fijálsræði sínu. Yfirleitt er endurtekningin áberandi í ljóðlist. Það sem við finnum í nýjum ljóðum er oft fyr- ir hendi í verkum eldri skálda, tilhneigingin til að mynda skóla, ánetjast hefð, er rík. Kristján Karlsson talar réttilega um „nýja hefð“ kennda við formbyltingu í formála sínum fyrir fjórða bindi íslenzks ljóðasafns (1977), þess sem hefst á prósaljóði eftir Sigurð Nordal. Sjálfur dregur Kristján Karls- son í kvæðum sínum dám af í senn hefð og formbyltingu og leggur sérstaka áherslu á línuna. Það er meðal einkenna kvæðanna hve vel þau eru byggð. Engu að síður geta þau hljómað sem talað mál, að minnsta kosti stök erindi, einkum ef þau eru lesin án þess að tillit sé tekið til línuskipta. í Kvæðum 90, nýjustu bók skáldsins frá í hittiðfyrra, má finna slík dæmi þrátt fyrir agað myndmál og skarpar líkingar. Bókin samanstendur af kvæðaflokki sem nefnist Engey í þröngum glugga og speglar útsýni skáldsins og umhverfi og riíjar jafnframt upp minn- ingar úr ýmsum áttum. Það sem er nærtækt er gætt skáldlegu lífi, en styrkur kvæðanna liggur ekki síst í óvæntum sjónarhom- um, hve myndmálið er markvisst. Margskyns leikur með málið, útúrsnúningar og þess háttar, iðk- un paradoxins, getur vissulega tiiheyrt nýsköpun og vitnað um hana. En oft leiðir slík ljóðagerð til hvimleiðs vana, verður kækur. Hún minnir að því leyti á áreynsl- una við að vera fyndinn. Viss gamansemi, húmor, sakar þó ekki og má kalla Tómas Guðmundsson tit vitnis að því leyti þótt undir- staðan í mestu ljóðum hans sé tíðum hinn sári tónn. í Kvæðum 90 er víða að finna gamansemi sem er einkar hóg- vær, en leynir þó á sér og er aldr- ei úr samhengi við kvæðin í heild. í Einmanaleika tegundanna er haftyrðillinn sagður „pikkólóspil- ari/ svo vel að sér að hann brúk- ar hvítt um hálsinn" og annað erindið í Gestkomum er á þessa leið: „í þá daga þegar kýrin slef- aði ofan í/ hálsmál þitt og þú harkaðir af þér/ eins og reyndar gagnvart fleiri ástarhótum“. Kristján Karlsson hefur oftlega vikið að því að ljóð eigi að lifa sínu eigin lífi og þarfnist ekki skýringa. Veruleiki ljóðsins sé ljóðið sjálft. Skáldskapur þurfi ekki heldur réttlætingar við. For- sendu alls skilnings á skáldskap orðar hann svo í ritgerð um Einar Benediktsson: „að taka meira mark á kvæðinu sjálfu en höfund- inum“. Enginn núlifandi íslendingur hefur unnið betur að því en Kristj- án Karlsson að veita lesendum innsýn í hugmyndaheim og að- ferðir helstu skálda. Það hefur hann gert í trausti þess að meiri háttar skáldskapur þoli skýringar þótt algild niðurstaða sé ekki æskileg. Hjá honum hefur rit- greiningin orðið listgrein. Og Ijóðagerð hans sjálfs er með því móti að vegur hennar hlýtur að fara vaxandi. Með hverri nýrri bók frá skáldinu verður myndin fyllri og endurnýjunin heldur sífellt áfram. Jóhann Hjálmarsson Sænskur gestakvintett ug nýtt íslenskt verk BLÁSARAKVINTETT Reykjavík- ur heldur á þriðjudagskvöld, 28. janúar, þriðju afmælistónleika sína í Listasafni íslands í vetur, en tilefnið er tíu ára starfsafmæli kvintettsins. Frumfluttur verður nýr blásarakvintett eftir Ilauk Tómasson, og gestir koma fram: Quintessence blásarakvintettinn sem starfar í Vaxjö í Svíþjóð. Auk verks Hauks verður leikinn kvint- ett eftir Jean-Michel Damase, og saman munu kvintettarnir lcika verk fyrir tíu blásara eftir Florent Schmitt, George Enescu og Franz Schubert. Einar Jóhannesson klarinettuleikari segir að kvint- ett Hauks 101)161X8^ Tómassonar sé eitt þeirra nýju verka sem þeir hafi fengið ís- lensk tónskáld til að skrifa í tilefni af afmæli Blásarakvintettsins. „Haukur skrifaðí það í sumar, þetta er talsvert mikið verk, og hrynlega mjög spennandi," segir Einar. „Fyrir hlé leikum við einnig skemmtilegan franskan kvintett eftir Jean-Michel Damase. Eftir hlé erum við nánast orðnir að lúðrasveit, tveir kvintettar, og það er stór hópur og mikill hljóm- Blásarakvintett Reykjavíkur og Quintessence-kvintettinn sænski á æfingu. Morgunblaðið/Einar Falur Blásarakvintetls Reykjavíkur í Listasafninu á priðjudag ur. Þá leikum við þijú verk fyrir tíu blásara. Eitt eftir Rúmenann Enescu, þá eitt eftir Frakkann Florent Schmitt, sem er að mínu mati ákaflega vanmetið tónskáld, en bæði þessi verk eru skrifuð á fyrri hluta aldarinnar. Schmitt skrifaði impressjóníska tónl- ist, jafnvel á undan Debussy, og þetta verk hans er með leiðandi hornrödd. Við endum síðan á útsetn- ingu Jean Francaix á þremur mörs- um eftir Schubert." Einar segir að það hafi ekki verið auðvelt að finna tónverk fyrir tvo blásarakvintetta, þeir hafí orðið að leita vel í uppslátt- arritum. „Við þekktum þessi verk eftir Enesco og Schmitt ekki, og við völdum þau fyrst vegna þess að tón- skáldin eru góð. Þetta er spennandi tónlist, sambland af rómantík og einhveijum nýjum straumum." Einar segir af sænski kvintettinn hafi skrifað bréf, óskað eftir koma í læri til þeirra, og læra þá íslensk verk. „Þessa dagana erum við að leiða þá í gegnum verk eftir Þorkel Sigurbjömsson, Jón Ásgeirsson og fleiri. Síðan eru þeir einnig á tón- leikaferð nú um helgina. Þetta er fyrsta utanlandsferð þessa kvintetts, á meðan við höfum ferðast mjög mikið, en munurinn á okkur er þó sá að Quintessance er atvinnukvintett á launum hjá ríkinu á meðan við erum áhugamenn sem vinnum með kvintettnum af ein- skærum áhuga, utan vinnutímans.“ -efi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.