Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.02.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1992 B 3 OLYMPIULEIKARNIR I FRAKKLANDI Arangur íslend- inganna MT Arangur íslendinganna á Vetrarólympíuleikunum í Albertville fer hér á eftir: Alpagreinar kvenna: ■ Ásta Halldórsdóttir, ísafirði, 27. sæti í svigi og 30. sæti í stórsvigi. Alpagreinar kala: ■ Örnólfur Valdimarsson, Reykjavík, 51. sæti í risasvigi, 44. sæti í stórsvigi og 35. sæti í svigi. ■ Kristinn Björnsson, Ólafs- fírði, 43. sætí í risasvigi, en keyrði út úr bæði í sviginu og stórsviginu. Skiðaganga karla: ■ Rögnvaldur D. Ingþórsson, Akureyri, varð í 69. sæti í 30 km göngu, 59. sæti í 10 km göngu, 66. sæti í 15 km göngu og 54. sæti í 50 km göngu. ■ Haukur Eiríksson, Akureyri, varð í 81. sæti í 10 km göngu, 80. sæti í 15 km göngu, en hætti keppni í 30 km göngu. Hann tók ekki þátt í 50 km göngunni. Reuter Finn Christian Jagge sigri hrósandi á verðlaunapallinum, fyrir miðju. Silfurverðlaunahafinn Alberto Tomba er til vinstri og hægra megin Michael Tritscher sem varð þriðji. Sigurinn enn sætari þegar Tomba er annar - sagði Finn Christian Jagge frá Noregi, sem varð ólympíumeistari í svigi FINN Christian Jagge frá Nor- egi sigraði nokkuð óvænt í svigi karla á laugardag og skaut ítalska kappanum Al- berto T omba aftur fyrir sig. „Það er draumur allra íþrótta- manna að vinna gullverðlaun á ólympíuleikum. Sigurinn er enn sætari þegar Tomba er annar," sagði Jagge. Jagge, sem er 25 ára og býr í Bærum, kom í veg fyrir að Tomba næði að veija ólympíutitil- inn í svigi eins og hann gerði í stórsviginu. „Fyrri umferðin var næstum fullkomin hjá mér,“ sagði Jagge. „Það skipti ekki máli hvað ég var langt á undan Tomba, ég varð að fullvissa sjálfan mig um að ég gæti unnið hann. Ég var taugaóstyrkur fyrir síðari umferð- ina því ég vissi að Tomba náði mjög góðum tíma,“ sagði Jagge. Tomba var með sjötta besta tím- ann eftir fyrri umferð, 1,58 sek. á eftir Jagge. ítalinn sýndi yfírburði sína í síðari umferðinni og náði besta tímanum - en ekki nógu góðum til að vinna Jagge. Tomba tók því með jafnaðargeði er ljóst var að silfurverðlaunin væru hans. „Ég hef unnið þrenn gullverðlaun á ólympíuleikum. Ég hafði áhuga á að sjá hvemig silfur- verðlaun líta út,“ sagði hann og brosti. „Ég gerði allt of mörg mis- tök í fyrri umferð. Skíðin mín vora ekki tilbúin til að dansa á snjónum og brautin var ekki góð þegar ég fór niður. Ég var mjög vonsvikinn með fyrri umferðina, en ég átti frábæra síðari umferð. Hann [Jagge] átti mjög góða fyrri um- ferð og það réði úrslitum,“ sagði Tomba, sem rakaði skegg sitt milli ferða. Austurríkismaðurinn Michael Tritscher, sem hafði næst besta tímann í fyrri umferð, hlaut brons- verðlaunin, 0,46 sek. á eftir Jagge og 0,18 sek. á eftir Tomba. „Eg hef átt lélegt tímabil og er því ánægður með bronsverðlaunin. Þessi verðlaun samsvara sigri í heimsbikamum,“ sagði Tritscher. Marc Girardelli var óheppinn í sviginu. Hann krækti fyrir stöng þegar aðeins þrjú hlið voru eftir í markið, en hafði áður náð besta millitímanum. Jagge verðugur sigurvegari FINN Christian Jagge var verðugur sigurvegari í svig- keppninni á laugardaginn. Hann tryggði Norðmönnum þá níundu gullverðlaunin á Ólympiuleikunum í Albert- ville. Svig er sú grein ólympíu- leikanna er nýtur hvað mestr- ar virðingar en Finn Christian lét það ekki hafa áhrif á sig og sýndi mikið öryggi í báðum umferðum. Finn Christian hefur langan skíðaferil að baki. Hann byrj- aði að æfa skíði þegar hann var sex ára og er svo að segja alinn upp í Kirkerudbakken, sem er góð skíða- brekka í heimabæ hans, Bærum. Hann var fljótlega mjög efnilegur skíðamaður og var spáð frama. Undanfarin ár hefur hann verið meiddur í hné og er hann hóf keppni að nýju veturinn 1990/1991 var hann númer 136 á styrkleikalista yfir bestu svig- menn heimsbikarsins. En Finn Christian gafs ekki upp og á síðasta keppnistímbaili nálg- aðist hann þá bestu hægt og síg- andi. Hans besti árangur fyrir Ólympíuleikana í Albertville var sigur í svigi heimsbikarsins á heimavelli Alberto Tomba í Ma- donna di Campiglio skömmu fyrir jól. Afrakstur mikillar vinnu Árangur Jagge er enn ein stað- festingin á miklum framförum skíðamanna í alpagreinum. Norska liðið vann tvenn gullverð- laun og tvenn bronsverðlaun í alpagreinum. Norðmenn vora með fjóra keppendur í öllum alpagrein- unum, en á ÓL í Calgary vora þeir aðeins tveir. Þessi frábæri árangur er afrakstur mikillar vinnu norska skíðasambandsins. Rekstur norska karlalandsliðsins í alpagreinum kostaði um 100 milljónir ÍSK á síðasta ári. Pen- ingamir koma að mestu frá einu stærsta skipafélagi Norðmanna, Bergesen, sem er helsti styrktar- aðili liðsins. Erlingur Jóhannsson skrifar frá Noregi heuter Jagge á fullri ferð í svigkeppninni á laugardag þar sem hann sýndi mikið öryggi. „Það skipti ekki máli hvað ég var langt á undan Tomba, ég varð að fullvissa sjálfan mig um að ég gæti unnið hann.“ ■ KRISTINN Bjömsson, skíða- maður frá Ólafsfirði, var eini full- trúi Islands á lokahátíð leikanna á sunnudaginn og var fánaberi. Hinir íslensku keppendurnir vora lagðir af stað__heim. ■ BJORN Dæhlie, norski göngu- maðurinn snjalli, hefur fengið viður- nefndið „Alpe-ekspressen“ vegna hins ótrúlega hraða sem hann nær á gönguskíðunum. ■ DÆHLIE var sendur á Ólymp- íuleikana í Calgary 1988, ekki til að keppa heldur til að fylgjast með og læra. Margir gagnrýndu för hans og töluðu um peningasóun. En þær gagnrýnisraddir hafa nú hljóðnað. ■ NANNESTAD er heimabær Björns Dæhlie og búa þar um 5.000 manns. Þegar Björn vann fyrstu gullverðlaun sín á leikunum komu bæjarbúar saman og héldu veislu til heiðurs göngumanninum. 500 manns mættu í samkomuhús stað- arins með samtals 40 ijómatertur til að fagna sigrinum. ■ LOKAHÁTÍÐ Ólympíuleikanna í Albertville fór fram á sunnudag. Það vantaði nokkur hundrað kepp- endur, sem vora farnir til síns heima áður en hátíðin hófst. Meðal þeirra voru frönsku skíðastjörnurnar, Franc Piccard og Carole Merle, sem eru þegar farin að undirbúa sig fyrir heimsbikarkeppnina. Þjóð- veijar, sem unnu flest gullverðlaun, voru aðeins með 30 keppendur af 114 á lokahátíðinni. Sömu sögu er að segja af Samveldi sjálfstæðra ríkja, sem voru með 76 af 263 kepp- endum í Albertville á sunnudaginn. ■ ÞJÓÐVERJAR unnu fímm gullverðlaun í skautahlaupum. Þjóðveijar geta þakkað fyrrum Austur-Þjóðverjum fyrir það því allir verðlaunahafarnir komu þaðan. Þjóðverjar búast ekki við jafn góð- um árangri í Lillehammer eftir tvö ár. „Ég verð ánægður ef við náum að vinna tvenn gullverðlaun í Lille- hammer,“ sagði Helmar Gröbel, þjálfari þýska skautaliðsins. Uwe- Jens Mey, sem sigraði í 500 m skautahlupi karla og Gunda Nie- mann, sem vann tvenn gullverðlaun í kvennaflokki, hafa bæði ákveðið að hætta eftir þetta tímabil. Næstu leikar íNoregi 1994 Næstu Vetrarólympíuleikar, þeir 17. í röðinni, verða haldnir í Lillehammer í Noregi eftir tvö ár, 1994. Til þessa hafa vetrar- og sum- arleikar farið fram á sama ári, en Alþjóða ólympíunefndin segir að nú séu breyttir tímar og umfangið of mikið. Því hefur hún ákveðið að tvö ár verði á milli vetrar- og sumarleika og til að koma breytingunni á verða næstu vetrarleikar 1994 og síð- an á fjögurra ára fresti eftir það. Sumarólympíuleikarnir verða með óbreyttu sniði; í Barcelona eftir fimm mánuði og í Atlanta í Bandaríkjunum 1996, en ekki hefur verið kosið um mótsstað fyrir leikana árið 2000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.