Morgunblaðið - 05.03.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.03.1992, Qupperneq 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1992 Þjónusta Nauðsynlegt að koma á samkeppni í símaþjónustu - segir Holberg Másson, umboðsaðili IDT-símafélagsins, sem býður íslenskum fyrirtækjum yfir 40% lægri símgjöld en Póstur og sími ÍSLENSKUM fyrirtækjum sem eru í miklu símasambandi við Bandaríkin gefst nú kostur á nýrri þjónustu hér á landi sem mið- ar að því að lækka verulega símakostnað þeirra. Gegn föstu mánað- argjaldi geta fyrirtæki fengið úthlutað númeri hjá bandaríska sím- afyrirtækinu International Discount Telecommunications (IDT) þannig að þau greiða millilandasímgjöld samkvæmt gildandi gjald- skrá í Bandaríkjunum, sem er mun lægri en gjaldskrá Pósts og síma. Getur sparnaðurinn numið yfir 40% á símtölum til Bandaríkj- anna og fjarlægari staða samkvæmt upplýsingum umboðsaðila IDT hér á landi, Fóns hf., en aðaleigandi er Holberg Másson, fram- kvæmdasljóri. Þegar hafa nokkur fyrirtæki gerst áskrifendur að þessari þjónustu en samkvæmt áætlunum IDT er gert ráð fyrir að hún sé hagkvæm fyrir þau fyrirtæki sem noti hana a.m.k. 10-15 mínútur á hveijum degi. „Fyrir um 10 árum var hafíst handa í Bandaríkjunum að koma á samkeppni á tækjamarkaðnum á síma- og fjarskiptasviðinu," seg- ir Holberg aðspurður um tildrögin að þeim hræringum sem nú virð- ast í uppsiglingu á fjarskiptasvið- inu. „AT&T sem er langstærsta símafélag heims var brotið upp í minni einingar en það veitir síma- þjónustu innan Bandaríkjanna og am allan heim. 1 Evrópu hefur átt sér stað svipuð þróun. Samkeppni hófst fyrst á tækjamarkaðnum og nú er að heijast samkeppni á þjón- ustumarkaðnum. Evrópuband- aiagið hefur sett ákveðin markmið í þessu sambandi og við munum taka þátt í þeirri þróun. Afleiðing- B B í DAG...KL.17:15.. „Fiskur í hörkusamkeppni við aðra matvöru “ MAGNÚS GÚSTAFSSON forstjóri Coldwater Seafood Corporation Fundurinn er öllum opinn. S T O F A N Ármúla 13a, 1. hæö. in af þessari samkeppni er sú að símataxtar hafa farið lækkandi í þjónustu þar sem mikill hagnaður hefur verið. Sums staðar hefur örlítil hækkun orðið á töxtun fyrir þjónustu við heimili sem áður var niðurgreidd. Yfirleitt er hins vegar reiknað með að taxtar fyrir venju- lega þjónustu haldist svipaðir.“ Erum að verða á eftir með nýjungar „í Evrópu hafa símafélögin ver- ið lengur með einokun en í Banda- ríkjunum og hafa þarafleiðandi haldið uppi töxtunum milli landa," segir Holberg ennfremur. „Þannig er áætlað að Bandaríkjamenn hafi þurft að greiða 3 milljarða dollara til Evrópu árið 1990 vegna mis- hárra taxta fyrir símtöl. Banda- ríkjamenn líta á þetta sem við- skiptahindrun og eru mjög óánægðir. Þannig eru taxtar bandarísku símafélaganna mun lægri en hjá þeim evrópsku. Póst- ur og sími tekur 91,60 krónur á mínútu fyrir símtöl til Bandaríkj- anna en ef Bandaríkjamenn hringja hingað greiða þeir að með- altali 55,30 krónur. Póstur og sími hefur yfir 1.500 milljónir í tekjur af jarðstöðinni. Sennilega er yfír 50% hreinn hagn- aður. Þetta eru að vísu tölur sem fyrirtækið vill ekki staðfesta en ég hef nokkuð áreiðanlegar heim- ildir fyrir þeim. Póstur og sími hefur um einn milljarð í hagnað af um 9 milljarða veltu. Hagnaður- inn er fyrst og fremst af milliland- asímtölum og umframskrefum sem einkum eru greidd af fyrir- tækjum. Einnig er góður hagnaður af farsímaþjónustunni. Samt er athyglisvert að samkvæmt töflum sem Póstur og sími gefur út til alþjóða póst- og símamálastofnun- arinnar fjárfesti stofnunin hlut- fallslega allra minnst í nýjungum af vestrænum símafélögum. Við erum því að verða á eftir í því að' g|a|g|n|h/f Údýrustii liftimm á ísMi? í samvinnu við eitt traustasta og virtasta tryggingafélag í Bretlandi, getum við nú boðið líftryggingarnar, sem sennilega eru þær lang ódýrustu hér á landi. Hringdu og fáðu tilboð í líftryggingu fyrir þig og þína. Upplýsingar virka daga frá kl. 14.00-17.00 í síma 91-641099. Gagn hf. - líftryggingar á frábæru verði! Gagn hf. ★ Kríunesi 7 ★ Sími 641099 ★ Fax 642108 taka upp nýjungar í símaþjónustu sem lækka tilkostnað fyrirtækja. Ég tel nauðsynlegt að við fylgj- umst betur með þróuninni og kom- um á samkeppni í símaþjónustu hér á landi. Að sjálfsögðu þarf að gera ráð fyrir ákveðnum aðlögun- artíma. Það er hins vegar nauðsyn- legt að hefja undirbúning því ís- lendingar eru bundnir af reglum Evrópubandalagsins ef við göngum inn í EES. Því lengur sem við drögum þetta þeim mun erfið- úthlutar númerum sem notandi í Evrópu getur hringt í og síðan lagt á. Síðan er hringt til baka og þar með er evrópski notandinn kominn með aðgang að bandaríska símakerfinu. Þannig er unnt að nota ýmsa þjónustu sem banda- rísku símafélögin bjóða upp á en fyrst og fremst horfa menn til þess að gjaldskrá er miklu lægri en hjá evrópsku símafélögunum. „Þessi þjónusta hefur vakið mikla athygli og umtal og IDT Símagjöld á mínútu kl. 18.00-23.00 að íslenskum tíma (fsí. kr. án virðisaukaskatts) Póstu/ogsimi frá Islandi IDTfráisl.i gegnum Bandar. Mismunur (Bandar. ódýrari) Danmörk 57,83 95,11 -37,28 -64% Holland 60,24 94,76 -34,52 -57% Bretland 67,07 80,76 -13,69 -20% Ítalía 91,57 94,88 -3,31 -4% Grænland 140,56 129,35 11,21 8% Ástralfa 140,56 107,62 32,94 23% Tæland 189,56 124,91 64,65 34% S-Afríka 189,56 103,76 85,55 45% Hong Kong 211,24 112,69 98,55 47% Japan 211,24 106,87 104,37 50% Bandaríkin 91,57 36,29 40% ísland 55,28 ‘intematiarB! Óiscount Tétecomnunicatkjns ari verður aðlögunin fyrir Póst og síma. Samkeppni í símaþjónustu mun lækka rekstrarkostnað ís- lenskra fyrirtækja og bæta sam- keppnisstöðu þeirra gagnvart er- lendum aðilum." Endursala á þjónustu stóru símafélaganna Á ráðstefnunni Telecom ’91 í Genf í október kynnti fyrirtækið International Discount Telecomm- unications nýjung sem felur í sér endursölu á þjónustu stóru banda- rísku símafélaganna. Fyrirtækið hefur vaxið mjög hratt,“ segir Holberg. „Þjónustan er veitt til Evrópulanda, Asíu, Afríku, Suður- Ameríku og um allan heim. Aug- ljóslega hentar hún sérstaklega fyrirtækjum sem þurfa að hringja frá sinni heimsálfu og það auðveld- ar notkun hennar ef fáir hringja mikið. Það er augljós hagnaður af þessu fyrir mörg fyrirtæki og reyndar eru dæmi um meiri mun en á íslandi. Sums staðar eru sím- gjöld hlutfallslega mun hærri en hér á landi og þá ennþá meiri ástæða til að nota þessa þjónustu. Holberg Másson IDT telur sig vera að bæta virðisauka við þjónustu símafélag- anna og þetta er aðeins fyrsta skrefíð. Næstu skref eru símakort sem veita aðgang að ódýrri síma- þjónustu hvar sem notandinn er staddur. Með þeim er hægt að skuldfæra símtöl á bandarískum taxta. Sérstök raddpóstþjónusta felur í sér að notandinn getur les- ið skilaboð inn í símakerfíð og það reynir síðan að koma boðunum til skila á sjálfvirkan hátt. Kerfið reynir af og til að ná í viðkomandi og tilkynna honum um raddboð sem hann síðan getur kallað fram með því að ýta á ákveðna takka. Þannig er stöðugt verið að bæða við þjónustuna sem miðar að því að auka notkun símans. Með því að taka upp nýjungar og auka tekjumar geta símafélögin lækkað verðið á grunnþjónustunni.“ Óhætt fyrir Póst og síma að lækka gjöldin Holberg bendir á að Póstur og sími hafí þegar fest kaup á nýrri jarðstöð og þá vakni sú spurning hvemig hún verði nýtt. „Aukning- in á millilandasímtölum er aðeins um 10% á ári vegna þess hversu gjöldin era há. Ef gjöldin yrðu lækkuð mynd aukningin að mínu mati vega upp á móti lækkuninni. Símtöl til Bandaríkjanna era um 20% af öllum millilandasímtölum íslendinga og það má reikna með að gjöld fyrir þau séu yfir 300 milljónir. IDT gerir ráð fyrir að ná um 1% markaðshlutdeild sem er mjög lítið og því er engin ástæða Stefnt að því að lækka giöld vegna talsambands við útlönd — segir Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri „ÞAÐ hefur verið á stefnuskrá hjá Pósti og síma síðan i ársbyrj- un 1990 að lækka gjaldskrána vegna talsambands við útlönd, sérstaklega við Bandaríkin," segir Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri. „Vegna hárra greiðslna I ríkissjóð hefur hins vegár ekki verið svigrúm til þess ennþá en ég vona að það geti orðið áður en langt um líður. Eitt af því sem hefur tafið þetta eru greiðslur Pósts og síma í ríkissjóð sem eru 940 miiyónir á þessu ári, 540 milljónir í fyrra og 500 milljónir árið 1990.“ Ólafur segist telja að sam- keppni komi til með að verða í ýmsum greinum í sérþjónustu. Varðandi talsamband við útlönd séu miklu stærri fyrirtæki heldur en IDT sem muni keppa við Póst og síma í framtíðinni eða hin stóra símafyrirtæki. „Það er stefnan hjá Evrópubandalaginu að auka sam- keppni en ég læt ósagt hvenær sú samkeppni mun berast hing- að,“ segir hann. Hann bendir á að þjónustu IDT megi líkja við það þegar hringt er til Bandaríkjanna og viðmæ- landinn beðinn að hringja til baka en það sé hins vegar ennþá ódýr- ara en verið sé að bjóða hjá IDT. Ólafur segir að gífurleg aukn- ing hafí orðið á talsambandi við útlönd og bendir jafnframt á að gjöldin hafí um nokkurt skeið verið óbreytt að krónutölu þannig að þau hafí lækkað að raungildi. „Áhersia hefur verið lögð á að lækka langlínusamtöl hér innan- lands. í framhaldi af því var ætl- unin hjá stofnuninni að lækka gjaldskrá fyrir talsamband við útlönd. Það sem þarf að lækka mest er talsamband við Bandarík- in. Þessir aðilar (IDT, innsk. blm.) og aðrir eru hins vegar einnig að keppa við símastjórnir í Evrópu Ólafur Tómasson og það er að skapast pólitískur vilji til að lækka gjaldskrána fyrir talsamband við Bandaríkin," sagði Ólafur Tómasson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.