Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 1
BLAÐ ALLRA LAIMDSMANNA
1992
ÞRKUUDAGUR 17. MARZ
BLAD
adidas
.annað ekki
ir
KNATTSPYRNA
Norðmenn
hræðast
Alfreð!
Mynd: Bild Zeitung
.■ • :■
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Linz
Norðmenn vonast til þess að lið
Bidasoa, sem Júlíus Jónasson
leikur með á Spáni, tapi strax í
fyrsta leik bikar-
keppninnar á morg-
un er það mætir liði
Teka. Ástæðan er
sú að þeir hafa frétt
að komist liðið áfram í keppninni
sé von á stórskyttunni Alfreð Gísla-
syni hingað til Austurríkis fyrir leik
íslands og Noregs í B-keppnini á
sunnudag.
Fréttin þess efnis að Alfreð hefði
gefið kost á sér í landsliðið, komi
Jþlíus ekki, vakti litla hrifningu í
herbúðum norska landsliðsins, að
sögn norsks blaðamanns sem Morg-
unblaðið ræddi við í Austurríki í
gær. Hann sagði Norðmennina
hræðast Alfreð meira en nokkurn
annan íslenskan leikmann.
Eyjólfur Sverrisson fagnar marki sinu, sem
færði Stuttgart sigur, 1:0, gegn Köln á
heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni á laugar-
dag. Eyjólfur skoraði þegar aðeins fimm
mínútur voru eftir og lið hans er enn í öðru
til þriðja sæti, ásamt Frankfurt. Það er út-
herjinn Ludwig Kögl sem samfagnar ís-
lenska landsliðsmanninum.
Nánar/ B8
HANDBOLTi
ÍÞRÓTTIR FYRIRALLA
íþróttasamband íslands hefur ákveðið að stofna fjöldasamtök
til eflingar almenningsíþróttum og útivist undir kjörorðinu
•r
“Heilbrigt líf - Hagur allra”.
íþróttasambandið hyggst eiga samstarf við sem flest samtök, stofnanir, starfshópa, fyrirtæki ofl, sem láta sig varða hollustu og heilbrigði fólks á
öllum aldri, hvort heldur samstarfsaðilarnir eru innan eða utan íþróttahreyfingarinnar.
Formleg stofnun samtakanna fer fram í maímánuöi nk. Þar verða m.a. kynnt reglugerð samtakanna, kjörin stjóm, rætt um áformaða starfsemi ofl.
Öllum aðilum, sem hafa áhuga á sinni eigin heilsu og annarra, er hér með boðin þátttaka.
Vinsamlega hafið símasamband við skrifstofu ÍSÍ í síma 91-813377 og látið vita af ykkur.
Velkomin til samstarfs.
íþróttasamband íslands