Morgunblaðið - 17.03.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.03.1992, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992 FRJALSÍÞROTTIR / MEISTARAMÓTIÐ INNANHÚSS Ætla að ná lágmarkinu í tugþraut -segir Jón Arnar Magnússon, sem var þrefaldur meistari á innanhússmótinu „ÞAÐ er gaman að byrja aftur og ná svona árangri," sagði mað- ur meistaramótsins ífrjálsum íþróttum, Jón Arnar Magnússon úr Ungmennafélagi Gnúpverja. Jón sló níu ára gamalt Islandsmet i langstökkinu og vann til þrennra gullverðlauna. Jón Arnar, sem gekkst undir hné- aðgerð í apríl á síðasta ári, er nýbyrjaður að keppa aftur og í lang- stökkskeppninni í Baldurshaga á laugardag bætti hann íslandsmetið um tólf sentimetra. Jón stökk 7,64 en fyrra íslandsmet þeirra Jóns Oddssonar og Kristjáns Harðarson- ar var sett 1983. Metið fauk strax í fyrsta stökki. Jón Arnari tókst ekki að bæta þann árangur í hinum fimm stökkunum þrátt fyrir góðar tilraunir. Tvö stökk hans mældust styttri og þrjú góð stökk hans voru ógild þar sem hann steig fram fyr- ir plankann. „Ég hef lítið æft lang- stökkið í vetur og þarf ýmislegt að laga í atrennunni," sagði Jón Amar Magnússon eftir langstökkskeppn- ina. A sunnudeginum vann Jón annað gull sitt á mótinu þegar hann kom fyrstur í mark ásamt frænda sínum Olafi Guðmundssyni HSK. Þeir komu í mark á 6,7 sekúndum sem er jöfnun á íslandsmeti þeirra Hjartar og Gísla Sigurðssona. Jón Amar var hins vegar sjónarmun á undan og dæmdur sigur. „Það er alltaf keppni á milli okkar og við virðumst vinna til skiptist. Síðast vann Óli og nú var komið að mér.“ Þriðja gull sitt á meistaramótinu fékk Jón Arnar síðan fyrir þrístökk- ið. „Þessi árangur gefur mér auknar vonir um að ná Ólympíulágmarkinu í tugþraut. Mig skortir 400 stig og ég ætti að geta náð því ef að ég hitti á góða þraut,“ sagði Jón Arn- ar en lágmarkið er 7.750 stig. ■ HJÖRTUR Gíslason hefur til- kynnt félagaskipti úr UMSE í FH. Hjörtur starfar í Noregi og er í ágætu formi um þessar mundir. Hann hljóp 60 m grindarhlaup á 8,1 sekúndu á móti ytra fyrir stuttu. ■ FH-ingar taka í fyrsta sinn þátt í Evrópukeppni félagsliða í sumar. Keppnin að þessu sinni fer fram í Birmingham, Englandi í lok maí. Mun FH senda 18-20 manns til keppni. Félagið keppir í c-riðli. ■ Gunnar Smith hástökkvari úr FH æfír einnig körfuknattleik með KR og svo kann að fara að hann komist á námssamning í körfu- knattleik hjá bandarískum háskóla. Einn af félögum föður hans var á ferð í Bandaríkjunum fyrir skömmu og hafði samband við bandaríska háskóla sem benti þeim á Gunnar. Tveir skólar skrifuðu Gunnari til að forvitnast hvort hann hefði áhuga. „Stefnan er sett á að kom- ast í skóla í Bandaríkjunum. Ef ég fer þá mun ég bæði æfa hástökk og körfu,“ sagði Gunnar sem er yfir tveir metrar á hæð sem ætti að nýtast í báðum íþróttunum. BLAK KAfrest- aði hátíd Stúdenta Stúdentar gátu ekki fagnað ís- landsmeistaratitli um helgina. Þeim fataðist flugið á Akureyri og ■■■■■■ töpuðu fyrir KA í Guömundur fimm hrinu leik. Stúd- Helgi entar urðu því að Þorsteinsson fresta hátíðarhöldun- skrifar um vegna titilsins, sem þó er í sjónmáli. KA-menn byijuðu leikinn betur og skelltu Stúdentunl í fyrstu hrinu 16:6 en nokkuð fát var á leik ÍS til að byija með. Eftir heldur lélega byijun hristu Stúdentar af sér slenið og unnu aðra hrinu, naumlega þó, eftir að hafa haft góða forystu. Þeir voru 9:1 yfir um tíma en lokatölur urðu 15:13. KA vann þriðju hrinuna og Stúdent- ar þá fjórðu. Urslitahrinan varð ekki löng. Heimamenn komust í 8:2, og fátt gekk upp hjá ÍS. Mikil mistök gerðu möguleika liðsins um sigur að engu og KA menn gengu á lagið og unnu 15:5. Flestir leikmenn KA áttu góðan dag og lágvörnin var oft og tíðum frábær. Bjami Þórhallsson var mjög dijúgur í sókninni hjá KA en kantskellar ÍS stóðu sig ekki i stykkinu að þessu sinni. Sérstaklega Hiou Xiao Fei sem hefur oft átt betri dag. HK ■ baráttu HK-liðið gerði góða ferð austur á Neskaupstað og skellti þar heima- mönnum í tveimur leikjum. Á föstu- daginn vann liðið í þremur hrinum en á laugardaginn bitu Þróttarar hressilega frá sér og veittu HK pilt- um harða keppni. Þeir urðu þó að játa sig sigraða eftir fimm hrinur. HK mætir KA í undanúrslitum bikarsins í Digranesi um næstu helgi og þá kemur í ljós hvort liðið fer í úrslit en þessi lið léku til úr- slita í fyrra. Stúdínur unnu UBK Sigurganga Stúdína í úrslita- keppninni heldur áfram. Að þessu sinni voru það Breiðabliksdömur sem urðu að lúta í lægra haldi fyr- ir þeim. ÍS vann fyrstu hrinuna 15:8 en Blikar þá næstu 15:5. Stúd- ínur voru fastar fyrir í næstu tveim- ur hrinum og það var aldrei spurn- ing hvort liðið færi með sigur. Þórey Haraldsdóttir var sterk í liði ÍS og Friðrika Marteinsdóttir sýndi góð tilþrif í uppgjöfum. ÍS er nú efst í úrslitakeppninni en á eftir að mæta Víkingsstúlkum í fyrri umferðinni. Ágætis árangur í mörgum greinum ÁGÆTUR árangur náðist í mörgum greinum á Meistara- mótinu í f rjálsíþróttum sem haldin var í Baldurshaga og Kaplakrika um helgina. Eitt ís- landsmet féll og ein metjöfnun leit dagsins Ijós í f ullorðins- flokki. Þá féllu nokkur ungl- ingamet á mótinu. Einar Þór Einarsson, Ármanni, sigraði örugglega í 50 metra hlaupi karla á 5,8 sekúndum sem er 2/10 frá meti hans sem sett var á meistaramótinu í fyrra. „Það er búið að ganga allt á aft- urfótunum í vetur. Ég tognaði tví- vegis í vöðva aftan á læri og fékk síðan flensu sem ég er að losna við. í fyrra var veturinn góður en sum- arið lélegt en ég verð bara að vona að það verði þveröfugt í ár,“ sagði Einar. í 50 metra hlaupi kvenna stóð baráttan á milli Geirlaugar Geir- laugsdóttur Ármanni og Snjólaugar Vilhjálmsdóttur. Geiriaug hafði bet- ur. „Ég hef aldrei æft jafn vel og í vetur. Snjólaug var sjónarmun á undan í undanúrslitunum en ég var ákveðinn í að gefa allt í úrslita- hlaupið,“ sagði Geirlaug. Sögulegt 800 m hlaup 800 metra hlaupið var nokkuð sögulegt. Raðað var niður í þijá riðla eftir styrkleika og besti tími látinn gilda. Þorsteini Jónssyni, knattspymukappa úr FH sem aldrei hefur keppt í 800 m hlaupi var raðað í 2. riðil og vann óvæntan sigur. Þorsteinn háði mikla keppni við Jón Þór Þorvaldsson UMSB um fyrsta sætið í riðlinum Þorsteinn tók forystuna á síðasta hring og Jóni Þóri skorti þrek til að fylgja honum eftir. Tími Bjöms Traustasonar úr FH sem sigraði í „sterkasta" riðlin- um nægði hins vegar aðeins til bronsverðlauna. Hulda Björk Pálsdóttir úr ÍR vann öruggan sigur í 800 m hlaupi kvenna. Hulda sem keppti í síðari riðlinum náði forskoti eftir þijá hringi af sjö og hún jók jafnt og þétt forskot sitt til loka. „Ég var samt aldrei ömgg um sigurinn. Ég er ánægð með tímann og það er greinilegt að æfíngarnar hafa skilað sér. Mér fannst létt að hlaupa fyrstu fimm hringina en síðan fór ég að finna fyrir þurra loftinu," sagði Hulda. Fimmtán ára stúlka úr FH, Ásdís M. Rúnarsdóttir, kom fyrst í markið í fyrri riðlinum og nægði tími hennar til silfurverðlauna. Pétur Guðmundsson fékk litla keppni í kúluvarpinu. Oll köst Pét- urs voru yfir nítján metra. Það lengsta 19,85 en hann lét engu að síður illa af kúlunni sem var plast- húðuð og nokkuð meiri að ummáli en þær kúlur sem notast er við utanhúss. Pétur breytti um stíl, notaðist ekki við hringstílinn þar sem hann náði ekki traustu haldi á plastinu. „Miðað við stílinn og kúl- una get ég vel við unað,“ sagði Pétur. Hinn tvítugi Gunnar Smith úr FH var nokkuð ömggur sigurveg- ari í hástökkinu. Gunnar stökk 2.01 m og bætti sig um einn sentimetra. „Ég hef lítið æft að undanförnu vegna anna í skólanum en hvíldin virðist hafa gert mér gott,“ sagði Gunnar eftir sigurinn. Magnús Ar- on Hallgrímsson, efnilegur hástökkvari úr UMFS, varð í öðru sæti. Hann stökk yfír 195 sm í þriðju tilraun sinni við þá hæð og jafnaði þar með sveinamet ÍR-ings- ins Stefáns Stefánssonar frá 1979. Þess má geta að Stefán keppti einn- ig í greininni og hvatti Magnús óspart til dáða. Sentimetri skildi aö Sunna Gestsdóttir USAH og Þur- íður Ingvarsdóttir UMFS háðu harða baráttu um sigurinn í lang- stöki. Sunna stökk 5,66 m, senti- metra lengra en Þuríður og uppskar sigur og Islandsmet í meyjaflokki. Fyrra metið átti Bryndís Hólm, 5,56 m sett 1981. „Ég er búin að reyna við þetta met á öllum mótum og loksins tókst það,“ sagði Sunna. Þess má geta að Sunna tábrotnaði í síðustu viku. Hestur steig ofan á litlu tá en brotið háði Sunnu ekki á mótinu. Sigurður T. Sigurðsson vann ör- uggan sigur í stangarstökkinu með því að fara yfir 4,90. Tómas Gunn- arsson HSK átti ágæta tilraun við 3,92 sem er sentimetra hærra en gildandi drengjamet. Jóhann Ingibergsson FH og Jón Þór Þorvaldsson UMSB börðust um sigurinn í 1500 m hlaupi. Þeirtóku forystuna um mitt hlaupið og Jó- hann var sterkari á endasprettinum. Tími Jóns Þórs er nýtt drengjamet. íris Grönfeldt UMSB vann sigur í kúluvarpi kvenna. Berglind Morgunblaöið/Frosti Þorsteinn Jónsson Bjamadóttir UMFT og Þuríður Ing- varsdóttir UMFS bættu báðar besta árangur sinn í greininni. Þórdís Gísladóttir HSK kom frá Noregi til þess að taka þátt í há- stökkskeppninni. Hún vann Örugg- an sigur, stökk 185 sm og jafnaði þar með meistaramótsmet sitt frá því í fyrra. Þá átti hún ágæta til- raun við 188 sm. „Ég var aðeins of fljót á mér í síðustu tilrauninni en að öðru leyti er ég sátt við árang- urinn,“ sagði Þórdís. Frosti Eiösson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.