Morgunblaðið - 17.03.1992, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1992
KORFUKNATTLEIKUR / JAPISDEILDIN
Skallagrímur
hafði þaðaf
ÞAÐ VAR rosalega góð
stemmning ítroðfullu íþrótta-
húsinu í Borgarnesi í leiknum
gegn Tindastóli um helgina.
Borgnesingar unnu og tryggðu
sér þar með áframhaldandi
veru ídeildinni. „Borgnesingar
léku vel í þessum leik og það
var ekki nægur kraftur i okkur
til að taka á móti þeim,“ sagði
Valur Ingimundarson fyrirliði
Tindastóls eftir leikinn. „Það
var allur vindur úr okkur. Okkur
fannst að við hefðum misst af
tækifærinu þegar KR vann
Njarðvík og því náðist ekki upp
nein stemmning hjá okkur,
menn höfðu ekki nægan áhuga
á leiknum.“
Liðin voru mjög jöfn í fyrri hálf-
leik og aðeins 4 stig skildu í
leikhléi, 43:39. Allt var síðan í járn-
um í byijun síðari
hálfleiks og liðin
skomðu ekki stig í
nokkrar mínútur en
þá small lið Skalla-
gríms saman og allt gekk upp og
það náði 10 stiga forystu. Skalla-
TheódórKr.
Þórparson
sknfarfrá
Borgarnesi
grímur hafði síðan tögl og hagldir
í þessum leik og komst mest í 20
stiga forystu. Liðið sýndi allar sínar
bestu hliðar.
Þegar 5 mínútur voru eftir misstu
Tindastólsmenn Val Ingimundarson
út af með 5 villur og var liðið eftir
það áberandi vængbrotið.
Bestu menn Skallagríms voru
Maxim, Birgir, Skúli og Þórður
Jónsson sem náði að taka Val Ingi-
mundar svo að segja úr umferð.
Hjá Tindastóli voru Ivan Jonas,
Einar Einarsson, Pétur Guðmunds-
son og Haraldur Leifsson bestir.
„Nú er takmarkinu náð, við erum
í 8. sæti og fyrir ofan Þór og Snæ-
fell. Þetta hafðist í síðasta leiknum.
Ég var í sjálfu sér ekkert hræddur
fyrir þennan leik, við höfum átt
góða heimaleiki í vetur. En ég var
hins vegar ekki rólegur fyrr en al-
veg undir lok þessa leiks,“ sagði
Birgir Mikaelsson þjálfari og leik-
maður Skallagríms. Hann vildi taka
fram að sér fyndist það ósanngjarnt
hjá KKÍ að liðið sem þyrfti að spila
aukaleikinn um veru sína í úrvals-
deiidinni þyrfti að bíða í heilan
mánuð þar til að honum kæmi. Það
væri bæði erfitt og kostnaðarsamt.
Borgnesingar fagna og þakka áhorfendum stuðninginn. Frá vinstri: Skúli Skúiason, Elfar Þórólfsson, Arelíus Emilsson li
son þjálfari, Hafsteinn Þórisson fyrirliði, Valur Þorsteinsson, Þórður Helgason og Þórður Jónsson.
Kveðju-
leikur
Þórsara
Ekki fór á milli mála að leikmenn
Þórs og Hauka höfðu ekki
mikinn áhuga, þegar liðin mættust
í Japisdeildinni á
Reynir Akureyri á sunnu-
Eiríksson dagskvöld. Þórsarar
skrífar Voru þegar fallnir og
Haukar höfðu misst
af úrslitakeppninni.
Nokkuð jafnt var á með liðunum
komið í fyrri hálfleik, en Haukar
höfðu þó undirtökin. Sama var uppi
á teningnum fyrstu mínúturnar eft-
ir hlé, en síðan hófu Haukar að
leika pressuvörn, sem ungir Þórsar-
ar réðu engan veginn við. Gestirnir
náðu á skömmum tíma 20 stiga
forskoti og sigurinn var aldrei í
hættu.
Þórsarar hafa þar með lokið veru
sinni í efstu deild að sinni og þeirra
bíður verulegt uppbyggingarstarf.
Konráð Óskarsson var þeirra bestur
og Joe Harge átti þokkalegan leik.
Sama má segja um ungu strákana
miðað við fyrstu skrefin í deildinni.
John Rhodes var mjög sterkur
hjá Haukum og Jón Arnar Ingvars-
son var öflugur í þriggja stiga skot-
unum og skoraði úr sjö slíkum. Þá
var Henning Henningsson dijúgur.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þjálfaradans. Tómas Holton, þjálfari Vals, er ekki alveg með á hreinu hvar
Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK, heldur sig með boltann.
KR-ingar í úrslitin
KR-ingar sigruðu Snæfellinga
örugglega í Japissdeildinni á
sunnudagskvöid og tryggðu sér þar
WKKKKKKM með þátttöku í úr-
Ólafur slitakeppni fjögurra
Sigurðsson efstu liða. Hólmarar
skritar sjya eftjr meg
ennið og þurfa að
leika aukaleiki við lið númer tvö í
1. deild, þar sem Skallagrímur
skaust upp fyrir þá með sigri á
Tindastóli.
KR-ingar byrjuðu af miklum
krafti og léku mjög vel. Vöm Hólm-
ara var galopinn og KR-ingar náðu
fljótlega 15 stiga forystu. Hólmarar
skiptu yfir í svæðisvörn um miðjan
fyrri hálfleik og Hreinn Þorkelsson
skoraði þá tvær þriggja stiga körfur
í röð. Með mikilli baráttu tókst
Hólmurum að minnka muninn í
fimm stig. Þar munaði mest um
framtak Bárðar Eyþórssonar, sem
átti frábæran leik.
Á fyrstu fimm mínútum síðari
hálfleiks skoruðu KR-ingar 27 stig
gegn fjórum og lið Snæfells sá ekki
til sólar eftir það. Dave Grissom
og Guðni Guðnason áttu stórleik
fyrir KR, en hjá Snæfelli var Bárð-
ur Eyþórsson yfirburðarmaður eins
og áður er um getið.
Snæfell þarf nú að bíða í þrjár
vikur eftir því að leika aukaleikina
um sætið í deildinni, þar sem úrsli-
takeppninni í 1. deild lýkur ekki
fyrr. Tim Harvey fer því ekki heim
í dag eins og ráð hafði verið fyrir
gert.
■ Úrslit / B6
■ Lokastaðan / B6
Kefl-
vfldngar
öruggir
sigur-
vegarar
Keflvíkingar sigruðu Valsmenn
næsta örugglega 92:81 í
Keflavík á sunnudagskvöldið í loka-
umferð úrvalsdeild-
Björn arinnar fyrir úrslita-
Blöndal keppnina og urðu
skrifarfrá þar meg deildar-
meistarar. Keflvík-
ingar sigruðu örugglega í B-riðli
og mæta þeir KR-ingum í undanúr-
slitum en þeir urðu í öðru sæti í
A-riðli. Þar sigruðu íslandsmeistar-
arnir úr Njarðvík og leika þeir gegn
Valsmönnum sem urðu í öðru sæti
í B-riðli. Leikurinn í Keflavík var
ákaflega þýðingarmikill fyrir
Keflvíkinga því með sigrinum
tryggðu þeir sér oddaleikinn, leiki
þeir til úrslita um íslandsmeistara-
titilinn.
Leikurinn á. sunnudagskvöldið
bauð ekki uppá mikla skemmtun
né spennu þrátt fyrir mikla þýð-
ingu. Keflvíkingar voru mun betri
lengstum og virtust um tíma ætla
að stinga Valsmenn af þegar þeir
náðu 12 stiga forskoti, 25:13, í fyrri
hálfleik. En Valsmönnum tókst að
jafna þann mun og tókst að hanga
í heimamönnum allt þar til liðlega
5 mínútur voru til leiksloka. Þá var
eins og allur vindur færi úr Valslið-
inu og Keflvíkingar stóðu uppi sem
öruggir sigurvegarar.
Jonathan Bow og Jón Kr. voru
atkvæðamestir í liði ÍBK ásamt
þeim Guðjóni og Kristni og einnig
stóðu þeir Albert og Nökkvi sig vel.
Franc Booker náð ekki að sýna
sínar bestu hliðar að þessu sinni
og varð að láta sér næga að gera
16 stig. Ragnar Jónsson, Matthías
Matthíasson og Símon Ólafsson
voru bestu menn Vals.
Formaðurinn fékk
Mikil gleði ríkti í herbúðum nýliða Skallag
tryggt. Hér þakka leikmennirnir Sólrúnu Ra
ar, fyrir vel unnin störf. .