Morgunblaðið - 19.03.1992, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
Fyrirtæki
Viðunandi afkoma Flugleiða
miðað við aðstæður í flugrekstri
Rekstrarafkoman batnaði til muna en fj ármagnskostnaður vegur nú mun þyngra en áður
ÞRÁTT fyrir að afkoma Flugleiða hf. á sl. ári sé engan veginn í
samræmi við markmið félagsins geta hluthafarnir líklega sæmilega
vel við unað sé litið til afkomu erlendra flugfélaga sem mörg hafa
mátt þola mikinn taprekstur. Heildarhagnaður Flugleiða er um 150
milljónir króna að meðtöldum söluhagnaði að fjárhæð 69 milljónir
og er arðsemi eigin fjár 3,5%. Á aðalfundi félagsins í dag niun sú
staðreynd líklega vekja nokkra bjartsýni að rekstrarafkoman hefur
batnað umtalsvert milli ára og jókst rekstrarhagnaður um rúmlega
50% að raungildi. Má rekja það til þess að rekstrartekjur jukust um
1,8% að raungildi meðan að rekstrargjöld drógust saman um 0,7%.
Á þessu þarf félagið mjög að halda vegna stóraukins fjármagnskostn-
aðar sem leggst nú af fullum þunga á reksturinn eftir hinar gríðar-
legu lántökur undanfarin ár vegna endurnýjunar flugflotans. Af
sömu ástæðu hafa afskriftir aukist verulega.
FLUGREKSTUR — Kostnaður af beinum flugrekstri hjá
Flugleiðum dróst saman um 9,6% að raungildi á sl. ári en hann nam
alls um 2,7 milljörðum. Þar skilar sér augljóslega hagræði sem félag-
ið hefur af hinum nýja flugfiota en einnig naut það lægra eldsneytis-
verðs á sl. ári en á árinu áður.
Rekstrartekjur ná'.nu um 12,7
milljörðum á sl. ári en rekstrargjöld
11,8 milljörðum þannig að rekstrar-
hagnaður er um 908 milljónir sam-
anborið við 598 milljónir árið áður.
Af einstökum tekjuliðum félagsins
má nefna að tekjur af farþegaflugi
námu alls um 9,6 milljörðum og
jukust um 1,7% að raungildi. Þá
hafa tekjur af flugvélaleigu aukist
um 22,8% og námu þær 747 milljón-
um. I því sambandi má nefna að
félagið fékk afhenta þriðju Boeing
757 vélina á sl. ári og var hún leigð
erlendu flugfélagi. Tekjur af vöru-
og póstflutningum jukust um 4,1%
en aftur á móti varð 4% samdráttur
í hótelrekstri og 8% samdráttur á
öðrum tekjum.
Beinn kostnaður við
flugreksturinn lækkar
Þegar litið er á gjaldaliðina sést
að kostnaður af beinum flugrekstri
dróst saman um 9,6% að raungildi
milli ára en hann nam alls um 2,7
milljörðum á sl. ári. Þar skilar sér
augljóslega hagræði sem félagið
hefur af hinum nýja flugflota en
einnig naut það lægra eldsneytis-
verðs á sl. ári en á árinu áður.
Aftur á móti kemur á óvait að við-
haldskostnaður skuli hækka um 2%
en það á sér skýringar í aukaaf-
skrift varahluta í eigu félagsins.
Að henni frátalinni hefði viðhalds-
kostnaður lækkað. Þá vekur at-
hygli að afskriftir aukast um 21,2%
sem einkum má rekja til þess að
tvær nýjar vélar bættust í flugflot-
ann á sl. ári.
Fjármagnskostnaður Flugleiða á
sl. ári varð^alls 720 milljónir og
jókst úr um l50 milljónum sem er
tæplega fimmföldun að raungildi.
Munar þar mest um gengishagnað
sem varð 1,2 milljarðar árið 1990
samanborið við 182 milljónir á sl.
ári. Langstærstur hluti skulda Flug-
leiða er í dollurum þannig að lækki
gengi dollars myndast gengishagn-
aður en gengistap þegar um hækk-
un er að ræða. Á árinu 1990 lækk-
aði gengi dollars verulega gagnvart
krónunni en lækkaði einungis um
0,4% frá uppgjörsgengi 1990 til
1991.
Aftur á móti eru flugvélar og
fylgihlutir endurmetnar í dollurum
en jafnframt er tekið tillit til verð-
lagsbreytinga í Bandaríkjunum.
Þessi aðferð er rökstudd með því
að vélarnar hafi markaðsverð í doll-
urum. I skýringum með ársreikn-
ingi um endurmat eigna kemur
fram að áhrifin af viðmiðun við
dollara við endurmat í stað þess að
styðjast við byggingarvísitölu nema
um 630 milljónum til hækkunar á
fjármagnsgjöldum. Þá kemur fram
að vaxtagjöld og verðbætur aukast
um 32,1% milli ára eða úr 887 millj-
ónum í um 1,2 milljarða á verðlagi
1991 enda voru tekin ný langtíma-
lán að fjárhæð tæpir 3 milljarðar á
árinu.
Að teknu tilliti til fjármagnsliða
nemur hagnaður af reglulegri starf-
semi 188 milljónum samanborið við
448 milljónir árið áður. Söluhagn-
aður eigna nemur 69 milljónum og
hafði lækkað um 82% frá fyrra
ári. Reiknaður tekjuskattur nemur
54 milljónum og reiknaður eignar-
skattur 48 milljónum. Fyrrnefndi
liðurinn kemur hins vegar ekki til
greiðslu heldur færist sem tekju-
skattskuldbinding þar sem gjöld eru
ekki færð á sama tíma í skattupp-
gjöri. Loks er í rekstrarreikningi
Flugleiða gerð grein fyrir aíkomu
dótturfélaganna sem eru Urval-
Útsýn hf. og Kynnisferðir ferða-
skrifstofanna sf. Tap vegna þeirra
er bókfært alls tæpar 5 milljónir
samanborið við 57 milljónir árið
áður þannig að heildarhagnaður er
alls 150 milljón en var 433 milljón-
ir árið 1990 á núgildandi verðlagi.
Mjög góð greiðslustaða
Sú niðurstaða sem blasir við í
sjóðstreymisyfirliti í ársreikningi
Flugleiða staðfestir að greiðslu-
staða félagsins er mjög góð og gleð-
ur líklega bankamennina sem vaka
yfir Ijárhagsstöðunni. Þetta yfirlit
sýnir þær bi'eytingar sem orðið
hafa á handbæru fé á árinu þ.e.
stöðu banka, geymsluljár og mark-
aðsskuldabréfa sem eru til skemmri
tíma en 3ja mánaða. Þar kemur í
ljós hversu mikið reksturinn hefur
lagt af mörkum til afborgana af
langtímalánum og til kaupa á
fastafjármunum. Handbært fé frá
rekstri nam alls rúmum 1,3 milljörð-
um og handbært fé í árslok tæpum
1,3 milljörðum. Þetta stafar fyrst
og fremst af því að sumir gjaldalið-
ir á borð við afskriftir þýða ekki
bein fjárútlát heldur er einungis um
reiknaða stærð að ræða. Þessi rúma
fjárhagsstaða gerir félaginu kleift
að íjármagna frekari fjárfestingar
á næstunni eins og t.d. í varahlutum
og nýja flugskýlinu á Keflavíkur-
flugvelli að einhveiju leyti með fé
úr rekstrinum. Fjárfestingar sl. árs.
námu alls rúmlega 3,1 milljarði og
voru þær að mestu fjármagnaðar
með nýju langtímaláni að Ijárhæð
tægir 3 milljarðar.
Á þessu ári er áformað að ljúka
við byggingu flugskýlisins sem
áætlað er að kosti um 835 milljón-
ir. Félagið hefur tryggt sér erlend
lán að fjárhæð um 780 milljónir til
að fjármagna greiðslur á smíðatím-
anum.
Heildareignir 21,1
milljarður
Efnahagsreikningur Flugleiða
hefur vaxið gríðarlega frá því end-
urnýjun flugflotans hófst og nema
heildareignir félagsins í árslok alis
21,1 milljarði og höfðu aukist um
15% frá árinu áður. Flugvélar og
fylgihlutir eru bókfærðir á 17,2
milljarða og hefur sá liður aukist
um 18% frá fyrra ári enda fékk
félagið afhentar tvær nýjar vélar á
árinu. Þar var um að ræða eina
Boeing' 757-200 vél og Boeing
737-400 vél en sú fyrrnefnda var
leigð erlendu flugfélagi til tveggja
ára. Ætla má að talsvert dulið eig-
ið fé sé fólgið í flugvélaflota félags-
ins enda þótt ekki sé sérstaklega
getið um það í árssreikningi. Eink-
um á það við um Boeing 757 vélarn-
ar sem eru mjög eftirsóttar meðal
flugfélaga í heiminum. Þá eru fast-
eignir bókfærðar á ríflega 1,5 mill-
arða.
Skuldamegin í efnahagsreikningi
sést að langtímaskuldir námu alls
13,9 milljörðum og hafði sú stærð
aukist um tæpa 2,4 milljarða eða
21% frá árinu áður. Skammtíma-
skuldir námp 2,8 milljörðum og juk-
ust um 3%. í því sambandi má nefna
að veltufjárhlutfall er svipað og
árið áður eða 1,14.
Eigið fé Flugleiða var um ára-
mótin 4,4 milljarðar og jókst um
5% frá árinu áður. Eiginfjárhlutfall
var 21% og lækkaði úr 2396 vegna
aukinnar skuldsetningar. í stefnu-
yfirlýsingu Flugleiða kemur fram
að félagið hyggst ná a.m.k. 25%
eiginfjárhlutfalli og var í þessu
skyni veitt heimild til hlutaijárút-
boðs á aðalfundi félagsins 1991.
Ekki verður óskað eftir því á aðal-
fundinum í dag að hann framlengi
þessa heimild enda gefa aðstæður
á hlutabréfamarkaði um þessar
mundir ekki tilefni til bjartsýni um
sölu nýrra bréfa.
Tillaga verður lögð fram um að
greiddur verði 10% arður og gefin
út jöfnunarhlutabréf sem nemur
10% af hlutafé.
KB
EINAR
GRENSÁSVEGI10 - 128 REYKJAVÍK * SÍMI 633000
MANNESMANN
TÆLLY
Mannesmann Tally leggur nýjar línur í
geislaprentun meb MT904 + og MT908
geislaprenturunum. Ný tækni stóreykur
prentgæðin á sveigðum línum/Stóru letri,
myndum og teikningum.
Aðrir kostir nýju MT prentaranna:
• 4 og 8 bls. á mínútu
• jaðarjöfnun(EET)
• 1 MB minni
• umkvarðanlegar leturgerðir (scalable)
® MT908 útbúinn með RISC örgjörva
• uppfæranlegir í PostScript
• ódýrir í rekstri
• tviÍArt h^ncf-OQtt \/or^
Nýjar línur
í geislaprentun