Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
Sjónarhorn
Ný og ódýrari fjarskiptaþjónusta
m
j 1
iL&É&AwnÉaiB&tis
SÖLUAÐILAR:
E TH. MATHIESEN HF.
PENNINN SF., HALLARMÚLA 2
E.TH. MATHIESEN HF,
BÆJARHRAUNI10 • HAFNARFIRÐi ■ SÍMi 651000
eftir Holberg Másson
Á síðustu vikum hafa erlend sím-
afélög boðið þjónustu sína á ís-
lenska markaðinum. Ekki er bara
verið að bjóða lægra verð en Póstur
og sími gerir, heldur og nýja þjón-
ustu fyrir viðskiptavini.
í febrúar var fyrirtækið Fónn hf.
stofnað m.a. til að bjóða viðskipta-
vinum hér á landi aðgang að ýmissi
nýrri þjónustu sem er á fjarskipta-
markaðinum og gæti verið áhuga-
verð fyrir íslendinga og íslensk fyr-
irtæki. Vert er að taka fram að
þegar Fónn hf. var skráð hjá Hag-
stofunni, var ekki mögulegt að skrá
félagið sem fyrirtæki er byði síma-
eða fjarskiptaþjónustu!
Fyrsta þjónustan sem Fónn hf.
Disklingar
allar geröir
Nú 11 fyrír sama verð og 10
Arvík
ÁRMÚL11, REYKJAVÍK, SÍMI687222, TELEFAX 687295
býður er boðin af bandaríska síma-
félaginu IDT sem rekur tækjabúnað
í New York sem leyfir aðgang að
bandaríska símakerfinu og þjónustu
og gjaldskrá þess. IDT semur síðan
við stóru bandarísku símafélögin
sem hafa línur til annara landa, svo
sem Islands, um aðgang að þjón-
ustu þeirra. Ef þjónusta IDT í
Bandaríkjunum er notuð til að
hringja til íslands kemur reikning-
urinn til viðskiptavinar IDT frá t.d.
AT&T, sem greiðir Pósti og síma
gjald fyrir þann hluta af þjónustu-
keðjunni sem er hér á landi. Það
sem Póstur og sími er óánægður
með er að með þessu kemur lægri
upphæð til þeirra en ef hringt væri
héðan til Bandaríkjanna. Póstur og
sími fengi sennilega svipað greitt,
sama í hvora átt væri hringt til eða
frá Bandaríkjunum, væru gjöld
þeirra fyrir símtöl til útlanda ekki
svona há. Það er athyglisvert að
innan Evrópska efnahagssvæðisins,
skuli einungis símagjöld frá Banda-
ríkjunum til Portúgals vera hærri
en frá Bandaríkjunum til íslands.
IDT 40-60% ódýrari
í grein á viðskiptasíðu Morgun-
blaðsins í síðustu viku um gjaldskrá
Póst og síma, sem var skrifuð af
blaðafulltrúa Pósts og síma, var
tekin óstinnt upp sú umræða sem
hafin er um stofnunina. M.a. var
gerð athugasemd við nokkur atriði
sem komið var inná í viðtali við
undirritaðan viku áður á viðskipta-
síðu Morgunblaðsins og verður
nokkrum þeirra atriða gerð skil hér
á eftir.
I verðsamanburði sem Fónn hef-
ur sent frá sér um verð á þjónustu
IDT annars vegar og Pósts og síma
hins vegar má vísa til meðfylgjandi
töflu, sem er byggð á sama grunni
og samanburður Pósts og síma,
þ.e.a.s miðað er við 7 mínútna sím-
tal við Bandaríkin. Niðurstaða okk-
ar er að fyrir flesta sem nota þjón-
ustu IDT er þjónustan 50-60% ódýr-
ari en gjaldskrá Pósts og síma, í
sumum tilfellum er hún reyndar
yfir 65% lægri en aldrei minna en
40% ódýrari. Miðað er í öllum tilfell-
um við að notkunin fari í að minnsta
kosti 10-15 mínútur á dag, þ.e.a.s.
þá er búið að greiða mánaðarlegu
áskriftina til IDT sem í dag er USD
250 og farið að nýta lægri gjald-
skrá. Þeim viðskiptamönnum sem
nota þessa þjónustu býðst eining
svokölluð símkort, sem þeir geta
skuldfært símtöl á, frá nánast öllum
símum þar á meðal hótelsímum um
nánast allan heim, á gjaldskrá
bandarísku símafélaganna.
Á samkeppnismarkaði er mjög
eðlilegft að boðin sé ýmis þjónusta
til markhópa á mismunandi verði,
samanber verð á flugfargjöldum,
þar sem flugfélög bjóða mismun-
andi kjör fyrir hina ýmsu mark-
hópa, þó ferðast sé með sömu flug-
vélinni. Þannig býður Póstur og sími
hæsta verðið, AT&T býður annað
verð fyrir sína viðskiptavini sem
eftir atvikum getur verið lægra en
verð Pósts og síma eða allt að 35%
og IDT býður fyrst og fremst fyrir-
tækjum lægsta verðið, enda er þar
miðað við magnkaup á þjónustu.
Verið er að skoða af hálfu IDT að
bjóða svipaða þjónustu á næstu vik-
um sem væri sniðin að þörfum
þeirra sem þurfa að hringa minna.
Ekki við Póst og síma
að sakast
Með lögum sem Alþingi setti á
sínum tíma, var Póst- og símamála-
stofnunni falið að fara með einka-
leyfí til að veita ýmsa þjónustu,
þ.á.m. fjarskiptaþjónustu og dreif-
ingu pósts. Komið hefur fram að
samgönguráðherra er að láta vinna
áætlun um að breyta Pósti og síma
í hlutafélag og verið er að skoða
hvernig best verði komið á eðlilegri
samkeppni á fjarskiptamarkaðinum
í áföngum, þannig að íslensk fyrir-
tæki geti farið að bjóða þjónustu á
þessu sviði.
Að nokkru leyti er Póst- og síma-
málastofnun barn síns tíma sem
hefur, eins og Evrópubandalagið
bendir réttilega á um önnur símafé-
lög í Evrópu, ekki fylgt eftir hröðum
tæknibreytingum og breytingum
sem hafa orðið á þjónustustigi, en
gera má ráð fyrir stökkbreytingu
þegar búið er að breyta um form á
Pósti og síma og afnema einkaleyfi
á ijarskiptaþjónustu í einhveijum
áföngum á næstu árum. Má gera
sér vonir um við séum að sjá fyrstu
skrefin stigin í spennandi þátttöku
Flugleiðir flytja
frakt til og frá
Evrópu í stórum stíl
Fraktvélar Flugleiða fljúga á sunnu-
dögum, og oftar ef þarf, til og frá
Evrópu, nánar tiltekið Oostende í
Belgíu. Burðargeta fraktvélanna er 45
tonn og því eru þessar ferðir tilvaldar
fyrir þá sem þurfa að flytja vörur í
stórum einingum eða miklu magni.
Starfsfólk Flugleiða aðstoðar viðskipta-
vini sína fúslega við að koma fraktinni
á endanlegan áfangastað ef á þarf að
halda. Daglegt áætlunarflug Flugleiða
er síðan til 15 landa og þangað flytja
Flugleiðir að sjálfsögðu einnig frakt.
Nánari upplýsingar í síma 690 101.
FLUGLEIDIR
F R A K T
íslendinga í verulega aukinni þjón-
ustu á sviði fjarskipta, hvort sem
er tölvu-, gagna- eða símaijarskipta
eða þjónustu við dreifíngu upplýs-
inga og aðgangi að þeim í gegnum
fjarskiptanet.
Verð á símtali milli íslands og
Bandaríkjanna
Tímabil, ísl. tími
8-12
12-18
Póstur og sími (m. VSK)
114,00
114,00
AT&T, „Bandar. beint“
105,69
105,69
Póstur og sími (án VSK)
91,57
91,57
IDT (með 3% sk.)
38,89
43,97
Miðað er við USD 60 ÍKR, og 7 mín-
útna samtal sem er algengasta lengd
samtals samkvæmt upplýsingum Pósts
og síma.
Höfundur er framkvæmdnstjóri
Fóns hf.
VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF
DAGBÓK
Mars
FUNDIR:
■ NESU-nefnd félags við-
skiptafræðinema efnir til mál-
fundar um vaxtamál á Islandi
fímmtudaginn 19. mars kl.
15.15 í sal 4 í Háskólabíó.
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, Einar Oddur Krist-
jánsson, ýormaður VSÍ og
Ragnar Onundarson, fram-
kvæmdastjóri hjá Islands-
banka munu flytja framsögu-
erindi og að því loknu verða
fyrirspurnir utan úr sal og
umræður um þær.
■ Verslunarráð íslnnds held-
ur morgunverðarfund fimmtu-
daginn 19. mars í Átthagasal
Hótel Sögu kl. 08.00-09.30. Á
fundinum verður rætt um ijár-
festingu erlendra aðila í ís-
lenskum sjávarútvegi. Leitað
verður svara við spurningunni
hvort erlend aðild að þessari
atvinnugrein sýnist til bölvunar
eða blessunar. Frummælendur
verða Þorsteinn Pálsson, sjáv-
arútvegsráðherra, Gestur
Jónsson, hæstaréttarlögmað-
ur, Friðrik Jóhannsson, for-
stjóri Fjárfestingarfélags ís-
lands hf. og Kristinn Björns-
son, forstjóri Skeljungs hf.
Fundarstjóri verður Haraldur
Haraldsson, forstjóri Andra
hf. Tími gefst fyrir athuga-
semdir, fyrirspurnir og svör.
Fundurinn er öllum opinn, en
þátttöku þarf að tilkynna fyrir-
fram í síma 676666. Þátttöku-
gjald er 1.000 kr.
■ Ráðstefna um framtíð
íslensks húsgagna- og inn-
réttingaiðnaðar verður haldin
þriðjudaginn 24. mars á Hótel
Holiday Inn. Að ráðstefnunni
standa: Félag húsgagna og inn-
anhúsarkitekta, Félag hús-
gagna- og inr.réttingaframleið-
enda, Félag starfsfólks í hús-
gagnaiðnaði, Iðja, Iðnaðarráðu-
neytið, Landssamband iðnaðar-
manna og Meistarafélag hús-
gagnabólstara. Á ráðstefnunni
verður kynnt stefnumótunar-
verkefni í húsgagna- og inn-
réttingaiðnaði sem ofangreindir
aðilar hafa í sameiningu ákveð-
ið að hrinda í framkvæmd.
Gert er ráð fyrir að í framhaldi
af þessu verkefni komi önnur
s.s. á sviði gæðamála og mark-
aðsmála.